Morgunblaðið - 06.11.1979, Side 10

Morgunblaðið - 06.11.1979, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979 þorskastríðinu Englendingar sæk ja f ram Ármann Kr. Einarsson: GoKKur vinur minn Saga úr þorskastríðinu Helgafell Reykjavík 1979 KOMIN er út 33. bók eftir hinn kunn.a og vinsæla höfund Ármann Kr. Einarsson. Hann er tvímæla- laust sá núlifandi barna- og ungl- ingabókahöf. íslenskur sem þekkt- astur er erlendis enda mikið af bókum hans og leikritum verið þýdd á erlend mál. Saga þessi gerist á sjó, nánar sagt um borð í íslensku varðskipi, Tý, á fiskimiðum vordaga 1976. Aðalpersóna sögunnar er Magni, nýliði á skipinu: Hann var sextán ára og hafði hætt í skóla þegar skyldunámi lauk. Annars ætlaði hann seinna að halda áfram námi. —“ Magni réðist sem messadrengur á varðskipið. Hann kynntist brátt áhöfn skipsins: Best féll hon- um við bátsmanninn, káetufélaga sinn —“ Bðkmenntir eftir JENNU JENSDÓTTUR Sá hét Guðbjartur og var kall- aður Goggur. Þótti hann manna snjallastur að stjórna hinum frægu klippum í þorskastríðinu. Fyrstu dagarnir sem Magni var um borð, fóru í það að sigla á miðin fyrir austan. Þessir dagar liðu með ró þar sem bæði tafl og spilamennska voru mikið iðkuð. Eitt kvöldið varð Magni fyrir lífsreynslu er kom honum úr jafnvægi, er hann var lagstur til hvíldar í koju sinni: Rauðum bjarma sló á kýraugað yfir koj- unni. Var kviknað í skipinu? —“ Magni hentist upp á þilfar til að vita vissu sína og komst þá að raun um að kvöldsólin getur logað eins og glóð. Öll var skipshöfnin prúð- mennskan sjálf og ekki lærði Magni þar grófyrði eða orðheng- ilshátt. Jón litli háseti um tvítugt virðist með þeim röskustu á skip- inu. Hann lét mikið yfir því hve kvenhollur hann væri: Jón hafði fallega söngrödd og söng oft við raust við vinnu sína. Sérstakt dálæti hafði hann á þessari gömlu vísu: „Kom ég upp i KvislarskarA. kátleg stúlkan fyrir mér varð, fögur var hún og frið að sjá, fallega leist mér hana á.“ Goggur fræddi Magna heilmikið um lífið og tilveruna. Engin spill- ing var í þeirri fræðslu, sem raunar var mestmegnis úr dýra- fræðinni og fræðslan sú vakti Magna til umhugsunar um að maðurinn er hættulegasta dýrið, sem einn er fær um að slíta lífskeðju lífríkisins. Ymsar upplýsingar um lífshætti sjávardýra höfðu sterk áhrif á Magna: Sagt er að hungraður sæotur geti étið upp undir hundr- að ígulker á dag. Hvílík býsn, hrópaði Magni. Hann er ekki magaveikur karlinn sá —“ Magni gat ekki sofnað, svo mikil áhrif hafði frásögn Goggs, um lífríkið í sjónum á hann. Og þá loks hann sofnaði tóku draumarnir við af sögumanni. Spilamennska varðskipsmanna reyndist líka áhrifarík: „— Gleði kvöldsins fylgdi Magna inn í draumalöndin. Þegar Goggur vakti hann árla næsta morguns hrökk hann upp með andfælum og hrópaði: „Ég segi pass —“ Þegar á miðin kom varð heldur betur handagangur í öskjunum. Og atburðir þeir sem höfundur lætur gerast þar eru hverjum lesanda kunnir, þar sem þeir byggjast á fréttum fjölmiðla af viðureign íslenskra varðskipa við landhelgisbrjótana bresku og breska flotann. Víða koma ná- kvæmar lýsingar af viðureigninni. En mitt i allri hringiðunni lætur höfundur breskan pilt falla fyrir borð á freigátunni. Magni einn varð þess var og kastaði fyrst bjarghring í sjóinn og stökk síðan sjálfur. Honum tókst að ná bæði í bjarghringinn og manninn. Ein- mitt um það leyti, sem freigátan og varðskipið náðu hámarki í árekstri sínum: Sjórinn streymdi og freyddi í fossaföllum umhverfis þá og þeir voru komnir á fléygiferð áður en Magni vissi af. M En baráttan við dauðann, sem Magni raunverulega háði fyrir þá báða endaði á ljúfan, rómantískan máta: Magni beið í ofvæni. Þei-þei. Hann lagði við hlustir. Mjúkir tónar ómuðu líkt og úr fjarska: ... fögur var hún og fríö að sjá, fallega leist mér hana á. Heit fagnaðarbylgja fór um Magna og hann leit upp. Hann sá ljósan kollinn á Jóni litla gægjast yfir borðstokkinn. —“ Þessum tveim ungu piltum var síðan bjargað um borð í varðskipið Tý. Þar bundust þeir vináttubönd- um og hvaða áhrif sú vinátta er látin hafa á framgang mála verð- ur lesanda látið eftir að kynna sér í sögunni. Stundum fylgir höfundur sönnum atburðum nákvæmlega eftir: Síðdegis næsta dag barst svo frétt um að samningar hefðu tekist í Osló og verið undirritaðir. —“ Að þorskastríðslokum ríkti mik- ill fögnuður meðal skipsmanna á Tý. Og nú tóku þeir fallbyssuna í' notkun. Goggur tók sér stöðu við fallbyssuna og eitt þrumuskotið af öðru kvað við. Hið síðasta til heiðurs Gullkistunni. En hver var Gullkistan? Frágangur bókarinnar er góður. Það hefur áreiðanlega ekki dulist neinum sem fylgst hcfur með skákfréttum undanfarinn áratug að skákáhugi hefur hvarvetna aukist gífurlega. Sú þjóð sem mestum framförum hefur tekið á skáksviðinu upp á síðkastið eru vafalaust Eng- lendingar. Þar hefur verið gert mikið átak bæði til þess að auka vinsældir skáklistarinnar með- al almennings svo og til þess að auka vinsældir skáklistarinnar meðal almennings svo og til þess að auka styrkleika fremstu meistaranna. Nú er svo komið að Englend- ingar eiga fjóra stórmeistara, en þeir áttu fyrir fjórum árum engan og Anthony Miles. Oflug- asti skákmaður þeirra um þess- ar mundir tók um daginn þátt í millisvæðamótinu í Riga í Sov- étrikjumun. Þessar miklu framfarir hafa orðið til þess að ensk mót vekja ávallt mikla athygli erlendis og þá e.t.v. sérstaklega meistaram- ót þeirra, en skákþing Bretl- ands 1979 verður einmitt efni þáttarins í dag. Eins og nafnið felur í sér er hér ekki eingöngu um að ræða meistaramót Englendinga, held- ur hafa skákmenn frá öllum samveldislöndunum rétt til þátttöku. Það er þó tilskilið að allir þátttakendur í efsta flokki verða að hafa unnið sér rétt til þátttöku, en öll slík úrtökumót fara fram á enskri, welskri eða skoskri grund. Á mótinu kennir því oft marg- ra grasa, en sennilega hefur það þó aldrei verið betur skipað en í ár. Tveir öflugir stórmeistarar tóku þátt, þeir Miles og Nunn, auk sex alþjóðlegra meistara. Athyglin beindist þó ekki verulega að neinum þessara kappa, heldur var það fjórtán ára gamall skólapiltur, Nigel Short að nafni sem gjörsamlega stal senunni. Short hefur um nokkurt skeið verið þekktur í Englandi sem undrabarn. Þetta ár hefur hon- um gengið afburða vel á mótum, hann varð efstur ásamt öðrum á 9pnu alþjóðlegu skákmóti á Italíu, annar á heimsmeistara- móti sveina og tapaði titlinum aðeins vegna lakari stiga. Hann leiddi síðan ensku sveitina í heimsmeistarakeppni unglinga- sveita til sigurs með því að hljóta 6 V2 vinning af 7 möguleg- um á fyrsta borði. Á brezka meistaramótinu var Short í ein- staklega góðu formi og tókst honum að leggja bæði Miles og Speelman, meistarann frá árinu áður, að velli. I síðustu umferð var um hreina úrslitaskák að ræða á milli hans og alþjóðameistarans Roberts Bellins um efsta sætið. Short sem hafði hvítt var öllum hnútum kunnugur í byrjuninni, enda eyddist Bellin drjúgur tími. í stað þess að fara hægt í sakirnar fórnaði Short vanhugs- að skiptamun og fljótlega var komið að honum að hugsa. Hann neyddist til þess ,-að velja leið sem leiddi til jafnteflis, enda urðu úrslit skákarinnar á þá leið. Þar með varð Bellin brezkur meistari, þar eð hann hafði betri stig, en þeir Short og Nunn, sem komst upp að hlið þeirra. Urslit mótsins urðu þessi: 1.—3. Bellin, Nunn og Short 8 v. af 11 mögulegum. 4. Miles 7l/i v. 5,—13. Botterill, Chendl- er, Haygarth, Hebden, Large, J. Littlewood, P. Littlewood, Þo- vah og Speelman 7 v. 14. Copper 6*A v. 15.—21. Britton, Cumm- ings, Fuller, Mestel, Penrose, Watson, Wells 6 v. Þátttakendur voru alls 48 tals- ins. Mér hefur nýlega borist í hendur fjölritað hefti með öllum skákunum frá mótinu. Það vakti sérstaka athygli mína er ég blaðaði í gegnum það hversu margar skákir fengu skjótan endi vegna þess hve djarft var teflt. Þetta er vafalaust afleiðing Monrad kerfisins, en í slíkum mótum er nauðsynlegt að tefla til vinnings í hverri einustu skák. Við skulum nú virða fyrir okkur nokkur áhugaverð augna- blik á mótinu: Söguslóðir SÖGUSLÓÐIR. 424 bls. Ufg.: Sögufélag. Reykjavík, 1979. MJÖG hefur fjölgað í stétt sagn- fræðinga seinni árin. Eru orsak- irnar einkum tvær að því er í fljótu bragði virðist: I fyrsta lagi almennur áhugi ungra mennta- manna á sögu. í öðru lagi sú staðreynd að sagnfræði var í tölu fyrstu greina sem unnt var að ljúka til lokaprófs við Háskóla Islands, það er að segja eftir að Háskólinn tók að færa út kvíarnar — út fyrir hinar hefðbundnu embættisgreinar. Meðal hinna mörgu ungu sagnfræðinga, sem komið hafa fram í dagsljósið seinni árin, er óneitanlega talsvert mannval. Og sem vera ber um svo húmaníska stétt eru þeir hver með sínu einkenni, hver öðrum ólíkir. Bók þessi, Söguslóðir, «afmælisrit helgað Ólafi Hanssyni sjötugum 18. september 1979» er eins konar sagnfræðingamót, þarna koma þeir saman og sýna sig í allri sinni sundurgerð. Sumir eru skemmti- legir, aðrir svona í meðallagi hvað það snertir, sumir alþýðlegir, aðr- ir fræðilegir; og fyrir nú utan að miðla af viskubrunni sínum staldra sumir við og tala í sinn hóp — og spyrja, hvar stöndum við og hvað er sagnfræði fyrr og nú? Meðal þeirra er Gunnar Karlsson, en ritgerð hans heitir: Krafan um hlutleysi í sagnfræði. Gunnar segir frá manni sem kom inn í bókabúð í London og bað um bók um tiltekið sögulegt efni. Þegar einhverjar vöflur komu á hann að taka við fjörutíu ára gamalli bók um efnið var svarað stutt og laggott: «Jú, en þetta er saga.» Á svipuð mið rær Sigurður Ragnarsson í ritgerðinni Sagn- fræðin og kaida striðið. Sigurður Bergsteinn Jónsson Einar Laxness Heimir Þorleifsson Bðkmenntir eftir ERLEND JÓNSSON gerir afarfróðlega grein fyrir því hvernig menn líta tvennum aug- um á kalda stríðið eftir því hvort þeir standa til hægri eða vinstri í pólitík. Hvar er þá krafan um að hafa það heldur er sannara reyn- ist? Er þá öll sagnfræði allra tíma lituð þegar öllu er á botninn hvolft — annað hvort til hægri eða vinstri eftir því hvernig byrinn blæs í pólitíkinni? Sigurður segir að síðustu tíu til fimmtán árin hafi vinstri sinnuðu sagnfræðing- arnir «verið í árásarstöðu*. Orða- lagið gefur hugmynd um eðli og einkenni þess sem um er að ræða. En eftir á að hyggja: Það eru einungis viðhorfin til kalda stríðsins sem um er vélt hér. Og því er raunar ólokið. Þarna eru menn því farnir að tjá sig um hrein pólitísk málefni undir fræði- legu yfirskini. Sigurður rekur árekstur hinna ólíku sjónarmiða til Viet-nam stríðsins og er ekki að efa að sú skýring sé í fyllsta máta sannleikanum samkvæm. En viðhorf breytast ekki aðeins andspænis dægurmáli eins og kalda stríðinu. Bruninn mikli í Kaupmannahöfn 1728 nefnist rit- gerð eftir Þórhall Vilmundarson. Þórhallur er einn örfárra núlif- andi fræðimanna (ef ekki sá eini) sem tekist hefur að ná alla leið tií — almennings! Fáum öðrum mundi nú á dögum heppnast að fylla stærsta samkomusal borgar- innar og ræða samt um efni sem þorri manna lætur sig annars litlu varða. í þessari ritgerð um brun- ann mikla er kannski of mikið sagt að Þórhallur varpi yfir efnið nýstárlegri birtu. En hvort tveggja er að hann leiðréttir bagalegar missagnir sem verið hafa furðulífseigar og svo lýsir hann atburðinum á svo ljósan hátt að frásögnin verður eins og spenn- andi saga. Þórhallur ber Kaup- mannahöfn á dögum Árna Magn- ússonar saman við Reykjavík og dregur dæmi af því að bruninn hefði orðið hér — innan Hring- brautar — sem er raunar dregin eins og virkin í kringum Kaup- mannahöfn og beinlínis stæld eft- ir þeim. Sá sem kunnugur er í miðborg Reykjavíkur sér þá ljós-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.