Morgunblaðið - 16.12.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979
51
... túristar sáust nánaat hvergi.
í átt að grátmúrnum.
ur vegna þess hve ókyrr og
eirðarlaus hann var. Hann stökk á
fætur, þegar minnst vonum varði,
dró dömur út á gólfið og skildi þær
eftir í miðju lagi og var þá kominn
í hávaðasamræður einhvers stað-
ar annars staðar.
Svo kemur auðvitað röðin að
mér, ég bað um að hafa mig
afsakaða, en það var ekki við það
komandi, kvenmann frá Islandi
rak ekki á fjörur hans á hverjum
degi. Svo að við stigum einn léttan
diskódans með miklum sveiflum
og hæfilegum þrýstingum til
skiptis. En fegin var ég nú samt
þegar ég gat horfið til sætis og
hann flaksaðist á burt að fá sér
nýtt kompaní.
„Það var rétt hjá þér að neita
ekki,“ sagði samferðafólk mitt.
„Aldrei að vita upp á hverju hann
tekur... “
?
Hann er nýkominn til ísraels,
þessi maður, ættaður frá Mar-
okkó. Undanfarin sjö ár hefur
hann setið í fangelsi í Frakklandi,
hann myrti bróður sinn með því
að reka hann í gegn. Bróðirinn
hafði verið að gamna sér með
eiginkonu hans að því er talið var
og því fékk hann tiltölulega vægan
dóm. Hann hefur ekki náð heilsu
og hann er ör og trylltur og flestir
reyna að forðast hann, í mesta
lagi fólk blandi við hann geði til að
losna við að hann dragi upp hníf
einn mikinn og vænan sem hann
ber jafnan á sér og ógnar fólki
iðulega með ef það er eitthvað að
andmæla honum.
Maður upplifir alltaf eitthvað
nýtt í Jerúsalem.
Það er ekki bara Grátmúrinn,
Via dolorosa, Sadt og Begin — nú
stígur maður einnig diskódans við
bróðurmorðingja frá Marokkó.
Lönd og lýðir:
Bók um Sovétríkin
ÚT ER komin bókin SOVÉTRÍK-
IN, eftir Kjartan ólafsson hag-
fræðing. Þetta er nýtt bindi í
flokknum Lönd og lýðir, en hann
telur nú alls tuttugu og tvær
bækur. Ritið er 280 blaðsiður að
stærð og prýtt fjölda mynda.
Útgefandi er Bókaútgáfa Menn-
ingarsjóðs og Þjóðvinafélagsins.
I fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir svo:
„Höfundur bókarinnar, Kjartan
Ólafsson hagfræðingur, er löngu
kunnur af ritum sínum, frum-
sömdum og þýddum. Kann hann
rússnesku, hefur ferðast víða um
Sovétríkin og aflað sér mikils
fróðleiks um sögu Rússa. Skiptist
ritið í þrjá aðalhluta sem bera
fyrirsagnirnar Sovétríkin, Sam-
bandslýðveldin og Þjóðlíf og
menning. Inngangurinn um Sovét-
ríkin fjallar einkum um sögu hins
forna ríkis en rekur atburði til
daga byltingarinnar og ráðstjórn-
arinnar, síðari heimsstyrjaldar-
innar, kalda stríðsins og nútím-
ans. Þá er greinargóð lýsing á
Sovétríkjunum fimmtán, hverju
um sig, og helstu sérstöðu þeirra
og loks víðtæk frásögn af þjóðlífi,
aldarfari og menningu í hinu
umdeilda stórveldi. Dylst ekki að
höfundur er gagnkunnugur þessu
margþætta efni en jafnframt
slyngur og athyglisverður rithöf-
undur. Bókin um Sovétríkin er í
meginatriðum hliðstæð að gerð
fyrri ritum flokks þessa um lönd
og lýði sem - nýtur mikilla vin-
sælda. Var til útgáfu hans stofnað
í því skyni að kynna íslendingum
ríki og þjóðir heims og víkka
andlegan sjóndeildarhring les-
enda.“