Morgunblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979 41 fclk í fréttum Eldhúslyklaráðin m.m.? + Það virðast ekki vera neinir fimmaura brandarar, sem þau láta fjúka hér á milli sín Bandarikjaforseti Jimmy Cart- er og konan sem situr hér við hlið hans. — Það er farið að tala um það í fullri alvöru, að Carter muni þurfa að ræða við hana nokkru alvarlegri mál, sem hann muni ekki flokka undir neina brandarasmiði. — Þetta er hugsanlega sú kona sem, verður með eldhúslykla- ráðin m.m. í Hvíta húsinu að loknum forsetakosningunum i Bandaríkjunum á næsta hausti, frú Joan Kennedy, kona sena- torsins Edwards Kennedy: Nú er farið að ræða um hann sem næsta forsetaefni flokks síns og forsetans, Demokrataflokksins. + í BRETLANDI er genginn dómur í tveim skaðabótamálum, sem höfðuð voru gegn sjúkrahúsum, vegna sjúklinga sem orðið hafa fyrir varanlegum áföllum vegna mistaka í sjúkrahúsum. A þessari mynd er annar þessara sjúklinga. Er um að ræða kennslukonuna Elizabeth Shewan, sem nú er þritug að aldri. Hún var 25 ára gömul er hún var flutt í Westminster-sjúkrahúsið í London til uppskurðar við gallsteinum. Missti heilsuna á sjúkrahúsi í Bretlandi Á skurðstofu spítalans, urðu þau mistök að tæki sem átti að dæla súrefni til sjúklingsins dældi í staðinn deyfilyfi. Við það hlaut kennslukonan varan- legan heilaskaða. Hún mun þurfa að vera á hæli eða hjúkr- unarheimili það sem hún á eftir ólifað. - Á myndinni er kennslukonan i fylgd föður síns. — í dómsniðurstöðum i skaðabótamálinu sem farið var i við Westminster-spítalann í London, segir m.a. að þessi mistök í sjúkrahúsinu hafi haft i för með sér „að líf ungrar konu með mikla hæfileika var lagt í rúst.“ Ekki var um að ræða bein mistök hjúkrunarliðsins, heldur var súrefnistækið í ólagi. Kennslu- konunni voru dæmd 262.500 sterlingspund í bætur, sem er um 213 milijónir ísl. krónur. í hinu skaðabótamálinu er um að ræða karlmann, sem fékk dæmda aðeins lægri upphæð í skaðabætur. Þar var spitalinn talinn bera ábyrgð á að maðurinn lamaðist i sjúkrahúsinu. Hann hafði gert þar tilraun til sjálfsmorðs. Taldi dómurinn hjúkrunarlið spitalans ekki hafa verið nógu vel á verði gagnvart sjúklinunum. Móðir henn- ar heimtar að hún sé flutt úr landi + Mál þessarar ungu stúlku, sem er 15 ára, hefur vakið mikla athygli i Danmörku. Móðir hennar, sem er brezk, hefur krafist þess i danska dómsmálaráðuneytinu, að dótt- ir hennar verði flutt til Bret- lands. Móðirin er nú gift kona i Danmörku og dóttirin, sem heitir Jane Devine kom til hennar frá Bretlandi fyrir um ári síðan til langdvalar hjá móður sinni. — En mæðgurnar virðast ekki eiga skap saman. Móðirin sem hefur foreldrarétt- inn yfir stúlkunni hefur krafist þess að Jane verði flutt til Bretlands. Útlendingaeftirlitið i Kaupmannahöfn tilkynnti stúlkunni að hún yrði að vera farin úr landi 9. nóvember næstkomandi. Þegar málið var komið á þetta stig greip ríkisumboðs- maður inn í málið og þessi brottvísunarkrafa var sett i biðstöðu. Jane óskar eindregið eftir því að fá að vera i Danmorku. Að krofu ríkisum- boðsmannsins verður mál henn- ar tekið upp og það kannað niður i kjolinn áður en nokkur ákvörðun verður tekin og mið tekið af heill og hamingju stúlkunnar sem stundar nám í skóla i bænum Herlev. Svo einfalt, svo vandað og sómir sér hvar sem er. SELKO fataskápar. Þú kaupir þá í einingum fyrir hagstætt verð, setur þá saman sjálfur og getur endalaust breytt eftir þörfum. Komdu og líttu á SELKO fataskápana, þeir eru vandaðir, vel hannaðir og heimilisprýði, hvernig sem á þá er litið. /fTh, SIGURÐUR IM^I ELÍASSON HF. AUÐBREKKU 52, KÓPAVOGI, SÍMI 41380 Nú þarftu ekki lengur aö hafa áhyggjur af plötunum þínum. Groove Tube sér fyrir því. Þú þværö plötuna meö sérlöguöum hreinsi- vökva á meðan hún fer fyrstu snúningana og þurrkar svo af henni meö mjúkum flauelis- klút. Allt í einni lítilli flösku. Getur ekki veriö ódýrara, einfaldara — né betra Heildsölubirgöir. LAUGAVEQI33 • SlM111508 STRANDGÖTU 3T ■ SlMI 53762

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.