Morgunblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 24
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979 Frá 12. þinKÍ Landssambands islenskra verslunarmanna i Stykkishólmi um helgina. Björn bórhallsson formaóur i ræðustól. Félögin segi nú þegar upp gildandi samningum BJÖRN Þórhailsson var endurkjörinn formaður Landssambands islenskra verslunarmanna á tólfta þingi sambandsins scm haldið var um hclgina i Stykkishólmi. Meðstjórnendur voru kosnir þeir Hannes Þ. Sijíurðsson, Guðmundur Gunnlaugsson, Ása Ilelgadóttir. Soffia Johnson. Böðvar Pétursson. Ilólmfríður Ólafsdóttir. Guðmundur Jónsson. Gunnar Kristmundsson. Grétar Hannesson og Guðrún Eg)?ertsdóttir. Á þinginu var samþykkt svo- hljóðandi kjaramálaályktun. Þingið beinir því til aðildarfé- laganna, að þau segi nú þegar upp gildandi samningum. Þingið tekur undir þá megin- stefnu, sem mótuð var á kjara- málaráðstefnu ASI 19. október sl. Þingið leggur megináherslu á það, að trygging kaupmáttar og atvinnuöryggi eru höfuðkröfur launþega við næstu samninga- gerð. Kaupmáttur launa hefur rýrn- að verulega frá því sem um var samið í samningunum í júní 1977. Rýrnunin er vegna inn- lendra og erlendra verðhækk- ana, en ekki síst vegna stjórn- valdaákvarðana. Þingið mótmælir þeirri rök- semdarfærslu að verðbólgan stafi af vísitöluhækkunum launa. Það áréttar þá skoðun sína, að vísitöluhækkun launa sé eina tæki launþegans til þess að tryggja kaupmátt launa sinna í óðaverðbólgu. Haustið 1977 jókst mjög mis- ræmi milli samninga verslunar- manna og annarra, sem vinna sambærileg störf. Nokkur ár- angur náðist til jöfnunar með kjaradómi í maí 1979. Þingið tekur undir bókun fulltrúa versl- unarmanna í kjaradómi varð- andi þá staðreynd, að afgreiðslu- fólk nýtur mun lakari kjara en aðrir, sem vinna sambærileg störf. í komandi samningum verður áhersla lögð á leiðrétt- ingu á kjörum þessa fólks. Þingið áréttar, að í fjölmörg- um veigamiklum kjaraatriðum standa verslunarmenn langt að baki öðrum, sem vinna sambæri- leg störf. Má þar m.a. nefna persónuuppbætur og sérstakar orlofsgreiðslur. Mötuneyti og niðurgreitt fæði jafnast eitt á við u.þ.b. 10% af launum af- greiðslufólks í 5. launaflokki. Nauðsynlegt er að kanna, hvort æskilegt sé eða mögulegt að koma á hvetjandi launakerf- um við verslunar- og skrifstofu- störf. Síðast en ekki síst leggur þingið áherslu á þá meginkröfu, að launataxtar sem samið er um fyrir dagvinnu nægi til þess að meðalfjölskylda geti lifað af dagvinnutekjunum einum. Alþýðubandalagið í Reykjavík: Karlmenn í þremur efetu sætum listans Alþýðubandalagið í Reykjavík hefur birt framboðslista sinn vegna alþingiskosninganna í desember og er skipan sex efstu sæta listans í samræmi við úrslit forvals flokksins. Tólf efstu sæti framboðslistans skipa: 1. Svavar Gestsson fyrrverandi ráðherra. 2. Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasam- bands íslands. 3. Ólafur Ragnar Grímsson próf- essor. 4. Guðrún Helgadóttir borgar- fulltrúi. 5. Guðrún Hallgrímsdóttir matvælafræðingur. 6. Sigurður Magnússon rafvéla- virki. 7. Adda Bára Sigfúsdóttir borg- arfulltrúi. 8. Guðjón Jónsson formaður Málm- og skipasmíðasam- bandsins. 9. Ester Jónsdóttir varafor- maður Sóknar. 10. Bragi Guðbrandsson félags- fræðingur. 11 Ólöf Ríkharðsdóttir fulltrúi. 12. Kjartan Ragnarsson leikari. Flugleiðir á heim- leið með pílagríma SÍÐARI törn í pilagrímaflugi Flugleiða, þ.e. heimflutningur pílagrímanna hefst nú í vikunni og verður fyrsta ferðin farin frá Jeddah í Saudi-Arabíu til Oran í Alsír mánudaginn 5. nóvember. Alls verða 26 ferðir milli staðanna og áætlað að flytja 6500 pílagrima á þeirri leið. DC-8 þota Flugleiða verður i þessum flutningum og með henni fjórar áhafnir. Alsírska flugfélagið sem hefir þotuna á leigu hefir nýtt hana til áætlunarflugs að undanförnu, þ.e. i þvi hléi sem er meðan á sjálfri trúarhátiðinni stendur. Þá hefjast heimflutningar pílagríma frá Jeddah til Indonesiu miðvikudaginn 7. nóvember og er áætlað að þeim ljúki 3. desember. DC-10 þota Flugleiða er notuð til þessara flutninga. Rúmlega níu þús- und indonesiskir pílagrímar verða fluttir til Surabaya í 24 ferðum. Á fluginu suður eftir verður milli- lent í Dubay, en þar, eins og í Jeddah, Oran og Surabaya eru starfsmenn Flugleiða staðsettir meðan á pílagrímaflutningunum stendur. Alls taka um 130 starfsmenn Flugleiða þátt í pílagrímafluginu að þessu sinni. Meðan á pílagrímafluginu stendur annast DC-8 þotur félagsins áætlun- arflugið yfir Norður-Atlantshaf er sá flugkostur nægjanlegur til þess að sinna áætluninni þann tíma. • • 01 og gosdrykkir: Kjartan Jóhannsson um loðnuveiðarnar: __________________ Glerið heldur velli Ákvörðun sem tekin er en dósirnar vík j a af okkur og okkur einum „Mér finnst að þeir, sem tala um það, að ég hafi farið eingöngu eftir sameinuðu áliti norskra og islenzkra fiskifræðinga varðandi loðnuveiðarnar, en hafi ekki tek- ið mark á bráðabirgðaskýrslu Hjálmars Vilhjálmssonar, verði nú að læra einfalda samlagn- ingu“, sagði Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra, er Mbl. leitaði í gær álits hans á þeirri gagnrýni, sem fram hefur komið á ákvörðun hans varðandi loðnu- veiðarnar. „Það er þegar búið að veiða 525 þúsund tonn“, sagði Kjartan. „Það er talað um að taka frá allt að 200 þúsund tonn til hrognatöku, þann- ig að þá erum við komnir með 725 þúsund tonn, sem eru 75 þúsund tonn fram yfir þau 650 þúsund, sem í sameiginlega álitinu var talað um. Þar til viðbótar leyfi ég loðnuveiðar til 10. nóvember og væntanlega veiðist eitthvað fram að þeim degi. Þannig er þegar í þessu gert ráð fyrir að fara um það bil 100.000 tonn fram yfir 650.000 tonnin og þá áhættu tek ég út frá bráðabirgðaniðurstöðum Hjálmars um að ýmislegt bendi til að loðnustofninn sé eitthvað stærri, en menn reiknuðu með. Auk þess tek ég fram, að um og upp úr áramótum verði litið á þessi mál aftur og þá tekin ákvörðun að nýju um eitthvað frekari veiðar, ef rannsóknir Haf- rannsóknastofnunarinnar gefa til- efni til þeirra. Það er því alveg ljóst, að hér er um ákvörðun að ræða, sem er tekin af okkur og okkur einum á grundvelli beztu vitneskju, sem fyrir liggur. Norðmenn hafa engin afskipti haft af þessari ákvarð- anatöku. Það er okkar réttur og skylda að ákveða heildarveiði- magnið úr loðnustofninum. Það er stjórnvaldsákvörðun. Sameigin- legar rannsóknir íslendinga og Norðmanna eiga sér margra ára sögu og hvað sem út úr þeim kemur, þá hlýtur ráðherra að meta málið í heild. Út af Jiugmyndum um það að Jan Mayen nefndin verði kölluð saman til fundar vegna þessarar ákvörðunar, þá tel ég þær tilefn- islausa viðurkenningu á því, að þetta sé eitthvað, sem við þurfum að ræða við erlenda aðila. Jan Mayen nefndin á að eiga í viðræð- um við útlendinga og ég tel ótækt að gefa undir fótinn með það að ákvörðun veiðimagns úr loðnu- stofninum sé mál sem við þurfum að bera undir aðrar þjóðir". Á FUNDI Kaupmannasamtaka íslands fyrir skömmu kom fram ósk til gosdrykkjaframleiðenda um að þeir tækju upp nýjar umbúðir á gosdrykkjum og öli, þ.e. aðrar umbúðir en gler. Var rætt um það á fundinum að gler hækkaði m.a. vöruverð úti á landi þar sem dýrt væri að flytja vöruna í glerumbúðum. Mbl. innti talsmann kaupmanna að því hvort ákveðnar hugmyndir lægju að baki þessari ósk en hann kvað það ekki vera og reyndar lægi það ljóst fyrir að helzta pakkningin sem kæmi til greina, dósir, væri á undanhaldi víða um hinn vestræna heim. Örn Hjaltalín hjá Agli Skalla- grímssyni kvað ekkert vera á könnunni í þessum efnum, því t.d. í Bandaríkjunum og Danmörku væri verið að banna notkun dósa undir öl og gosdrykki. „Við miðum við að nota sama gler aftur og aftur, þróunin er í þá átt.“ Björgunarsveitin Albert á æfingu: Fluglínutækjaæfingmeð nýjum tækjum ' -......................................, ..... ALBERT, björgunarsveit Slysavarnarfélags íslands á Seltjarnarnesi var meö björgunaraefingu um helgina á norðanverðu Nesinu, þar sem þessar meðfylgjandí myndir voru teknar. Að sögn Jónatans GUðjónssonar í Albert voru þeir að æfa meöferö á nýjum fluglínutækjum sem þeir fengu nýlega, sérstaklega var lögð áherzla á þjálfun yngri félaga sveitarinnar sem ekki hafa hlotið fullnaðarþjálfun f meðferö slíkra tækja. Skotiö rfður af úr nýrri fluglínu- byssu f átt aö gúmbjörgunar- bátnum fyrir utan. LJósmynd Mbl. ÓI.K.M. „Æfingin fór þannig fram, aö menn æföu sig í aö skjóta úr fluglínubyssu út í gúmbjörgunarbát sem var úti á sjónum. Þá var strengd lína yfir í bátinn og æfö meöferð á björgunarstólnum, þ.e. menn fluttir í stólnum á milli. Þá æföum viö nokkuö meðferö gúmí- báta meö nýjum félögum," sagði Jónatan Guöjónsson ennfremur. Jónatan sagði, aö nú væru starfandi 22 félagar í sveitinni, þ.e. paö væri sá fjöldi sem tæki virkan þátt í starfinu. Starfiö væri mjög fjölbreytt. „Viö hittumst alltaf á hverju fimmtudagskvöldi í húsnæöi sveitarinnar og fer þá ýmist fram ýmiss konar vinna, eða haldnar eru minniháttar æfingar. Síöan væri eitthvaö að gera hjá félögunum um nánast hverja einustu helgi. Þá væri fariö í gegnum ýmis þau atriöi sem nauösynleg eru hverjum góö- um björgunarsveitarmanni. „Það er ýmist aö viö erum annan daginn um helgar eöa báðar,“ sagöi Jóna- tan ennfremur. Aöspuröur um hvort eitt svið skipaöi hærri sess enn annaö í starfinu sagöi Jónatan þaö ekki vera. Þeir reyndu aö vera á sem breiðustum grundvelli. Innan vé- banda sveitarinnar væru menn sem sérhæföu sig f köfun, skyndihjálp og sjúkraflutningum, fjallamennsku og björgunaraðgerðum á sjó svo eitthvaö sé nefnt. Tilvalið þótti að leyfa yngstu kynalóðinni að vera með og er einn atrákanna kominn í björg- unarstólinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.