Morgunblaðið - 06.11.1979, Page 43

Morgunblaðið - 06.11.1979, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979 47 ~ Dregurögn úr fylgi Kennedys New York, 4. nóvember. Reuter. EDWARD Kennedy hefur enn vinninginn yfir Carter Banda- ríkjaforseta varðandi útnefningu sem frambjóðandi demókrata, en þó hefur dregið úr stuðningi við hann frá því sem var á 8.1. sumri, að því er Time segir í dag. Blaðið segir, að í ágúst hafi hlutföllin verið 2—1, Kennedy í vil, en í síðustu skoðanakönnuninni sé staðan nú 49% fyrir Kennedy og 39% fyrir Carter. Skoðanakönnun- in var gerð dagana 23.-25. október og voru 1027 manns spurðir álits. Time segir, að ástæðan fyrir þessu kunni að vera að margir telji Kennedy of frjálslyndan svo og aukinn áróður fyrir carter í Suður- ríkjunum. Búizt er við því, að Kennedy tilkynni formlega á morgun, mið- vikudag, að hann gefi kost á sér til að keppa um útnefningu flokks síns við forsetakosningarnar. Simamynd AP. HÁRBARN — Þessi tveggja ára gamli kínverski drengur er alheilbrigður og hefur eðlilega greind. En líkami hans er þakinn hári, svörtu og dökkbrúnu. Stjórn Zimbabwe Ródesíu: Stöðvar matvæla- flutninga tíl Zambíu Salisbury, Lundúnum, 5. nóv. AP. Reuter. kynnti í dag, að allur flutningur STJÓRN Zimbabwe Ródesíu til- á maís til Zambíu um Zimbabwe Ródesíu yrðu stöðvaður þar til stjórnin í Lusaka kæmi i veg fyrir árásir skæruliða inn í Zimb- abwe Ródesíu frá Zambíu. Zam- bia er landlukt ríki og járnbraut- arlinan frá Zambíu til sjávar liggur um Zimbabwe Ródesiu. Stjórnin í Salisbury tilkynnti í siðasta mánuði að ef Zambía kæmi ekki í veg fyrir árásir skæruliða, yrði tekið fyrir flutn- ingana. Prag: Andófsmönn- um sleppt Prag 5. nóv. Reuter. FIMM tékkóslóvakískum andófs- mönnum var sleppt úr haldi í dag, en þeir voru handteknir sl. föstu- dag. Voru mennirnir gripnir eftir að líflátshótun hafði fundizt i bréfi til Husaks forseta. Fjórir aðrir, sem vóru einnig teknir, munu að likindum verða látnir lausir i kvöld. Allir þessir níu eru í hópi þeirra sem skrifuðu undir Charter 77. í bréfinu, þar sem því var hótað, að Husak yrði myrtur, var einnig sagt, að meiriháttar bygging í Prag yrði sprengd i loft upp. Meðal þeirra sem voru teknir voru Bednarbræðurnir Jiri og Jan. Faðir þeirra, Otto, var einn þeirra sem var dæmdur í fangelsi í réttarhöldunum í sl. mánuði. Larsen og Romanish- in efstir í Tilburg TilhurK. •'i. október — Reuter, AP DANINN Bent Larsen og Sovét- maðurinn Oleg Romanishin hafa tekið forustu á skákmótinu i Tilbrug, Hollandi, að loknum þremur umferðum. Larsen vann Vlastimil Hort í 3. umferð en Romanishin gerði jafntefli við heimsmeistarann Anatoly Kar- pov. Hins vegar vann Romáhis- hin Ilollendinginn Jan Timman 1 biðskák þeirra. Úrslit í 3. umferð urðu — Kavalek og Smyslov gerðu jafn- tefli, Spassky vann Robert Hub- ner, Jan Timman vann Lajos Portisch, Sosonko og Guyala Sax gerðu jafntefli, Larsen vann Hort og Karpov og Romanishin gerðu jafntefli. Staðan í Tilburg er nú, að Larsen og Romanishin hafa 2.5 vinninga, Spassky, Karpov og Sax 2, Hubner 1.5, Kavalek, Sosonko, Portisch, Smyslov og Timman 1 og lestina rekur Hort með 0.5 vinn- inga. Mafíumorð í Mílanó? Ku Klux Klan-menn myrtu 4 andstæðinga Greenboro, Bandarikjunum. 5. nóv. AP. FÉLAGAR úr Ku Kux Klan- samtökunum bandarísku skutu á fjöldagöngu í Greenboro, þar sem andstæðingar hreyfingarinnar heimtuðu að gengið yrði að hreyf- ingunni dauðri. Fjórir létust i árásinni og tiu særðust. Lögreglan handtók fjórtán manns vegna uppistandsins og við- urkenndu tólf þeirra að vera félag- ar í Ku Klux Klan-hreyfingunni. Þeir verða allir ákærðir fyrir fyrsta stigs morð að sögn tals- manns lögreglunnar. í Lundúnum féllst Abel Muzor- ewa, forsætisráðherra Zimbabwe Ródesíu, á tillögu Breta um að afsala sér völdum og taka þátt í kosningum í landinu. Þeir Joshua Nkomo og Robert Mugabe; leiðtog- ar skæruliða sögðu í dag að þeir krefðust meiriháttar breytinga á tillögum Breta. Muzorewa sagði í dag í Lumjúnum að stjórn hans féllist á tillögur Breta svo að kosningar mættu fara fram sem fyrst og viðskiptabanni á landið yrði aflétt. Mílanó 4. nóv. AP. ÁTTA manns voru skotnir til bana á veitingahúsi i Mílanó á sunnudag, og þykja morðin bera einkenni Mafíunnar. Fólkið var allt skotið í höfuðið og lézt allt samstundis. Lögreglumaður, sem kom á staðinn, sagði að svo virtist sem fólkinu hefði hrein- lega verið stillt upp og líflátið án þess nokkur gæti borið hönd fyrir höfuð sér. Þetta er mesta fjöldamorð á Ítalíu mörg síðustu ár. Þetta gerðist í veitingastofu sem heitir „Töfrabarinn" og er í úthverfi Mílanó. Meðal hinna látnu var eigandi veitingastofunn- ar, unnusta hans og tveir Suður- Ameríkumenn. Það var bróðir eigandans, sem fann líkin, hann ætlaði að líta við og heilsa upp á bróður sinn og var þá aðkoman sú að karlarnir fimm og þrjár konur voru þar öll önduð inni. Ekkert er vitað um ástæðuna fyrir þessu voðaverki. Stúdentar halda sendiráðum Bretlands og Bandaríkjanna Teheran, New York, London, 5. nóv. AP. Reuter. MIKIL andúð gegn Bandaríkjunum og Bret- landi ríkir nú í íran, og hafa írönsk ungmenni, aðallega stúdentar við háskólann í Teheran, hertekið sendiráð beggja landanna í höfuðborg- inni, auk þess sem hópar ungmenna hafa lagt und- ir sig tvær ræðismanns- skrifstofur Bandaríkj- anna utan Teheran. Stúdentaaðgerðirnar hófust upp úr hádegi á sunnudag að staðartíma þegar um 200—300 manna hópur réðst inn í banda- ríska sendiráðið. Varðmenn úr bandaríska landgönguliðinu (Marines) beittu táragasi til að tvístra árásarliðinu, en voru yfirbugaðir. Tókst árásarmönn- unum að leggja undir sig sendi- ráðið, og taka fjölda gísla. Um 65 Bandaríkjamenn starfa við sendiráðið, en talið er að 15—25 þeirra hafi verið fjarverandi, þeirra á meðal Bruce Laingen sendifulltrúi, sem veitir séndi- ráðinu forstöðu, en Bandaríkin Krefjast framsals keisarans hafa engan sendiherra í íran sem stendur. Talsmenn stúdentanna segjast hafa um 100 gísla í haldi í sendiráðinu, en réttara er talið að gíslarnir séu innan við 50, þeirra á meðal nokkrir íranskir starfsmenn sendiráðsins. Eftir töku sendiráðsins lýstu talsmenn stúdenta því yfir að gíslarnir væru allir ómeiddir, og að vel yrði farið með þá, en þeir ekki látnir lausir fyrr en yfirvöld í Bandaríkjunum féllust á að framselja Reza Pahlevi fyrrum Iranskeisara, sem nú liggur í sjúkrahúsi í New York vegna krabbameins. Krefjast stúdent- -arnir þess að keisarinn fyrrver- andi verði sendur heim til írans og dreginn þar fyrir dóm. Taka bandaríska sendiráðsins fylgir í kjölfar yfirlýsinga Khomeinis trúar- og byltingar- leiðtoga að undanförnu. Hann Reza Pahlevi. sagði í ræðu nýlega að hann vonaði að satt væri að keisarinn fyrrverandi væri í raun dauð- vona vegna krabbameinsins. í annarri ræðu bar hann fram þá spurningu til hvers íran þyrfti að eiga samskipti við Bandarík- in, og í enn einni ræðu, sem hann hélt á laugardag í helgu borginni Qom, sagði Khomeini: „Þeir sem styðja stórveldi eins og Bretland, sem hefur veitt (fyrrum forsæt- isráðherra Shapour) Bakhtiar hæli, og Bandaríkin, sem hafa veitt spillingunni (keisaranum) hæli, fá að mæta viðbrögðum Khomeini. okkar ef þeir halda stuðningi sínum áfram." Khomeini og aðrir trúarleið- togar í íran hafa lagt blessun sína yfir töku sendiráðsins, og vopnaðir hermenn eru á verði utan sendiráðsgarðsins, bersýni- lega á bandi stúdentanna. Þegar fréttist til Bandaríkj- anna um töku sendiráðsins, brugðu samtök íslamskra (Mú- hammeðstrúar) stúdenta þar skjótt við. Um 40 þeirra réðust inn í Frelsisstyttuna í New York, og hengdu um 30 metra langan borða efst á styttuna. Á borðann var letrað: „Það verður að draga keisarann fyrir dóm og refsa honum." Sjö þessara manna hlekkjuðu sig fasta efst í stytt- unni, en lögreglu tókst að leysa þá, og voru allir handteknir. I dag, mánudag, var aðgerðun- um haldið áfram í íran. Fyrst voru ræðismannsskrifstofur Bandaríkjanna teknar herskildi, og síðdegis ruddist hópur manna inn í brezka sendiráðið í Teher- an. Með töku brezka sendiráðs- ins átti að mótmæla meintri dvöl Bakhtiars fyrrum forsætisráð- herra í Bretlandi, en hann dvelst ekki þar, heldur í Frakklandi, þar sem hann hefur verið búsett- ur um margra mánaða skeið. Þetta eru ekki fyrstu árásir á erlend sendiráð í íran eftir að keisaranum var steypt af stóli. Skömmu eftir valdatöku Khom- einis í febrúar s.l. réðust vopnað- ir menn til inngöngu í banda- ríska sendiráðið í Teheran, drápu íranskan starfsmann, og tóku um 100 gísla, þeirra á meðal William Sullivan þáverandi sendiherra. En þá greip Khom- eini í taumana og hrakti árásar- mennina á brott rúmum þremur klukkustundum eftir að árásin var gerð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.