Morgunblaðið - 23.10.1979, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 23.10.1979, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979 REGLUR um gæöingadóma hafa á síðustu árum tekið stórfelldum breytingum. Tilkoma spjaldadómanna var þar róttæk breyting en á síðasta ársþingi Landssambands hestamannafélaga í fyrrahaust voru enn samþykktar nýjar reglur um dómana. í sumar var dæmt eftir þessum nýju reglum á flestum hestamannamótum og eru skoðanir manna skiptar um ágæti þeirra. Ekki verður í þessum stutta formála reynt að tína til þau atriði, sem helstum deilum valda enda koma þau vel fram í svörum við þeim fyrirspurnum, sem þátturinn beindi til fjögurra hestamanna um þessi efni og birtast hér að neðan. Ekki er að efa að reglur um gæðingadóma verða mjög til umræðu á ársþingi L.H., sem haldið verður á Flúðum um næstu mánaðamót og ekki er ósennilegt að þar komi fram tillögur um töluverðar breytingar á þeim reglum, sem þingið í fyrra samþykkti. Þátturinn leitaði til fjögurra hestamanna, sem á síðustu árum hafa haft veruleg afskipti af gæðingakeppnum ýmist sem knapar eða dómarar. Eru það Eyjólfur ísólfsson tamningamaður í Reykjavík, Sigurbjörn Bárðarson tamningamaður í Reykjavík, Sigurður Haraldsson bóndi í Kirkjubæ og Sigurður Sæmundsson tamninga- og járningamaður í Hafnarfirði. Tvær spurningar voru lagðar fyrir þá en þær eru: 1. Hverjir eru helstu kostir og gallar nýju reglnanna? 2. Er gæðingakeppnin ekki farin að nálgast íþróttakeppnina (fjórgang, fimmgang) full mikið Fara svör þeirra hér á eftir: Úrslitakeppnin er tóm hringavitleysa Sigurbjörn Bárðarson: 1. Kostirnir eru þeir, að knapinn ræður í hvaða röð hann sýnir gangtegundir hestsins. En þegar dæmdur er vilji fer fulltrúi dómnefndar á bak. Ef sá gefur hátt fyrir vilja, þá vegur sú einkunn það mikið, að hún getur ráðið endanlegri röð hesta í sæti. Smekkur manna er misjafn fyrir vilja, eða hvað flokkast undir vilja. Getur farið svo, að spennt- ir hestar, sem sækja stíft í taum af kvíða, geta fengið bestu ein- kunn, t.d. ef um úrslitakeppni er að ræða eins og á Þingvöllum í sumar. Þá er þetta of löng sýning og tóm hringavitleysa. I A-flokki gæðinga voru t.d. riðnir um 20 hringir í úrslitakeppninni á velli sem er 300 m, þannig að þetta er frekar þolreið en sýn- ingarreið. 2. Kröfurnar eru orðnar þær sömu og í íþróttakeppni, munur- inn er aðeins sá, að í forkeppni fær knapinn að ráða röðun gangtegunda sem hann sýnir. En ef um úrslit er að ræða þá er nákvæmlega sama skipulag og í íþróttakeppni, því þá verður knapinn að sýna gangtegundirn- ar um leið og krafist er. Nýja kerfið síst af öllu til góðs fyrir f jörhestinn Sigurður Sæmundsson: 1. Kostir eru helstir, að hest- urinn fær einungis dóm fyrir þær gangtegundir sem hann sýnir, einnig það að hann er krafinn um sýningu á öllum gangtegundum. Nýja gæðinga- keppnin er orðin meiri íþrótta- keppni en áður var. Gallar eru helstir: Vantar betri samræm- ingu dómara. Ef sýna á hægra og vinstra stökk þarf að eyða einum hring af þremur í stökk. Síst af öllu er þetta kerfi til góðs fyrir fjörhestinn, því hann er krafinn um sýningu í öllum gangtegundum en gat sleppt úr gangtegund eða gangtegundum áður, án þess að það kæmi verulega niður á einkunn. 2. Segja má að þetta sé orðið það sama, að vísu hafa menn frjálst val í sýningaröð gangteg- unda í gæðingakeppni. Skemmtilegra að dæma og sýna eftir nýja kerfinu Eyjólfur ísólfsson: 1. Stærsti kosturinn er að nú eru allar gengtegundir metnar út af fyrir sig en ekki saman eins og áður var. Erfiðast er að meta viljann. Eftir að hafa viljadæmt með því að fara á bak er ég ekki viss um að það sé örugg aðferð. T.d. er mjög misjafnt hvernig hestarnir eru þegar þeir koma í prófun. Suma er búið að hita mikið upp, aðra ekki neitt. Hross eru á ferðinni allt í kringum prófunarstaðinn þannig að stundum er riðið að hestum, en oftar þó frá hestum. Þetta og fleira gerir það að verkum að stutt viljaprófun er ekki örugg. Mér finnst bæði skemmtilegra að dæma eftir núverandi kerfi, og einnig að sýna eftir því. Hægt er að nota ímyndunaraflið til að gera sem besta sýningu. Oft er aðferðum (kerfinu) kennt um þegar mistök verða. Bæði núverandi og því gamia. Að Hestar Umsjónt Tryggvi Gunnarsson mínu mati er algengara að framkvæmdin sé í ólestri og þjálfun dómara ófullnægjandi. Þessi atriði þarf sérstaklega að bæta. 2. Ekki er hægt að segja það. í íþróttakeppni þarf að halda ákveðinni röð á sýningaratrið- um, ákveðnum hraða en mis- munandi eftir gangtegundum. Strangar kröfur eru um ásetu og taumhald. I gæðingakeppni er aftur á móti meira frjálsræði. T.d. er hægt að velja saman þær gangskiptingar sem viðkomandi hestur á auðvelt með, t.d. brokk—tölt—stökk—töl t o.sv.frv. byrja á feti eða enda á feti ef það gengur betur þannig. * Gæðingakeppnin gerir knapan- um kleift að skipuieggja sýning- una alla fyrirfram í samræmi við það sem hentar hestinum. í íþróttakeppni þarf knapinn að laga hestinn að ákveðnu verk- efni. Hafi áður þurft að breyta reglunum þá er það nauðsyn nú Sigurður Haraldsson: 1. Kostir nýju reglnanna eru helstir þeir, að hægara er nú fyrir dómarann að hnitmiða dóm sinn og afmarka einkunnagjöf, þegar hver gangtegund fær sérstaka einkunn. En hitt kann að orka tvímælis hvort þessi aukna skilgreining á hæfileikum hestsins gefur réttari niður- stöðu. Ég tel gallana því miður fleiri og vil benda á fjóra höfuðgalla, sem ég tel mjög bagalega, og byggi þá á þeirri reynslu, sem fengist hefur í sumar. Fyrst er að nefna, að kerfið er mun flóknara í allri úrvinnslu og þarafleiðandi langdregnara og þyngra í framkvæmd en áður. Annað er það, að dómstörfin hafa að mun færst fjær áhorfendum þar sem aðeins meðaleinkunn hvers dómara er nú sýnd, og raunar hefur mjög svo takmarkaða þýðingu að sýna þessa einkunn, því óhugsandi er annað en yfirfara alla útreikn- inga ritaranna, sem gerðir eru af þvílíkri skyndingu, sem með þarf, ef ekki á að verja óhæfi- legum tíma til dómstarfanna. Um það þýðir ekki að deila, að þessa endurreiknings er þörf áður en endanleg einkunn er birt. í þriðja lagi vil ég minnast á lokaröðun efstu hesta. Slík röðun er æskileg, að ég tel, en fráleit í því formi, sem reglurnar gera ráð fyrir. Með því lagi tekur verkefnið alltof lang- an tíma. Hitt er þó verra að eftir reglunum er um hreinan endur- dóm að ræða, en það tel ég ekki réttu vinnubrögðin. Mín skoðun er sú að lokaröðun eigi að vera í því formi, að dómurum gefist kostur á að sjá hestana í frjálsri reið nokkra stund á sýningarsvæðinu og síðan ákvarði þeir lokaröð hver fyrir, sig með töluspjaldi, þ.e. aðeins einni merkjagjöf. Það er einnig mín skoðun að dómari eigi ekki að breyta röð hesta frá sjálfum dóminum nema hann telji vera augljósa og áberandi galla á röðun dómsins, Ég vil svo í fjórða lagi nefna þá aðferð, sem nú ber að viðhafa við viljadóm, að einn maður getur á afgerandi hátt haft áhrif á hvort hestur dæmist upp eða niður, hvernig svo sem hinir fimm dæma. Hefi ég leiðinleg dæmi um slíkt frá sumrinu, sum alveg ný af nálinni. Hver trúir því, að dómur þessa eina sé svona miklu réttari en hinna fimm, en auðvitað hefur viljinn alltaf óbein áhrif á allar þeirra einkunnir þegar hann kemur fram í viðbrögðum hestsins í sýningunni. Verður ekki niðurstaðan sú, að við erum komnir í sömu fall- gryfjuna og áður fyrr, að einn ræður mestu, hinir samþykkja hans smekk en fólkið, áhorfend- ur, fylgist lítið með því sem gerist? 2. Spurt er hvort gæðinga- keppnin sé ekki farin að vera full keimlík íþróttakeppni, og er ekki óeðlilegt þótt spurt sé. Það var einn aðaltilgangur síðustu breytinga á gæðingaregl- unum, að sögn þeirra sem fyrir því töluðu, að færa þessi tvö keppnisform — íþróttakeppni og hefðbundna gæðingakeppni — sundur, aðskilja þau betur en verið hefur. Ég held það sé öllum augljóst, að árangurinn hefur orðið alveg öfugur við áformið. Nú má segja að svolítill blæmun- ur sé á þessu tvennu, annað ekki. Það er skoðun mín, að hafi áður verið breytinga þörf á umræddum reglum þá sé hún brýnust nú.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.