Morgunblaðið - 16.12.1979, Blaðsíða 21
53
í þágu
góðleikans
Eins og þeir sem ekkert virðast
sjá annað en viðbjóðinn í mönnun-
um verða til lengdar þreytandi
aflestrar, þá getur eins farið um
þá, sem stöðugt einblína einungis
á góðu hliðarnar í manneskjunni.
Myndir slíkra höfunda skortir
stundum dýpt, því það er um
skáldskap eins og málverk, að það
er samspil andstæðnanna sem
gefur þeim líf. Enginn skepna
veraldar býr yfir öðrum eins
andstæðum í eðli sínu og maður-
inn, þess vegna er hann hið
óþrjótandi viðfangsefni góðra rit-
höfunda.
Hugrún er enginn viðvaningur.
Hún hefur skrifað ljóðabækur,
skáldsögur, æviþætti kvenna,
smásögur og barna- og unglinga-
bækur. Mun þessi bók hennar vera
tuttugasta og sjötta bókin frá
1941. í skáldsögum sínum og
smásögum mörgum er hún höf-
undur hinna hrjáðu olnbogabarna
lífsins, því samúð hennar er rík og
kærleikur hennar sterkur. Hún er
því fyrst og fremst hinn mikli
huggari lesenda sinna. Bækur
hennar eru uppbyggjandi fyrir þá
sem í raunum lenda og þurfa á
auknum lífsþrótti að halda og
nýrri trú á lífið og möguleika þess.
Ég held að þetta sé hinn göfugi
tilgangur Hugrúnar og því sé
eðlilegast og sanngjarnast að
dæma ritverk hennar útfrá því
sjónarmiði, hvort henni takist
þetta eða ekki. Það er lítil uppörv-
un að því að rétta sjúkri og þjáðri
manneskju bók, sem beinir aðal-
athygli sinni að því illa í mannin-
um. Það er engum sem á því þarf
að halda hressing eða uppörvun.
Ég hygg að sé litið á verk
Hugrúnar frá þessu sjónarmiði,
þá komi í ljós, að þetta hafi henni
vel tekist, því sögur hennar eru
skrifaðar á fallegu alþýðumáli án
nokkurrar tilgerðar í stíl eða efni.
Góðleikur höfundar og rík samúð
með ólánsbörnum lífsins bregður
sérstakri hirtu yfir það sem hún
skrifar, svo hún getur oft hitað
góðu fólki um hjartarætur. Það er
líka list.
I þessari síðustu bók Hugrúnar
LEIKIR AÐ LÍFSINS TAFLI eru
allmargar sögur og með ýmsum
blæ. Gætir í sumum þeirra áhrifa
frá barna- og unglingabókahöf-
undinum, því yfir þær slær birtu
ævintýrsins. Ein ágæt saga
Klukkan með sálina er bersýni-
lega skrifuð undir áhrifum hins
fræga H.C. Andersens og er það
góð saga, sögð af gamalli klukku.
Þær sögur sem gerast í sveit hafa
yfir sér sterkan svip raunveru-
leika, sökum lifandi lýsinga.
Tvær sögur hefðu mátt vera
lengri, að mínum dómi, til þess að
höfundur geti gert persónum betri
skil. Þar á ég við fyrstu söguna
Það skeður margt á langri leið og
Ef ég hefði skapað þig. hefði ég
haft þig öðruvísi. Um fyrri sög-
una er það að segja, að höfundi
tekst að vekja mjög forvitni les-
anda um manninn sem athyglin
beinist að, en eftir að hafa byggt
upp talsverða eftirvæntingu er
lesandi svo svikinn um að fá að
kynnast leyndardómi þessa
manns, því áður en maður veit af
er sögunni lokið! Þetta verkar á
lesanda eins og hann hafi aðeins
fengið að kynnast einhverju sem
aldrei hefur verið lokið við. Slíku
gerir höfundur miklu betri skil í
öðrum sögum í þessari bók. Síðar-
nefnda sagan gefur manni ekki
heldur nægilegt tækifæri til þess
að kynnast prestinum, sem sagan
fjallar um. Hún leggur einungis
áherslu á atriði, sem engar upp-
lýsingar gefur um prestinn, sem í
upphafi virðist vera aðalsöguefn-
ið. Þessi saga hefði því mátt vera
lengri og víðtækari að þessu leyti.
Það er mjög mikill vandi að
skrifa stuttar sögur. Þær lúta
sérstökum lögmálum, sem erfitt
getur verið að uppfylla. Því er líkt
farið um rithöfunda sem fást við
hin ólíkustu bókmenntaform og
hljóðfæraleikara, sem spila á
mjög mörg hljóðfæri. Þeir geta
tæpast gert þeim öllum jafngóð
skil. Og þetta hefur jafnan komið
fram hjá fjölhæfustu lista-
mönnum á þessu landi.
hin sivinsælu log meö
m MORTHENS
á nýju plötunni
c er ycfdci á ycdccm éját
Ath! S.G. sendir út á land. Faxafón sími 30863
TELEFWMKEN
PLÖTUSPILARAR
CORDA, nýtt matar- og kaffistell.
Hönnuðurinn HERTHA BENGTSON er sænsk og tekst
henni hér mjög vel að sameina léttleika og dæmigert
skandinavískt útlit.
Nýjungar, svo sem lengri börð á diskum og skálum, falla
vel að heildarsvip og auka á notagildi.
CORDA er eldfast og hentar vel til notkunar í örbylgju-
ofnum.
CORDA er fagurt og notadrjúgt matar- og kaffistell.
HERTA BENGTSON hefur einnig hannað dúka, diska-
mottur, servíettur og servíettuhringi í stíl við CORDA.