Morgunblaðið - 16.12.1979, Blaðsíða 10
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979
Undarlegur draumur og
eftirtektarvert málþing
Jónas og
hvalurinn
Málþing Islendinga I
Útg. Lífgeislaútgáfan 1979
Ritstjóri Þorst. Guðjónsson
Einhverja nótt fyrir ekki löngu
dreymdi mig, að ég væri að rifja
upp fyrir mér, að ég hefði gert mér
ferð að Gilsbakka í Hvítársíðu til
þess að tala við Guðmund Helga-
son fyrrum prest í Reykholti, og
hafði ég það á tilfinningunni, að
þetta hefði glatt hann verulega.
Var þetta undarlegur draumur,
því að fjarri fer, að endurminning
þessi hefði við raunveruleik að
styðjast. Raunverulega hefir það
aldrei átt sér stað, sem draumur-
inn bendir til, og er hér því um að
ræða ótvírætt dæmi um, að sof-
andi maður hafi verið annar en
hann er í vöku. En þegar ég svo
síðar í „Málþingi Islendinga"
rakst á ályktunarorð Þorsteins úr
Bæ um Guðmund Helgason ásamt
því, sem ég í Kaupfélagsriti Borg-
firðinga hafði látið fylgja þeim, þá
var ekki laust við, að upp rynni
fyrir mér nokkurt ljós. Kom mér
þá í hug, að Guðmundi kynni, í
framlífi sínu, að hafa vitnast þessi
upprifjan mín þar, og sem einnig
er tekin upp í málþingið, um hina
óafvituðu þátttöku hans í fræki-
legasta afreki frumlegasta vís-
indamanns þjóðarinnar, og að sú
upprifjan hefði glatt hann. Get ég
hugsað mér þetta þannig, að
draumgjafi minn, sem auðvitað
hefir verið á alltöðrum stað en ég
þóttist verið hafa, hafi þar með
einhverjum hætti orðið tengiliður
milli mín og hins lönguliðna
klerks, sem ég aðeins lítillega
hafði haft kynni af í bernsku. En
að tengiáhrifa þessara skyldi ekki
gæta fyrr en upprifjan mín um
afreksþátttöku hans birtist einnig
í Málþingi íslendinga, þykir mér
spá góðu um útkomu þess rits.
Skal hér ekki önnur grein gerð
fyrir því riti en sú, að þar er safn
ritgerða og ummæla ýmsra
manna, flestra þjóðkunnra, um
Helga Pjeturss og verk hans, og
eru þau öll frá þeim tíma, sem
liðinn er síðan Nýall byrjaði að
koma út. Eru það upprifjanir
eingöngu á hinn betri veg og því
þannig, að gleðja megi framlifend-
ur þá, sem þar eiga hlut að máli.
Vænti ég þess, að unnendur Nýals
og nýalskra málefna taki riti
þessu vel, því að það er gert
samkvæmt smekkvísi og af góðum
hug.
Nóv. 1979
Þorsteinn Jónsson á Úlfsstöðum.
Jónas Guðmundsson:
Farangur. Sögur.
Ingólfsprent Reykjavík 1979
Jónas Guðmundsson, sem ekki
er nú lengur auðkenndur með
stöðuheitinu stýrimaður, er vissu-
lega mjög fjölhæfur listamaður.
Hann hefur gefið út margar bæk-
ur og misjafnar að efni og gerð, og
hann er orðinn kunnur sem mál-
ari. Hann er og duglegur á því
sviði myndlistarinnar, fréttist
ýmist að hann hafi sölusýningar á
list sinni í Reykjavík eða suður í
löndum. Og ég fékk ekki annað séð
en að nýlega fengi hann viður-
kenningu hjá slíkum sérfræðingi í
myndlist sem Valtý Péturssyni.
Ég á og frá honum tvær myndir,
teikningu og málverk, sem ég —
raunar ósérfróður — kann vel að
meta. Þá virðist mér af einni
frásögninni í hinni nýju bók hans,
að hann hljóti að vera hneigður
fyrir söng og hljómlist, hvort sem
hann nú hefur lagt fyrir sig
hljóðfæraleik og sönglagasmíð eða
ekki.
Á vettvangi bókmenntanna hef-
ur hann eins og fjölmargir íslend-
A'f-mnA
Frábærar barna-
og unglingabækur
þú getur bókað þaö
Andrés Indriðason:
Lyklabarn
Verðlaunabókin í barnabókasamkeppni
Máls og menningar. Hér er sagt frá Dísu,
sem flyst í nýtt og hálfbyggt hverfi með
foreldrum sínum og litla bróður. Hún er
einmana í fyrstu, en smám saman
stækkar kunningjahópurinn og Dísa fer
að kunna vel við sig. En það fer margt
öðru vísi en krakkar vilja. Þessi saga
segir líka frá því.
Verð kr. 5.490. Félagsverð kr. 4.665.
Ármann Kr. Einarsson
Mamma í uppsveiflu
Nýi strákurinn í 6. bekk H. B., Geiri, er
söguhetjan i þessari bók ásamt fjöl-
mörgum dugmiklum bekkjarfélögum
sínum. Krakkarnir innrétta gamalt
pakkhús og hyggjast hefja leiksýningar
til styrktar heyrnardaufri bekkjarsystur
sinni. En einmitt þegar frumsýning er í
nánd fer mamma Geira „í uppsveiflu"
og hætta er á að öll fyrirhöfnin sé til
einskis.
Verð kr. 5.310. Félagsverð kr. 4.515.
Maria Gripe:
Náttpabbi
Bráðskemmtileg barnasaga eftir höfund
bókanna um Húgó og Jósefínu. í þessari
bók er sagt frá ungri stúlku, Júlíu, sem
eignast náttpabba, sem gætir hennar á
meðan mamma er í vinnunni. Náttpabb-
inn á ugluna Smuglu, og uglur vaka á
næturnar... Þýðandi Vilborg Dag-
bjartsdóttir.
Verð kr. 4.940. Félagsverð kr. 4.210.
nKfE'narsson
Afstrid Undgrcn
á Saltkráku
Astrid Lindgren
Á Saltkráku
Sagan um fjölskylduna sem leigir sér
ókunnugt hús á ókunnri eyju og lendir
þar í ótal ævintýrum. Eftir þessari bók
hafa verið sýndir mjög vinsælir sjón-
varpsþættir, Þýðandi Silja Aðalsteins-
dóttir.
Verð kr. 5.490. Félagsverð kr. 4.665.
Astrid Lindgren:
Víst kann Lotta
næstum allt
Gullfalleg myndabók fyrir yngri börnin.
Sagan um Lottu litlu sem getur allt -
nema renna sér í svigi á skíðum. Og
þegar öll jólatré í bænum eru uppseld
tekur hún til sinna ráða. Þýðandi Ást-
hildur Egilson.
Verð kr. 3.295. Félagsverð kr. 2.800.
3/A
K. M. Peyton:
Erfingi Patricks
Falleg og athyglisverð unglingasaga,
þriðja og síðasta bókin um vandræða-
gripinn og hæfileikamanninn Patrick
Pennington. i upphafi bókarinnar situr
hann í fangelsi fyrir að ráðast á lög-
regluþjón við skyldustörf. Þýðandi Silja
Aðalsteinsdóttir.
Verð kr. 5.915. félagsverð kr. 5.025.
Astrid Lindgren:
Ný skammarstrik
Emils í Kattholti
dnnur bókin um hinn óforbetranlega
Emil í Kattholti. Þegar þessi bók hefst
hefur Emil tálgað 99 spýtukarla i
skammarkróknum, en þegar henni lýkur
eru þeir orðnir 125. Þýðandi Vilborg Dag-
bjartsdóttir.
Verð kr. 5.000. Félagsverð kr. 4.250.
Mál og menning
Bökmennlir
eftir GUÐMUND
G. HAGALÍN
ingar verðbólguþjóðfélagsins og
þá ekki sízt ýmsir „listamenn"
komizt í álíka náin kynni við sama
ófétis illhvelið og gleypti nafna
hans, Jónas spámann, sem Heilög
ritning segir okkur frá. Það er
illhveli kæruleysis, hroðvirkni og
vanmats á gengi alvarlegrar og
eðlilegrar hugsunar. Mér hafði
sem sé virzt, að þetta foraðsill-
hveli hefði gleypt skáldið og rit-
höfundinn Jónas Guðmundsson.
En ég fæ ekki betur séð af bókinni
Farangri en að hvalurinn hafi nú
spúið skátdinu og rithöfundinum
Jónasi Guðmundssyni á land upp,
raunar svolítið sködduðum, enda
trúi ég því ekki, að nafni hans,
spámaðurinn, hafi verið laus við
öll ummerki meltingarvökva
hvalsins, þegar skepnan skilaði
honum, þó að ég hins vegar,
mestan part af ótta við séra
Guðmund Óla og skoðanabræður
hans, dirfist ekki draga í efa
söguna af misferli og síðan iðran
og yfirbót eins alræmdasta ill-
hvelis í allri veraldarsögunni!
Hún lætur ekki mikið yfir sér,
bókin sú arna. Hún er alls tíu
arkir og hefur að flytja 11 smásög-
ur og frásagnir. Allar eru þær
læsilegar og sumar haglega samd-
ar. Haglegastar sem smásögur tel
ég þessar: Gulur páfagaukur,
Sumarhús, Draumur með lotið
stefni og koparskrúfu, (þarna
hefðum við Vestfirðingar sagt
lotað, en ekki lotið), Rakarinn og
Sorg innan seilingar. Bókin er
yfirleitt á góðu máli, en á stöku
stað bregður fyrir orðum úr sjó-
mannamáli, þar sem betur færi á
að nota íslenzkt orð. Tek ég til
dæmis orðið að lensa, það er dæla
sjó úr bát, en það er algengt í
annarri merkingu. Þá ber þess að
geta, að á flestum sagnanna er
viðfelldinn persónulegur stíll, og
er það gleðileg nýjung hjá höfund-
inum. Hann notar mikið samlík-
ingar og tekst þar víða eftirminni-
lega, en fyrir kemur, að hann
ofhleður svo af þeim, að hann
missir á þeim rökrétt tök eins og í
því, sem hér fer á eftir:
„Árin höfðu leikið hana grátt.
Einu sinni hafði hún verið falleg,
en nú minnti hún hann á gamalt,
hrörlegt leikhús eða fátæka
kirkju, einkum þegar hún dubbaði
sig upp og þau fóru eitthvað, þá
luraðist hún áfram, fánum prýdd
oq de rri ari ta/r
Kjartan
gullsmíöur, Aöalstraetí 8.
m und