Morgunblaðið - 16.12.1979, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979
63
BLÖM
VIKUNNAR
UMSJÓN: ÁB.
Einir
Juniperus
„Einir hvassa barriö ber
byggir óöul fornra skóga
ævinlega samur sér
sumar, vetur grænn hann er.“
Þessi lágvaxni þekkilegi runni er eina íslenska
tegundin sem telst til barrtrjáa og útbreiddastur
þeirra allra á jarðkringlunni! Hann þrífst á Grænlandi,
einnig í 3500 m hæð yfir sjó í Alpafjöllum og líka suður
á sólheitum klöppum Kaliforníu.
Flestir þekkja aldin hans — einiberið — en það er í
raun og veru hnöttóttur berköngull og er tvö ár að
þroskast.
Fyrra sumarið eru einiberin græn en verða blásvört
seinna sumarið. Oft sjást bæði græn ung og dökkbláleit
fullþroskuð ber að hausti á sama runnanum. Hagamýs,
refir, rjúpur, þrestir o.fl. fuglar eta berin og melta
aldinkjötið en fræin ganga ómelt niður af þeim og
berast víða. Smalamönnum fyrri tíða þótti gott að
nasla einiber og mörg okkar drekka seyði af þeim,
kannske án þess að gera okkur það ljóst! Flestir munu
þó kannast við einiberjabrennivínið a.m.k. að nafninu
til. Einiber eru líka notuð til bragðbætis í öl og áfenga
drykki, m.a. í gin og genever.
Fyrrum voru berin etin með harðfiski og smjöri hér á
landi og stöku sinnum brennd í kaffibæti.
Einibarr ilmar af harpix og var einir því stundum
tekinn inn í hús, einkum fyrir jólin og stráð á gólf og
víðar til ilmbætis. Líka voru jólatré skreytt með
honum. Sum heimatilbúin jólatré voru gerð þannig að
boraðar voru holur í stofn og greinum þ.e.a.s. mjóum
prikum stungið þar í. Síðan var þetta vafið einigreinum
og stundum líka sortulyngi og gat orðið hið myndar-
legasta jólatré. Nú notum við mest rauðgrenihríslur en
stafafuran vinnur mjög á sem jólatré þar sem ekki
fellur barrið af henni — og sómir hún sér vel.
Nú líður að jólum og börnin syngja „Göngum við í
kringum einiberjarunn“. En verður þá einir nokkurn-
tíma svo vöxtulegur að nokkrum detti í hug að ganga
syngjandi umhverfis hann? Jú víst — mundu t.d.
Norðmenn segja. Til eru allt að 17 m há einitré á
Norðurlöndum og víðar. Þykir einiviður góður til
smíða. Siðurinn að ganga syngjandi kringum einirunn
mun eiga rætur að rekja til ævagamallar þjóðtrúar á
mátt einis gegn ýmsu illu og yfirnáttúrlegu. Var fyrr á
öldum beinlínis helgi á eini víða um lönd.
íþróttadeild
Fáks
Aöalfundur íþróttadeildar Fáks, verður hald-
inn mánudaginn 17. des. kl. 8. í félagsheimili
F^ks' Dagskrá.
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Kaffihlé.
3. Kvikmyndasýning. stjórnin.
Heilagur Frans frá Assisi
Ævi hans og starf,
eftir Friörik J. Rafnar
Þetta er ævisaga þess manns, sem
talinn er hafa komist næst því aö feta í
fótspor Krists. Bókin er prýdd yfir 70
heilsíðu litmyndum og er ótrúlega ódýr.
Ein glæsilegasta jólagjöfin í ár.
Kaþólska kirkjan á íslandi
DESEMBER 1979
Mánutíagur 3 10 17 24 31
Þriöiudagur 4 11 18 25
DESEMBER
flutningamánuöur?
Desember er meiri háttar
flutningamánuður.
Fjölskyldur taka til í geymsl-
unni og bílskúrnum og flytja
rusl á haugana.
Framleiðendur og innflytj-
endur flytja óvenju mikið
vörumagn til verslana.
í allt snattið,fram og aftur um
allan bæ, er hagstætt að
nota lipra og neyslugranna
flutningabíla. Bíla sem þú
hefur full umráð yfir meðan á
notkun stendur.
Slíka bíla bjóðum við þér til
leigu um lengri eða styttri
tíma.
BÍLALEIGA
SÍMI21190 -21188
GYLMIR + G&H 5.2