Morgunblaðið - 06.01.1980, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.01.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 1980 13 Með nýju ári er siður að þakka fyrir það gamla með heilindum. Vísnaleikur eignað- ist marga góða pennavini, sem von mín er að bregðist nú vel við, þegar fitjað er upp á þessum þætti á nýja leik. Stefán Þorláksson frá Sval- barði í Þistilfirði er mikill vísnavinur og vísnasjór. Honum farast svo orð: „Bændur á Hóli á Upsaströnd í Eyjafirði voru harðir sjósókn- arar. Nágranni kvað: Allar gjafir eru frá almáttugum Drottni. En hákarlinn sem Hólsmenn fá hann er neöan frá botni. Laxá rann áður hrein í haf viö hrifningu Þingeyinga, en lyppast nú áfram lituð af leirburöi Mývetninga. Ýmsum þykir nú sem heldur tíðindalítið sé á stjórnmálasvið- inu, brýn mál bíði úrlausnar, en þó bóli ekki á því, að ný ríkisstjórn verði mynduð. Af öðru tilefni orti k: Mælti Haraldur bóndi á Heiöi, „mitt höfuö þyngir nú leiöi. Hér er ágætisveður, en ekkert sem skeður. Eitt illmenni kæmi sem greiði“. og enn yrkir k: í Fjallabæjarfólki Einars Kristjánssonar er minnt á það, þegar Jón í Garði Guðmundsson hafði verið beðinn að halda erindi á samkomu í Lundi í Öxarfirði, en var krafinn um aðgangseyri og gekk til skógar. Hins er ekki getið, að þegar sætta var leitað, varð skáldinu vísa af munni: Fjöröinn prúða fegra bæöi fjöll og skógarnir. En þar er saur á silkiklæöi, Satans mennirnir! Örfáar vísur Egils Jónasson- ar á Húsavík eru á allra vörum. Hinar eru þó miklu fleiri, sem fáir kunna og oft ekki síðri: 8,5 Guömundur bóndi á Gnípu var gleyptur af mýrisnípu fyrir kunnuglegt ávarp og óþarfa smákarp. Lát þetta í þína pípu. Og svo góð raun sem af því gafst að setja fram fyrri hluta á síðasta ári, þykir mér ráð að þeirri íþrótt sé fram haldið með von um góðar undirtektir eins og áður. Ög þar sem Steingrím- ur Hermannsson hefur haft gaman af því að gefa hvers konar yfirlýsingar upp á síðkastið, er ekki úr vegi að rifja eina þeirra upp: Allt er betra en íhaldið eins og Tryggvi sagði. Ekki verður meira kveðið að sinni. Halldór Blöndal Snyrtinámskeiðm i eru að hefjast Leiöbeinendur: Sigrún Sævaldsdóttir, Heiöar Jónsson 3ja kvölda námskeiö. Húöhirðing — dagsnyrting — handsnyrting — ilmvötn og notkun þeirra — kvöldsnyrting — hárhirðing. Einnig veröur boöið upp á upprifjunarnámskeið, fyrir þá sem áöur hafa notiö tilsagnar ofangreindra aöila, og taka þau 1 kvöld. Upplýsingar í Sími 17201. Kennsla hefst miövikudaginn 9. janúar. Nemendur mæti á sömu tímum og áöur. Upplýsingar daglega í síma 76350. SIBS VORUHAPPDRÆTTI ARA Þrír eftirsóttir bílar dregnir út / • / ^ / i juni Það er hægt að vinna 5 milljónir og mánaðarlega. En í nappdrætti SÍBS er m notadrjúga vinninga til mji Fjórði hver miði fær vinn Og ávinni ngsins af starfi SÍBS veir fá milljón egináherslan lögð á rgra. ing. ijóta allir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.