Morgunblaðið - 16.12.1979, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979
55
Frá Hlíðarhúsum til Bjarma-
lands er stórskemmtileg minn-
ingabók, létt og leikandi frá-
sögn, m.a. af nágrönnunum á
Vesturgötunni og lífinu í Reykja-
vík í upphafi aldarinnar, félög-
unum og brekum þeirra og
bernskuleikjum, námsárunum
í Menntaskólanum og kennara-
liði skólans, stjórnmálaafskipt-
um og stofnun Alþýðusam-
bands íslands á heimili foreldr-
anna, aðdraganda að lausn
sambandsmálsins við Dani,
stofnun Jafnaðarmannafélags-
ins og átökum í Alþýðuflokkn-
um, sögulegri för höfundarins
og Brynjólfs Bjarnasonar á 2.
þing Alþjóðasambands Komm-
únista í Leningrad 1920 o.fl.
Auk þess að vera bráðskemmti-
leg, hefur þessi bók mikið
menningarsögulegt gildi.
Hér er skráð mikil saga löngu
liðinna tíma, — saga, sem nær
óslitið yfir tvær aldir og spann-
ar ágrip af sögu sex kynslóða.
í samanþjöppuðu formi er hér
sögð saga Eggerts Óiafssonar
í Hergilsey og barna hans,
rakin fjölmörg drög að ættum
þeim, er að honum stóðu, og
eins að konum hans. Og hér er
að finna staðalýsingar, sem
gera sögusviðið og lífsbaráttu
fólksins Ijóslifandi. Þá mun
engum gleymast örlög systr-
anna Guðrúnar elstu og Stein-
unnar, en þær eru ættmæður
fjölmennra kynkvísla, svo
margir geta hér fræðst um upp-
runa sinn í sögu þeirra.
Sú þjóðlífsmynd, sem hér er
brugðið upp, má aldrei mást út
né falla í gleymsku.
ÁGRIP ÆTTARSAGNA
HERGILSEYINGA
SKUGGSJÁ
Þessi bók fjallar um efni, sem
lítt hefur verið aðgengilegt ís-
lenzkum lesendum til þessa.
Sagt er frá lífi og störfum heims-
kunnra vísindamanna, sem
með vísindaafrekum sínum
ruddu brautina og bægðu
hungri, sjúkdómum og fátækt
frá dyrum fjöldans. Þeir fórn-
uðu lífi sínu og starfskröftum i
þágu heildarinnar, sköpuðu
nýja möguleika, sem þeir, er á
eftir komu, gátu byggt á og
aukið við. Ævikjör þessara
frumherja vísindanna og hinar
stórstígu framfarir i lyfja- og
læknisfræði varðar okkur öll.
*
I bókinni eru 20 teikningar af
þessum kunnu vísindamönn-
um gerðar af Eiríki Smith, list-
málara.