Morgunblaðið - 16.12.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.12.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979 55 Frá Hlíðarhúsum til Bjarma- lands er stórskemmtileg minn- ingabók, létt og leikandi frá- sögn, m.a. af nágrönnunum á Vesturgötunni og lífinu í Reykja- vík í upphafi aldarinnar, félög- unum og brekum þeirra og bernskuleikjum, námsárunum í Menntaskólanum og kennara- liði skólans, stjórnmálaafskipt- um og stofnun Alþýðusam- bands íslands á heimili foreldr- anna, aðdraganda að lausn sambandsmálsins við Dani, stofnun Jafnaðarmannafélags- ins og átökum í Alþýðuflokkn- um, sögulegri för höfundarins og Brynjólfs Bjarnasonar á 2. þing Alþjóðasambands Komm- únista í Leningrad 1920 o.fl. Auk þess að vera bráðskemmti- leg, hefur þessi bók mikið menningarsögulegt gildi. Hér er skráð mikil saga löngu liðinna tíma, — saga, sem nær óslitið yfir tvær aldir og spann- ar ágrip af sögu sex kynslóða. í samanþjöppuðu formi er hér sögð saga Eggerts Óiafssonar í Hergilsey og barna hans, rakin fjölmörg drög að ættum þeim, er að honum stóðu, og eins að konum hans. Og hér er að finna staðalýsingar, sem gera sögusviðið og lífsbaráttu fólksins Ijóslifandi. Þá mun engum gleymast örlög systr- anna Guðrúnar elstu og Stein- unnar, en þær eru ættmæður fjölmennra kynkvísla, svo margir geta hér fræðst um upp- runa sinn í sögu þeirra. Sú þjóðlífsmynd, sem hér er brugðið upp, má aldrei mást út né falla í gleymsku. ÁGRIP ÆTTARSAGNA HERGILSEYINGA SKUGGSJÁ Þessi bók fjallar um efni, sem lítt hefur verið aðgengilegt ís- lenzkum lesendum til þessa. Sagt er frá lífi og störfum heims- kunnra vísindamanna, sem með vísindaafrekum sínum ruddu brautina og bægðu hungri, sjúkdómum og fátækt frá dyrum fjöldans. Þeir fórn- uðu lífi sínu og starfskröftum i þágu heildarinnar, sköpuðu nýja möguleika, sem þeir, er á eftir komu, gátu byggt á og aukið við. Ævikjör þessara frumherja vísindanna og hinar stórstígu framfarir i lyfja- og læknisfræði varðar okkur öll. * I bókinni eru 20 teikningar af þessum kunnu vísindamönn- um gerðar af Eiríki Smith, list- málara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.