Morgunblaðið - 23.10.1979, Side 10

Morgunblaðið - 23.10.1979, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979 Rafbíll Háskólans: Getur strax komið í stað bensinbíla í bæjarakstri er nú lokiö en annar áfanginn framundan, að kanna hvernig rafbíll reynist í daglegri notkun og gera sér grein fyrir framtíðar- horfum í notkun rafbíla hérlendis. Háskólaráð samþykkti á sl. sumri að veita Verkfræðistofnun kr. 4 milljónir til að kaupa rafbíl og var hann keyptur frá bandaríska fyrirtækinu Jet Industries Inc. Var bíllinn undanþeginn innflutn- ingsgjöldum og tókst Gísla að fá keyptan bíl af gerðinni Electra Van 500 ásamt nauðsynlegum vara- og prófunarbúnaði, en fyrir- tækið neitaði í fyrstunni að selja bíl. A fundi með fréttamönnum kynnti Gísli bílinn og sagði að með aðstoð Landvéla hefði tekist að fá fyrirtækið til að láta bílinn af hendi, en hann væri fyrsti rafbíll, sem fyrirtækið seldi til útflutn- — segir Gísli Jónsson RAFMAGNSBlLL sá sem Há- skólinn keypti til landsins fyrr á árinu hefur nú verið i notkun nokkra hrið. en það er Gisli Jónsson próíessor, sem hefur haft veg og vanda af því að velja bílinn og fá hann hingað til lands. Hefur Gísli um nokkurra ára skeið annast rannsóknir á nýtingu raforku til flutninga í stað inn- flutts eldsneytis. Fyrsta áfanga þeirra rannsókna, að afla upplýs- inga um stöðu raíbíls í heiminum, Gísli Jónsson við stýrið. Billinn er hljóðlátur að undanskildum lágum nið þegar honum er ekið og kvað Gisli auðvelt að láta hann fylgja venjulegum umferðarhraða i bænum. Rafgeymarnir, sem knýja bilinn áfram, eru 16 og eiga að endast í 3—5 ár og hafa þá verið endur- hlaðnir 700—1000 sinnum. Louis Masterson RIO GRANDE I*uif var eins gott að deyja með skammi»yss« i hcntiinni eíns og aíi íirekka sig í hei... Nýjar bækur: Morgan Kane og S.O.S. HJÁ Prenthúsinu eru út- komnar tvær, bækur, Rio Grande og Úganda-ævin- týrið. Rio Grande er sautjánda bókin um Morgan Kane og segir frá viðskiptum hans við mexikanskan bófafor- ingja. Úganda-ævintýrið er önnur bókin í flokki um Stenger-sveitina, en í henni eru málaliðar, sem að þessu sinni taka sér það fyrir hendur að endurheimta fjársjóð auðugs Asíubúa úr klóm Idi Amíns. „Yið munum gera raflýsingu svo ódýra að einungLs þeir ríku geti notað kerti". THOMAS A. EDISON, OKTOBER 1879. „Við munum gera raflýsingu svo hagkvæma að einungis þeir ábyrgðarlausu haldi áfram að brenna kerti heimsins í báða enda 44 PHILIPS EINDHOVEN, HOLLANDI Hinn 21. október \ 1897, tókst Edison að koma fyrir koluðum bómullar-glóþræði inni í nærri loft- tæmdu glerhylki. Þegar peran var tengd við jafnstraum lýsti hún eins og „kvöldstjarna“. Uppfinningin var skráð í Bandaríkjunum sem einkaleyfi nr. 223.989, undir heitinu glópera. Þótt þessi snjalli, 32 ára gamli uppfinningamaður væri ekki upphafsmaður raflýsingarinnar, hafði hann unnið það snilldar- verk að gera hana raunhæfa og hagkvæma til almenningsnota. Ljósbogalamparnir voru of stórir, klossaðir og orkufrekir fyrir heimili og skrifstofur. Litlu ljósaperurnar hans Edisons voru 16 „kerta" og kostuðu aðeins 40 cent stykkið. 1. september 1882 var kveikt á mörgþúsund slíkum ? perum hjá fyrstu 85 rafmagns ‘ notendunum við Peral Street í New York. Edison hafði kveikt hugmyndina að rafvæðingunni, sem olli framfarastökki alls mannkyns í iðnþróun, auknum við- skiptum, heimilisþægindum og öryggi á götum úti. Aðeins 5% af orkunotkun iðnaðarþjóða er til raflýsingar, en vegna þess hve fljótlegt og auðvelt er að kveikja á henni og slökkva er hún augljós vettvangur orku- sparnaðar. 1 orkukreppunni á árunum 1973 og 1974 fór hugsandi fólk að íhuga hvaða ljós mætti slökkva. Eftir meira en 90 ár var heimurinn hættur að taka raflýs- inguna sem sjálfsagðan hlut. GUÐ SÉR FYRIR SÍNUM Fyrstu árin eftir að Edison gerði uppgötvun sína, höfðu menn engar x áhyggjur af orkusparnaði. Kol voru næg og nýjar olíulindir fundust í Pennsylvaníuríki árið 1859. j Sérfræðingarnir sögðu, að ef meiri J olíu þyrfti, þá væri bara að bora / 12 mílur niður í jörðina og þá fengist nær olía næstu milljón árin. Guð sæi fyrir sínum. En framleiðendur ljósaperunnar voru ekki á sama máli. Edison-rafljósafyrir- tækið, Peruverksmiðja Philips (sem hóf keppnina 1891 í Eindhoven, Hollandi) og önnur framtakssöm fyrirtæki leituð- ust við að bæta orkunýtnina allt frá upphafi. Ekki gátu þó þessi fyrirtæki séð fyrir, að orkulindir heims myndu fara þverrandi. Þau gerðu sér aðeins ljóst að viðskiptavinir þeirra þyrftu að borga rafmagnsreikningana og að rekstr- arsparnaður væri þess vegna aðalatriðið í vaxandi samkeppni. En hvað sem öðru líður, var aukin nýtni nauðsynlegur hvati til framleiðslu stærri og endingarbetri ljósapera. BARÁTTA ALDARINNAR - LÚMEN GEGN WATTI - BIRTA FYRIR ORKU Eins og lengd er mæld í metrum, er ljósmagn mælt í lúmenum og rafmagnsþörfin í wöttum. Lúmenið veitir ánægjuna, en wattið er það sem hún kostar. Fyrsta pera Edisons gaf ekki nema 3 lúmen/watt og breytti aðeins 0,56% raforkunnar í sýnilegt ljós. Hún var snilldar- verk, en þó ekki fullkomin. Með tilkomu Philips-glóperunnar, með pressuðum wolfram-glóþræði, árið 1907, meira en tvöfaldaðist nýtnin, í 1,28% og ljósmagnið varð 8 lúmen/watt. Dregni wolfram- glóþráðurinn, sem kom fram árið 1909, lýsti jafnskært og jafnhag- kvæmt, en var auk þess „óbrjótandi". Þegar Philips fann upp á því árið 1913 að vefja wolfram-glóþráðinn í gorm og setja argon-gas í peruna í stað þess að lofttæma hana, jókst ljósmagnið stórlega, eða í 12 lúmen/watt. Árið 1933 hækkaði nýtnin enn um 20%, þegar farið var að tvívefja glóþráðinn. Sérstakar perur með innbyggðum speglum veittu enn meiri birtu til notkunar í sýningargluggum og á heim- ilum, án nokkurs aukins rekstrar- kostnaðar. Árið 1959 kom fram alger- lega ný gerð smápera með glóþræði, fyllt halogen-gasi í stað eðalgass. Þessar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.