Morgunblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979 35 Dagrún Kristjánsdóttir; Hefur þú nokkurn tíma staðið við gluggann þinn og horft út? Jú, auðvitað, — svarar þú — oftar en tölu verður á komið, það er aðeins blindur maður sem kemst hjá því að sjá það sem blasir við umhverf- is heimili manns. Þetta má rétt vera að vissu marki, en að sjá og SJÁ, er ekki alveg það sama. Við sjáum landslag, byggingar, bíla á ferð og gangandi fólk, en oftast gefum við þessu engan verulegan gaum, þetta er hluti af okkar daglega lífi, ekkert markvert — nema ef við ber einhver óvenjuleg- ur atburður — húsbruni, morð, rán, slys — þá er eins og sálartetr- ið rumski um stundarsakir, en brátt fellur sama mókið yfir okkar ósýnilegu verund og við íklæðumst hinni efnislegu brynju að nýju. Ef til vill hafa atburðir, sem þeir, er nefndir voru, hrært aðeins við öðrum og göfugri tilfinningum augnablik, en hve lengi staldra þær við? Víkja þær ekki alltof fljótt fyrir þeirri áráttu flestra að finnast lífið litlaust og leiðinlegt, ef ekki berst jafn straumur af fréttum hvaðanæva að úr heimin- um? En fréttir eru sem kunnugt, yfirgnæfandi um það sem ekki er gott. Það verður alltaf einhver eða einhverjir fyrir einhverskonar hnjaski, meiru eða minna, — andlega, líkamlega, efnislega og þjóðfélagslega. Við getum staðið við gluggann okkar og þrátt fyrir ágæta líkam- lega sjón, þá sjáum við alls ekki neitt, jafnvel það sem blasir við augum, — við erum þá með hugann víðs fjarri því að skoða þá dásamlegu náttúru, sem guð hefur skapað og gefið okkur um stundar- sakir. Við erum sennilega að ígrunda hvaða ráðum við getum beitt til að afla okkur sjálfum meiri lífsþæginda. Okkur nægir alls ekki að eiga íbúð, bíl, nægilegt fjármagn til fæðis og fata, geta farið til útlanda árlega, skemmt okkur hressilega um helgar þegar okkur langar til o.s.frv. Nei, þetta er alls ekki „mannsæmandi líf“. Við verðum að krækja í meiri völd, meiri peninga, já tugi milljóna, annars er líf okkar eyðilagt, — við erum hreint ekki neitt ef við getum ekki veitt okkur hvað eina sem hugurinn girnist og setið í hásæti úr gulli. Kapphlaupið um hin efnislegu gæði, er búið að steypa mannkyni í gl'ötun. Eigin- girnin er svo takmarkalaus að hroll hlýtur að setja að þeim sem eitthvað hugsa og sjá lengra. Hnefarétturinn er orðinn allsráð- andi á heildina litið. Það er litið á þá sem afglapa og utangarðsfólk, sem hafa ekki fylgt straumnum, en hver verður niðurstaðan að lokum? Hver uppsker mest með lífi sínu, — sá sem aðeins hugsar um sjálfan sig, peninga og þæg- indi, eða hinn sem býr við skarðan við hlut, efnislega og til viðbótar gefur ríkulega af góðum sjóði hjarta síns? Við skulum enn líta út um gluggann okkar. í þetta sinn sjáum við ef til vill eitthvað sem okkur hefur yfirsézt áður. Við sjáum núna ekki aðeins hús, landslag, bíla og fólk á ferð, okkur óviðkomandi — heldur rennur upp fyrir okkur fegurð landsins og hve mikill sá máttur er sem hefur skapað þetta meistaraverk og við- heldur öllu lífi á jörðu og á. Við hljótum að fyllast aðdáunar á sköpunarverkinu ásamt því að fá meðvitund um að þetta allt er ekki til orðið aðeins „fyrir mig“ — það er ekki bara „ég“ sem er til. í örfárra skrefa fjarlægð er fólk sem þú horfir á næstum eins og hvern annan hlut, fjarlægðin eyk- ur enn meir þá óljósu tilfinnningu að það sé aðeins þú, sem lifir og finnur til — aðeins þú sem þurfir að fá hærra kaup, og skapa þér meiri lífsþægindi og aðeins þú eigir heimtingu á að fá að lifa slysa- og óhappalausu lífi. En hver ert þú sem dirfist að hugsa þannig? Eigingirnin og ágirndin má ekki ráða yfir okkur svo að við tröðkum á öðrum, gerum þeim órétt, gerum þeim lífið erfiðara en þörf er. Við gleymum því í ákafan- um að gera okkar eigið líf sem auðveldast og skemmtilegast — að líf annarra gæti orðið mun betra og skemmtilegra fyrir okkar til- stilli, aðeins ef að við tímdum að sjá af, þó ekki væri nema nokkrum tíma á dag til þess að hugsa til annarrá með samúð og skilningi, hvað þá ef meira væri gert. Þrátt fyrir öll mannalæti og sýndar- mennsku, þá er það enginn sem ekki hefur þörf fyrir að njóta góðra hugsana annarra, orða eða gjörða. Það er skilningsleysið í garð annarra sem er eins og veggur milli fólks og við reynum að viðhalda þessum vegg til þess að vera ekki neydd til að taka þátt í erfiðleikum annarra. Við viljum helst ekkert af þeim vita, því að flestir kjósa að vera vinur þegar allt leikur í lyndi, en hverfa svo hljóðlega, þegar syrtir í álinn. Sjáum við nokkuð rangt við þetta? Heitir það ekki aðeins að „vilja ekki blanda sér í málefni," — sem „mér koma ekki við“. Jú, þetta lítur vel út og sýnir að engin hnýsni á sér stað, en velvild, samúð og skilningur, er ekki það sama og afskiptaleysi eða forvitni um hagi náungans. Við eigum engu síður finna til með okkur alókunnugu fólki, sem ratar í erfiðleika. Samúðin er efalaust sú tilfinn- ing, sem lyftir einstaklingnum hæst, sem sýnir bezt þroska hans á lífsbrautinni. Sá sem er samúð- arfullur í garð annarra beitir aldrei hnefaréttinum, hann lætur heldur ranglætið ganga yfir sjálf- an sig, en að beita aðra ranglæti. Hann reynir að greiða úr erfið- leikum, frekar en að auka þá, sé það á hans valdi. Það er fáum gefið að geta elskað náungann eins og sjálfan sig, en spor í áttina er, að skilja náungann og finna til með honum, eins og hver og einn finnur til með sjálfum sér, ef ranglega er að honum vegið. Heimurinn þarf ekki að vera fullur illsku og óhæfuverka, hat- urs og ágirndar, — það er ekkert það til, sem ekki er betra að taka á af mildi, en hörku. Það er enginn meiri fyrir það að brynja sig með reiði og ósveigjanleika í garð annarra. Þvert á móti, það er sama og leiðin niður, — en sáttfýsi og fyrirgefning er sókn í brattann og um leið vegurinn til samúðar og kærleika. Dagrún Kristjánsdóttir. EFÞAÐERFRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU 1* AL'GLVSINGA- SÍMINN ER: 22480 Lífið og Frískandi og gott á fímm sekúnaum. Það er Fountain. Engin venjuleg kaffívél Fountain drykkjavélin er engin venjuleg kaffivél, því að þú getur valið um sex kafFitegundir, fjórar tetegundir, þrjár súkkulaði- tegundir, sjö súputegundir og fjóra ávaxtadrykki. Þú getur fengið vél með tveim, fjórum eða sex fyllingum í einu, með eða án sjálfsala. Fimm sekúndur Það tekur þig aðeins fimm sekúndur að fá frískan og góðan drykk úr Fountain. Fountain hentar alls staðar Fountain hentar vel fyrir fyrirtæki, stór eða smá, söluskála og heimili. Einning eru fáanlegar 24volta vélar fyrir skip, báta og langferða- bíla. Ath! Ókeypis hiáefni l.sept.-l.des. Kaupir þú Fountain nú, færðu fyrstu fyllingamar ókeypis. Síðan er hráefninu ekið til þín, án endurgjalds, hálfsmánaðarlega eða eftir samkomulagi. Ég óska eftir að fá senda Fountain drykkjavél fyrir: □ 2 fyllingar □ 4 fyllingar D 6 fyllingar - gegn póstkröfu. □ Ég óska eftir að fá senda mynd- og verðlista. □ Ég óska eftir að fá sölumann í heimsókn. Nafn Heimili Simi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.