Morgunblaðið - 23.10.1979, Page 2

Morgunblaðið - 23.10.1979, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979 Þorkell Valdimarsson; Gaf Kjarvals- stöðum máKirk eftir Kjarval NÝLEGA afhenti Þorkell Valdi- marsson stjórn Kjarvalsstaða fyrir hönd Reykjavíkurborgar málverk af Dyrfjöllum eftir Jó- hannes Kjarval. Myndin er máluð á tímabilinu frá 1930—35 og afhenti Þorkell gjöfina á afmælis- degi listmálarans hinn 15. októ- ber. Málverkið hangir nú á skrifstofu listráðunauts Kjarvals- staða, en fyrirhugað er að mál- verkið verði sett á sýningu með öðrum verkum meistarans svo fljótt sem auðið er. Formaður stjórnar Kjarvals- staða, Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, veitti málverkinu viðtöku. Júpiter kemur með um 900 tonn til löndunar í Reykjavik, en til hægri á myndinni er Guðmundur, sem verið ____________ var að landa úr. (Ljósm.: Jón P. Ásxeirsson). Verða veiðarnar stöðv- aðar við 400 þús. tonn? Fundur íslenzkra og norskra fiskifræðinga í næstu viku ENGAR ákvarðanir hafa verið teknar um stöðvun loðnuveið- anna, en frá því á miðju sumri hafa verið veidd um 480 þúsund tonn úr íslenzka loðnustofninum. Norðmenn veiddu um 120 þúsund tonn á Jan Mayen-svæðinu og íslendingar hafa veitt um 360 Vinstri menn unnu í 1. des. kosningunum í KOSNINGUM til hátíðarnefndar vegna 1. desember í Háskóla íslands í gær féllu atkvæði þannig; A-listi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúd- enta, hlaut 323 atkvæði. B-listi, félags vinstri manna, hlaut 499 atkvæði. 29 seðlar voru auðir og ógildir. Alls kaus því 851 háskóla- stúdent og er það um 30% kjörsókn. þúsund tonn. Flogið hefur fyrir að sjávarútvegsráðherra boðaði bann við loðnuveiðunum þegar islenzki flotinn hefði náð 400 þúsund lestum, sem gæti orðið um mánaðamótin. Kjartan Jóhannsson sjávarút- vegsráðherra hefur beitt sér fyrir fundi norskra og íslenzkra fiski- fræðinga í Reykjavík í næstu viku. Sagði hann í gær, að ákvörðun um takmarkanir á loðnuveiðunum yj'ði tekin á grundvelli þess fund- ar. Jakob Jakobsson fiskifræðingur sagði í gær, að þessi fundur yrði á þriðjudaginn í næstu viku. Þar yrði gerð úttekt á tveimur sameig- inlegum leiðöngrum fiskifræð- inganna í sumar, en í þeim voru gerðar umfangsmiklar stofn- stærðarmælingar, og einnig Ieið- angri, sem nú stendur yfir undir stjórn Hjálmars Vilhjálmssonar. Jakob sagði í gær, að æskilegra hefði verið að þessi fundur hefði verið haldinn fyrr, en það væri eðlilega þyngra í vöfum með slík fundarhöld þegar fulltrúar tveggja þjóða tækju þátt í þeim. Hann sagði að alltaf hefði verið gert ráð fyrir því, að ef um einhverjar breytingar yrði að ræða frá fyrri tillögum um 600 þúsund lesta hámarksafla í haust og næsta vetur, yrðu þær gerðar á sameiginlegum fundi íslenzkra og norskra fiskifræðinga. Skoðanakönnun Dagblaðsins: Mikið fylgistap Alþýðu- flokksins SAMKVÆMT skoðanakönn- un, sem Dagblaðið hefur framkvæmt og birt var í gær myndi Sjálfstæðisflokkur- inn bæta við sig verulegu fylgi ef Alþingiskosningar færu fram nú, Framsóknar- flokkurinn myndi einnig bæta við sig talsverðu fylgi, Alþýðubandalagið myndi tapa örlitlu en fylgishrun yrði hjá Alþýðuflokknum. í könnuninni voru 300 manns spurðir, þar af helmingur á Stór-Reykjavíkursvæðinu. 38% þeirra sem spurðir voru vildi ekki svara eða höfðu ekki myndað sér skoðun og tekur Dagblaðið sérstaklega fram að taka þurfi niður- stöðunni með varúð. Ef aðeins eru tekin svör þeirra sem afstöðu tóku myndi Alþýðuflokkurinn fá 12,8% atkvæða og 7—8 þing- menn, tapa 6—7 þingmönn- um, Framsóknarflokkurinn myndi fá 21,9% atkvæða og bæta við sig einum þing- manni, Sjálfstæðisflokkurinn myndi fá 43,3% atkvæða og bæta við sig 6—7 þingmönn- um og Alþýðubandalagið myndi fá 21,9% atkvæða og tapa einum þingmanni. Sjálfstæðismenn á Vestfjörðum: Matthías, Þorvaldur og Sigurlaug skipa efstu sæti framboðslistans Upplýstu víðtæka fíkniefnadreifingu FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis- flokksins á Vestfjörðum við al- þingiskosningarnar í desember hefur verið ákveðinn. Fimm efstu sæti listans skipa: Matthias Bjarnason alþingismaður, tsafirði, Þorvaldur Garðar Kristjánsson al- þingismaður Reykjavik, Sigurlaug Bjarnadóttir frá Vigur, mennta- skólakennari Reykjavík, Einar K. Guðfinnsson háskólanemi Bolung- arvik, og ólafur H. Guðbjartsson húsgagnasmiðameistari Patreks- firði. Á fundi kjördæmisráðs Sjálf- stæðisflokksins á Vestfjörðum um helgina var ákveðið að efna ekki til prófkjörs að þessu sinni, vegna tímaskorts og hættu á samgöngu- RANNSÓKN er Iangt komin á umfangsmiklum fíkniefnamál- um, sem verið hafa til athugunar hjá fíkniefnadeild lögreglunnar að undanförnu. Vegna rannsókn- arinnar sátu átta ungmenni í gæsluvarðhaldi í lengri eða skemmri tíma. Lengst sat ungur karlmaður í fangelsi eða i einn og hálfan mánuð. Honum var sleppt á laugardaginn. Guðmundur Gígja lögreglu- fulltrúi sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að upplýstur hefði verið innflutningur á marihuana, kókaíni og LSD frá Bandaríkjun- um og hassi, hassolíu og amfet- amíni frá Evrópu. Hann sagði að ekki lægju fyrir nákvæmar upp- lýsingar um magn fíkniefnanna ennþá, en magn kannabisefnanna skipti kílóum. Innflutningurinn hefur staðið yfir s.l. tvö ár en megnið var flutt inn á þessu ári. Fíkniefnin fóru öll á markað innanlands en ekki var nema hluti þeirra gerður upptækur. Sjálfstæðisflokkurinn: 5 efstu sæti D-listans í Norðurlandi vestra Á fundinum var ákveðið hverjir skyldu skipa 5 efstu sætin, en stjórn kjördæmisráðs falið að ganga frá listanum að öðru leyti þar sem allir viðkomandi voru ekki til staðar. Fimm efstu sæti listans skipa: KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðis- flokksins í Norðurlandskjördæmi vestra hélt fund á Sauðárkróki síðastliðinn laugardag til þess að ræða framboðsmál vegna væntan- legra Alþingiskosninga. Nokkrar umræður urðu um hvort viðhaft skyldi prófkjör, en síðan var ákveð- ið að sá háttur skyldi ekki hafður á. Kjörnefnd starfaði á fundinum og var hcnni falið að gera tillögu um framboðslista og lagði hún til, að hann yrði óbreyttur frá síðustu kosningum, að þvi tilskildu að allir þeir sem þá skipuðu listann féllust á að taka sæti á honum nú. l.Pálmi Jónsson, fyrrverandi alþing- ismaður, Akri, A-Hún. 2. Eyjólfur Konráð Jónsson, fyrrverandi alþing- ismaður, Reykjavík. 3. Jón Ásbergs- son, framkvæmdastjóri, Sauðár- króki. 4. Ólafur B. Óskarsson, bóndi, Víðidalstungu, V-Hún. 5. Þorbjörn Árnason, bæjarfulltrúi, Sauðár- króki. Tel ad ég geti unnið Reykvíkingum gagn á þingi jafnframt störf- um í borgarstjórn - segir Birgir ísl. Gunnarsson MORGUNBLAÐIÐ leitaði til Birgis ísleifs Gunnarssonar og innti eftir þvi hvaða ástæður hefðu orðið til þess að hann gefur kost á sér í prófkjör og í framhaldi af þvi hvort það myndi hafa einhver áhrif á störf hans í borgarstjórn, sem oddvita núverandi minnihluta. Svaraði Birgir ísleifur á þessa leið: — Margir hafa spurt mig að því hvort framboð mitt til prófkjörs fyrir þessar þingkosn- ingar þýði það að ég hyggist hætta þátttöku í borgarmálum. Því fer víðs fjarri. Ég vil taka það skýrt fram að þótt prófkjör og alþingiskosningar færðu mér þingsæti þá hefi ég ekki hugsað mér að slaka neitt á í borgar- málum. Hvorki starf borgarfull- trúa né þingmennska eru fullt starf og geta þessi störf því farið vel saman, enda mörg fordæmi fyrir því að menn gegni þeim samtímis. Og ég tel að ég geti Birgir ísl. Gunnarsson. unnið Reykvíkingum gagn með því að sitja á þingi jafnframt störfum í borgarstjórn. Borgar- stjórnarkosningar verða ekki fyrr en eftir 2Ví ár. Mér finnst alltof snemmt að spá fyrir um það nú hvað þá tekur við. Ákvörðun um það verður að bíða betri tíma. erfiðleikum. Tillaga um prófkjör var felld með 28 atkvæðum gegn 22. Samþykkt var á fundinum að Matthías Bjarnason skipaði efsta sæti listans, mótatkvæðalaust. Þá var kosið á milli þeirra Þorvaldar Garðars og Sigurlaugar í annað sætið. Hlaut Þorvaldur Garðar 30 atkvæði, en Sigurlaug 18. Að því loknu var samþykkt samhljóða að Sigurlaug skipaði þriðja sætið. Um skipan fjórða sætis framboðslistans var kosið milli þeirra Einars K. Guðfinnssonar í Bolungarvík, og Ólafs Kristjánssonar í Bolungarvík, og hlaut Einar 30 atkvæði en Ólafur 12. Þeir Jóhannes Árnason sýslu- maður Barðstrendinga og Engilbert Ingvarsson bóndi á Mýri, er skipuðu fjórða og fimmta sæti framboðslist- ans við síðustu kosningar, óskuðu ekki eftir að skipa þau sæti að þessu sinni. Stöðug veiði alla helgina STÖÐUG loðnuveiði var alla helgina og cru sjómenn lítt hrifnir af þeim umræðum, sem nú fara fram um stöðvun loðnuveiðanna á næstunni. Finnst þeim mörgum hverjum, að meiri loðnu sé að finna nú en oftast áður og að tillögur fiskifræðinga frá síðasta vetri standist ekki lengur. Loðnuaflinn á vertiðinni er nú orðinn um 360 þúsund lestir, en frá hádegi á laugardag þar til síðdegis í gær tilkynntu eftirtalin skip um afla: LAUGARDAGUR: Ljósfari 580, Arnarnes 600, Skírnir 450, Helga Guðmundsdóttir 740, Gísli Arni 620, Hilmir 580, Guðmundur 770. Samtals & sólarhringnum 12 skip með 7330 lestir. SUNNUDAGUR: Þórður Jónasson 450, Sæbjörg 590, Jón Finnsson 550, Magnús 530, Bjf1;! Olafsson 1100, Örn 570, Skarðsvik 600, Gullberg 600, Harpa 570, Bergur 510, Svanur 650, Kap II 650, Pétur Jónsson 660, Hákon 650, Keflvíkingur 470, Sæberg 540, 37°. Júpiter 900, Stapavik o00, Oskar Halldórsson 440. Eldborg 1200. Oh Oskars 1300, Sigurfari 860. Alls 24 skip með 15.810 lestir. MÁNUDAGUR: Húnaröst 570, Hrafn 600, Bórkur 1030, Huginn 500.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.