Morgunblaðið - 16.12.1979, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979
43
Jónas Guðmundsson
eins og gömul skonnorta á sjó-
mannadaginn."
Hvað sem líður gildi samlíking-
anna, hefði átt að standa en í stað
einkum. Annars eru í bókinni
nokkrar haglegar mannlýsingar,
dregnar fáum en skýrum dráttum.
Loks vil ég benda Jónasi á
tvennt sem miður fer, en hægur
vandi á að vera að forðast. Annað
er sú ofnotkun persónufornafna
sem veldur því að lesandinn verð-
ur að hafa sig allan við til þess að
vita, hver talar eða um hvern er
talað. Hitt er endurtekning sömu
umsagna með svo stuttu millibili,
að lesandinn segir þegar í stað við
sjálfan sig: „Þetta var hann nú
búinn að segja áður með sömu
orðunum."
Loks óska ég svo Jónasi til
hamingju með þá breytingu, sem á
honum hefur orðið sem rithöfundi,
sem sé landtökuna, því að ég vona
fastlega, að útsog bárunnar, sem
hefur borið hann að landi, sogi
hann ekki út á hættusvæðið þar
sem illhvelin bylta sér.
„Þá komu feðurnir frægu“
Árni óla:
Landnámið fyrir landnám.
Setberg 1979
Árni Óla lét handritið að þess-
ari bók eftir sig fullbúið til
prentunar, og hvað sem öðru líður,
verður ekki sagt, að níræður hafi
hann verið orðinn sljóvgaður að
minni eða rökvísi, þegar hann féll
að foldu.
Hann var fyrstur manna hér á
landi blaðamaður, það er að segja
starfsmaður á ritstjórnarskrif-
stofu. Hann varð og almenningi
snemma kunnur sem ritstjóri Les-
bókar Morgunblaðsins og naut
sem slíkur mikillar hylli, en efni
Lesbókarinnar réð hann 1926—
1936 og síðan á ný frá 1945—1961,
en eftir það starfaði hann fyrst og
fremst sem rithöfundur og ritaði
21 bók, en áður höfðu komið frá
hans hendi 15 bækur, þar af 6 um
Reykjavík og sögu hennar. Hann
starfaði mikið í Góðtemplararegl-
unni, og var hann þar og í
Blaðamannafélagi íslands kjörinn
heiðursfélagi. Um ísland og nátt-
úru þess ritaði hann fagurlega og
mjög mikið skrifaði hann um
dulræn efni. Snemma varð honum
hugleikin saga landnáms á
Islandi, og kom sums staðar fram
í fyrri bókum hans það sem þessi
bók fjallar eingöngu um, sem sé,
sú vissa að ekki væri það allt með
felldu, sem yfirleitt hefur verið
haft fyrir satt um fyrsta landnám
á íslandi.
Þessi bók er 180 blaðsíður í
stóru broti. í formála gerir höf-
undur ljósa grein fyrir því, hvers
vegna hann tók að safna í hana
Árni Óla
Bðkmenntlr
eftir GUÐMUND
G. HAGALÍN
efni — og hverja fyrirhöfn það
kostaði hann allt frá árinu 1930.
Hirði ég ekki um að skýra frá,
hvað þar er skráð, en hins vegar
verður þess ekki látið ógetið, að öll
bókin er rituð til þess að sanna, að
Norðmenn hafi ekki fyrstir fundið
ísland og hafi síður en svo komið
að óbyggðu landi. Hér hafi ekki
aðeins verið fyrir nokkrir papar,
sem svo hafi flúið af landi brott,
heldur hafi landið verið allmarg-
býlt af Keltum, þegar Naddoður
kom hingað og þá auðvitað líka, þá
er Ingólfur Arnarson nam land.
Bókin skiptist í þrjá höfuðkafla.
Þeir heita: Hillingar, Ljósaskipti
og Feluleikur. Þessir þrír kaflar
skiptast svo í marga með undir-
fyrirsögnum. Ég er laus við að
vera vísindamaður í fornum fræð-
um, íslenzkum eða erlendum, en
ég hef tamið mér það, sem kallað
var að „taka sönsum", þ.e. að láta
rök ráða um breytileik skoðana
minna, og ég játa það hiklaust, að
Árni Óla hefur í þessari bók borið
fram slíkar sannanir á því stór-
máli, sem hann fjallar um, að ég
verð að trúa honum, hvort sem
mér sárnar eða ekki að varpa fyrir
borð því, sem ég hef marglesið og
sem ungur maður státaði af hér á
landi og í Noregi.
Ég læt svo máli mínu lokið, en
skora á hvern þann, sem metur
sannleikann meira en skráðar
blekkingar að lesa þessa bók. Með
því geta þeir gert upp við sig, hvað
sé satt og hvað vísvitandi rang-
hermt í svo til helgum íslenzkum
heimildum — og um leið heiðrað
minningu þess níræða manns, sem
þessa bók ritaði síðast alls.
Ljóðabók
eftir
Sigrúnu
Fannland
BÓKAÚTGÁFAN Þjóðsaga hefur
gefið út ljóðabókina Við arininn
eftir Sirgúnu Fannland frá Sauð-
árkróki. Þetta er fyrsta Ijóðabók
Sigrúnar, en hún hefur áður birt
ljóð í blöðunt og timaritum og i
Skagfirzkum ljóðum.
í bókinni við arininn eru 32 ljóð
og nokkrar stökur.
Sigrún Fannland
Sigrún Fannland fæddist 29.
maí 1908 að Ingveldarstöðum á
Reykjaströnd. 1931 giftist hún
Páli Sveinbjörnssyni bifreiðar-
stjóra og bjuggu þau á Sauðár-
króki, en síðustu árin hefur Sigrún
verið búsett í Keflavík.
Bíireiðar & Landbúnaðarvélar hf
iuAui4et»raul 11 • ww|wi - SM 19100
ASTRAD VEF 206
AKRANES
Verzl. Örin
BÍLDUDALUR
Versl. Jóns S. Bjarnasonar
BOROEYRI
Kaupfélag Hrútfirðinga
BORGARNES
Verslunin Stjarnan
BLÖNDUÓS
Kaupfélag Húnvetninga
BREIDDALSVÍK
Kaupfélag Stöðfiröinga
BÚÐARDALUR
Kaupfélag Hvammsfjarðar
DALVÍK
Kaupfélag Eyfirðinga
DJÚPIVOGUR
Kaupfélag Berufjarðar
EGILSSTAÐIR
Versl. Gunnars Gunnarssonar
GRINDAVÍK
Kaupfélag Suðurnesja
HAFNARFJORÐUR
Radíóröst
Rafkaup, Reykjavíkurv. 66
HÓLMAVÍK
Kaupfélag Steingrímsfjarðar
HVOLSVÖLLUR
Kaupfélag Rangæinga
HÚSAVIK
Bókaversl. Þórarins Stefánssonar
HÖFN — HORNAFIRÐI
Verzl. Siguröar Sigfússonar
HVAMMSTANGI
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
HAGANESVÍG
Samvinnufélag Fljótamanna
KEFLAVÍK
Kaupfélag Suðurnesja
Radíónaust, Hafnargötu 25
Radíóvinnustofan, Hafnargötu 50
Stapafell
KRÓKSFJARÐARNES
Kaupfélag Króksfjarðar
NESKAUPSTAÐUR
Kaupfélagið Fram
REYKHOLT
Söluskálinn
REYKJAVÍK
Domus, Laugavegi 91
F. Björnsson, Bergþórugötu 2
Fönix, Hátúni 6A
Hljómur, Skipholti 9
Radíóhúsið, Hverfisgötu 37
Radíóvirkinn, Týsgötu 1
Rafbúð Sambandsins, Ármúla 3
Sjónval, Vesturgötu 11
Sjónvarpsmiösþðin, Síðumúla 2
Tíðni, h.f., Einholti 2
SAUÐÁRKRÓKUR
Kaupfélag Skagfirðinga
SIGLUFJÖRÐUR
Verslun Gests Fanndal
STYKKISHÓLMUR
Kaupfélag Stykkishólms
SKRIÐULAND
Kaupfélag Saurbæinga
SÚGANDAFJÖRDUR
Kaupfélag Súgfirðinga, Suðureyri
STÖOVARFJÖRÐUR
Kaupfélag Stöðfirðinga
VOPNAFJÖRÐUR
Versl. Ólafs Antonssonar
VESTMANNAEYJAR
Kaupfélag Vestmannaeyja
VARMAHLÍD
Kaupfélag Skagfirðinga.
ÚTSÖLUSTAÐIR FYRIR ASTRAD VIÐTÆKI
SELENA 210/2 MB
Langdrægt viötæki í teak kassa.
17 transistorar, 11 díóöur.
Lang-, miö- og FM-bylgjur, 5 stuttbylgjur.
Innbyggöur spennubreytir fyrir 220 V.
Verö kr. 64.330.00.
VEGA 402
Lítiö en hljómgott tæki í leöurtösku
Lang- og miöbylgja.
Verö kr. 16.380.00.
Afar næmt viötæki.
10 transistorar, 2 díóöur.
Miö-, lang- og bátabylgja + 5 stuttbylgjur.
Verö kr. 42.695.00.