Morgunblaðið - 23.10.1979, Qupperneq 3
3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979
LÆÐAN RANDÝ, sem búsett er
í Drápuhlið 28, Reykjavík, er
fjórtán ára gömul. S.l. föstudag
lagðist hún á sæng og kom i
heiminn, þó með erfiðismunum,
kettlingi. sem að sögn eigenda
Randýar, er einhvers staðar á
milli 100 og 150 í röð afkvæma
hennar um ævina. Samkvæmt
upplýsingum fróðra manna i
kattamálum, má telja eðlilegt,
að eitt kattár umreiknist i 7
mannsár, þannig að Randý er á
„mannsmælikvarða" um 98 ára
gömul. Kettir verða yfirleitt
10—14 ára gamlir, en þó þekkj-
ast dæmi um allt að 17 ára
ketti.
Það verður að teljast nokkuð
vel að verki staðið hjá Randý að
standa enn í að fjölga kynstofni
sínum á þessum aldri. En þó
gerðist það, sökum aldurs henn-
ar og viðkomu, að ekki tókst
betur til en svo á föstudaginn, að
Randý var að vonum hálfslöpp eftir keisaraskurðinn og allt tilstandið. Eún lét þó veikindi sin ekki
verða til þess að siðasta afkvæmið hennar fengi verri aðhlynningu en þau önnur sem hún hefur borið
í þennan heim, en þau telja á annað hundrað. Ljósm. Mbi. Kristján.
14 ára lœða lœtur
ekki að sér hœða
þegar kettlingurinn var kominn
í heiminn var útséð, að henni
myndi ekki takast að koma af
sér systkinum hans hjálparlaust.
Var þá farið með hana til
Brynjólfs Sandholts dýralæknis
sem setti hana samstundis á
skurðarborðið og skar keisara-
skurð. Aðgerðin varð þó nokkru
víðtækari, því ásamt því að
fjarlægja þurfti tvo andvana
kettlinga, varð að fjarlægja leg
og önnur líffæri því tengd.
Randý var nokkuð hress, er
blaðamaður og ljósmyndari Mbl.
heimsóttu hana á sængina í
eftirmiðdag í gær. Þórunn Elva,
eigandi hennar, hafði búið um
hana í stórum kassa og þar lá
hún með kettlinginn við bringu
sér. Sökum umbúða gat litla
skinnið þó ekki fundið matgjafa
sína, en Þórunn sagðist sjá um
að gefa honum mjólk með dropa-
teljara. Heimilisfólkinu bar
saman um að Randý væri sér-
staklega geðgóð og sannkallaður
barnavinur og væri hún yndi
hvers manns á heimilinu. Spurn-
ingu blaðamanns um hvort ekki
hefði reynst erfitt að koma
öllum afkomendum Randýar
fyrir í gegnum árin var svarað
neitandi. „Afkvæmin hafa ætíð
verið lík henni, hress og mynd-
arleg, og það hefur aldrei verið
vandamál að finna handa þeim
góð heimili."
„Þetta er með því elzta sem ég
hef fengist við, en læður eru þó
furðudrjúgar við að viðhalda
stofninum fram eftir aldri,"
sagði Brynjólfur Sandholt yfir-
dýralæknir, er Mbl. spurði hann
álits á afkastagetu Randýar. „Ég
er mjög ánægður með framför
Randýar miðað við þennan ald-
ur. Það er þó fyrirséð að hún
getur ekki átt fleiri kettlinga því
að ég varð að fjarlægja móðurlíf
hennar. Randý á því von á rólegu
ævikvöldi úr þessu, enda hefur
hún vel til þess unnið," sagði
hann að lokum. F.P.
Eigandi Randýar, ÞArunn, heldur hér á
afkvæminu i lófum «ér. Hugmynd er uppi
á heimilinu að sklra kettlinginn Bryndjólf
I höfuðið á Brynjólfi Sandholt dýralækni.
Vinkonur og nágrannar Þórunnar. ayat-
urnar Margrét og Stelnunn Blöndal fylgj-
ast spenntar með framförum Randýar og
kettlingsins.
Prófkjör
á Austur-
landi
AÐALFUNDUR Sjálfstæðis-
flokksins í Austurlandskjördæmi
var haldinn í Egilsstaðaskóla
laugardaginn 20. október sl. Á
fundinum voru framboðsmálin
rædd aimennt. sem og önnur
hagsmunamál kjördæmisins.
Samþykkt var að hafa prófkjör í
kjördæminu og er framboðsfrest-
ur til föstudagsins 26. þ.m. Próf-
kjörið sjálft fer fram 2. og 3.
nóvember. Á fundinum var kjörin
ný stjórn kjördæmisráðsins.
Formaður var kosinn Jóhann D.
Jónsson, aðrir í stjórninni eru
Theódór Blöndal, Seyðisfirði,
Ragnar H. Hall, Eskifirði, Albert
Eymundsson, Höfn Hornafirði, og
Bjarni Gíslason, Stöðvarfirði.
Tvær holur
horaðar
við Kröflu?
Iðnaðarráðuneytið athugar
þessa dagana möguleika á að láta
bora 1 eða 2 holur við Kröflu og
verður jafnvel ráðist í þessar fram-
kvæmdir í vetur. Bragi Sigurjóns-
son orkumálaráðherra sagði í sam-
tali við Mbl. í gær, að hann væri
hlynntur því að skoða mál þetta
frá öllum hliðum.
Ekkert verður þó gert á svæðinu
fyrr en að lokinni þeirri umbrota-
hrinu.sem búist er við á næstunni.
— Ég hef sagt, að þegar þessi
umbrotahrina væri afstaðin, þá
væri til skoðunar að endurmeta
stöðuna, sagði Bragi Sigurjónsson í
gær. — Það ,sem ég hef alltaf verið
hræddastur við persónulega, eru
umbrotin á svæðinu, sem gera allar
framkvæmdir tvísýnar, en einhvern
tímann verður að taka áhættuna,
sagði Bragi.
Ráðherrann sagði, að þótt talað
væri um rannsóknarholur, þá yrði
eðlilega um vinnsluholur að ræða ef
af framkvæmdum yrði og árangur-
inn yrði góður.
Ljósnt.: RAX.
Þessi mynd var tekin síðdegis í gær, er utankjörstaðakosning hófst í
Valhöll vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um næstu
helgi.
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík:
Utankjörstaðakosning hafín
Utankjörstaðakosning í
prófkjöri sjálfstæðismanna i
Reykjavik hófst i gær, og að sögn
Sveins Skúlasonar framkvæmda
stjóra Fulltrúaráðsins kusu
margir þegar fyrsta daginn og
virðist rikja mikill áhugi á
prófkjörinu.
Utankjörstaðakosningin fer
fram í Sjálfstæðishúsinu, Valhöll
við Háaleitisbraut, annarri hæð.
Kosið verður daglega klukkan 17
til 19 til föstudags, en á laugardag
verður kosið milli 14 og 17. Hinir
eiginlegu prófkjördagar eru síðan
tveir, sunnudagurinn 28. október,
þegar kosið verður milli klukkan
10 og 20, og mánudagurinn 29.
október, þegar kosið verður klukk-
an 15.30 til 20.
Atkvæðisrétt í prófkjörinu eiga
allir stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins í væntanlegum alþing-
iskosningum, sem náð hafa 20 ára
aldri 2. desember 1979 og lögheim-
ili áttu í Reykjavík 1. des. 1978.
Éinnig félagar í sjálfstæðisfélög-
unum í Reykjavík sem náð hafa 16
ára aldri og lögheimili eiga í
Reykjavík.
Húsmóðir
því ekki?
Prófkjör
Sjálfstæðis-
flokksins í
Reykjavík.