Morgunblaðið - 16.12.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979
47
Frá lögreglunni:
Vitni vantar að ákeyrslum í Reykjavík
RANNSÓKNADEILD lögregl-
unnar í Reykjavík hefur beðið
Morgunblaðið að auglýsa eftir
vitnum að eftirtöldum ákeyrslum
i borginni. Þeir, sem geta veitt
upplýsingar um neðangreindar
ákeyrslur eru beðnir að hafa
strax samband við lögregluna i
síma 10200.
Þann 30.11. s.l. var ekið á bifr.
R-10117 sem er Fíat, grænn að lit
á bifr.stæði við Hagkaup í Skeif-
unni. Varð frá kl. 20.00 til 21.00
um kvöldið. Skemmd á bifr. er
hægra afturaurbretti og er hvít
málning í skemmdinni.
Þann 9. des. s.l. var ekið á bifr.
R-67182, sem er Mazda 323, grá-
sanseruð við Kríuhóla 4 Rvík.
Varð frá kl. 01.30 um nóttina og til
kl. 15.00 að deginum. Skemmd er á
framaurbretti hægra megin.
Þann 10.12. s.l. var ekið á bifr.
Y-6669, sem er Toyota Celica svört
að lit á Amtmannsstíg milli
Skólastrætis og Lækjargötu. Varð
frá kl. 19.00 til 20.35. Skemmd á
bifr. er vinstra afturaurbretti og
afturhöggvari skemmt. Tjónvald-
ur gæti verið Lada station bifr.
sem skrásetningarnúmerið byrjar
á R-58 og er fimm stafa.
Þann 12.12. s.l. var ekið á bifr.
R-54264 sem er Austin Allegro,
rauð að lit við Blómaval í Sigtúni,
eða við Garðastræti 37. Var bifr.
við Garðastrætið frá kl. 09.00 til
Sverðgleyp-
ir setur
heimsmet
Fort Erie, Kanada, 13. des. AP.
COUNT Desmond, sem er
sverðagleypir að atvinnu,
krafðist þess í dag að heims-
met sitt yrði viðurkennt, en þá
sporðrenndi hann tíu sverð-
um. Samkvæmt metabók
Guinness var fyrra metið sett
1978 af Edward nokkrum
Benjamin í sjónvarpsþætti
hjá David Frost. Gleypti hann
átta sverð.
Aður en Desmond sneri sér
að því að setja heimsmetið í
dag hafði hann gleypt einn
hljóðnema. Hann sagði við-
stöddum, sem fylgdust með
gleypugangi hans, að hann
hefði slasast illa í átján skipti
af þeim 1052 sem hann hefði
komið fram við þessa iðju
sína.
kl. 19.00 og við Blómaval frá kl.
19.30 til kl. 20.00. Skemmd er á
vinstra framaurbretti og er blár
litur í skemmdinni.
Þann 12.12. s.l. var ekið á bifr.
G-4085, sem er Escort orange
litaður að vestanverðu við Bíla-
markaðinn við Grettisgötu 12—18.
Átti sér stað eftir kl. 12.30.
Skemmd er á hægra framaur-
bretti og höggvara og er ljósgrár
litur í skemmdinni.
Þann 12.12. s.l. var ekið á bifr.
Y-9096 sem er Saab 96 drapplit-
aður á bifr.stæði við Landa-
kotsspítala Hrannarstígsmegin.
Varð frá kl. 15.10 til 16.10.
Skemmd á vinstra framaurbretti,
framhöggvara og stefnuljósi. I
skemmdinni er rauð málning og
svart eftir gúmmíhöggvara.
Þann 12.12. s.l. var ekið á bifr.
R-54553, sem er Lada 1500, dökk-
brún að lit við hús nr. 4 við
Tjarnargötu. Varð frá kl. 17.25 til
17.45. Skemmd er á vinstra aftur-
aurbretti ofan við afturhjól.
Fimmtudaginn 13.12. var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifr.
R-20205, sem er Escort station,
gegnt húsi nr. 39 við Baldursgötu.
Bifreiðin er brún að lit. Varð
aðfaranótt 13.12. Skemmd er á
afturaurbretti vinstra megin og er
rautt í skemmdinni.
Geróu kröfur
og þú velur
Philishave
Philishave — nafnið táknar
heimsfrægt rakhnífakerfi. Þrjá
hringlaga,fljótandi rakhausa.
Þrisvar sinnum tólf fljótvirka
hnífa.sem tryggja fljótan, þægilegan
og snyrtilegan rakstur. Þrisvar sinnu
níutíu raufar,
sem grípa bæði
löngogstutt há
í sömu stroku.
Er ekkikominn
tími til,aðþú
tryggir þérsvo
frábæra rakvél?
Philishave 90-Super 12,hefur
stillanlega rakdýpt, sem
hentar hverri skeggrót.
Vegna hinna nýju 36 hnífa,
rakar hún hraðar og þægi-
legar. Níu dýptarstillingar
auka enn á þægindin.
Bartskerinn er til snyrtingar
á skeggtoppum og börtum.
Þægilegur rofi og auðvitað
gormasnúra. Vönduð gjafaaskja
(HP1121).
Hleðsluvél með stillanlegri
rakdýpt. Á einni hleðslu
tryggir þessi Philishave 90-
Super 12,þér rakstur í tvær
vikur. Níu dýptarstillingar
og ein þeirra hentar þér
örugglega.Teljari sýnir hve
oft vélin hefur verið notuð
frásíðustu hleðslu. Bart-
skeri og gormasnúra
og í fallegri gjafaöskju
(HP 1308)
Philishave 90-Super'12.
Hraður og mjúkur rakstur,
árangur 36 hnífa kerfisins.
Rennileg vél sem fer vel í
hendi. Bartskeri og
gormasnúra og í
fallegri gjafaöskju
(HP1126).
Rafhlöðuvél.
Tilvalin í ferðalög,
í bátinn, bílnum,
og hjólhýsinu.
Viðurkenndir
rakstrareiginleikar.
Fórar rafhlöður,
tryggja f jölmSrga
hraðaog þægilega
rakstra. I þægilegri
ferðaöskju (HP 1207).
Philips kann
tökin á tækninni.
Nýja Philishave 90-Super 12
3x12 hnífa kerfið.
PHILIPS
Fullkomin þjónusta
tryggir yðar hag.
Stanley
í þýðingu Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum
Þessi stórmerka ferðabók er prýdd eitthundraö penna-
teikningum, tuttugu og einni vatnslitamynd og tveimur
olíumálverkum. Bókin er í forkunnarfagurri, litprentaðri
öskju. Ábyrgur bókagagnrýnandi hefur lagt til aö bókin
fengi sérstök fegurðarverölaun.
ÖRN&ÖRLYGUR VESTURCÖTU 42, S(MI 25722