Morgunblaðið - 23.10.1979, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979
47
Þetta gerðist
1977 — Panamabúar samþykkja
nýjan Panama-samning í at-
kvæðagreiðslu.
1973 — ísraelsmenn og Egyptar
samþykkja vopnahlé.
1968 — Fyrsti loftbardagi
Egypta og ísraelsmanna síðan í
sex daga stríðinu.
1966 — Ráðstefna Johnsons
forseta og leiðtoga sex Kyrra-
hafsþjóða á Filipseyjum um
Víetnamstríðið.
1962 — Rússar vara við hættu á
kjarnorkustyrjöld vegna hafn-
banns Bandaríkjamanna á
Kúbu.
1958 — Rússar lána Egyptum fé
til Aswan-stíflunnar.
1956 — Uppreisnin í Ungverja-
landi hefst.
1954 — Fjórveldin samþykkja
að hætta hernámi Þýzkalands.
1953 — Stjórnarskrá Rhódesíu
og Nyaslands tekur gildi.
1942 — Orrustan við E1 Ala-
mein hefst með árás áttunda
hers Breta á stöðvar öxulríkj-
anna.
1917 — Orrustan við Caporetto
hefst — Eldskírn bandarískra
hermanna nálægt Lunevilie,
Frakklandi.
1855 — Bretar senda konungi
Burma úrslitakosti.
1764 — Lið Hectors Munros
sigrar Nabwah af Oudh við
Buxar, Bengal.
1642 — Orrustan við Edgehill.
1641 — Fjöldamorðin miklu á
írlandi eftir afhjúpun samsæris
gegn Bretum.
1596 — Lið Múhameðs III sigrar
lið Maximilians erkihertoga ná-
lægt Erlau, Ungverjalandi.
42 f.Kr. — Síðari orrustan við
Philippi (Markús Antóníus og
Octavius sigra Brútus og Cass-
ius).
Afmæli — Adalbert Stifter,
austurrískur rithöfundur
(1805-1868).
Andlát — Markús Brútus,
framdi sjálfsmorð, 42 f.Kr. =
Paul Cézanne, listmálari, 1906.
Innlent — Snóksdaisdómur um
handtöku Jóns biskups Arasonar
og sona hans 1550 = Stjórnlaga-
þing kemur saman 1848 = Inn-
flutningshöft á „óþörfum varn-
ingi“ 1931 = SÍBS stofnað 1938 =
Thor Thors skipaður sendiherra
í Bandaríkjunum 1941 = Alþing-
iskosningar 1949 = BHM stofnað
1958 = „Þór“ strandar á Seyðis-
firði 1974 = f. Kristmann Guð-
mundsson 1901.
Orð dagsins — Gæfan er hlið-
holl hinum hugdjarfa — Eras-
mus, hollenzkur fræðimaður (um
1466-1536).
Heldur Matos innan skamms til
Costa Rica ásamt 137 öðrum pól-
itískum föngum og um 1,000 ættingj-
um þeirra, en Costa Rica hefur veitt
fólkinu landvistarleyfi.
Að sögn kunnugra er Matos, sem
nú er 59 ára, við góða heilsu. Matos
er kennari að mennt, og var major í
skæruliðahreyfingu Castrós er barð-
ist við heri Fulgencios Batista ein-
valdsherra á sjötta áratugnum. Að
byltingunni lokinni var hann gerður
að herstjóra yfir Camaguey-héraði
sem var þá mikið sykurræktar- og
nautgripahérað. Nokkrum mánuðum
seinna fór hann að fetta fingur út í
embættisveitingar Castros, en Matos
þótti of lítið um að meðlimir í 26.
júlí-hreyfingunni væru settir til
æðstu embætta í fylkis- og borgar-
stjórnum. Af þessum sökum afhenti
hann Castro uppsagnarbréf í byrjun
október 1959. Var hann handtekinn
20. október. Sakaði Castro hann um
Tveir fórust
í jarðskjálfta
Jakarta, 22. október. AP.
AÐ minnsta kosti tveir fórust og
yfir 40 slösuðust er jarðskjálfti
skók eyjarnar Bali og Lombok á
laugardag, að sögn lögregluyfir-
valda. Skjálftinn mældist 5,8 stig
á Richter-kvarða og átti hann
upptök sín skammt undan strönd-
um Lombaks. Hundruð bygginga,
þar á meðal guðshús, skemmdust í
skjálftanum, sem stóð yfir í um 20
sekúndur.
samsæri gegn stjórninni og krafðist
dauðadóms, en dómarar dæmdu
Matos til 20 ára fangelsisvistar.
Á tæpu ári hafa 3,200 pólitískir
fangar verið látnir lausir á Kúbu
samkvæmt samkomulagi við samtök
fólks af kúbönsku bergi í Bandaríkj-
unum. Innan skamms verða 400
pólitískir fangar til viðbótar látnir
lausir.
Lischka
fyrir rétt
íKöln
Köln, 22. október. AP. Reuter.
RÉTTARHÖLD yfir Kurt Lischka,
fyrrum yfirmanni Gestapó í París
á styrjaldarárunum, hefjast í Köln
á morgun. Hann er ákærður fyrir
að hafa látið flytja um 55 þúsund
franska gyðinga í útrýmingarbúð-
ir nasista. Lischka er nú 69 ára
gamall. Ásamt honum verða fyrr-
um tveir stormsveitarforingjar
dregnir fyrir rétt, Herbert Hagen
og Ernst Heinrichsohn. -
Árið 1950 var Lischka dæmdur af
frönskum dómstóli í ævilanga
þrælkunarvinnu. Hann var ekki
viðstaddur þau réttarhöld. Búist er
við mótmælum í Köln gegn því, hve
réttarsalurinn er lítill. Hann tekur
rétt um 100 manns en um 350
gyðingar ætluðu að vera viðstaddir
réttarhöldin yfir Lischka.
í síðustu viku æíði bandaríski sjóhcrinn landgöngu á Guantanamo á Kúbu. Um
3500 landgönguliðar tóku þátt í æfingunum.
The Times kemur aft-
ur út fyrir lok nóv.
Lundúnum, 22. október. AP. Reuter. !
í DAG hófst stjórn Lundúna-
blaðsins The Times handa við að
koma blaðinu aftur á götuna
eftir 11 mánaða deilur við verka-
lýðsfélög. Samkomulag tókst i
deilunni í gær og búist er við að
The Times og The Sunday Times
muni aftur koma fyrir augu
Breta fyrir lok nóvember.
Deilt var um nýja prenttækni
sem fyrirtækið hugðist koma á, en
með henni hefði mörgum prentur-
um verið sagt upp starfi. Útgáfu-
fyrirtækið samþykkti allt upp í
40% launahækkanir en verkalýðs-
félögin samþykktu á móti að
fækka starfsfólki, og hétu sam-
vinnu við að koma hinni nýju
tækni á. Enn er þó deilt um hvort
blaðamenn fái að skrifa fréttir
Sáralítil breyting á
fylgi flokka í Sviss
Genf, 22. október. AP. Reuter.
SVISSNESKIR kjósendur þok-
uðu sér heldur til hægri i þing-
kosningunum í Sviss um helgina.
Endanlegar tölur lágu fyrir i
dag. Stjórnarflokkarnir halda
yfirgnæfandi meirihluta sinum i
neðri deild þingsins — halda 186
þingsætum af 200.
Minniháttar
breytingar urðu á fylgi stjórnar-
flokkanna, sósialdemókratar
misstu f jóra þingmenn, radíkalar
unnu fjögur þingsæti, Þjóðar-
flokkurinn tvö en kristilegir
demókratar missu eitt þingsæti.
Rétt tæplega helmingur at-
kvæðisbærra manna greiddu at-
kvæði í kosningunum, eða 49%.
Frá stríðslokum hefur kjörsókn
stöðugt minnkað og hélt sú þróun
áfram í þessum kosningum. í
þingkosningunum 1955 var kjör-
sókn 52%. Velmegun er mikil í
Sviss, verðbólga nánast engin og
atvinnuleysi sáralítið.
Hirohito Japanskeisari sker
upp hrisgrjón við athöfn sem
markar upphaf uppskerutim-
ans í Japan. Keisarinn rækt-
aði hrisgrjónin sjálfur á akri
við höll sina.
sínar inn á tölvuskerma. Viðræður
um það munu standa yfir áfram
og á þeim að vera lokið innan 12
mánaða. Búist er við að 650 manns
muni missa atvinnu sína með
hinni nýju tækni. Þá er enn óleyst
deilan um hve margir muni starfa
í pressusal. Báðir aðilar féllust á,
að óháður aðili dæmdi þar um —
og hétu að fallast á niðurstöður
hans.
Birgdir mat-
væla á þrot-
um í Mahabad
Teheran, 22. október. Reuter.
MATVÆLABIRGÐIR eru á þrotum
og almennur vöruskortur er farinn
að gera vart við sig í Kúrdaborg-
inni Mahabad, að því er hin opin-
bera fréttastofa írans, Pars, skýrði
frá i dag.
Skæruliðar Kúrda náðu borginni á
sitt vald fyrir helgina eftir harða
bardaga við stjórnarherinn en vöru-
skorturinn stafar af því, að sveitir
stjórnarhermanna sitja um borgina
og hafa lokað öllum samgönguæðum
að borginni og því berast þangað
engar birgðir. Haft var eftir emb-
ættismanni í Mahabad í dag, að
borgin væri sem draugaborg. Enginn
þyrði að vera á ferli á götum úti og
stjórnarhermenn hefðu búið um sig í
búðum sínum í bænum.
MÓÐIR TERESA hlaut í síðustu viku friðarverðlaun Nóbels. Fjöldi
fólks í fátækrahverfum Kalkútta fagnaði henni. Á þessari mynd AP
sést hvar hún tekur við hamingjuóskum.
Fimm manns farast
í jámbrautaslysum
Dundec, Stokkhólmi, 22. október, AP.
AÐ MINNSTA kosti fjórir fórust
og yfir 30 slösuðust er tvær
íarþegalestir rákust á skammt
frá Dundee á austurströnd Skot-
lands í morgun.
Jafnframt fórst lestarstjóri og
46 farþegar slösuðust er nætur-
lestin frá Malmö til Stokkhólms
fór út af sporinu skammt frá
bænum Nassjö í suðurhluta Sví-
þjóðar skömmu eftir miðnætti í
nótt.
Þrír hinna slösuðu voru
sagðir í lífshættu í morgun. Alls
voru um 300 farþegar í 14 vögnum
lestarinnar, en allir fóru þeir út af
sporinu og ultu.
Huber Matos
laus úr haldi
Havana. 22. október, Reuter.
ÞEKKTASTI póiitíski fangi Kúbu, Huber Matos, var í gær látinn laus þar
sem hann hafði þá afplánað 20 ára fangelsisdóm. Matos var gefið að sök að
hafa gert samsæri gegn stjórn Castros með fyrrvcrandi landeigendum á
Kúbu. Matos var einn dyggasti stuðningsmaöur Castros á byltingarárun-
um og hlaut hann næstæðstu tign i skæruliðahreyfingu Castros.