Morgunblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979 45 ingar, að ef ekki væri hægt að rekja tjónið til dekkjanna væru miklar líkur á því að sumardekkin rýrðu ekki rétt viðkomandi öku- manns. Hins vegar væri möguleiki á því að ef rekja mætti orsök tjónsins til dekkjanna rýrði það rétt ökumannsins, án tillits til þess um hvers konar tjón væri að ræða. • Guðlast Maður er nefndur Megas. Hann hefur iðkað það að af- skræma rödd sína inn á gramma- fónplötur svo að hliðstætt finnst ekki hér á landi. Hvort þessar plötur eru mikið seldar veit ég ekki. Ef til vill á hann sálufélaga sem kaupa þær. En eitthvað hefur nú samt þurft að auglýsa manninn og er Jesús Kristur notaður til þess. Megas kom fram í sjónvarpinu síðast liðinn sunnudag með það ósvífn- asta guðlast sem ég hef séð á prenti. Þar segir hann að Jesús komi í skólana og gefi börnum dót og ekki annað betra. Mér finnst furðulegt að sjónvarpið skuli ekki líta betur eftir en það að annað eins skuli birtast á skerminum. Vildi ég óska þess að fjölmiðlar hættu að kalla þennan mann listamann. Það er háðsyrði. Kristín Einarsdóttir Ránargötu 12. Kuglepenne som hobby 65-árige Viggo Hansen i 01stykke er kuglepenne- samler. Han begyndte for ca. 10 ár siden. Viggo Hansen fik ideen fra en bekendt. Han samlede pá dem og det lod da meget sjovt og siden startede Viggo Hansen selv pá hob.byen. Nogle af kuglepen- nene er fra Gronland, Fin- land, Norge, Sverige, Polen, Tyskland, Kina, England, Frankrig og selvfolgelig Dan- mark. Viggo Hansen har flere hundrede kuglepenne som hænger pá en stor opslagstav- le. Mynd þessi birtist í dönsku blaði fyrir ári og sýnir Viggó ásamt pennasafni sínu. • Pennavinur Velvakanda hefur borist eftir- farandi bréf frá Viggó Hansen í Ölstykker í Danmörku. Viggó langar mikið til að fá pennavini hér á íslandi. Hann segir í bréfi sínu að fyrir 10 árum hafi hann veikst það mikið að hann varð að hætta vinnu. „Fyrst í stað var erfitt að taka þeirri staðreynd og mér fannst ég vera búinn að vera. En nú líður mér miklu betur og ég hef fundið mér tómstundagaman. Ég safna auglýsingapennum ög öðrum hlut- um sem fyrirtæki gefa í auglýs- SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlegu skákmóti í Barce- lona á Spáni, sem lauk fyrir stuttu, kom þessi staða upp í skák þeirra Gonsalez, Spáni og heims- meistara kvenna í skák, Maju Chiburdanidze, Sovétríkjunum, sem hafði svart og átti leik. 31.... De3! 32. Hxc2 - Dxel, 33. Hc8 - DeG, 34. Hxf8+ - Kh7,35. b3 - g5, 36. Hd8 d5, 37. Hd6 - De2+, 38. Kgl — d4 og hvítur gafst upp. Chiburdanidze, landi hennar og þjálfari, Gufeljd, og ítalinn Tatai urðu jöfn og efst á mótinu með 6 vinninga af 9 mögulegum. Ungverski stórmeist- arinn Barczay og Ochoa, Spáni urðu næstir með 5 v. ingaskyni. í gegnum þetta tóm- stundagaman hef ég eignast marga vini og þannig fæ ég tímann til að líða hraðar en annars." Viggó skrifar aðeins á dönsku. Hann er 65 ára og heimilisfang hans er Balters Plads 33 3500 Ölstykke, Danmark. Þessir hringdu . . . • Bara fyrir krakka í Reykjavik? 10 ára gömul stúlka úti á landi hringdi: „Mig langar bara til að segja að ég hef aldrei horft á jafn leiðin- lega „Stundina okkar“ og þá sem var á sunnudaginn. Þar var mest talað um bækur sem voru. á sýningu í Reykjavík og konan sagði, að allir krakkar sem ekki hefðu séð sýni'nguna ættu að sjá hana strax því að á sunnudaginn var síðasti sýningardagurinn. Við sem búum úti á landi komumst ekki. Er „Stundin okkar“ bara fyrir krakka í Reykjvík? Annað sem þarna var fannst mér líka leiðinlegt. Barbapabbi var það eina sem var skemmtilegt og þá finnst mér nú langt gengið." „Aheyrandi" hringdi einnig og vildi láta i ljósi óánægju sína með umræddan barnatima sjónvarps- ins. HÖGNI HREKKVÍSI TILKYNNING Meö tilvísun til 10. gr. laga nr. 49 frá 16. maí 1974, sbr. lög nr. 49 frá 16. marz 1951, er hér meö skorað á þá, sem eiga ógreidd iðgjöld til Lífeyrissjóös sjómanna, aö gera nú þegar skil á þeim til sjóösins. Hafi ekki veriö gerö skil á öllum vangoldnum iögjöldum innan 30 daga frá birtingu þessarar tilkynningar, mun veröa óskaö uppboössölu á viökomandi skipi (lögveöi) til fullnustu skuldarinnar. Reykjavík, 19. október 1979 F. h. Lífeyrissjóðs sjómanna TR YGGINGA S TOFNUN RÍKISINS Iðnkynning „Þaö er íslenzk iönkynning í Ámunni, Grensásvegi 13.“ Næstu daga veröa seld á kynningar- veröi bæöi ölgeröarefni og þrúgusafar, sérstaklega framleidd fyrir íslenzkar aöstæöur. Komiö og kynnist hvers íslenzkur efnaiönaöur er megnugur. Viö ábyrgjumst gæöin. Áman, Grensásvegi 13, sími 84425. Kantlímdar — smíðaplötur (Hobby-plötur) fyrir fagmenn og leikmenn. HWtar plast- hillur 30 cm 50 cm °9 60 cm breiöar Spon/agðar meó KOTO- Mah°gny_ e’kgr °9 furuspæn/ Jdva/ið tii skápa- J,l6e Viðarþiljur í 7 viöartegundum spónaplötur í 8 þykktum og 7 stærðum, rakavarö- ar, eldvarðar, spónlagö- ar, plastlagöar í hvítu og viðarlitum. | P/ast- | Zagðar I Plasthillur f nieð teak f °9 mahogny viðarlíkí 60 cm breiöar. j Tilyalið I iskápa 1 °9 hillur. 1 BJORNINN Skúlatúni 4. Simi 25150. Reykjavik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.