Morgunblaðið - 06.01.1980, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 1980
Útvarp á morgun:
Síðasti þáttur-
inn um Bjössa
á Tréstöðum
Á morgun, mánudag, verður
fluttur í útvarpi sjötti og
síðasti þáttur framhalds-
leikritsins Bjössi á
Tréstöðum eftir Guðmund L.
Friðfinnsson rithöfund og
bónda á Egilsá í Skagafirði.
Leikrit þetta er einkum við
hæfi barna og unglinga.
Leikritið Bjössi á Tré-
stöðum er aldarfarslýsing frá
því á síðari hluta nítjándu
aldar, og er leikritið byggt á
sögulegum heimildum sem
höfundur hefur aflað frá þeim
tíma.
Leikstjóri er Klemenz
Jónsson; en leikritið er á
dagskrá útvarps á morgun,
mánudag, klukkan 17.20 Guðmundur L. Friðfinnsson rit-
síðdegis. höfundur og bóndi á Egilsá.
Háðfuglinn Kenny Everett og söngvarinn Rod Stewart sem koma
fram í sjónvarpi í kvöld ásamt fleirum.
Sjónvarp í kvöld:
Rod Stewart og
fleiri skemmta
Rokktónlistarunnendur ættu
að kætast er þeir sjá dagskrá
sjónvarps í kvöld, sunnudags-
kvöld.
Ein skærasta rokk-
stjarna veraldar, skoski söngv-
arinn Rod Stewart kemur fram
í síðbúnum jólaþætti sem sýnd-
ur verður klukkan 20.40, ásamt
fleiri heimskunnum listamönn-
um.
Auk Stewarts koma fram
breski háðfuglinn Kenny Ever-
ett, söngvarinn Leo Sayer og
fleiri. Þetta er síðasti jólaþáttur
sjónvarpsins að þessu sinni, þar
sem í dag er þrettándinn, síðasti
dagur jóla.
Akranes:
Metaflaár
Akranesi, 4. jan.
ÁRIÐ 1979 varð metaílaár hér
á Akrartesi. Eftirtalinn afii var
lagður hér á land:
Bátafiskur rúmar 7072 lestir,
togarafiskur 12.135 lestir, kol-
munni 192 lestir, síld 1356 iestir,
1 loðna 42.583 lestir. Samtals er
I þetta um 64 þúsund lestir af
fiski, sem hafa komið á land á
árinu.
Afii einstakra togara var sem
hér segir: Haraldur Böðvarsson
4638 lestir, skiptaverð 658 millj-
ónir, Óskar Magnússon 4020
lestir, skiptaverð 530 milljónir,
Krossvik 3316 lestir, skiptaverð
438 milijónir, en þess má geta að
togarinn var frá veiðum í 2
mánuði vegna viðgerðar.
Ileildarafli árið 1978 á Akra-
nesi var 48.355 lestir.
Togarinn Haraldur Böðvars-
sop landar hér í dag 135 lestum
af þorski. Afli línubáta var 3—5
lestir í síðasta róðri.
— Júlíus.
Úlvarp ReykjavíK
SUNNUD4GUR
6. janúar
Þrettándinn
MORGUNNINN___________________
8.00 Morgunandakt. Herra
Sigurbjörn Einarsson bisk-
up flytur ritningarorð og
bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustu-
greinar dagbl. (útdr.).
8.35 Létt morgunlög
a. Nicu Pourvu og félagar
leika á panflautur iög frá
Rúmeniu.
b. Leontyne Price syngur
létt lög; André Previn leikur
með á píanó og stjórnar
hljómsveitinni.
9.00 Morguntónleikar. Messa
di Gloria eftir Gioacchino
Rossini. Flytjendur: Marg-
herita Rinaldi, Amerial
Gunson, Ugo Benelli, John
Mitchinson, Jules Bastin,
kór brezka útvarpsins og
Enska kammersveitin.
Stjórnandi: Herbert Handt.
— Guðný Jónsdóttir kynnir.
10.00 Fréttir. Tónleikar. 10.10
Veðurfregnir.
10.25 Ljósaskipti. Tónlistar-
þáttur í umsjá Guðmundar
Jónssonar píanóleikara.
11.00 Messa í safnaðarheimili
Grensáskirkju. Séra Halldór
Gröndal þjónar fyrir altari.
Örn Jónsson djákni prédik-
ar. Organleikari: Jón G. Þór-
arinsson.
12.10 Dagskráin. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tiikynningar. Tón-
leikar.
SÍÐDEGIÐ
13.20 Dulhyggja og dægurtrú.
Séra Rögnvaldur Finnboga-
son flyturJþriðja hádegiser-
indi sitt: „Ur djúpinu ákalla
ég þig“.
14.05 Miðdegistónleikar: Frá
menningarviku Norræna
hússins 14. okt. i haust.
Félagar í karlakórnum Fóst-
bræðrum, Kammersveit
Reykjavíkur og Kór Mennta-
skóians við Hamrahlið flytja
verk eftir Jón Nordal.
Stjórnendur: Ragnar
Björnsson, Páll P. Pálsson
og Þorgerður Ingólfsdóttir.
a. Sjö lög við miðaldakvæði.
b. „Concerto lirico“ fyrir
strengjasveit og hörpu.
c. Þrjú kórlög við kvæði
eftir Hannes Pétursson, þjóð-
vísu og kvæði eftir Jónas
Hallgrímsson.
14.55 Stjórnmál og glæpir —
Fyrsti þáttur: Furstinn.
Macchiavelli brotinn til
mergjar af Hans Magnus
Enzenberger. Viggó Clausen
bjó til flutnings i útvarp.
Þýðandi: Jón Viðar Jónsson.
Stjórnandi: Benedikt Árna-
son. Flytjendur eru: Gunnar
Eyjólfsson, Guðjón Ingi Sig-
urðsson, Jónas Jónasson,
Gísli Alfreðsson, Randver
Þorláksson og Benedikt
Árnason. Óskar Ingimars-
son flytur formálsorð.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnatími i jólalok. Börn
úr Kársnesskóla í Kópavogi
flytja eigin samantekt á
ýmsu efni um jólahald bæði
fyrr og nú. Umsjónarmaður:
Valgerður Jónsdóttir.
17.20 Lagið mitt. Helga Þ.
Stepehnsen kynnir óskalög
barna.
18.00 Harmóníkulög. Tríó frá
Hallingdal í Noregi leikur
gamla dansa.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Þúsund-þjala-smiður.
Ásdís Skúladóttir heldur
áfram samtali sínu við
Magnús Á Árnason lista-
mann.
19.55 Lúðrasveitin Svanur leik-
ur álfalög. Stjórnandi og
kynnir: Sæbjörn Jónsson.
20.25 Frá hernámi íslands og
styrjaldarárunum síðari.
Margrét Helga Jóhannsdótt-
ir leikkona les frásögu
Brynhildar Olgeirsdóttur.
21.00 Tónlist eftir Þorkel Sig-
urbjörnsson.
a. Níu sönglög við kvæði
eftir Jón úr Vör. ólöf Kol-
brún Harðardóttir syngur;
höfundur leikur á píanó.
b. „Wiblo“, tónlist fyrir
pianó, horn og kammersveit.
Wilhelm Lanzky-Otta leikur
á píanó, Ib Lanzky-Otta á
horn með Kammersveit
Reykajvikur; Sven Verde stj.
21.35 Kvæði eftir Pál ólafsson,
Broddi Jóhannesson les.
21.50 „Rotundum“, einleiks-
verk fyrir klarinettu eftir
Snorra Sigfús Birgisson,
óskar Ingólfsson leikur
(frumflutningur).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Kvöldsagan: „Ur Dölum
til Látrabjargs". Ferðaþætt-
ir eftir Hallgrim Jónsson frá
Ljárskógum. Þórir
Steingrímsson les (15).
23.00 Jólin dönsuð út. Horna-
flokkur Kópavogs (Big
Band) leikur í hálfa klukku-
stund. Stjórnandi: Gunnar
Ormslev. Kynnir Jón Múli
Árnason. Einnig lög af
hljómplötum.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
AIMUD4GUR
7. janúar
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi: Umsjónar-
menn: Valdimar Örnólfsson
leikfimikennari og Magnús
Pétursson píanóleikari.
7.20 Bæn. Séra Kristján Búa-
son dósent flytur.
7.25 Morgunpósturinn
Umsjónarmenn: Páll Heiðar
Sunnudagur
6. janúar
16.00 Sunnudagshugvekja
Torfi Ólafsson, formaður
Félags kaþólskra leik-
manna, flytur hugvekjuna.
16.10 Húsið á sléttunni
EJlefti þáttur.
Þýðandi Óskar Ingimars-
son.
17.00 Framviiida þekkingar-
innar
Breskur fræðslumynda-
flokkur.
Fjórði þáttur. Að trúa á
tölur
Þýðandi Bogi Arnar Finn-
bogason
18.00 Stundin okkar
Meðal efnis í þættinum
verður dagskrá um álfa,
Rut Reginalds syngur og
unglingahljómsveitin Exo-
dus skemmtir. Einnig
verða systir Lísu, banka-
stjórinn og Barbapapa á
sínum stað.
Umsjónarmaður Bryndís
Schram.
Stjórn upptoku Egill Eð-
varðsson.
18.50 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá
20.35 íslenskt mál
Skýrð verða myndhverf
orðtök úr gömlu sjómanna-
máli.
Textahöfundur og þulur
Helgi J. Halldórsson.
Myndstjórnandi Guðbjart-
ur Gunnarsson
20.40 Síðbúinn jólaþáttur
Skemmtiþáttur með breska
háðfuglinum Kenny Ever-
ett. Auk hans koma fram
Rod Stewart, Leo Sayer
o.fl.
Þýðandi Björn Baldursson.
21.20 Andstreymi
Tólfti þáttur.
Efni ellefta þáttar:
Fyrsta uppskera Jona-
thans er sæmlleg en sá
galli er á gjöf Njarðar að
hann má engum selja nema
Greville, sem borgar smán-
arverð. En byggupskeran
er óseld, og hana býðst
veitingamaðurinn Will
Price til að kaupa fyrir
þokkalegt verð.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.10 Byggðahátíð
Þjóðhátíðarárið 1974 lét
Sjónvarpið kvikmynda á
byggðahátíðum víða um
land eftir því sem við varð
komið. Síðan var gerð sam-
felld kvikmynd úr þeim
þáttum.
Mótun myndefnis Baldur
Hrafnkell Jónsson.
Umsjón með kvikmyndun á
héraðshátiðum hafði Magn-
ús Jónsson.
Áður á dagskrá 30. júní
1975.
23.55 Dagskráriok
MÁNUDAGUR
7. janúar
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá
20.30 Múmín-álfarnir
Önnur myndin af þrettán
um hinar vinsælu söguper-
sónur Tove Jansson.
Þýðandi Hallveig Thorla-
cius.
Sögumaður Ragnheiður
Steindórsdóttir.
20.40 fþróttir
Umsjónarmaður
Felixson.
Bjarni
21.10 Feigðarflug
Hinn 10. september 1976
varð árekstur tveggja
flugvéla jfir Zagreb í Júgó-
slavíu. Áhafnir og farþeg-
ar beggja fórust, alls 176
manns.
í þessari leiknu, bresku
sjónvarpsmynd er leitast
við að lýsa aðdraganda
árekstursins og leitað or-
saka hans.
Leikstjóri Leslie Wood-
head.
Aðalhlutverk Anthony
Sher, David de Keyser,
Nick Brimble og David
Beames.
Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
22.40 dagskrárlok.