Morgunblaðið - 06.11.1979, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979
27
að þessi klofningur er ekki vilji
þorra sjálfstæðismanna í Rang-
árvallasýslu, þvi þótt ég hafi ekki
átt skoðanabræður í hópi þeirra,
sem kjördæmisráðsfundinn sóttu,
þá veit ég af stuðningi margra
sjálfstæðismanna austan Þjórsár
við það sjónarmið að menn
stökkvi ekki frá flokki sínum
með þessum hætti og sá stuðning-
ur á eftir að koma betur í ljós.
Þessi ágreiningur hefði auð-
veldlega getað leystst, ef menn
af fundi
andvígir þessari tillögu og myndu
bjóða fram sér, ef hún yrði
samþykkt. Gengu þeir aftur af
fundi áður en gengið var til
atkvæða um tillöguna. Tillagan
var svo samþykkt með 41 atkvæði
gegn tveimur, einn seðill var
auður. Kjörnefnd tók síðan til
starfa og skilaði tillögu að fram-
boðslista eftir hádegi á sunnudag.
Árrii Johnsen lýsti því þá yfir, að
hann væri reiðubúinn að taka 5.
sætið, ef menn teldu að eðlilegra
og sterkara væri að hafa Skaft-
felling í 4. sæti. Tillaga kjörnefnd-
ar var svo samþykkt með öllum
atkvæðum gegn einu.
hefðu ekki strax í upphafi verið
með ótímabærar yfirlýsingar og
samþykktir um það, hvað menn
gætu alls ekki . Það er auðvitað
erfitt að semja, þegar menn eru
búnir að segja opinberlega, að þeir
séu hreint ekki á því að semja. Ég
er viss um það, að ef engin stór orð
hefðu fallið í upphafi, þá hefði
annar hvor, Guðmundur eða Egg-
ert, farið í annað sætið. Guðmund-
ur Karlsson brenndi aldrei allar
brýr að baki sér í málinu.
Það er rétt að það komi fram, að
ekki var boðað til fundar í hvor-
ugu sjálfstæðisfélaginu hér,
hvorki í Sjálfstæðisfélagi Rang-
æinga, eða Fjölni, félagi ungra
sjálfstæðismanna. Ákvarðanatak-
an í þessu alvarlega máli fór
aldrei út fyrir raðir fulltrúanna,
hinn almenni félagsmaður fékk
ekki fundarfæri til þess að tjá sig
um málið og gera út um það.
Sjálfur er ég formaður sjálfstæð-
isfélagsins, en meirihluti stjórnar-
innar var í þeim hópi, sem gekk út
af kjördæmisráðsfundinum. Ég
var líka formaður framboðsnefnd-
ar Rangæinga, en sagði af mér,
þegar málin tóku þá óheillastefnu,
sem ofan á varð. Ég hlýt að
undirstrika það, að hér er ekki um
neinn málefnaágreining að ræða.
Þeir vildu prófkjör með skilyrð-
um. Fjórir efstu mennirnir áttu að
skiptast milli sýslnanna, þannig
að enda þótt tveir Árnesingar
hefðu orðið efstir í prófkjörinu, þá
hefði annar þeirra orðið að fara í
5. sæti listans, þar sem efstu menn
frá hinum hefðu komið á milli,
hver svo sem atkvæðatala þeirra
hefði orðið. Þetta var fellt á jöfnu.
Þá beitti ég mér fyrir því að komið
yrði á skoðanakönnun meðal
flokksbundins fólks með þessum
hætti, en það mál dagaði uppi.
Fyrir prófkjörið í Reykjavík
hafði verkalýðsráð Sjálfstæðis-
flokksins lýst yfir stuðningi við þá
forystumenn flokksins í verka-
lýðshreyfingunni, sem fóru í
prófkjör eða vildu gefa kost á sér á
lista flokksins. Sú áskorun, sem ég
fékk svo frá framkvæmdastjórn-
inni, var nánast árétting á þessari
fyrri samþykkt, en engan veginn
nein pöntuð stuðningsyfirlýsing af
minni hálfu. Ég hygg að varafor-
maður framkvæmdastjórnarinn-
ar, Pétur Sigurðsson, hafi beitt sér
fyrir þessari ítrekun á vilja verka-
lýðsmálaráðsins, sem ég hins veg-
ar hlaut að taka mjög gilda, þar
sem ég er formaður þess og hafði
staðið að fyrri yfirlýsingu um
stuðning við þá fulltrúa launþega,
sem hugðust gefa kost á sér í
prófkjöri eða til sætis á fram-
boðslistum.
Að öllu þessu samanlögðu vafð-
ist það aldrei fyrir mér, hvaða
afstöðu ég ætti að hafa í þessu
máli. Þess utan hefur það verið á
hreinu, hvar í flokki ég stend“.
Eggert
séum að kljúfa, en hið sanna er
að meirihluti kjördæmisráðsins
hafnaði prófkjöri, sem við ætluð-
um að hlita, á jöfnum atkvæð-
um,“ sagði Siggeir Björnsson,
bóndi i Holti, 2. maður á lista
sunnlenzkra sjálfstæðismanna
austan Þjórsár. „Því neita ég
þeim ummælum formanns flokks-
ins, að það séum við sem séum að
kljúfa hér i kjördæminu, þar sem
við höfum einnig boðið fleiri
atriði til sátta.“
Siggeir kvað allar sáttatilraunir
sjálfstæðismanna austan Þjórsár
hafa komið fyrir ekki. „Satt að
segja, fyndist mér það engin
ofrausn, þótt það yrðu tveir þing-
menn á þingi fyrir austan Þjórsá."
Þegar Morgunblaðið spurði Sig-
Slggeir
geir, hve mörgum mönnum þeir
félagar ætluðu að koma á þing,
kvað hann bezt að segja sem
minnst um það.
Jón Þorgilsson:
Ætlum að sýna
að við höfum
rétt fyrir okkur
• „ÁSTÆÐAN fyrir þessu fram-
boði okkar er sú, að við teljum að
við höfum verið órétti beittir aí
Jón
meirihluta kjördæmisráðs,“ sagði
Jón Þorgilsson 3. maður á lista
sjálfstæðismanna austan Þjórsár
í samtali við Mbl. í gær,“ og
þegar við leggjum saman sjálf-
stæðismenn i Rangárvallasýslu
og Vestur-Skaftafellssýslu, höf-
um við kjósendafylgi til þess að
eiga þingmann úr hópi sjálfstæð-
ismanna og annað sæti listans.
Þetta vildi meirihluti kjördæm-
isráðsins ekki fallast á og þá sáum
við ekki annan kost en þann, að
sýna það með þessum hætti, að við
hefðum rétt fyrir okkur.
Því ætlum við að bjarga okkur á
eigin spýtur," sagði Jón, „og erum
staðráðnir í því að koma manni á
þing.“
D-listinn í Suð-
urlandskjördæmi
MEIRIHLUTI kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Suður-
landi gekk frá framboðslista flokksins um síðustu helgi.
Listinn er þannig skipaður:
1. Steinþór Gestsson, bóndi
Hæli, Gnúpverjahreppi, 2. Guð-
mundur Karlsson, fyrrum alþing-
ismaður, Vestmannaeyjum, 3. Sig-
urður Oskarsson, framkvæmda-
stjóri Fulltrúaráðs verkalýðsfé-
laganna í Rangárvallasýslu, 4.
Árni Johnsen, blaðamaður, Vest-
mannaeyjum, 5. Sigurður Niku-
lásson, bankastjóri Vík í Mýrdal,
6. Páll Jónsson, tannlæknir, Sel-
fossi, 7. Sigurður Haraldsson,
bóndi Kirkjubæ, Rangárvöllum, 8.
Sigrún Sigfúsdóttir, húsfreyja,
Hveragerði, 9. Þór Hagalín, sveit-
arstjóri, Eyrarbakka, 10. Sigríður
Björnsdóttir, húsfreyja, Vest-
mannaeyjum, 11. Ólafur Helgi
Kjartansson, lögfræðingur, Sel-
fossi og 12. Gísli Gíslason, fram-
kvæmdastjóri, Vestmannaeyjum.
Alls ekki útilokað
að þrír menn fáist
aftveimur listum
„ÉG ER ekkert ánægður með
þá niðurstöðu, að listarnir séu
tveir, en úr því svo fór, er ég
ekkert að leyna því, að ég styð
lista Eggerts Haukdals,“ sagði
Ingólfur Jónsson fyrrum ráð-
herra, er Mbl. leitaði álits hans
á framboðsmálunum í Suður-
landskjördæmi.
„Ég hefði talið heppilegast að
leysa deiluna um skipan efstu
sætanna með prófkjöri og veit
satt að segja ekki, hvernig leysa
á svona ágreining með öðrum
hætti," sagði Ingólfur. „Ég taldi
réttast að prófkjörið hefði verið
með því sniði, að fjórir efstu
menn listans yrðu úr sýslunum
þremur og Vestmannaeyjakaup-
stað, því það er að mínum dómi
ólíkt sigurstranglegri listi, þar
sem efstu menn eru úr öllum
köntum kjördæmisins, en þar
sem ójafnvægi er með það.
Eggert bauðst til að taka þriðja
sætið, ef slíkt prófkjör dæmdi
hann í það.
Nú, en fyrst samkomulag ekki
náðist um prófkjör, þá batt ég
vonir við þá tillögu Vestmanna-
eyinga, að þeir hefðu þriðja og
— segir Ingólfur
Jónsson sem
styður lista
Eggerts Haukdal
fjórða sæti listans, ef samkomu-
lag næðist við Skaftfellinga, um
að þeirra fulltrúi færi úr fjórða í
fimmta sæti. Það náðist sam-
komulag við Skaftfellinga um
þetta og ég trúði því allt fram á
laugardag að þetta yrði lausnin.
Því miður strandaði hún, að því
er ég held, á því, að margir í
Vestmannaeyjum voru á móti
þessu, þótt bæði Guðmundur
Karlsson og Árni Johnsen væru
þessa fýsandi. Persónulega tel ég
að þessi lausn hefði tryggt það
að þriðji maðurinn ynnist, þótt
ég vilji engan veginn útiloka það,
að þrír menn fáist af tveimur
listum.
Ég tek alls ekki undir þær
raddir að það sé klofningur í
Sjálfstæðisflokknum í Suður-
landskjördæmi, þótt tveir fram-
boðslistar séu. Það var deilt um
það, hverjir ættu að skipa örugg
sæti og það var eðlilegt miðað
við úrslit síðustu kosninga, að
menn hefðu fyrirvara á því að
líta á þriðja sætið sem öruggt,
þótt ékki hafi það verið nein
hætta hér áður fyrr.
Hitt er svo áríðandi, að báðir
partar, bæði þeir sem skipa lista
Eggerts Haukdals og vinna fyrir
hann og þeir sem skipa lista
Steinþórs Gestssonar og vinna
fyrir hann, geri sér ljóst, að eftir
kosningar eiga þeir að semja frið
og vinna saman, því að auðvitað
verður aðeins einn listi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Suður-
landskjördæmi næst þegar stillt
verður upp.“
Listi sjálfstæðis-
manna austan Þjórsár
GENGIÐ var írá lista Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga í Vík i
Mýrdal í gærkveldi. Listinn er svohljóðandi:
1. Eggert Haukdal, fyrrum al-
þingismaður, Bergþórshvoli, 2.
Siggeir Björnsson, bóndi í Holti, 3.
Jón Þorgilsson sveitarstjóri,
Hellu, 4. Steinunn Pálsdóttir hús-
freyja, Vík í Mýrdal, 5. Hilmar
Jónasson formaður Verkalýðsfé-
lagsins Rangæingur, Hellu, 6.
Guðjóna Friðriksdóttir húsfreyja,
Eyrarlandi, Þykkvabæ,7. Gunnar
Oddsteinsson bóndi, Hvammi,
Skaftártungu, 8. Arnar Halldórs-
son bóndi, Brekkum, Mýrdal, 9.
Sigríður Theodóra Sæmundsdóttir
húsfreyja, Skarði, Landsveit, 10.
Sigursteinn Steindórsson skrif-
stofumaður, Hvolsvelli, 11. Jón
Thorarensen rafvirki, Hellu og
12.Sigþór Sigurðsson símavarð-
stjóri, Litla-Hvammi, Mýrdal.