Morgunblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979
Pétur Olgeirsson útgerdartækninemi:
15
Hugleiðingar um
sjávarútveg
Hvað er að gerast í sjávarútvegi
okkar í dag? Sjávarútvegsráð-
herra kemur með tillögur í olíu-
málum, og er það vel, en er á sama
tíma allsendis ófær að koma með
nokkra fastmótaða heildarstefnu í
fiskveiðum. Þess vegna vaknar sú
spurning, hvort hann hafi lent í
réttu ráðuneyti? Allar hans ráð-
stafanir hafa verið tilviljana-
kenndar og reynst haldlitlar í
þeim vanda sem að sjávarútveg
steðjar. Þegar talað er um algjört
þorskveiðibann, þá eru 30—40
skuttogarar að veiðum, lítil friðun
það. Hann heur barist fyrir fleiri
skuttogurum til síns kjördæmis,
til að bjarga því kjördæmi frá
atvinnuleysi. En hvað gerist?
Þessi skip landa lítið sem ekkert
hér heima, heldur sigla með af-
lann til höfuðandstæðinga okkar
úr þorskastríðunum. Er þetta leið-
in til að bjarga þessum fisktittum,
sem eftir eru í sjónum? Við
þurfum nú þegar fastmótaða
stefnu, sem liggur fyrir ekki síðar
en um miðjan desember, og mótar
stefnuna allt næsta og næstu ár.
Ekki stefnu, sem ákveðin er og
gildir frá degi til dags og er öllum
til ama, ekki síst þeim sem
sjávarútveg stunda.
Þær ráðstafanir, sem nauðsyn-
legar eru og þola enga bið, eiga að
vera markvissar og ákveðnar og
eiga ekki að stjórnast af lands-
hlutapólitík. Þetta eru ráðstafan-
ir, sem varða framtíð þjóðarinnar
allrar og þess vegna á þjóðin að
standa að þeim sem ein heild, en
ekki að láta þessar aðgerðir bitna
eingöngu á sjómönnum og útgerð-
armönnum og einnig talsvert á
fiskvinnslufólki. Allar aflatak-
markanir eru bein kjaraskerðing
við sjómenn. Samt heyrist varla
mótmælarödd úr þeirra röðum
sem sýnir ótvírætt skilning þeirra
á þessum vanda. Þá trú hef ég, að
háværari hefðu mótmælaraddirn-
ar verið, ef svona aðgerðir hefðu
átt sér stað gegn hinum ýmsu
forréttindastéttum í þessu sýkta
þjóðfélagi.
Það sem koma verður, er fast-
mótuð heildarstefna í þessum
málum, með góðri samvinnu
stjórnmálamanna, fiskifræðinga
og ekki síst fulltrúa frá
sjómönnum og útgerðarmönnum.
Þessar aðgerðir eiga fyrst og
fremst að hafa verndunarsjón-
armið að leiðarljósi og fylgja þeim
í grundvallaratriðum, hversu sár-
ar sem þær kunna að verða í
fyrstu, því við erum að reyna að
byggja upp fyrir tilverurétt og
framtíð lands okkar og þjóðar.
Það er nú þegar ljóst að friðunar-
aðgerðir fiskifræðinga okkar bera
ávöxt, það sýnir síldarstofninn við
S-land. Til þess að slíkar aðgerðir
beri sem bestan árangur, þarf að
stöðva allan flotann í einu á
vissum tímum og leyfa fiskinum
að hafa frið, en ekki eins og þessar
aðgerðir hafa verið framkvæmdar
nú undanfarið, þ.e. að stöðva bara
hluta flotans í einu. Það sem nú
þarf að gera er að stöðva allan
flotann í einn mánuð yfir hásum-
arið og í 3 vikur um jól og áramót,
og leyfa sjómönnum að fá frí eins
og öðrum þegnum þessa lands.
Auk þess, og það er nauðsyn,
verður að stöðva allar veiðar í
apríl á hrygningarstöðvum
þorsksins við SV-land, á meðan
Pétur Olgeirsson.
hrygning fer fram. Nú er vitað að
þessar aðgerðir duga skammt,
þess vegna verður að setja afla-
kvóta á öll skip sem þorskveiðar
stunda, þótt menn greini kannski
á um leiðir til að ákveða hvernig
sá kvóti eigi að vera. Það, sem
mælir með aflakvota á skip, er sú
staðreynd að það mun auðvelda
alla skipulagningu veiðanna miklu
betur en áður hefur þekkst.
Til þess að finna aflakvóta t.d.
fyrir togarana, er einfalt að
reikna út þorskafla þeirra tvö
síðastliðin ár, og finna meðalafla
hvers skips þann tíma og ákveða
svo niðurskurð í tonnum per skip.
Þennan þorskafla geta menn svo
ákveðið sjálfir hvenær þeir taka
og hagað veiðum í aðra fiskstofna
eftir því. Svona kvóti rýrir ekki
hlut góðra aflamanna meir en
hinna og gerir því öllum jafnt
undir höfði.
Eitt er það sjónarmið, sem
aldrei er nefnt þegar rætt er um
friðunaraðgerðir og stöðvun flot-
ans og enginn virðist þora að
nefna opinberlega. Það er hinn
mikli fjöldi „sportveiðimanna" allt
í kringum landið, það eru þeir
menn, sem hafa aðra atvinnu en
sjómennsku að lifibrauði.
Sá afli sem þeir taka er örugg-
lega nokkrir togarafarmar af
þorski á ári.
Þetta eru þeir menn sem algjör-
lega á að útiloka frá veiðum,
meðan takmarka þarf veiðar
sjómanna sjálfra. Það hlýtur að
vera skýlaus krafa sjómanna, að
þeir menn sem eru í fastri atvinnu
í landi geti ekki gert út á fiskveið-
ar í öllum sínum fríum og rýrt þar
með hlut sjómannsins í ofveiddum
þorskstofni.
Eitt er það sennilega, sem
margur sjóm. hugsar þegar hann
sér þetta, það er, á eg að vera
kauplaus þennan tíma, eða á
útgerðin að borga mér kaup. Þetta
er ekki bara vandamál stjóm. og
útg.manna, þetta er vandamál
þjóðarinnar allrar. Því tel ég það
skyldu allra þegna þjóðfélagsins
að axla þessa byrði og því eigi að
greiða sjóm. kaup fyrir þennan
banntíma úr opinberum sjóði, því
nóg er til af þeim og margir þeirra
með lítinn sem engan tilgang.
Hvað skyldi ríkið greiða mikið í
lánasjóð handa okkur námsm. eða
er það ekki kaup?
Það sjónarmið, sem ráðið hefur
ansi miklu í flestum aðgerðum til
þessa, er það sjónarmið „fisk-
vinnslunnar" að fyrirtæki með
mörg skip geti ekki stöðvað þau öll
í einu. Þessu sjónarmiði verður að
vísa á bug, meðan þessar ráðstaf-
anir miðast einungis af friðun-
arsjónarmiðum. Því er það eðlileg
krafa, að þetta komi líka niður á
fiskvinnslunni, því ekki verður
mikið þar að gera ef enginn fiskur
fæst úr sjónum.
Einnig þarf, og það er brýn
nauðsyn, að veita miklu meira fé,
og hvergi til spara, til hvers konar
fiskirannsókna og veiðarfæratil-
rauna. Allar rannsóknir á fisk-
stofnum þarf að efla að miklum
mun bæði á þorski sem og öðrum
stofnum. Einnig þarf að auka, og
það mjög verulega, allar veiðar-
færatilraunir og reyna að fá sem
hagkvæmust veiðarfæri til sem
flestra veiða, ekki síst til t.d.
djúphafsrækjuveiða, kolmunna-
veiða, kúskelsveiða o.fl. og reyna
þannig að hvetja menn til að gera
út á aðra stofna en þorsk.
Eitt er það atriði, sem nú
hamlar öllum tilraunum sjóm. og
útg.m. sjálfra til fiskileitar og
veiðarfæra tilrauna, en það er hin
fádæma vitlausa olíuuppbót, sem
ákveðin var s.l. sumar og er að
mínu mati ein sú vitlausasta
uppbótarregla sem fyrir finnst í
þessu reglugerðar-þjóðfélagi.
Margt fleira væri hægt að segja
um þessi mál, en læt ég þetta
nægja í bili, því þessum hugleið-
ingum er fyst og fremst varpað
hér fram til að vekja menn til
umhugsunar um þennan vanda og
ekki síst að fá sjómenn til að láta í
sér heyra og koma fram með sín
sjónarmið.
Jólin nálgast óö-
um og því rótti
tíminn nú til að
huga að auka-
kílóunum.
Línan gæti aðstoðaö
ykkur. Uppl. í síma,
22399 frá kl. 19 -
22.30 mánud. —
fimmtud.
Spónlagðar viðarpiljur
Odýrar, en fyrsta flokks
4m/m Álmur 122x244 cm kr. 2.120.- pr. fm
4m/m Gullálm. 122x244 cm
122x244 cm
122x244 cm
20x248 cm
4m/m Eik
4m/m Hnota
12m/m Koto
12m/m Álmur 30x248 cm
12m/m Fura 20x248 cm
12m/m Askur 20x260 cm
12m/m Eik 20x260 cm
12m/m Fura 20x260 cm
kr. 2.160.- pr. fm
kr. 2.190.- pr. fm
kr. 2.680.- pr. fm
kr. 5.300.- pr. fm
kr. 5.600.- pr. fm
kr. 5.600.- pr. fm
kr. 5.990.- pr. fm
kr. 5.990.- pr. fm
kr. 6.270.- pr. fm
Ofangreind verð pr. fm meö söluskatti. Þiljurnar
lakkaðar og tilbúnar til uppsetningar. Greiðslu-
skilmálar.
Geriö
verðsamanburð
Það
borgar sig.
'^il4£)ÍNj)iaL<i>rui'ertlumx-.
BJÖRNINN,
Skúlatúni 4. Simi 25150. Reykjavík
KERAMIK
SÝNING
STEINUNNAR
Lögreglumenn í New York draga mótmælendur nauðuga viljuga af götunni framan við kauphöllina.
Fólkið var að mótmæla notkun kjarnurku til rafmagnsframleiðslu. (AP-mynd). (Ljónm.. Emiiia)
Steinunn
Marteinsdóttir
heldur sýningu
á verkum sínum
að Smiðjustíg 6,
Reykjavfk.
Opið alla virka daga
kl. 9—18 og kl. 9—16
laugardaga.
Sýningin stendur frá
3:—17. nóvember.
KRISTJflfl
SIGGEIRSSOn HF.
GJAFAVARA — LAMPAR ~ HÚSGÖGN.
SMIÐJUSTlG 6 - REVKJAVlK - SÍMI 25870