Morgunblaðið - 06.11.1979, Side 1
48 SÍÐUR
244. tbl. 66. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Kambódía
vill hjálp
Bangkok. New York, 5. nóv.
AP. Reuter.
STJÓRN Heng Samrin í Kam-
bódíu tilkynnti i dag, að landið
væri nú reiðubúið til að þiggja
aðstoð erlendis írá vegna hung-
ursneyðarinnar í landinu. Þó
var það skilyrði sett, að stjórnin
i Phnom Penh sæi um dreifingu
matvæla og lyfja. „Við getum
annast dreifingu matvæla til
allra landshluta, einnig landa-
mærahéraða við Thailand,“
sagöi i tilkynningu stjórnarinn-
ar. Þar eru skæruliðar Pol Pot,
fyrrum forsætisráðherra, hvað
sterkastir fyrir.
Straumur flóttafólks hefur
undanfarnar vikur flykkst yfir
landamærin til Thailands.
Stjórnin í Phnom Penh hafnaði á
ný boði Bandaríkjamanna um að
flytja matvæli frá Thailandi til
Kambódíu með flutningabílum —
aðstoðin yrði að koma til Phnom
Penh.
I New York var uppi fótur og
Heng Samrin.
fit í dag þegar fréttist að Keo
Prasat, fulitrúi stjórnar Heng
Samrin, væri í borginni. Samein-
uðu þjóðirnar viðurkenna ekki
stjórn Samrin í landinu. Fulltrúi
Kína kallaði dvöl Prasat ólöglega.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins sagði að Prasat væri ekki í
New York í erindagjörðum
stjórnarinnar í Phnom Penh.
Hann sagði, að nokkrir öldunga-
deilarþingmenn, sem væru með
Cyrus Vance í New York vegna
ráðstefnu um matvælaskortinn í
Kambódíu, myndu hitta Prasat.
Réttarhöld í Dyflinni:
Ákærðir fyrir
aðild að morði
Mountbattens
Dyflinni, 5. nóvember. AP. Reuter.
RÉTTARHÖLD hófust í dag í Dyflinni yfir tveimur írum. Thomas
McMahon og Francis McGirl. Þeir eru sakaðir um aðild að morði
Mountbattens jarls. Saksóknarinn sagði í dag, að þeir McMahon og
McGirl hefðu komið sprengju fyrir undir báti jarlsins, en einhver
annar hefði komið sprengjunni af
saklausir af ákærunum.
Þegar bátur Mountbattens jarls
sprakk í loft upp hinn 27. ágúst
síðastliðinn voru þeir McGirl og
McMahon báðir í varðhaldi. I
Sovétmenn
skjóta und-
anNoregs-
ströndum
Frá Jan Erik Lurc, fréttaritara
Mbl.
Osló, 5. nóvember.
SOVÉSKUR kafbátur skaut
um helgina langdrægri eld-
flaug í norskri efnahagslög-
sögu. Norska herstjórnin
skýrði frá þessu í dag. Kafbát-
urinn skaut eldflauginni und-
an norsku eynni Söröya undan
N-Noregi. Yfirmaður herráðs-
ins, Sverre Hamre hershöfð-
ingi, sagði við fréttamenn að
norsk heryfirvöld hefðu ekki
vitneskju um hvar eldflaugin
lenti. Hann sagði, að hernað-
araðgerðir væru ekki bannað-
ar í efnahagslögsögu en venj-
an væri að gefa viðvaranir
áður en slíkt ætti sér stað.
Sovétmenn hefðu ekki látið
Norðmenn vita. Þá sagði hann
að óvenjulegt væri að Norð-
menn reyndu eldflaugar svo
nálægt Noregi.
stað. Þeir félagar kváðust báðir
fötum þeirra fundust málningar-
agnir af bátnum, sandur og leifar
dýnamits.
Bandaríska alríkislögreglan,
Mountbatten.
FBI, handtók í síðustu viku Mich-
ael 0‘Rourke. Hann var tekinn
fastur fyrir að hafa komið ólög-
lega inn í landið og fyrir að bera
fölsuð skilríki. 0‘Rourke er talinn
viðriðinn morðið á Mountbatten
jarli. Hann er í haldi í Salemi New
Jersey. Hann á yfir höfði sér að
verða framseldur til Bretlands.
Þegar hann var handtekinn neit-
aði hann að segja til síns rétta
nafns, en af fingraförum tókst að
komast að hinu rétta. 0‘Rourke
slapp úr fangelsi á N-írlandi fyrir
þremur árum.
Stúdentar yfirgáfu
brezka sendiráðið
— en halda enn um 60 gíslum í bandaríska sendiráðinu í Teheran
Teheran. Lundúnum. Washington, 5. nóvember. AP. Reuter.
ÍRANSKIR stúdentar yfirgáfu í kvöld byggingu brezka sendiráðsins í Teheran, sem þeir tóku fyrr í dag.
Ayatollah Khomeini trúarleiðtogi trana lýsti yfir stuðningi við aðgerðir stúdenta en þeir halda enn um 60
starfsmönnum bandariska sendiráðsins i Teheran, sem þeir tóku á sitt vald i gær. Auk sendiráðsins hafa
stúdentar á valdi sinu tvær ræðismannsskrifstofur og menningarmálastofnun Bandaríkjanna í Teheran.
Khomeini hvatti stúdenta gegn „ameríska risanum“ svo takast mætti að fá keisarann fyrrverandi, sem nú dveiur
á sjúkrahúsi í New York, framseldan.
Bandaríkjamenn þvertóku fyrir í
dag, að keisarinn fyrrverandi yrði
framseldur til írans. Blaðafulltrúi
Jimmy Carters, Jody Powell, sagði í
kvöld að björgun gíslanna í Teheran
með hervaldi kæmi ekki til greina.
Meginmarkmið forsetans, sagði
hann, er að stofna ekki lífi gíslanna í
Teheran í hættu. Þá varði hann
ákvörðun stjórnarinnar að heimila
keisaranum að dveljast á sjúkrahúsi
í New York. í útvarpinu í Teheran
sagði, að Bandaríkjamenn hefðu
verið varaðir við aðgerðum gegn
þeim, ef þeir heimiluðu keisaranum
að koma til Bandaríkjanna. Jody
Powell sagði að stjórnin í Washing-
ton væri í stöðugu sambandi við
stjórnvöld í Teheran. Hann sagði að
írönsk stjórnvöld hefðu sagt að vel
væri farið með gíslana í sendiráðinu.
Jimmy Carter ræddi í kvöld við
óryggismálaráðgjafa sinn, Zbigniew
Bzrezinski.
í Teheran krafðist Khomeini þess,
að brezk stjórnvöld framseldu
Bakthiar, fyrrum forsætisráðherra.
Bakthiar sagði í París í kvöld, að
Khomeini vissi fullvel að hann byggi
í París. „Hann skammast sín að
biðja Frakka um framsal mitt,“
sagði Bakthiar og átti við að Khom-
eini hefði sjálfur dvalið í útlegð í
Frakklandi. Útvarpið í Teheran
sagði í dag, að stúdentar í banda-
ríska sendiráðinu krefðust þess nú,
að Iran sliti stjórnmálasambandi viö
Bandaríkin.
Olíumálaráðherra írans, Ali Ak-
bar Moinfar, sagði í kvöld að írönsk
stjórnvöld hefðu nú í athugun að
taka fyrir alla olíusölu til Bandaríkj-
anna.
Sjá frétt um töku sendiráðanna
á bls. 47.
Símamynd AP.
Keisaranum verður að refsa — stóð á borða, sem íranskir
stúdentar komu fyrir á frelsisstyttunni í New York í dag.
Njósnari
dæmdur
Kaupmannahöfn. 5. nóvember. AP.
A-ÞYZKUR njósnari var í dag
dæmdur í sex ára fangelsi í
Kaupmannahöfn. Hann var
dæmdur fyrir að hafa fengið
danska stúiku. scm starfaði i
utanrikisráðuneytinu. til að
koma undan leyniskjölum.
A-Þjóðverjinn, Jörgen Meyer,
hefur búið í Danmörku síðan 1973.
Hann notaði skilríki látins
V-Þjóðverja. Stúlkan Karen Vint-
en, 29 ára gömul, var dæmd í 18
mánaða fangelsi. Hún fékk dóm-
inn mildaðan, þar sem sýnt þótti
að hún hefði verið undir „sterkum
áhrifum“ frá elskhuga sínum.
Bólivía:
Natusch ætlar að
sitja sem fastast
La Paz, 5. nóvember. AP. Reuter.
ALBERTO Natusch, sem á
fimmtudag hrifsaði til sín völdin
í Bóliviu og lýsti sjálfan sig
forseta, bar í kvöld til baka
sögusagnir um, að hann myndi
segja af sér embætti.
Andstaðan gegn Alberto Nat-
usch hefur verið mjög hörð. Ruben
Sanchez, forseti þingsins, átti
fund með Natusch í dag og eftir
fundinn sagði hann, að Natusch
hefði lofað að segja af sér emb-
ætti. Sanchez sagði, að Natusch
hefði lofað að segja af sér „innan
nokkurra klukkustunda.“
Kaþólska kirkjan kom fram sem
sáttasemjari þegar Natusch og
Sanchez ræddust við í dag. Óeirðir
héldu áfram í landinu. Fulltrúi
Rauða krossins sagði, að 23 hefðu
fallið í dag. Síðan Natusch hrifs-
aði til sín völd á fimmtudag er
talið að um 50 manns hafi fallið í
bardögum.