Morgunblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979
Framboðslisti sjálfstæðismanna
í Reykjaneskjördæmi:_
Matthías, Ólafur og
Salóme í efstu sætum
KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi
samþykkti í gærkvöldi framboðs-
lista flokksins í kjördæminu við
alþingskosningarnar í desember.
Var listinn samþykktur með öllum
þorra atkvæða gegn þremur og
nokkrir sátu hjá.
Listinn er þannig skipaður:
1. Matthías Á. Mathiesen fyrrv.
alþm. Hafnarfirði.
2. Ólafur G. Einarsson fyrrv alþm.
Garðabæ.
3. Salóme Þorkelsdóttir gjaldkeri,
Mosfellssveit.
4. Sigurgeir Sigurðsson bæjar-
stjóri, Seltjarnarnesi.
5. Arndís Björnsdóttir kennari,
Garðabæ.
6. Ellert Eiríksson verkstjóri,
Keflavík.
7. Helgi Hallvarðsson skipherra,
Kópavogi.
8. Bjarni Jakobsson formaður
Iðju, Garðabæ.
9. Eiríkur Alexandersson bæjar-
stjóri, Grindavík.
10. Oddur Ólafsson fyrrv. alþm.
Mosfellssveit.
Álít að auka þurfi
vægi atkvæða í Reykja-
vík og á Reykjanesi”
r
— segir Olafur Jóhannesson
ÉG ÁLÍT að vægi atkvæða, sér-
staklega hér í Reykjavik og á
Reykjanesi, þurfi að auka, en ég er
þó ekki reiðubúinn til að tjá mig
nánar um hvernig það skuli gera,“
sagði Ólafur Jóhannesson, fyrrver-
andi formaður Framsóknarflokks-
ins, i samtali við Morgunblaðið i
gær, er hann var spurður álits á
ályktun fulltrúaráðs Framsóknar-
félaganna i Vestur-Húnavatns-
sýslu.
í ályktuninni segir meðal annars:
„Fundurinn telur fráleitt að skerða
hlutfallstölu alþingismanna úti á
landbyggðinni og álítur það hvorki í
anda jafnréttis né félagshyggju.
Skorar fundurinn á flokkssystkin
sín að vinna að stefnubreytingu
innan flokksins, þannig að dreifbýl-
ismenn verði ekki sviptir enn meiri
áhrifum og kjör þeirra rýrð. Nóg
hefur verið um fólksflóttann til
Reykjavíkursvæðisins á undan-
gengnum áratugum."
I greinargerð segir að fundurinn
telji ekki réttlætanlegt að auka tölu
alþingismanna á Stór-Reykja-
Oánægja í Siglu-
fírði með yöruflutn-
inga Arnarflugs
Siglufirði 5. nðveraber 1979.
MEGN óánægja er nú hér í Siglu-
firði með þjónustu flugfélagsins
Arnarflugs, hvað snertir flutning á
blaðapósti hingað. Þrátt fyrir að
hingað hafi verið flogið tvisvar í
dag, mánudag, höfum við engin
dagblöð fengið síðan á föstudag.
Skýringarnar munu vera þær, að
mistök hafi átt sér stað á vöruaf-
greiðslunni í Reykjavík, en vöruaf-
greiðsla Flugleiða afgreiðir vörur
fyrir Arnarflug til Siglufjarðar.
Siglfirðingar eru sem fyrr segir
afar óánægðir með þessa þjónustu
og nú er jafnvel svo komið að menn
eru farnir að minnast þeirra daga
með söknuði er Vængir flugu hingað.
— Fréttaritari.
víkursvæðinu, þar sem aðstaða til
áhrifa á gang þjóðmála er margfalt
auðveldari í námunda Alþingis,
ríkisstjórnar og ráðuneyta, en úti á
landsbyggðinni. Auk þess sem
lífskjör almennings, aðstaða til
menntunar og atvinnuvals er stór-
um betri.
Að lokum segir, að verðmæta-
sköpun almennings úti á landi sé
undirstaða efnahagslegs sjálfstæðis
þjóðarinnar. Því er óeðlilegt að
minnka áhrif dreifbýlisbúa og
krenkja kjör þeirra, sem stefnt er
að, í hóflausum áróðri fjölmiðla
höfuðstaðarins.
Tóbak hækkar um 18%:
Færir ríkis-
sjóði tvo millj-
arða á ári
TÓBAK hækkaði í verði í gær, og
nemur hækkunin 18 af hundraði.
Við þessa hækkun hækkar pakki af
venjulegum vindlingum úr 680
krónum i 800 krónur, og pakki af
London Docks vindlum hækkar úr
1000 krónum í 1180 krónur. Ekki
mun hafa verið tekin nein ákvörð-
un um hækkun á áfengi enn sem
komið er að minnsta kosti.
Samkvæmt upplýsingum Þor-
steins Geirssonar í fjármálaráðu-
neytinu mun þessi hækkun færa
ríkissjóði um það bil tvo milljarða
króna í auknar tekjur á ári, eða um
333 milljónir króna það sem eftir er
þessa árs.
I frétt frá fjármálaráðuneytinu
segir að verð á tóbaki hefi farið
lækkandi síðustu áratugina miðað
við kaupgjald, og miðað við þá
aukningu sem orðið hefur á neyslu
tóbaks að undanförnu telur ríkis-
stjórnin óeðlilegt að verð á tóbaki
fari lækkandi. Verð á vindlinga-
pakka sem hlutfali af tímakaupi
síðustu áratugina hefur verið sem
hér segir:
í okt 1950 88% í nóv. 1975 56%
í okt 1960 83% í sept. 1978 57%
í nóv. 1965 61% í júní 1979 53%
í nóv. 1970 57% í nóv. 1979 48%
Fljótsdalsvirkjun:
Ríkisst jórnin samþykk-
ir að láta hraða undir-
búningsrannsóknum
Fulltrúaráð
Framsóknarfélags
V Húnvetninga:
Óeðlilegt
að minnka
áhrif
dreifbýlis-
búa
Á FUNDI sinum 30. október s.l.
gerði rikisstjórnin svofellda sam-
þykkt:
„Ríkisstjórnin samþykkir að fela
iðnaðarráðherra að láta hraða und-
irbúningsrannsóknum að Fljóts-
dalsvirkjun og varið verði nauðsyn-
legu fjármagni i þvi skyni.
Jafnframt samþykkir rikis-
stjórnin, að kannað verði, hvaða
iðnaðar- og atvinnutækifæri þessi
virkjun geti skapað Austfirðinga-
fjórðungi, svo og hvaða áhrif hún
mundi hafa á hugsanlegan útflutn-
ing orku“.
Ofangreinda könnun hefur iðnað-
arráðherra falið starfshópi þeim, er
skipaður var til viðræðna við Færey-
inga um athugun á tæknilegum og
hagrænum forsendum þess að leggja
sæstreng milli íslands og Færeyja.
í fréttatilkynningu frá iðnaðar-
ráðuneytinu um þetta mál segir
ennfremur:
Hinn 18. f.m. afturkallaði núver-
Austfirðir:
Listi sjálfstæðismanna
BIRTUR hefur verið framboðs-
listi Sjálfstæðisflokksins i Aust-
urlandskjördæmi, en hann var
ákveðinn á sunnudag í framhaldi
af prófkjöri sjálfstæðismanna er
fram fór eystra sl. föstudag og
laugardag.
1. Sverrir Hermannsson fyrr-
verandi alþingismaður Reykjavík.
2. Egill Jónsson bóndi Seljavöll-
um. 2. Tryggvi Gunnarsson skip-
stjóri Vopnafirði. 4. Þráinn Jóns-
son framkvæmdastjóri Fella-
hreppi. 5. Júlíus Þórðarson bóndi
Skorrastað Norðfirði. 6. Jóhann D.
Jónsson umdæmisstjóri Egils-
stöðum. 7. Ásmundur Ásmunds-
son framkvæmdastjóri Reyðar-
firði. 8. Albert Kemp vélvirki
Fáskrúðsfirði. 9. Herdís Hermóðs-
dóttir húsmóðir Eskifirði. 10. Pét-
ur Blöndal framkvæmdastjóri
Seyðisfirði.
Flugleidir taka 7 millj-
arða lán til þotukaupa
FLUGLEIÐIR hf. hafa gengið
frá lántöku vegna kaupa á nýrri
Boeing 727-200 þotu sem félagið
á nú i smiðum i Bandaríkjunum.
Sigurður Helgason forstjóri und-
irritaði lánssamninginn í London
í fyrri viku en samkvæmt honum
taka Flugleiðir að láni rúmlega
17,8 millj. dollara eða 6,9 millj-
arða kr. vegna nýju þotunnar og
kaupa á varahlutum.
Aðallánveitandi er Scandina-
vian Bank Limited í London, sem
ásamt Irving-Trust Company lán-
ar 57,5% upphæðarinnar. Einnig
ábyrgist Scandinavian Bank lán
frá Export — Import bankanum í
Bandaríkjunum að 42,5% hluta
lánsins. Lánstími er tíu ár.
Vextir skiptast þannig að af
43,5% lánsins verða vextir 8,75%
á ári á lánstímanum en af 57,5%
verða reiknaðir millibankavextir í
London að viðbættum 0,75%.
Scandinavian Bank í London
fær veð í nýju þotunni .
Eins og áður hefir komið fram í
fréttum verður þessi nýja Boeing
727-200 þota afhent félaginu í maí
næstkomandi.
Hún er stærri og burðarmeiri en
þær Boeing þotur sem félagið á nú
og tekur 164 farþega í sæti.
Flugvélin verður að mestu notuð á
áætlunarleiðum milli íslands og
annarra Evrópulanda.
Þessi nýja flugvél verður að því
leyti frábrugðin þeim Boeing 727
þotum sem félagið á nú, auk þess
að vera stærri og burðarmeiri
tekur hún eingöngu frakt í lestar
og ekki er gert ráð fyrir að
farþegarými sé nýtt-til vöruflutn-
inga að einhverju eða öllu leyti.
Dagbjört
fékkköku
keflið!
ÁÐUR en Magnús L. Sveins-
son sleit þingi verslunar-
manna í Stykkishólmi um
helgina, afhenti hann Dag-
björtu Höskuldsdóttur vara-
forseta þingsins gjöf, sem
hann kvaðst vonast til að
kæmi henni að notum í fram-
tíðarbaráttunni.
Vitnaði Magnús til viðtals við
Dagbjörtu í Hlaðvarpa Morg-
unblaðsins fyrir skömmu, þar
sem Dagbjört svaraði spurn-
ingu blaðamanns um það hvort
hún biði eftir byltingunni á þá
leið, að víst gerði hún það, en
myndi þó ekki fara út í hana
með búrhnífinn á lofti. „Ætli ég
láti mér ekki nægja kökukefl-
ið,“ sagði Dagbjört. Afhenti
Magnús henni kökukefli að gjöf
til þessara nota. Var keflið af
plasti gjört og fylgdi sú skýring
gjöfinni, frá gefanda, að hann
gerði ráð fyrir að keflið yrði að
mestu notað á framsóknar-
menn og þar sem í þeim hópi
ætti hann marga góða vini vildi
hann ekki verða valdur að
meiðslum í þeirra röðum.
Dagbjört Höskuldsdóttir.
andi iðnaðarráðherra ákvörðun
fyrrverandi iðnaðarráðherra um
virkjun Bessastaðaár sem fyrsta
áfanga Fljótsdalsvirkjunar.
Afturköllun þessi var tekin vegna
eftirtalinna atriða:
Enn þótti skorta á, að nægilegar
rannsóknir hefðu farið fram til
ákvörðunartöku um Fljótsdalsvirkj-
un.
Eigi eru til heimildarlög um
Fljótsdalsvirkjun.
Heimildarlög um virkjun Bessa-
staðaár frá 31/12 ’74 ná aðeins til 32
MW virkjunar og mjög hæpið laga-
lega að breyta þeirri virkjun í fyrsta
áfanga Fljótsdalsvirkjunar.
Alþingi hafði ekki samþykkt nein
fjárframlög til Fljótsdalsvirkjunar.
Þótt fyrrgreind afturköllun væri
gerð, var það ætlað iðnaðarráðherra,
að nauðsynlegar rannsóknir varð-
andi Fljótsdalsvirkjun héldu áfram
án tafar, en við athugun kom í ljós,
að það fjármagn, sem á þessu ári var
ætlað til slíkra rannsókna var að
fullu notað. Varð þá annað tveggja
að stöðva rannsóknir þessar á loka-
stigi, sem var óæskilegt, eða útvega
aukafjárveitingu til þessa verkefnis,
og hefur það nú tekist.
Stal bíl og
ók á hús
UM FIMMLEYTIÐ aðfararnótt
s.l. sunnudags var Mercedes Benz
bifreið stolið, þar sem hún stóð
við húsið Austurgötu 11 í Hafnar-
firði. Þjófurinn ók bifreiðinni
eftir Austurgötunni og yfir
Reykjavíkurveginn en brást þá
ökufimin og urðu afleiðingarnar
þær að hann ók á húsið númer 1
við Reykjavíkurveg.
Talsverður hraði var kominn á
bílinn og skemmdist hann mikið
við þennan árekstur en í húsinu
brotnaði rúða og einnig urðu
skemmdir á gluggakarmi. Öku-
maðurinn var 18 ára Hafnfirðing-
ur, sem margoft hefur stolið bílum
og var þetta t.d. í þriðja skiptið,
sem ^ann stelur þessum sama
vörubíl. Hann var undir áhrifum
áfengis og ökuréttindalaus, en
hann hefur fyrir allnokkru verið
sviptur réttindum til þess að
öðlast bílpróf.