Morgunblaðið - 06.11.1979, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979
7
„Fólk gefst
upp . . .“
Dagblaöiö Tíminn birti
sunnudagsviötal viö
Þrúöi Helgadóttur, starfs-
mann á Álafossi. Þar
komu fram gamalkunnar
en einkar athyglisverðar
upplýsingar um, hvern
veg flokkspólitískir
„stjórnendur" verkalýös-
fólaga berja niður þátt-
töku hins almenna 16-
lagsmanns, sýni hann
sjálfstæöa viðleitni til
áhrifa og stefnumörkun-
ar. Þrúöur segir:
„Eitt af því, sem ég er
mjög óánægö meö í okk-
ar þjóðfólagi, er, hvað
stjórnir verkalýðsfólag-
anna eru dauðar gagn-
vart fólagsmönnum og
bjóða mönnum hreinlega
ekki upp á nein skoöana-
skipti. Fær maður þaö
strax á tilfinninguna á
fundum, aö stjórnir ASÍ
og Verkamannasam-
bandsins sóu þegar búnir
aó leggja línuna og frá
henni verði ekki horfið. Ef
einhverjir félagsmenn
ætla sór aó berjast fyrir
máli sínu á staðnum fá
þeir gjarnan skæting yfir
sig frá stjórninni.. Fólk
gefst upp, enda þarf
sterka persónuleika til
þess að standa ofurvald-
inu í móti.“
Tímaskekkja
Jón Sigurósson, rit-
stjóri Tímans, skrifar
kreppuhugleiðingu í blað
sitt um helgina. Þar rýnir
hann í stefnumörkun
Sjálfstæðisflokksins og
kemst aö þeirri niður-
stööu, aö flokkurinn sé
kominn aftur á 19. öldina,
hvorki meira nó minna.
Sjálfstæöisflokkurinn
haldi því fram, að þjóðar-
eyðsla þurfi að vera inn-
an ramma þjóðartekna,
sem só hvorutveggja:
árás á velferðarþjóðfé-
lagið og afturhvarf um
hálfa öldl
Þetta er íhugunarverð
kenning hjá ritstjóranum.
Ef því er haldið fram, að
velmegun, sem á aö vera
varanleg, og helzt vax-
andi, þurfi að hvíla á
auknum atvinnuumsvif-
um í þjóðfélaginu, auk-
inni verðmætasköpun í
þjóðarbúskapnum, meiri
þjóðartekjum til skipta í
þjóðfólaginu, þá er það
gagnrýni á velferðarþjóð-
fólagið. Mönnum er sem
betur fer að vaxa skiln-
ingur á þeirri allt að því
áþreifanlegu staðreynd,
að verðbólguhömlur og
jafnvægi í efnahagsmál-
um sóu forsendur rekstr-
aröryggis atvinnuvega og
atvinnuöryggis almenn-
ings, hvort heldur horft
er til skemmri eða lengri
tíma. Ný atvinnuumsvif,
ný atvinnutækifæri, t.d.
með stóraukinni nýtingu
innlendrar orku, til aö
tryggja atvinnuöryggi til
frambúðar — og bætt
lífskjör um vaxandi þjóö-
artekjur, byggjast m.a. á
því, aö hór megi takast
aö koma á efnahagsjafn-
vægi og færa veröbólgu
niður á svipað stig og (
viðskiptaríkjum okkar.
Og verðbólguhömlur
þurfa að eiga frumkvæöi
í ríkisbúskapnum, þ.e.
niöurskurði ríkisútgjalda
og skattalækkun, sem
aftur yrði hvati í atvinnu-
umsvifum.
Verðbólguvöxtur á því
hraóastigi, sem hann er
nú, stefni hins vegar í
rekstrarstöðvun, atvinnu-
leysi og samdrátt verö-
mætasköpunar. Hann er
meinsemdin í velmegun-
arþjóöfólagi okkar, sem
nema þarf burt, ef þaö á
lífi að halda. Þess vegna
eru kreppuþankar Tíma-
ritstjórans öfugmæli,
tímaskekkja og raunar '
barnaskapur.
Veröbólgu-
kóngurinn
Eftir tólf viðreisnarár, ,
meö innan við 10% verö- I
þenslu að meöaltali á ári, |
rauk verðbólgan upp í
54% í fyrri vinstri stjórn
Ólafs Jóhannessonar. ,
Sagan endurtekur sig í '
hinni síðari. í báðum
þessum stjórnum var Al-
þýðubandalagið helzti
verðbólguvírusinn. i báö- |
um þessum stjórnum
reyndi Ólafur Jóhannes-
son aö ná málamiðlun ,
milli vírussins og sjálfs I
síns og annarra sam-
starfsaðila, með þeim af-
leiöingum, að hann (þ.e. I
Ólafur) varð ókrýndur i
verðbólgukóngur í hug- 1
um almennings. Á þessu J
verðbólgulimmi sprakk .
vinstri stjórnin, eftir að- I
eins 13% mánaðar feril j
— stanzlauss gengissigs,
skuldasöfnunar, ríkis-
eyðslu, skattahækkana ■
og innbyrðis slagsmála. '
Og þessa vinstri stjórnar |
verðbólgu vill þjóðin ekki
framlengja.
Hagstætt verð
Btáskócjar
Símar: 86080 og 86244
Húsgögn
Armúli 8
Leóurstólar
með háu og lágu baki
Venus
Dömur
athugió
meö megrunarkúr-
athygli á 10 tíma
Er byrjuð
ana aftur
Vil vekja sérstaka
megrunarkúrnum.
Megrunarnudd, partanudd og afslöppunar-
nudd.
Nudd — sauna — mælingar — vigtun —
matseöill
Nudd- og snyrtistofa
Ástu Baldvinsdóttur,
Hrauntungu 85 Kópavogi
Opiö tii kl. 10 öll kvöld
Bílastæði. Sími 40609.
RO Y AL
SKYNDIBÚÐINGARNIR V
ÁVALLT FREMSTIR
ENGIN SUÐA
Tilbúinn eftir
fimm mínútur
5 bragðtegundir
1065
1068
1070/125
1070
1077
1081
1090
1023
1026 1029
1029 F
1071
1031
1039
1060 1060 A
Fyrirliggjandi fyrir gufu, vatn og olíu
1/4”—8”
VALD POULSEN H/F
Suðurlandsbraut 10, sími 38520 - 31142.