Morgunblaðið - 06.11.1979, Side 44
Finnsk gæðavara,
Blöndunartæki
í úrvali.
ARABIA Hagstætt verö.
I HREINLÆTISTÆKI
BAÐSTOFAN
| Ármúla 23 9 sími 31810 »Nýborgarhúsið
ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979
Sími á afgreiöslu:
83033
Kaupmátturinn lækkar
um 12% á 13 mánuðum
Mynd þessa tók Ragn-
ar Axelsson ljósmynd-
ari Morgunblaðsins á
flugi yfir^Hvalfirði um
helgina. í fjarska má
sjá Akranes, Akraf jall
og Skarðsheiði.
KAUPMÁTTUR tímakaups allra launþega er nú í nóvember áætlaður
88,5 stig sé miðað við 100 í september 1978, er rikisstjórn Ólafs
Jóhannessonar tók við völdum. Þvi vantar 11,5 stig til þess, að
kaupmátturinn hafi haldizt þá mánuði, sem vinstri stjórnin var við völd.
Þá ber þess að geta, að þegar vinstri stjórnin tók við, var kaupmáttur
taxtakaups launþcga 1,4 stigum hærri en hann hafði verið í júlímánuði
1977, en það er fyrsti mánuðurinn eftir gerð „sólstöðusamninganna“,
sem svo hafa verið kallaðir. í marz 1978 var þessi kaupmáttur 94,2 stig
og er hann því nú 5,7 stigum lægri en þá.
Bakkafossi hlekktist á:
Rifa myndaðist á stafnþró skipsins
Þessar upplýsingar eru byggðar á
töflu, sem ASI dreifði meðal fulltrúa
• á kjaramálaráðstefnu sambandsins,
sem haldin var fyrir skemmztu, en
til glöggvunar hefur Morgunblaðið
sett kaupmáttinn á 100 við upphaf
valdaferils vinstri stjórnarinnar.
Kaupmáttarupplýsingarnar ná til
verkamanna, verkakvenna, iðnað-
armanna, verzlunarmanna, opin-
Þriggjamán-
aða Sörla-
dóttir á 600
þtísund kr.
ÞAÐ ÞÓTTU mikil tíðindi á
sínum tíma er Sigurbjörn
Eiríksson leigði stóðhestinn
Sörla frá Sauðárkróki og talað
var um, að eiganda Sörla hefðu
verið boðnar allt að 10 milljón-
ir króna fyrir gripinn. Afkom-
endur Sörla eru ekki síður
eftirsóttir og nýlega keyptu
þau hjón Kristín og Jónas
Vigfússon í Litla-Dal í Eyja-
firði þriggja mánaða merfolald
undan Sörla og Ófelíu. Seljandi
var Sigurður Ingimarsson
bóndi á Flugumýri í Skagafirði
og samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins fékk hann 600
þúsund krónur fyrir folaldið.
Ekki er óalgengt að folald sé
selt á 50—100 þúsund krónur,
en 200 þúsund krónur þykja
hátt folaldsverð. Folald mun
ekki áður hafa verið selt fyrir
svo mikið fé og fyrrnefnd Sörla-
dóttir nú fyrir skömmu. Þau
hjónin í Litla-Dal keyptu í fyrra
annað merfolald undan Sörla og
greiddu fyrir það 150 þúsund
krónur sem þótti mjög hátt
verð. Munu þau ætla að koma
sér upp hrossastóði og því
greinilega ekki af verri endan-
um.
Happdrættís-
miðar hækka
um 40-50%
STEINGRÍMUR Hermannsson
fyrrverandi dómsmálaráðherra,
heimilaði hinn 11. október síðast-
liðinn hækkun á verði happdrætt-
ismiða í vöruhappdrætti SÍBS
(Sambands íslenskra berklasjúkl-
inga).
Verð ársmiða vcrður nú krónur
14400, en endurnýjunarverð í
hverjum flokki krónur 1200. End-
urnýjunarverð var áður krónur
800, og er hækkunin því 50%.
Breytingin tekur gildi hinn 1.
janúar næstkomandi.
Áður hafði verið gefið leyfi til að
hækka miðaverð í Happdrætti Há-
skólans úr 1000 krónum í 1400
krónur, eða um 40%. Fimmfaldur
trompmiði hækkar því úr 5000
krónum í 7000 krónur, og nífaldur
miði hækkar úr 9000 krónum í 12600
krónur mánaðarlega.
berra starfsmanna, en síðan eru
samanteknar kaupmáttartölur fyrir
alla launþega innan ASÍ og alla
launþega landsins. Nú í nóvember,
en tölur um kaupmátt þess mánaðar
eru spátölur, er kaupmáttur iðnað-
armanna lægstur eða 88 stig. Því
vantar iðnaðarmenn 12 stig til þess
að halda fullum kaupmætti miðað
við september 1978, verkamenn 11,7
stig, verkakonur 11,8 stig, alla
launþega innan ASÍ 11,9 stig og alla
launþega landsins 11,5 stig eins og
áður er getið. Kaupmáttartölur
verzlunarmanna í töflu ASI eru hins
vegar ófullkomnar, þar sem inn í
þær hafa ekki verið reiknuð áhrif
kjaradóms, sem gekk í sumar.
í fyrrgreindri töflu vekur athygli,
að verkakonur og iðnaðarmenn ná
aldrei á valdatíma vinstri stjórnar-
innar kaupmættinum 100, þ.e.a.s.
þótt kaupmátturinn flökti upp og
niður, nær hann aldrei því marki,
sem hann var í við upphaf stjórnar-
samstarfs vinstri flokkanna. Hins
vegar nær kaupmáttur verkamanna
þessu marki, 100, í desember í fyrra,
en hrapar síðan strax, er komið er
fram í janúar um 2 stig og kaup-
máttur opinberra starfsmanna nær
þessu marki og vel það í marz 1979,
er hann kemst upp í 101,1 stig. Er
hann yfirleitt um 2 stigum hærri allt
fram til þess er 3% grunnkaups-
hækkun kom á laun ASÍ-félaga. Sú
hækkun var samningsbundin hjá
opinberum starfsmönnum og tók
einmitt gildi í marz. Kaupmáttur
opinberra starfsmanna er sam-
kvæmt töflunni um einu stigi hærri
en almennu verkalýðsfélagnna.
BAKKAFOSS, eitt skipa Eimskipa-
félagsins er nú i Marystown á
Nýfundnalandi í viðgerð, eftir
skemmdir sem urðu á skipinu á
siglingu þess frá Portsmouth til
Argensia á Nýfundnalandi í síðustu
viku.
Er skipið var komið til hafnar í
Argensia urðu skipverjar þess varir
að allstór rifa hafði komið á stafn-
þró skipsins. Er talið að skipið hafi
rekist á eitthvert rek í sjónum, en
atvikið gerðist að nóttu til og urðu
skipverjar þess ekki varir. Rifan er
ofansjávar, en skipið gæti hafa
fengið hana á sig er það dýfði sér í
öldudal, en sex til átta vindstig voru
á þessum slóðum, og vindurinn á
móti.
Viðgerðin hófst á föstudaginn, en
vonast er til að henni ljúki á
morgun, miðvikudag, að því er Viggó
Maack tjáði Morgunblaðinu í gær-
kvöldi. Frá Marystown heldur
Bakkafoss til Reykjavíkur.
Skipstjóri á Bakkafossi er
Arngrímur Guðjónsson.
Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins:
Meirihluti kjördæmis-
fuUtrúa hlýtur að ráöa
„MÉR þykir mjög miður að samkomulag tókst ekki innan kjördæmisráðs um framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðurlandskjördæmi," sagði Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins. er Mbl. leitaði í gær álits
hans á framboðsmálum sjálfstæðismanna í Suðurlandskjördæmi. „Lög Sjálfstæðisflokksins kveða á um það, að
kjördæmisráð í hvcrju kjördæmi séu æðsta vald til ákvörðunar framboðs. Ef samkomulag næst ekki, þá gerir
lýðræðisleg uppbygging Sjálfstæðisflokksins ráð fyrir því að meirihluti atkvæða ráði úrslitum.
Skipulagsbundin samtök, eins og
Sjálfstæðisflokkurinn er, lýðræð-
islega uppbyggð, hljóta að gera ráð
fyrir því að minnihlutinn sætti sig
við ákvarðanir meirihlutans. Nú
hefur það gerst á Suðurlandi að
flestir fulltrúar Rangæinga í kjör-
dæmisráðinu telja á sig hallað og
véku af fundi. Fyrir rúmu ári töldu
flestir fulltrúar Árnesinga á sig
hallað, en sættu sig við ákvörðun
meirihlutans. Það er rétt að það
komi fram, að hér er ekki um
málefnaágreining- að ræða, heldur
einungis ágreining um það, hvaða
sæti hvert hérað í kjördæminu
skuli útnefna fulltrúa í. Því miður
hefur of lengi of ákveðin hólfa-
skipting ráðið framboðum í Suður-
landskjördæmi, jafnvel fremur þar
en í öðrum kjördæmum, eftir að
nýja kjördæmaskipanin gekk í gildi
1959, þótt víða annars staðar gæti
þessa einnig.“
Mbl. spurði Geir þá um viðræður
hans við sjálfstæðismenn fyrir
kjördæmisráðsfundinn í Suður-
landskjördæmi á laugardag. Geir
sagði. „í þessari ferð lagði ég
annars vegar áherzlu á, að menn
vikju smærri ágreiningsmálum til
hliðar fyrir sameiginlegum stefnu-
og hugsjónamálum. Og hins vegar
lagði ég áherzlu á, að menn færu
eftir lögum Sjálfstæðisflokksins og
sættu sig við og stæðu að þeim
málalokum, sem meirihlutaákvarð-
anir fælu í sér.“
Þá spurði Mbl. Geir, hvaða áhrif
hann teldi að lyktir framboðsmála í
Súðurlandskjördæmi og Norður-
landskjördæmi eystra hefðu á
kosningabarátttu flokksins.
„Eins og ég gat um áðan, þá eru
kjördæmaráðin æðsta vald í fram-
boðsmálum flokksins," sagði Geir.
„Miðstjórn flokksins ber að stað-
festa framboð áður en þau eru
ákveðin. Kosningalögin gera ráð
fyrir því, að sá aðili, sem ákveður
framboð eða sá aðili sem staðfestir
framboð geti sagt álit sitt á því,
hvort fleiri en einn listi verði
kenndur stjórnmálaflokki eða lista-
bókstaf hans.
Geir Hallgrímsson
Nú hefur kjördæmisráð Sjálf-
stæðisflokksins á Suðurlandi
ákveðið, að engan lista megi viður-
kenna annan en þann, sem ákveðið
hefur verið samkvæmt lögum
Sjálfstæðisflokksins að sé borinn
fram í nafni hans eða listabókstaf.
Varðandi Norðurlandskjördæmi
eystra er það að segja, að kjördæm-
isráð þar gekk einhuga frá fram-
boðslista án þess að tillaga kæmi
fram um aðra menn en þá sem
skipa framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins nú. Síðar kemur fram
framboð fyrrverandi þingmanns
kjördæmisins. Mér þykir það mið-
ur.
Ég hlýt að beina því til allra
þeirra í Norðurlandskjördæmi
eystra og Suðurlandskjördæmi,
sem ætla að efla Sjálfstæðisflokk-
inn í komandi kosningum, að þeir
greiði listum flokksins atkvæði.
Með öðrum hætti verður ekki
komið í veg fyrir nýja vinstri stjórn
eða mörkuð ný stefna til úrlausnar
þeim alvarlegu vandamálum, sem
við okkur blasa.“
SJÁ: Framboðsmál í Suður-
landskjördæmi i opnu.