Morgunblaðið - 06.11.1979, Page 5

Morgunblaðið - 06.11.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979 5 Flestir vilja lata rífa Fjalaköttinn — segir Þorkell Valdimarsson, eftir að þús- undir Reykvíkinga skoðuðu húsið um helgina MILLI átta <>k níu þúsund RoykvíkinKar notfa'rðu súr buð Þorkels Valdimarssonar. eÍKanda Aðalstrætis 8 í Reykjavík. Fjala- kattarins. ok skoðuðu húsið um helgina. að því er Þorkell tjáði hlaðamanni MorKunhlaðsins í Ka'r. Þorkell sagði. að fólk hefði verið beðið um að svara því hvort það væri reiðuhúið að verja allt að einum milljarði króna til viðserða á húsinu. ok hefðu lanjfflestir verið þeirrar skoðun- ar. að rífa a‘tti húsið. Hefðu sjó verið þeirrar skoðunar. að ekki ætti að sera húsið upp á móti Tvær sölur í Englandi SNÆFELL seldi 96 tonn í Hull í gær fyrir 52 milljónir, meðalverð 542 krónur. Aðalvíkin seldi 97 tonn í BGrimsby fyrir 56 milljón- ir, meðalverð 570 krónur. hverjum einum sem vildi gera við það. Þorkell sagðist vera þeim mörgu Re.vkvíkingum, sem lögðu leið sína í Fjalaköttinn um helgina, þakk- látur, og vonandi hefði fólk nú betri hugmynd um hvernig húsið væri. Kvaðst Þorkell ekki hafa fjárhagslegt bolmagn til að standa straum af kostnaði við viðgerðina einn, til þess þyrfti hann aðstoð fleiri aðila. Hann kvaðst hins vegar vilja láta það koma skýrt fram, að hann stæði ekki í vegin- um fyrir slíkum endurbótum á húsinu. „Það kostar mig 10 milljónir króna á ári að eiga húsið," sagði Þorkell, „eða 1250 krónur á klukkustund, hvort sem ég er vakandi eða sofandi. Tekjur þær sem ég hef af húsinu eru hins vegar ekki nema um það bil einn tíundi þess sem greiða þarf í gjöld, enda er mér óheimilt að leigja nema 10% hússins út vegna eld- hættu." Töpuðu 6 af 99 netum vegna of mikils afla: „Sjórinn gjör- samlega s vart- ur af síld....” llnfn i HornafirOi .r>. nóv. 1!)79. MJÖG mikill síldarafli hefur hor- ist hér á land. og hefur orðið að senda háta á aðrar hafnir með afla til vinnslu þar sem ekki hefur hafst undan hér á Höfn. Ilefur verið leitað til Þorláks- hafnar. Fáskrúðsfjarðar og fleiri hafna. Er aflinn með því mesta sem hér hefur borist á land. Mikið netatjón varð hjá bátun- um í nótt, frá tuttugu upp í fjörutíu net töpuðust eða eyðilögð- ust. Mesta tjónið var hjá Gissuri hvíta, en skipverjar á honum lögðu 99 net en náðu aðeins 6 netum inn, hin töpuðust. Var svo mikil síld í netunum að þau náðust ekki um borð. En í þessi sex net fengust 170 tunnur eða 17 tonn, en við venju- legar aðstæður er talið gott að ná tveimur til þremur tunnum í net. en þarna voru tæpar 30 tunnur í hverju neti. Hefði allur aflinn náðst inn hefði aflinn því getað orðið 3 þúsund tunnur eða 300 tonn hjá Gissuri hvíta einum. Sjórinn er gjörsamlega svartur af síld og netin lágu aðeins í klukku- tíma. Jón Sveinsson útgerðarmaður sagði að svona lagað hefði aldrei gerst áður, þetta væri í fyrsta skipti sem menn yrðu fyrir skakkaföllum af þessu tagi. Ekki eru menn þó af baki dottnir þrátt fyrir tjónið, því að sendar voru tvær flugvélar austur með net í dag, og bátarnir voru farnir aftur um klukkan fjögur í dag. Það er því ekkert verið að gefa eftir, og allir bátar komnir út aftur, nema þeir er sigla þurftu lengra með aflann, og er búist við miklum afla aftur á morgun. — Einar. Már Magnússon Jónina Gísladóttir Ljóðasöngur á hádegis- tónleikum Söngskólans FIMMTU „hádegistónleik- ar“ Söngskólans í Reykjavík verða á morgun, miðvikudag, klukkan 12.10. A tónleikunum flytja þau Már Magnússon, tenór, og Jónína Gísladóttir, píanó- leikari, ljóð. Á efnisskránni eru 5 ljóð úr Malarastúlkunni fögru eftir Fr. Schubert, Adelaide eftir L.v. Beet- hoven, Minnelied og Stándchen eftir Joh. Brahms og Auck kleine Dinge og Nimmersatte Liebe eftir Hugo Wolf. Bæði starfa þau Már og Jónína sem kennarar við Söngskólann í Reykjavík. Þannig er umhorfs í sumum vistarvcrum Fjalakattarins. og eigandi hússins tclur það kosta um einn milljarð króna að gera það upp. 25kindur drápust í skurði Miöhúsum 5. nóv. AÐFARARNÓTT sl. miðviku- dags i áhlaupagarði vestur hér drápust 25 kindur á Múla í Gufudalssveit. Þær höfðu farið ofan í skurð sem var fullur af snjó og krapi. I viðbót við þessar 25 kindur vantar enn 9 sem voru á þessu svæði og eru miklar líkur á að þær hafi einnig drepist. Eigendur þessa fjár eru Snorri Sturluson kennari og kona hans, Jóna Krist- insdóttir, en þau hófu búskap að Múla í haust. Tjón þeirra er því verulegt og sérstaklega þegar þess er gætt að þau eru frumbýlingar. Sveinn. Haustfundur ullariðnaðarins: Utflutningur jókst en afkoma versnaði HAUSTFUNDUR ullariðnaðarins var haldinn s.l. föstudag og var þar helzt tvennt til umfjöllunar. af- koma iðngreinarinnar og ýmis atriði varðandi tæknimál svo og útflutningurinn sjálfur. Að sögn Úlfs Sigurmundssonar framkvæmdastjóra Útflutnings- miðstöðvar iðnaðarins jókst útflutn- ingurinn mikið á þessu ári og markaðsmöguleikar virtust vera góðir. Aftur á móti versnaði afkoma iðngreinarinnar verulega á þessu ári miðað við árið á undan og engin bót virðist í augsýn á því. „Þetta kenna menn rangri geng- isskráningu, sem alltaf er miðuð við þarfir sjávarútvegsinsTHvað tækni- málin áhrærir eru þau í mikilli endurskoðun, ekki sízt vegna þeirrar ánægjulegu þróunar á árinu, að það hafi allir nóg að gera. Að öllu óbreyttu verður því svipað ástand á næsta ári að okkar mati,“ sagði Úlfur. leggðu kostina á vogarskálarnar A hverjum miðvikudegi frá Rotterdam og alla fimmtudaga frá Antwerpen Góð flutningaþjónusta er traustur grunnur á erfiðum tímum í íslensku efnahagslífi. Þegar þú leggur hagkvæmni vikuiegra hraðferða Fossanna á vogarskálamar koma ótvíræðir kostir þeirra í ljós. Vönduð vörumeðferð og hröð afgreiðsla eru sjálfsagðir þættir í þeini markvissu áætlun að bæta viðskiptasambönd þín og stuðla að traustum atvinnurekstri hér á iandi. Haföu samband EIMSKIP SIMI 27100 *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.