Morgunblaðið - 16.12.1979, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979
61
i
M.
Jólasveinn úr fjöllum fer
Teikning: Bergur, 6 ára, Kársnesskóla.
Frumsamið ljóð
Guðrún Glódís Gunnarsdóttir, 10 ára, Rvik.
Stríð
Sprengja sprakk í sprungu
og sprengdi nokkra menn.
Ef sprengjan hefði ei sprungið,
þá lifðu þeir allir enn.
Ps. Við viljum
nota tækifærði með
þessu ljóði og minna
fólk á þær hörm-
ungar. sem millj-
ónir manna verða
líða um þessar mund-
ir. í veimegun og
kapphlaupi við
peninga. tíma og
eínisleg gæði, megum
við ekki gieyma
„náunga** okkar i
fjarlægum löndum.
Hjálparstofnun
Kirkjunnar safnar
nú fé til hjálpar
„hungruðum heimi**
í Kampútseu. Við
minnum á orð
meistarans frá
Nasaret: „Allt sem
þér viljið .. .** Hvers
hefðum við óskað af
meðbra'ðrum okk-
ar við svipaðar eða
sams konar aðstæð-
ur?
RokÞ
Krakkar mínir komið þið sæl
Teikning: Vilhjálmur, 6 ára, Kársnesskóla
börnunum úr Mýrarhúsaskóla
sem syngja á ABCD plötunni.
Abcd,
tuttugu og
tveggja laga
barnaplata
„Mér finnst að það hafi verið
gert svo mikið af því að láta börn
syngja hátt og sterkt og þetta
hefur að mínum dómi skemmt
barnaraddirnar og sönginn og
önnur börn hafa reynt að líkja
eftir þessu, en öndvert við þetta
hef ég vísvitandi látið börnin
syngja á ABCD plötunni á eðli-
legan hátt án þess að líkja eftir
þeim fullorðnu," sagði Sigríður
Ella Magnúsdóttir söngvari í
samtali við Mbl. um nýja barna-
lagaplötu sem hún hefur sungið
inn á ásamt Garðari Cortes
söngvara og börnum úr kór Mýr-
arhúsaskóla undir stjórn Hlínar
Torfadóttur.
Flest þekktustu barnalög síð-
ustu áratuga á íslandi eru nú
komin út á hljómplötu, eða alls 22
lög og má þar nefna lögin Allir
krakkar, Það er leikur að læra, Ef
væri ég söngvari, Inn og út um
gluggann og Abcd, en platan
heitir einmitt ABCD.
Það er hljómplötuútgáfan
íslenzkar hljómplötur sem gefur
plötuna út og hefur Sigríður Ella
Magnúsdóttir söngvari valið lög-
in á plötuna, en hún fékk brezka
hljómlistarmanninn Gordon
Langford til þess að setja út lögin
á einfaldan og skemmtilegan hátt
eins og lögin eru að jafnaði
sungin. Gordon er þekktur fyrir
slíkar útsendingar. Plötuumsíag-
ið er teiknað af Arnheiði Björns-
dóttur.
Hugmyndin að þessari plötu
hefur haft nokkurn aðdraganda,
en Sigríður Ella hefur lagt
áherzlu á að barnaraddirnir
fengju að njóta sín á eðlilegan
hátt eins og þeim er lagið. Plata
af þessu tagi hefur ekki verið til
hérlendis, en öll börn eiga auð-
veldlega að geta sungið með
plötunni án þess að hafa fengið
sérstaka þjálfun í söng. í tilefni
barnaárs m.a. drifu aðstandendur
plötunnar í því að gefa hana út.
fást
hjá
Leikfangabúðin
Iðnaðarhúsinu - Hallveigarstig 1
/ft&lcít'HlLlSIO
\)** LAUGAVEGI178,