Morgunblaðið - 16.12.1979, Síða 13
45
Evrópumeistarakeppni skákfélaga:
Burevestnik
vann Volmac,
félag Korchnois.
í síðasta mánuði fór fram i
Bad Lauterberg í Vestur-
Þýzkalandi úrslitakeppnin í
Evrópumeistarakeppni skákfé-
laga. Til úrslita tefldu meistar-
arnir frá þvi árið áður Bure-
vestnik frá Moskvu og hol-
lenska félagið Voljmak frá
Rotterdam.
Bæði liðin tjölduðu því sem tii
var. í sveit Sovétmanna voru sex
stórmeistarar, en Voljmak
skartaði hins vegar þeim Kor-
chnoi og Timman á fyrsta og
öðru borði. Úrslit fyrri dag
keppninnar urðu þessi:
Burevestnik 2'k — Voljmak 3'k
'/2 Balashov — Korchnoi V2
V2 Georgadze — Timman V2
0 Razuvajev — Van der Wiel 1
'k Bagirov — Böhm '/2
V2 Kochiev — Van Baarle Vt
'k Dolmatov — Van der Vliet 'k
Það sem mest kom á óvart var
vitanlega sigur Van der Wiels
yfir Razuvajev. Hollendingurinn
ungi varð Evrópumeistari ungl-
inga um síðustu áramót og hefur
tekið stöðugum framförum
síðan.
Seinni daginn höfðu austan-
menn styrkt lið sitt með Smys-
lov fyrrum heimsmeistara, sem
tók sæti á öðru borði. Það hefði
þó litlu máli skipt ef menn
Burevestnik á neðri borðunum
hefðu ekki tekið á sig rögg:
Burevestnik 3 lk (6) —
Voljmak 2‘/2 (6)
'k Balashov — Korchnoi 'k
'k Smyslov — Timman 'k
0 Georgadze — Van der Wiel 1
1 Bagirov — Böhm 0
1 Kochiev — Van der Vliet 0
'k Dolmatov — Van Dop 'k
Enn varð það Van der Wiel
sem velgdi Rússum undir uggum
og nú varð að tefla eina úrslita-
umferð. Þá loks tókst Sovét-
mönnum að sanna yfirburði
sína:
Burevestnik 4 — Voljmak 2
'k Balashov — Korchnoi V2
'k Smyslov — Timman V2
1 Georgadze — Van der Wiel 0
'k Razuvajev — Böhm V2
'k Bagirov — Van Baarle V2
1 Dolmatov — Van Dop 0
Liðsmönnum Burévestnik
tókst því að verja titil sinn, en
fengu nú miklu meiri keppni en
áður. Keppnin var ákaflega
skemmtileg og spennandi og það
virtist engin áhrif hafa að kepp-
endum hafði verið fækkað úr
átta í sex, vegna hins háa
ferðakostnaðar.
Það væri reyndar athugunar-
efni hvort ekki sé farinn að
koma grundvöllur undir að
íslensk félög, þá helst Taflfélag
Reykjavíkur, geti farið að vera
með í keppninni. Ef félög á borð
við Burevestnik eða Voljmak
sæktu okkur heim, þætti mér
ekki ólíklegt að þátttakan í
keppninni stæði undir sér fjár-
hagslega.
Við skulum nú líta á eina
skemmtilega skák úr viðureign
Burevestniks og Voljmaks:
Hvítt: Van der Wiel (Voljmak)
Svart: Georgadze (Burevestnik)
1. e4 - c5, 2. Rf3 - Rc6, 3. d4 -
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — e6,
6. Rdb5 - d6, 7. Bf4 - e5, 8. Bg5
- a6, 9. Ra3 - b5, 10. Bxf6 -
gxf6,11. Rd5 - f5.
(Nú er komin upp ein af
þekktustu stöðunum í Lasker
afbrigðinu, mest umdeilda og
jafnframt mest rannsakaðasta
afbrigði allrar skákfræðinnar á
þeim áratug sem nú er að ljúka.)
12. Bxb5!? - axb5. 13. Rxb5
— Ha4
(Þessi leikur vakti mikla
hrifningu þegar hann kom fyrst
fram, en nú telja flestir svart
ekki nægilega undirbúinn undir
að hefja gagnsókn svo snemma
og mæla með 13. ... Da5)
14. Rbc7+ - Kd7, 15. 0-0 -
Hxe4,16. Dh5 - Rd4?!
(Öruggara er hér 16. ... Re7.
16. ... Rd4 er það nýjasta af
nálinni í þessu afbrigði, en
Georgadze kemur svo sannar-
lega ekki að tómum kofunum hjá
Van der Wiel)
17. Dxf7+ - Be7
18. f3!
(Lakara en 18. Ra8, eins og
Veröczy-Petronic lék á kvenna-
skákmóti í Zalaegerszeg í fyrra
gegn Porubsky, vegna 18.
... Df8!)
Skák
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
Ilh4, 19. g3 - Hh6, 20. c3 -
Re6.
(Eftir 20. ... Re2+, 21. Kg2
ætti riddarinn augljóslega ekki
afturkvæmt. Svartur verður því
að láta af hendi peðið á f5, en
eftir það hefur hvítur þrjú peð
fyrir manninn og áframhaldandi
sókn)
21. Dxf5 - Dg8
(Betra var 21.... Hf8)
22. Rxe7 - Kxe7, 23. Rd5+ -
Kd8, 24. Hadl - Dg6, 25. Re3
- Rf4?
(Nú vinnur hvítur þvingað.
Svártur varð að reyna 25.
... dxf5)
26. Dxe5 - Re2+, 27. Kf2!
(Snjall leikur, eftir 27.
... Hxh2+? 28. Kel standa hrók-
urinn á h8 og peðið á d6 bæði í
uppnámi)
He8, 28. Da5+ - Ke7, 29. Kxe2
- Hxh2+, 30. Hf2 - Hh5
(Ef 30. ... Dxg3 þá 31. Dc7+
Bd7, 32. Rf5+)
31. Hh5 - Ilxd5, 32. Dxd5 -
Kf8, 33. Kd2 - Dbl, 34. Dxd6+
- Kg8, 35. Rc2 - Dxb2. 36.
Dd5+ - Be6, 37. Dg5+ - Kf7,
38. Hh2 - Hh8, 39. Hh6 og
svartur gafst upp.
★
Það kom fram á fundi Skák-
sambands Islands í síðasta mán-
uði að sambandið ætlaði sér ekki
að senda fulltrúa á Evrópu-
meistaramót unglinga í Gron-
ingen um áramótin vegna fjár-
skorts.
Þau ánægjulegu tíðindi hafa
hins vegar gerst að Búnaðar-
banki íslands hefur ákveðið að
hlaupa undir bagga með Skák-
sambandinu og greiða fargjöld
íslenska keppandans, sem sam-
kvæmt úrslitum á síðasta
Skákþingi íslands yrði Jóhann
Hjartarson.
Jóhann starfaði í Búnaðar-
bankanum í sumar og hefur
tekið þátt í skákkeppnum síðan
fyrir hönd bankans og náð ágæt-
um árangri.
★
Bréfskákþing íslands 1980, hið
4. í röðinni, mun hefjast þann 15.
febrúar n.k. Þátttökutilkynn-
ingar þurfa að hafa borist fyrir
20. janúar 1980. Mótið mun
standa í u.þ.b. 2 ár.
Teflt verður í landsliðsflokki,
meistaraflokki og almennum
flokki. Stefnt er að því að hafa
10—12 manna riðla.
Þátttökugjald verður 10.000.-
kr. og verður innheimt með
gíróseðli í upphafi mótsins.
Þátttaka tilkynnist til eftir-
taldra aðila:
Þórhallur B. Ólafsson, Lauf-
skógum 19, 810 Hveragerði, Jón
A. Pálsson, Hrauntungu 105, 200
Kópavogi, Birgir Þ. Karlsson,
Engihjalla 1, 200 Kópavogi.