Morgunblaðið - 23.10.1979, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 23.10.1979, Qupperneq 1
233. tbl. 66. árg. ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Þýzk sameining baráttumál Hua Honn. 22. okt. AP HUA Kuo-feng forsætisráðherra hvatti í dag til sameiningar Þýzka- lands og skoraði á „friðelskandi þjóðir“ að sameinast gegn „yfir- drottnunarstefnu“. það er Sovét- rikjunum. Hann hrósaði líka Vestur-Evrópu fyrir að gegna auknu hlutverki í heimsmálunum í veizluræðu að loknum fyrsta viðræðudeginum með vestur-þýzkum leiðtogum. Hann varaði við „tilhneigingu til aukinnar ókyrrðar og spennu“ hvarvetna í heiminum og sagði Vestur-Þjóðverjum að þeir og Kínverjar stæðu andspænis „sam- eiginlegu verkefni", það er að varð- veita heimsfriðinn og berjast gegn árás og stríði. Ræða Hua hafði að geyma færri árásir á Rússa en ræða sem hann flutti í París fyrir réttri viku þegar fjögurra landa ferð hans hófst. Vestur-þýzkir embættismenn, sem telja sambandið við Moskvu mikil- vægt, höfðu vonað að hann forðaðist að snúa heimsókninni upp í kross- ferð gegn Rússum. Brezk stjórn í Rhódesíu boðuð Londun. 22. uktóber. Rrutrr. BRETAR kunngerðu i dag fyrirætlanir um að senda landstjúra til Zimbabwe Rhódesíu til að stjórna landinu um nokkurt skeið meðan hrundið verður í framkvæmd friðaráætlun scm leiðir til nýrra kosninga og löglegs sjálfstæðis. Áætlunin er háð samkomuiagi á Rhódesíu-ráðstefnunni og ef hún verður að veruleika fær brezka krúnan fyrsta landstjóra í landinu síðan 11. nóvember 1965. En víst er talið að tillögurnar mæti harðri andstöðu allra deiluað- ila. Jafnvel áður en viðræður hófust í dag gekk Abel Muzorewa biskup á fund brezka utanríkisráðherrans, Carrington lávarðar, og lagðist gegn fyrirætlunum Breta um að leysa upp stjórn hans og þingið til að láta landstjóra stýra landinu. Jafnframt mótmælti Joshua Nkomo brezkum ákvæðum um tveggja mánaða brezka stjórn, en skæruliðar vilja sex mánaða umþótt- unatima fram að kosningum, og gaf til kynna að hann væri mótfallinn svo víðtækum völdum Breta í land- inu. Samkvæmt áætlun Breta verða yfirmenn öryggissveita Rhódesíu ábyrgir gagnvart brezka landstjór- anum og hann mundi taka við yfirstjórn lögreglunnar til að halda uppi lögum og reglu. Tilvonandi landstjóri verður líklega skipaður fljótlega. Vísað er á bug útbreiddum bollaleggingum blaða um að hann verði Harlech lávarður, fyrrverandi sendiherra í Washington. Helmut Schmidt kanzlari tekur á móti Hua Kuo-feng fyrir utan embættisbústað sinn i Bonn. Litlum breytingum er spáð í Danmörku Frá fréttaritara Morgunblaðsins í Kaupmannahöfn í gær. „JAFNAÐARMENN fara í stjórn- arandstöðu ef þeir tapa fleiri en tveimur þingsætum í kosningunum á morgun,“ sagði varaformaður flokksins, Kjeld Oiesen, á fundi með erlendum fréttamönnum i dag. Ef engin veruleg breyting verður á styrkleikahlutföllum er flokkurinn fús að mynda minnihlutastjórn. bætti hann við. Sennilega leiðir þetta til þess að Íhaldsflokkurinn. Vinstri flokkur- inn, miðdemókratar og róttækir — hinn svokallaði fjórblaðasmári — myndi minnihlutastjórn. En i loka- umræðum leiðtoga stjórnmála- flokkanna í danska útvarpinu kom fram verulegur ágreiningur um stefnuna i verðbólgumálunum. Flokkarnir eru þó sammála um að koma á kaupgjalds- og verðlags- stöðvun. Leiðtogi miðdemókrata, Erhard Jacobsen vill undir engum kringumstæðum samþykkja niður- skurð á félagslegum styrkjum og eftirlaunum, atvinnuleysisgreiðslum og sjúkradagpeningum, en hinir flokkarnir þrír í fjórblaðasmáranum eru því hins vegar fylgjandi. Fjórblaðasmárann skortir mörg þingsæti til að fá meirihluta. Mog- ens Glistrup úr Framfaraflokknum hefur boðið samstarf. í sjónvarps- umræðunum í gærkvöldi bauð hann fulltrúum fjórblaðasmárans til fundar um stjórnarmyndun kl. 14 á fimmtudag, en Henning Christo- phersen utanríkisráðherra úr Vinstri flokknum vísaði boðinu ákveðið á bug. Erhard Jacobsen og Poul Schluter úr íhaldsflokknum voru jákvæðari. Samkvæmt síðustu skoðanakönn- unum virðist Ijóst að íhaldsflokkur- inn verði sigurvegari kosninganna ásamt vinstri-sósíalistum og Sósíal- istiska þjóðarflokknum. Jafnaðar- menn virðast munu fá sömu þing- mannatölu, eða 65, íhaldsmenn munu bæta við sig fimm þingsætum og fá 20, en Vinstri flokkurinn, miðdemókratar og kristilegir munu bæta við sig eða tapa einu sæti hver. Kjörstöðum er lokað kl. 8 og von er á heildarúrslitum kl. 11.30 (ísl. tími>- - Larsen Kominn heim Moskvu. 22. okt. AP — Reuter' ANDREI Kirilenko stjórnmála- ráðsfulltrúi kom aftur til Moskvu í gær frá Búdapest þar sem hann var fimm daga í hcimsókn. Fjarvera hans frá Moskvu átti mestan þátt i að kveða niður sögusagnir um að Leonid Brezhnev forseti væri lát- inn. Kirilenko er líklegur eftirmaður Brezhnevs að dómi sérfræðinga. Hann er annar af tveimur riturum miðstjórnarinnar sem taka að sér störf Brezhnevs í fjarveru hans. Handtökur við upphaf réttarhaldanna í Prag Prax. 22. október. AP. Reuter. LÖGREGLA handtók rúmlega 10 manns við réttarhöld sex baráttu- manna mannréttinda sem eru ákærðir fyrir undirróður og voru leiddir fyrir rétt í Prag í dag. Andófsmenn sögðu að meðal hinna handteknu væru nokkrir úr hópi stuðningsmanna sem stóðu handan götunnar við dómshúsið. Einnig var handtekinn stuðningsmaður inni í byggingunni sem opnaði glugga til að tala við félaga sina fyrir utan. Agizkanir andófsmanna um tölu hinna handteknu eru á bilinu 13 til 25. Þeim var seinna sleppt. Þrír sakborninganna héldu fram inguna 1977, er niðurkomin eða sakleysi sínu og einn neitaði að svara spurningum. Seinna hermdu fréttir að leikritahöfundurinn Vaclav Havel, kunnasti sakborn- ingurinn, trotzkyistinn Petr Uhl og allir hinir sakborningarnir hefðu haldið fram sakleysi sínu. Andófsmenn segja að kona Uhls hafi verið ein hinna handteknu. Ekki er vitað hvar dr. Jitka Schanilova, kona eins þeirra sem undirrituðu mannréttindayfirlýs- hvort konurnar hafa verið ákærð- ar. Yfirvöld í Prag bönnuðu öllum nema ættingjum að sækja réttar- höldin og meinuðu seinna frétta- mönnum, sendiráðsmönnum og stuðningsmönnum að fara inn í bygginguna, án þess að gefa skýr- ingu. Sakborningarnir eru allir ákærðir fyrir að vera meðal stofn- enda samtaka sem var komið á fót 1978 til að hjálpa öðrum andófs- mönnum. Yfirvöld segja að sam- tökin hafi verið ólögleg og að félagar þeirra hafi hjálpað áróðri er stjórnað sé frá Bandaríkjunum gegn ættjörðinni. Sakborningarnir eiga yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsi. Andófsmenn segja að fyrrver- andi fréttaskýrandi sjónvarps, Jiri Dienstbier, fyrrverandi talsms'-'r mannréttindahreyfingarinnar, Vaclav Bendam, og frú Dana Nec- ova, leiðtogi hóps kaþólskra and- ófsmanna og sjö barna móðir, hafi haldið fram sakleysi sínu. Frú Otta Bendnarova, fyrrver- andi blaðamaður, neitaði að lýsa sig seka eða saklausa eða að svara spurningum. Henni var neitað um leyfi til að lesa yfirlýsingu til að útskýra neitun sína, en yfirlýsing- in var látin fylgja gögnum málsins. Konu Uhls var vísað burt úr réttarsalnum þegar yfirdómarinn sagði henni að hún mætti aðeins skrifa minnispunkta með leyfi réttarins. Þegar hún bað um leyfi var henni sagt að þegja og grípa ekki fram í yfirheyrslurnar. Sjónarvottar segja að hún hafi verið dregin æpandi út úr bygging- unni með báðar hendur fyrir aftan bak og færð á lögregluvarðstofu. Meðal þeirra sem fengu ekki að fylgjast með réttarhöldunum var Henry Goldman austurrískur full- trúi Amnesty International. Réttarhöldin eru einhver hin mestu sinnar tegundar í Austur- Evrópu síðan Helsinki-yfirlýsingin um mannréttindi var undirrituð 1975. Jiri Dienstbier Frú Otta Bednarova Frú Dana Nemcova Vaclav Havel Peter Uhl Vaclav Benda

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.