Morgunblaðið - 09.10.1979, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1979
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
I0100KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
•jm/jMnosaB'iJU
þurfa að borga ríkissjóði milljónir
í tolla fyrir þann „munað“ að geta
eignast bíl, sem í hans tilviki er
ekkert annað en fætur hins fatl-
aða. Tómas Árnason: Ég veit að þú
ert maðurinn til að kippa þessu í
lag.
Ragnar Tómasson,
• Morðvopn í
líki leikfanga
Mig langar til að þakka Sig-
ríði Gottskálksdóttur fyir bréf
hennar í Mbl. 30. 9. s.l. Það var góð
og þörf ábending.
Eg á sjálf dreng, tæplega 3ja
ára og hann hefur hvorki eignast
byssu né önnur drápsleikföng og
mun ekki fá þau í hendur meðan
við foreldrar hans getum ein-
hverju ráðið.
En það verður sjálfsagt þungur
róðurinn hjá okkur þegar vinirnir
og leikfélagarnir eiga yfirleitt
þess konar leikföng. Við munum
ekki pakka byssu í jólapappír til
að gefa syni okkar og ég á ekki von
á slíkri sendingu frá hans nánustu
enda höfum við ekki farið dult
með álit okkar á slíkri fram-
leiðslu.
En ég þekki fólk sem er undr-
andi á afstöðu okkar. Ég tel að það
væri mjög gott að banna innflutn-
ing og sölu á hvers kyns stríðstól-
um og morðvopnum í líki leik-
fanga eins og Svíar hafa gert.
En það þarf fleira að koma til '
en bara að banna. Það þarf að
reyna að sjá til þess að þetta verði
ekki eftirsóttir hlutir. Á sjálfu
barnaári ætti áróður gegn slíkum
leikföngum að vera sjálfsagður.
Senn skellur jólagjafaflóðið yfir
og á jólum barnaárs ættu ekki að
finnast stríðstól í formi leikfanga
í einum einasta jólapakka. Því ég
vona að allir þeir er gefa börnum
jólagjafir hugsi um að gjöfin
gleðji barnið eða að það hafi þörf
fyrir hana. Drápstól ættu hvorki
að vera barni þörf eða gleðigjafi.
Vinsamlegast staldrið því við og
hugsið. Finnst ykkur ekkert
óhugnanlegt eða athugavert við að
jafnvel 2ja ára gömul börn
„skjóti" foreldra sína.
H.H. Hafnarfirði
• Pennavinir
í Suður-Kóreu
Velvakanda hefur borist bréf
frá Miss Park, Jeong Yi, sem er
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pitursson
Á samsovézka úrtökumótinu í ár,
sem fram fór í Beljzakh kom þessi
staða upp í skák þeirra Kajumovs
og Marjasins,
26. . .Hhl+! 27. Kxhl Hf6 28.
Bxf4 Hg6+ og hvítur gafst upp.
Þeir Rashkovsky og Lerner urðu
jafnir og efstir á mótinu. Sigur-
vegarinn á mótinu fær sæti í
úrslitum Skákþings Sovetríkj-
anna, en átta næstu menn öðlast
rétt til þátttöku í 1. deildarkeppn-
inni, þar sem þeir ásamt tlu
öðrum tefla um réttinn til þátt-
töku í skákþinginu.
kennari í Seoul, höfuðborg Suður-
Kóreu. í bréfi sínu segir Park
meðal annars:
„Ég kenni ensku og er skátafor-
ingi í Gang won-unglingaskólan-
um hér í Seoul. Um 2.500 ungl-
ingar af báðum kynjum eru við
nám í skólanum. Marga þeirra
langar til að skrifast á við erlenda
unglinga og biðja mig oft um að
reyna að útvega sér pennavini.
Þær einu upplýsingar sem ég
þarf að fá með hverju bréfi er
nafn, heimilisfang, kyn, aldur,
áhugamál og mynd ef mögulegt er.
Ég vona að ég eigi eftir að fá mörg
bréf frá þeim lesendum þínum
sem langar til að skrifast á við
kóreanska unglinga."
Heimilisfang Miss Park Jeong
Yi er:
Gang won high school
K.P.O. Box 141
Seoul 110,
Kórea.
Þessir hringdu . . .
• Þakkir
Maria hringdi til Velvakanda
og vildi þakka fyrir ánægjulega
miðdegissögu í s.l. viku, „Eftir-
minnilega Grikklandsferð í
sumar", sem Sigurður Gunnarsson
fyrrverandi skólastjóri las. Kvað
hún söguna hafa verið skemmti-
lega og vel lesna og sagðist hafa
haft ánægju af að hlusta á lestur-
inn.
Einnig vildi María lýsa ánægju
sinni með þátt Jónasar Jónasson-
ar, „Daga á Norður-írlandi" sem
fluttur var s.l. sunnudag.
Hversvegna ad
burðast með
allt í fanginu
fötu sbrúbb þvottaefni og flr.
Hvað með tveggja fötu skruggukerru.
sem eyðir engu. kemst yfir 20 km/klst.
og erótrúlega lipur í umferðinni?
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
STEINARS HF.
SKEIFUNNI 6 simar: 335 90-3 5110
varahiutir
i bílvélar
Stimplar,
slífar og hringir
Pakkningar
Vélalegur
Ventlar
Ventilstýringar
Ventilgormar
Undirlyftur
Knastásar
Tímahjól og keðjur
Olíudælur
Rokkerarmar
ÞJÓNSSON&CO
Skeifan17 s. 84515 — 84516