Morgunblaðið - 23.10.1979, Side 46

Morgunblaðið - 23.10.1979, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979 Afsögn Dayans sögð veikja stjórn Begins ANDOFSFUNDUR — Klnverjar hópast kringum andófsmann sem reynir að selja óleyfilegt timarit sem hann gefur út nálægt Lýðræðisveggnum í Peking. Tuttugu og niu ára gamall, kunnur andófsmaður, Wei Jingshang, var nýlega dæmdur i 5 ára fangelsi fyrir áróður sinn gegn „kerfinu“ i timariti sinu. 300 mótmæltu fangelsun VVeis Pcking, 22. okt. — Reuter. UM 300 manns söfnuðust saman i Peking og mótmæltu réttarhöld- unum og dómi yfir kinverska andófsmanninum Wei Jingsheng. Wei er fyrrum ritstjóri frétta- blaðs, sem hann kallaði „Könn- un“. Hann var á þriðjudag dæmd- ur i 15 ára fangelsi fyrir andbylt- ingaraðgerðir og fyrir að hafa veitt útlendingi upplýsingar um hernaðarieyndarmál í striðinu við Vietnam. Mótmælendur hengdu ákæru saksóknara og vörn Weis á lýðræð- isvegginn í Peking. Einn fundar- manna sagði við fréttamenn, að þeir væru ekki aðeins að verja Wei, heldur álla kínversku þjóðina. „Nú- verandi valdhafar brutu klíku fjór- menninganna á bak aftur, og fyrir það erum við þakklát. En ef stefna núverandi valdhafa brýtur í bága við vilja kínversku þjóðarinnar þá eigum við rétt á að setja þá af,“ sagði Qi Shi, einn ræðumanna. Veður víða um heim Akureyri Amaterdam Aþena Barcelona Berlín Bruteel Chicago Franklurt Genf Heleinki Jerúsalem Jóh.borg Kaupm.höfn Lisaabon London Loe Angelee Madríd Mallorca Miami Moekva NewYork Óeló Parie Reykjavík Rio de Janeiro Rómaborg Stokkhólmur Tel Aviv Tókýó Vancouver Vínarborg 12 ekýjaó 14 heióekírt 20 akýjaó 20 skýjað 10 heióskírt 16 heióskírt 27 heióskirt 14 skýjað 16 rigning 6 heiðskírt 21 heióskírt 22 skýjaó 11 heiðekirt 20 rigning 14 heióskírt 23 heióskirt 20 skýjaó 23 léttskýjaó 21 skýjaó 27 skýjaó 10 skýjaó 27 lóttekýjaó -2 léttakýjað 14 skýjaó 9 rigning 30 skýjaó 20 lettskýjaó 8 skýjaó 25 léttskýjaó 21 léttskýjaó 12 skýjaó 18 Mttskýjaó í vörn sinni í réttarhöldunum mótmælti Wei því að hafa vitandi vits veitt útlendingum upplýsingar um hernaðarleyndarmál. Hann sagðist hafa heyrt það sem hann sagði útlendingnum á götu úti. „Eftir að stríðið við Víetnama braust út þá var það á allra vörum. Ekki var hægt annað en að ræða um það. Hvort upplýsingar þær, sem ég gaf, voru hernaðarleynd- armál eður ei vissi ég ekki og hafði engan möguleika að vita það sem óbreyttur borgari,“ sagi Wei m.a. í réttarhöldunum var Wei gefið að sök að hafa veitt upplýsingar um nöfn hershöfðingja á vígvellinum, tölu hermanna og fallinna. Wei sagðist einnig ekki vera gagnbylt- ingarsinni. „Meginforsenda fyrir því að færa Kína til nútímans er að koma á lýðræði í landinu. Ef lýðræði verður ekki komið á, þá nær kínverskt þjóðfélag ekki að þróast og sósíalísk þróun í efna- hagslífi landsins verður ekki að veruleika," sagði Wei meðal annars í varnarræðu sinni. ERLENT Tel Aviv, 22. október. AP. Reuter. MOSHE Dayan utanríkisráð- herra ísraels sagði í dag af sér embætti utanríkisráðherra af þeirri ástæðu, að honum væri ókleift að gegna embættinu meðan aðrir ráðherrar færu með jafn mikilvæg utanríkis- mál sem viðræður um sjálfsfor- ræði Palestínumanna. Gagn- rýndi Dayan stefnu ísraela í þeim málum í yfirlýsingu sem hann birti er hann tilkynnti afsögn sína. Til að byrja með mun Begin forsætisráðherra gegna embætti utanríkisráðherra, en hann sagði í gær, að hann hygðist þó útnefna eftirmann Dayans innan skamms. Afsögn Dayans er sögð álits- hnekkir fyrir stjórn Begins og lýstu leiðtogar stjórnarandstöð- unnar því yfir í gær, að Begin bæri að segja af sér þegar í stað, Dayan væri aðeins sá fyrsti sem yfirgæfi „sökkvandi skip“. Þing Israels kemur saman á morgun eftir sumarhlé og hefur þegar spurzt út að a.m.k. þrír stjórnarandstöðuflokkar beri fram vantrauststillögu á stjórn- ina. Búist er við að stjórnin standi af sér vantraustið. Hefur Dayan sagt að hann hyggist ekki greiða atkvæði gegn stjórninni, en nánir samstarfsmenn hans hafa þó gefið í skyn, að Dayan eigi að öllum líkindum eftir að reynast Begin erfiður á þingi. Hefur Begin kallað Ezer Weizman varnarmálaráð- herra heim úr ferðalagi til Egyptalands til að styrkja stöðu sína í þinginu. Meðal þeirra sem þegar hafa verið nefndir sem líklegir arftakar Dayans eru Yigael Yadin aðstoð- arforsætisráðherra og Yosef Burg innanríkisráðherra. Blöð í ísrael voru mörg á þeirri skoðun í dag, að afsögn Dayans veikti stöðu stjórnarinnar mikið sem væri veik fyrir. Jerusalem Post sagði í dag, að afsögn Dayans benti til stöðnunar í stjórn Begins og ekki þyrfti héðan í frá að búast við að stjórnin leysti nein vanda- mál vegna upplausnar sem væri í röðum ráðherra. LOKAFUNDUR — Moshe Dayan, utanrikisráðherra Israels, neitar að ræða við fréttamenn er hann kemur frá síðasta fundi sinum i israelsku rikisstjórninni. Dayan sagði af sér starfinu sem hann hefur gegnt í tvö ár. Til hægri er Aryeh Naor ríkisstjórnarritari. Daglega deyja 20 kambódískir flótta- menn í Thailandi Bangkok, 21. október. Reuter. ALLT að tuttugu kambódískir flóttamenn deyja daglega á flótta- mannasvæðunum í Thailandi, að sögn brezks læknis, sem starfar á í Afríku eru nú 41 þúsmid sovéskir og kúbanskir hermenn neto í AFRÍKU eru nú 41 þúsund hermenn frá kommúnistaríkjum. Aðstoðarutanrikisráðherra Bandarikjanna, David Newsom, sagði i dag fyrir nefnd i banda- riska þinginu að dvöl þessara hermanna ógnaði hagsmunum Bandaríkjanna og Afriku. „Hver sem tilgangur með dvöl hermann- anna er, þá eru þeir ógnun við hagsmuni okkar og að okkar mati ógnun við langtímahagsmuni Afr- íku,“ sagði aðstoðarutanríkisráð- herrann. Hann sagði að af 41 þúsund hermönnum kommúnistaríkja í Afríku væru 37 þúsund þeirra Kúbumenn. Um 2000 sovéskir her- menn væru í álfunni og af þeim tvö þúsund sem upp á vantaði væru a-þýskir hermenn fjölmennastir. svæðinu. Dr. Jeffery Archer sagði, að nauðsynlega vantaði matvæli og læknisaðstoð við hina 150 þús- und flóttamenn, sem hafa komið yfir landamærin til Thailands. Síðustu tvær vikur hafa um 70 þúsund manns flúið yfir landa- mærin frá bardagasvæðunum. þar sem vietnamskir hermenn ásamt hermönnum stjórnarinnar í Phnom Penh eiga í höggi við hermenn Pol Pots, fyrrum einræð- isherra í landinu. Dr. Jeffery Archer sagði, að flestir flóttamannanna, sem kæmu yfir landamærin, þjáðust af nær- ingarskorti og að malaría og aðrir sjúkdómar herjuðu á þá. Hernaðar- yfirvöld á svæðunum segjast reyna að koma matvælum til svæðanna. í síðustu viku heimilaði Kriangsak Chomanan, forsætisráðherra, er- lendum læknum að fara til svæð- anna en hingað til hefur thailenski rauði krossinn séð um allt hjálpar- starf. Búist er við að á næstu vikum muni flóttamannastraumurinn til Thailands enn aukast verulega. Ég trúi á Jesse Bishop, ég trúi ekki á guð,” Morðingiim sem hafnaði tilraun- um við að fá dauðadómi breytt í ævilangt fangelsi, er allur Carson City, Nevada — 22. október — AP, Reuter. JESSE Bishop, maöurinn sem var fundinn sekur um morð, en hafnaði siðan tilraunum fjöl- margra við að fá dauðadómi sinum breytt i ævilangt fangelsi lét lífið i gasklefanum i Carson City i Nevada i dag. „Þetta er aðeins enn eitt skrefið á lífsleið- inni,“ voru síðustu orð Jesse Bishop. Skömmu síðar var hann hlekkjaður við dauðastóiinn i gasklefanum i Carson City. Jesse Bishop brosti til eina blaðamannsins meðal 14 vitna að dauða hans. „Hann horfði í augu allra okkar," sagði fréttamaður- inn, skók síðan höfuð sitt og þagði. Síðan streymdi gasið um klefann. Bishop saug upp í nefið. Augu hans ranghvolfdust, höfuð hans féll fram á bringuna og hófst upp aftur. Hann dró aftur djúpt andann og lokaði augunum, i síðasta sinn. Eftir nokkra kippi var allt yfirstaðið — maðurinn, sem gat sér frægð í Bandaríkjun- um fyrir að hafna tilraunum til að fá dauðadómi sínum breytt, var allur. „Ég trúi á Jesse Bishop, ég trúi ekki á nein trúarbrögð, ég trúi ekki á guð,“ sagði Jesse Bishop við klerkinn, sem kom til hans í morgunsárið til að vitja hans. Opinber mynd af Jesse Bishop, tekin þegar hann var handtekinn í Las Vegas i febrúar 1978 fyrir morð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.