Morgunblaðið - 23.10.1979, Síða 15

Morgunblaðið - 23.10.1979, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979 15 Vilhjálmur G. Skúlason: Ávana- og fíknilyfjum, sem mest eru notuð og mest hætta stafar af, má skipa í fjóra flokka. Þeir eru sterk verkjadeyfandi lyf, róandi lyf og svefnlyf, örvandi lyf og skynvilluefni. Sum þeirra eru notuð sem mikilvæg lyf og fást þá með löglegum hætti, en annarra er einung- is hægt að afla með ólögleg- um hætti vegna þess, að notagildi þeirra við meðferð á sjúkdómum og sjúkdóms- einkennum er líið sem ekk- ert. Um þau síðarnefndu hafa heilbrigðisyfirvöld sett sérstök lög, sem miða að því Þetta fyrirbrigði er kallað þol. Einnig fær hann óþægileg eða jafnvel hættu- leg fráhvarfseinkenni, þegar hann hættir að nota lyfið. Þessi einkenni eru órói, ótti og skjálfti, sem koma í ljós fljótt eftir að töku lyfja úr þessum flokki er hætt. Innan átta klukkustunda geta kom- ið ný fráhvarfseinkenni, sem lýsa sér sem táraflóð, hnerri, gæsahúð og beinverkir og síðar geta komið í ljós upp- sala, sótthiti, lækkun blóð- þrýstings og vökvatap, sem getur leitt til dauða. Sjúklingur gerir allt, sem Vilhjálmur G. Skúlason. þessum flokki starfi nú af benzódíazepínsamböndum vegna mikillar notkunar þeirra hér á landi, ef miðað er við nálæg lönd. Þessi lyf geta öll í stórum skömmtum framkallað vímu og vellíðun- arkennd. Þetta á mjög við um díazepam vegna þess, að það skilur hægt út úr líkam- anum og getur þess vegna safnazt þar saman. Örvandi lyf Sum þessara lyfja finnast í náttúrunni, en önnur eru framleidd með efnafræði- legum aðferðum. Dæmi úr fyrri flokknum er kókaín, sem finnst í kókablöðum, er hafa verið misnotuð af indí- Á vana- og fíknilyf að hamla gegn dreifingu þeirra og vernda einstakl- inga gegn alvarlegum heilsu- spillandi áhrifum þeirra. Sterk verkjadeyfandi lyf Lyf úr þessum flokki eru meðal elztu lyfja, sem þekkt eru og eru sum þeirra unnin úr jurtaríkinu en önnur eru framleidd með efnafræði- legum aðferðum. Dæmi um lyf úr þessum flokki eru morfín, heróín, petidín og metadón. Áður fyrr var misnotkun þessarra lyfja al- gengust. Gjarnan hefst slík misnotkun með þeim hætti, að sjúklingur fær morfín til þess að draga úr sárum verkjum eða að einn ein- staklingur telur annan á að reyna það án sérstaks tilefn- is. Mest hættan við notkun morfíns er, að fíkn í það getur myndast á skömmum tíma, þegar það er gefið sem stungulyf í venjulegum lækningaskömmtum. Ein- kennandi fyrir misnotkun þessarra lyfja er, að sjúkl- ingur verður með tímanum að fá meira magn (tíðari eða stærri skammta) til þess að ná sömu verkun (vímu). Nýjar fugla- verndarmyndir FUGLAVERNDARFÉLAG íslands efnir til fræðslu- fundar í Norræna húsinu næstkomandi fimmtudag. Formaður félagsins, Magn- ús Magnússon prófessor, flytur ávarp, en síðan verða sýndar nýjar myndir frá brezka fuglaverndarfélag- inu. Þar á meðal er mynd um verndun sjaldgæfra fugla og myndin „Winged Aristocrats“, sem er um erni og aðra ránfugla. Fundurinn hefst klukkan 20.30 og er öllum heimill aðgangur. hann getur til þess að ná í lyfið og komast hjá þessum einkennum og í vímu og skiptir hann þá engu, hvort lyfsins er aflað með löglegum eða ólöglegum hætti. Þeir, sem selja ávana- og fíknilyf með ólöglegum hætti fremja því bæði lögbrot og tilræði við líf og heilsu annarra. Róandi lyf og svefnlyf Fyrst um 1950 varð mönnum ljóst, að barbitúr- sýruafbrigði gætu valdið ávana og fíkn, en þau höfðu þá um hálfrar aldar skeið verið mest notuð svefnlyf og róandi lyf. Með stórum skömmtum, sem teknir eru í langan tíma, geta alvarleg ávanaeinkenni komið í Ijós. I þessum flokki er einnig hætta á líkamlegum ávana. Þessvegna koma alvarleg fráhvarfseinkenni í ljós, þeg- ar töku lyfjanna er hætt. Oftast koma þessi einkenni í ljós eftir um það bil 1 sólarhring og ná hámarki eftir 2—3 sólarhringa. Á þessum tíma getur sjúkling- ur fengið krampa, ef frá- hvarfið skeður of hratt. Einnig geta einkenni eins og \ ‘A svimi, rugl og skynvillur komið í ljós. Þau barbitúr- sýruafbrigði, sem mest munu vera misnotuð, eru mebúmal, pentýmal og allyprópýmal. Önnur lyf í þessum flokki, sem ekki eru leidd af barbit- úrsýru, eru mepróbamat, klóralhydrat, klóralódól (mechloral), glútetímið (doriden), metakvalón (melsedin), klópoxíð (lib- rium), díazepam (valium, stesolid), nítrazepam (moga- don, dumolid) og önnur ben- zódíazepínsambönd. Svo virðist, sem mest hætta í ánum í Suður-Ameríku í þúsundir ára. Svo virðist sem misnotkun kókaíns fari vax- andi. Ávani og fíkn get.a verið mjög áberandi og erfið viðureignar og misnotkun fylgja oft geðræn einkenni. Ur síðari flokknum má nefna amfetamín, fenmetralín (preludin), sem nú er bannað að selja og dreifa hér á landi, pemólín (hyton) og metyl- fenídat (ritalin). Allt eru þetta lyf, sem verka örvandi á miðtaugakerfi. Svo virðist sem misnotkun amfetamíns erlendis hafi aukizt að mun á síðustu árum og að notkun þess ifformi stungulyfs, sem er hálfu verri en þegar það er tekið í inntöku, verði æ algengari. Með þeim hætti getur myndast ávani og fíkn, sem er erfið viðfangs og getur með tímanum leitt til geðveiki, sem firrir viðkom- andi allri dómgreind og lýsir sér sem ofsóknarótti og stundum skynvillur. Þeir, sem eru háðir örvandi lyfj- um, brotna mjög fljótt niður bæði andlega og líkamlega. Skynvilluefni í þessum flokki eru annars vegar LSD og skyld efni, sem valda margvíslegum skyn- villum og geta framkallað geðveiki og hins vegar kannabisefni (hass, marí- júana), sem framleidd eru úr indverskum hampi. Síðar- nefndi flokkurinn er sá, sem um þessar mundir er mest notaður af unglingum, ef til vill vegna þess, að á tímabili voru uppi miklar deilur um skaðsemi hans. Þessar deilur hafa gengið mjög niður á síðari árum, enda hefur það komið æ betur í ljós, hversu hættuleg þessi efni eru bæði beint og óbeint. Þessi efna- flokkur hefur verið þekktur og notaður í þúsundir ára og þarf því varla að fara villur vegar vegna þess, að ekki sé komin reynsla á notkun hans. Þessi efni eru skyn- villuefni og notkun þeirra getur leitt til geðveiki. Geð- ræn einkenni eru að nokkru háð því magni af efninu, sem notað er, að nokkru persónu- gerð þess, sem neytir þess og að nokkru af því umhverfi, sem neytandinn er staddur í, þegar hann neytir efnisins. Þegar til lengdar lætur, geta þessi efni svift einstaklinga öllu frumkvæði. Margir ungl- ingar hafa prófað þessi efni, en þeir, sem eru í mestri hættu eru unglingar, sem hafa einhverja persónugalla, oft þeir, sem hafa átt við vandamál að stíða í uppeldi eða horfast í augu við erfið- leika, sem þeir telja sig ekki umkomna að leysa. Virka efnið í kannabis heitir tetrahydrókannabínól. I maríjúana er magn tetra- hydrókannabínóls breytilegt frá 1—2% af þurrvikt „dróg- ans“ og fer magn þess eftir vaxtarstað og blöndun með öðrum jurtahlutum. Hass inniheldur aftur á móti 4— 10% af tetrahydrókannabín- óli. Báðar þessar tegundir eru venjulega reyktar, en einnig er hægt að drekka seyði af jurtahlutanum sem te. Úrvalbýöuruppávikudvölí NEWYORK NEWYOFK býðuruppáaUt! Það er varla til sá hlutur sem þú finnur ekki í New York. Hljómleikar, leik- hús, söfn, götulíf, kaffihús o.fl. o.fl. — allt eins og best gerist. Og þú verður ekki í vandræðum með að finna hlutina — fararstjórinn sér um það. Brottför: 26 okt. (Heimkoma að morgni 3.11.) 10. nóv (Heimkoma að morgni 18.11.) 24. nóv. (Heimkoma að morgni 2.12.) Gist verður á TAFT HOTEL, 51stSTR 7thAVENUE. Taft Hotel er mjög vel staðsett, rétt við RADIO CITY og ROCKEFELLER CENTER. öll herbergi eru með baði og sjónvarpi. Verðið er aðeins kr: 234.000.—. Innifalið í verði er flugfargjald, gisting í 7 nætur, flutningur til og frá flugvelli og fararstjórn. ATH: Brottfararskattur kr: 6.700.— er ekki innifalinn í verði. Við bjóðum þér upp á vikudvöl í NEW YORK, NEW YORK býður þér upp á allt. . . FERÐASKRIFSTOFAN URVAL VID AUSTURVÖLL SÍMI26900

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.