Morgunblaðið - 16.12.1979, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979
57
J JI pólitíkinni er ég strangtrúaður marx-
isti en lifi lífinu sem ævintýramaður 7 5
_____________________ (SJÁ: Hermdarverkamenn)
HERMDARVl' IIM Hl I 111 [^^■■■1
Carlos liggur
í leyni og
brýnir kutann
Carlos: reynir eftir mætti að
sýnast kaldrif jaður og samvisku-
laus.
Iiich Ramirez Sanchez, betur
þekktur sem Carlos, hryðju-
verkamaðurinn, sem tók Yamani
fursta og aðra olíuráðherra i
gislingu á OPEC-fundi árið 1975,
virðist nú vera farinn að sakna
sviðsljóssins.
Arabiskt timarit, A1 Watan A1
Arabi, hefur að undanförnu birt
viðtal við þennan venesuelenska
hryðjuverkamann og telja flestir
að þar séu engin brögð í tafli og
að verið sé að ræða við réttan
mann.
í fyrsta hluta viðtalsins lýsir
Carlos sjálfum sér sem „ævintýra-
manni“ og lætur að því liggja, að
þjálfun í hryðjuverkum hafi hann
fengið við Patrice Lumumba-há-
skólann í Moskvu seint á síðasta
áratug. „Á þessum tíma tók ég
þátt í nokkrum minniháttar að-
gerðum sem ég get þó ekki skýrt
nánar frá,“ sagði hann við Assem
el Jundi, sýrlenskt ljóðskáld, sem
ræddi við hann á einhverjum
ókunnum stað.
í viðtalinu virðist Carlos gera.
sitt besta til að sýnast jafn
kaldrifjaður og samviskulaus og
hann er sagður vera og var engu
líkara en hann væri farinn að
eltast við þá mynd, sem fjölmiðL
arnir hafa dregið upp af honum. „í
pólitíkinni er ég strangtrúaður
marxisti, en lifi lífinu sem ævin-
týramaður," sagði hann.
Jundi vildi engar upplýsingar
gefa um það hvar Carlos er
niðurkominn og lét ekkert hafa
eftir sér um þær staðhæfingar
sumra dagblaða í Arabalöndum,
að Carlos dveldist einkum í írak
og af og til í Líbanon. Carlos gaf
sjálfur í skyn, að brátt léti hann
að sér kveða á nýjan leik. „Aðeins
meiriháttar aðgerðir, sem hafa
þennan sérstaka Carlos-blæ, vekja
uppnám um allan heim. Næst
þegar þú heyrir af slíku uppnámi
máttu vera viss um að ég hef
staðið þar að baki og líklega séð
um framkvæmdina sjálfur," sagði
hann.
Lögreglan í London telur, að það
hafi verið Carlos, sem skaut á
Edward Sieff, forseta Marks and
Spencer-verslananna og kunnan
zionista, á heimili hans árið 1973.
Skotið var á Sieff af stuttu færi og
lenti kúlan í andlitinu en þrátt
fyrir það lifði hann af. Það var þó
í París, sem Carlos olli mesta
uppnáminu. Talið er að hann hafi
verið sá, sem varpaði hand-
sprengju inn í troðið kaffihús, sem
Gyðingar sóttu, með þeim afleið-
ingum að tveir ungir Frakkar létu
lífið og margir særðust alvarlega.
í júni árið 1975 komst Carlos
undan við illan leik úr umsátri
lögreglunnar um íbúð eina í Lat-
ínuhverfinu í París, drap tvo
lögreglumenn, arabískan upp-
ljóstrara og særði þriðja lögreglu-
manninn.
Það var í desember árið 1975
sem Carlos lét næst til skarar
skríða. Þá var hann fyrir hópi
hryðjuverkamanna af báðum
kynjum, þ.á m. nokkrum úr Baad-
er-Meinhof-hópnum, sem lagði
undir sig höfuðstöðvar OPEC í
Vín. Síðan hafa menn þóst sjá
hann hér og hvar um allan heim
en með fullri vissu sást hann
síðast í Algeirsborg þegar síðasta
OPEC-gíslinum var sleppt.
—COLIN SMITH.
TÆKNI & VISIND
Böðlinum
bætist nýtt
aftökutól
Sá maður, sem næst verður
liflátinn i ríkisfangelsinu i Okla-
homa-fylki i Bandaríkjunum,
mun líklega ekki verða þess var
þegar „dauðinn sækir drótt“,
dálítili höfgi og síðan er öllu
lokið.
í Oklahoma hefur verið sam-
þykkt, að framvegis verði dauða-
refsingin í líki banvænnar
sprautu, sem er það nýjasta í þeim
efnum í Bandaríkjunum. Ennþá
hefur þó enginn verið deyddur
með þessum hætti og þeir, sem
lögfróðir eru, segja, að mörg ár
kunni að líða áður en til þess
kemur.
Áttatíu og tveir morðingjar,
nauðgarar og mannræningjar
hafa verið líflátnir í rafmagnsstól
ríkisfangelsisins í Oklahoma frá
því á árinu 1915 og einn hefur
verið hengdur. Með sprautunni
banvænu mun dauðinn koma á
svipstundu, hinn dæmdi sofnar
svefninum langa í bókstaflegri
merkingu. I lögunum er mælt svo
fyrir, að deytt skuli með því að
sprauta í líkamann „afar fljót-
virku deyfilyfi ásamt efni, sem
hefur lamandi áhrif". Opinber
dánarorsök er hjartaslag.
Það er ekki aðeins Oklahoma-
fylki eitt sem hyggst taka upp
nýjar aðferðir við að lífláta fólk,
sams konar lög hafa verið sam-
þykkt í Texas, Idaho og Nýju-
Mexicó og eru í athugun víðar.
Á síðustu 30 mánuðum hafa
kviðdómar í Oklahoma kveðið svo
á um, að 27 menn skuli láta lífið
fyrir sprautunni; í Texas bíða 125
sömu örlaga og einn í Idaho og
annar í Nýju-Mexicó. Líklegt er þó
að enn líði nokkur ár þar til fyrsti
maðurinn verður tekinn af lífi á
þennan hátt vegna áfrýjana og
lagalegra álitsefna.
I Oklahoma verður allt með
öðrum brag en við aftökur fyrr á
árum. í stað „göngunnar hinstu"
frá dauðadeildinni í gegnum kjall-
arann að rafmagnsstólnum er nú
farið með fangann upp á þriðju
hæð stjórnardeildar ríkisfangels-
isins, þar sem 30 manns verða
vitni að aftökunni. Hinn dauða-
dæmdi er borinn á börum, sem
hann er bundinn á, og höfuðið
látið liggja nokkuð hátt til að
vitni, þ.ám. sex blaðamenn og
fimm menn, sem fanginn velur
sjálfur, geti fylgst með honum þar
til yfir lýkur.
Böðullinn verður einhver
þriggja sjálfviljugra sjúkraliða,
sem klæddir eru hvítum kuflum
með hettu og þess gætt, að enginn
geti borið kennsl á þá. Þeir standa
bak við skilrúm en í gegnum það
liggur slanga, sem tengd er við
arm eða fót hins dauðadæmda
manns. Allir þrír munu þeir
sprauta dökkum vökva inn í slöng-
una án þess þó að vita hver þeirra
dælir eitrinu. „Ekki ólíkt því sem
gerist um aftökusveitir," sagði
Nancy Nunnally, talsmaður fang-
elsisyfirvalda.
Margir telja, að kviðdómendur í
viðkomandi ríkjum hafi að undan-
förnu kveðið upp fleiri dauðadóma
en fyrr og stafi það af því að þeir
telji þessa líflátsaðferð mannúð-
legri en rafmagnsstólinn.
RON JENKINS
Að fara í
hundana í fín-
um félagsskap
Brezka fíkniefnalögreglan
er ráðþrota gagnvart hópi
unglinga af aðalsættum, sem
eru forfallnir heróínneytend-
ur. t>eir hafa myndað með sér
samtök og vitað er að starf-
semi þeirra fer einkum fram á
Kings Road i London og í
glæsilegum húsum þar i
grennd. En fátt eitt er annað
um þau vitað en að þau kaupa
og neyta heróins í stórum stíl
og þetta atferli hefur vakið
vaxandi áhyggjur á meðal for-
eldra þeirra, lækna og lögregl-
unnar.
Þessi ungmenni, sem lögregl-
an kallar gjarnan sætabrauðs-
börnin, hafa myndað með sér
nánast órofa hring, og þau
Gamalkunnu aðferðirnar duga
ekki við hástéttardópistana.
virðast ekki þurfa að leita út
fyrir hann vegna skorts á
peningum eða milliliðum.
Leynilögreglumenn geta ekki
beitt sínum gamalkunnu að-
ferðum við þessa hástéttardóp-
ista, þ.e. að komast inn í
samtökin með einhverjum
hætti eða afla upplýsinga frá
einhverjum meðlimum. Lög-
reglumaður getur auðveldlega
brugðið sér í gervi skuggalegs
eiturlyfjasala á hinum al-
ræmda neðanjarðargangi á
Piccadilly, en það er nánast
ógerningur fyrir hann að villa á
sér heimildir á meðal ungl-
inganna í Belgravia, og þykjast
vera einn af þeim.
Svipmyndum af neðanjarðar-
starfsemi unglinganna skýtur
endrum og eins upp á yfirborð-
ið, einkum ef einhver úr sam-
tökunum er handtekinn eða
lætur lífið. Það er algengara að
þeir deyi vegna eiturlyfjaneyzl-
unnar en að þeir komist undir
manna hendur. Hins vegar
kemur það stundum fyrir að
einhverjum úr hópnum sé
laumað inn á sjúkrahús. Dr.
Meg Patterson, einn þekktasti
læknirinn á þessu sviði, fékk
eitt sinn til meðferðar unga
stúlku, sem hafði tekið svo
mikið heróín í nefið að mið-
snesið á henni var gersamlega
uppétið.
Er lögreglan fær til rann-
sóknar dauðsföll af völdum
heróínneyzlu unglinga úr þess-
um hópi, finnst henni sem hún
sé komin inn í rammgert völ-
undarhús. Meiriháttar rann-
sókn var gerð, eftir að 17 ára
gömul stúlka, Natalia Citkovitz
fannst látin í baðherbergi í
íbúð sinni í Earls Court. Hún
hafði látizt skömmu eftir að
hún sprautaði í sig heróíni sem
hún hafði sennilega keypt sama
kvöld, en enginn vissi af hverj-
um. Þessi stúlka var dóttir lafði
Caroline Lowell, og tónskálds-
ins Israel Citkovitz, og var
systurdóttir markgreifans af
Dufferin. Hún hafði verið for-
fallinn eiturlyfjaneytandi í eitt
ár. Lögreglan komst lítið áfram
við rannsókn málsins og komst
að þeirri niðurstöðu, að foreldr-
ar unglinganna, sem virtust
flækjast inn í þetta atvik væru
lítt hrifnir af því að láta
yfirheyra börn sín og vini
þeirra. Sumir foreldrar segja,
að þeir hafni ekki aðstoð lög-
reglunnar af einskærri fordild
heldur liggi fleiri ástæður að
baki. Aðalskona nokkur í
tengslum við konungsfjölskyld- \
una gaf lögreglunni allar þær
upplýsingar sem hún hafði um
eiturlyfjaviðskipti á vegum
jafnaldra barna sinna. Daginn
eftir fékk hún bréf, þar sem
henni var hótað því, að yngstu
börnum hennar yrði gert mein,
ef hún héldi áfram samstarfi
við lögregluna. Kona þessi er
sannfærð um það að bréfritari
hljóti að hafa fengið vitneskju
um vitnisburð hennar fyrir
tilstilli einhvers úr lögreglunni.
Fíkniefnaviðskiptin fara
fram í glæsilegum húsum í
Chelsea, Kensington og Bel-
gravia. Itrustu varkárni er gætt
við allan undirbúning. Margir
fíkniefnasalarnir eru frá íran,
og hafa komið til London eftir
fall Iranskeisara. Þeir virðast
hafa gnótt birgða og eru mjög
grunsamlegir. — Maður verður
eiginlega að spila fimmtu sin-
fóníu Beethovens í dyrasímann,
áður en þeir hafa sig í burtu, —
segir einn eiturlyfjaneytand-
inn.
—GEORGE BROCK.