Morgunblaðið - 06.01.1980, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 06.01.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 1980 37 Anna Guðríður Jónsdóttir Fædd 16. mars 1897. Dáin 16. desember 1979. Föstudaginn 21. desember síðastliðinn var til moldar borin frá þjóðkirkjunni í Hafnarfirði Anna Guðríður Jónsdóttir, Merk- urgötu 2 í Hafnarfirði. Anna var fædd að Deild á Álftanesi, en fluttist 6 ára gömul til Hafnarfjarðar með foreldrum sínum. Þau voru Þorbjörg Magn- úsdóttir og Jón Jónsson útvegs- bóndi. Þeim varð 11 barna auðið þótt mörg misstu þau ung að árum. En eftir lifa nú af þeim systkinum Jón fyrrverandi tog- arasjómaður, Guðmundur yfir- lögregluþjónn í Reykjavík og Guð- finna húsmóðir í Hafnarfirði. Eitt hafa þessi systkin átt sameigin- legt, en það er góðmennska og elskulegheit hafa verið þeirra að- alsmerki. Árið 1925, 7. nóvember, giftist Anna Jóni Gíslasyni síðar stórút- gerðarmanni í Hafnarfirði og eignuðust þau tvö börn, Jón Jóns- son, skrifstofustjóra og síðar framkvæmdastjóra við fyrirtæki föður síns, og Hallgerði Jónsdótt- ur húsmóður, sem gift er Erni Ingólfssyni prentsmiðjustjóra. Mann sinn missti Anna sumarið 1964 og ellefu árum síðar um haustið 1975 missir hún son sinn. Þetta voru stór áföll fyrir þessa annars glaðlyndu konu sem þrátt fyrir allt missti aldrei tök á sinni meðfæddu skemmtilegu kímni og hélt henni fram til hins síðasta. Það hefur einhvers staðar verið sagt, að bak við mikinn mann standi mikil kona. Sannleikur þessara orða varð mér mun ljósari eftir að ég kynntist þeim hjónum. Anna lagði allt kapp á að hafa allt til reiðu fyrir bónda sinn og sinnti sínum húsmóðurstörfum með miklum sóma en þar fyrir utan var hún mikil hannyrðakona og gaf sér einnig tíma til að syngja í kirkjukór um nokkurt skeið, en þegar fram liðu stundir hlóðust mikil störf á bónda hennar fyrir glöggskyggni hans í málum sjáv- arútvegsins og um leið hlutu að aukast umsvifin á heimilinu. Anna var ein af þeim konum, sem stóðu sem bjarg að baki manni sínum. Of mörg dæmi eru um það að þessum konum er lítill sómi sýndur þótt störf þeirra hafi ekki síður gildi en þeirra sem eru í sviðsljósinu. Anna var mikil móðir og amma og reyndist barnabörnum sínum ávallt haukur í horni, enda oft leitað til hennar þegar mamma og pabbi höfðu ekki tíma til að sinna ýmsum óskum. Hún hafði gaman af unga fólkinu og gerði jafnvel í því að tileinka sér mállýsku unga fólksins til að ná betra sambandi við það, og notaði hana þá á sinn sérstæða og skemmtilega hátt. í þau skipti sem ég naut gest- risni Önnu var mér ávallt tekið sem týnda syninum og spurður spjörunum úr um framtíðaráform og fleira, svo áhugasöm var hún um þá sem hún taldi til sín heyra þótt ekki byggju innan túngarðs. Áttatíu og tvö ár verða að teljast nokkuð hár aldur og má hver teljast sæll sem svo lengi fær að lifa við sæmilega heilsu and- lega og líkamlega. En á stundum sem þessum er okkur ekki í huga tölur, tími eða rúm, heldur sækja að öldur minninga og söknuður býr í brjósti. Um lelð og ég kveð þessa sómakonu ber ég kveðju frá bróð- ur mínum og tengdasyni Önnu Erni Ingólfssyni, með þakklæti fyrir 30 ára vináttu og allt það sem hún gerði fyrir börnin hans. Og við þig vil ég segja Gerða mín, að slíkt ástríki til barna og barnabarna er fjársjóður sem mun skila skærum geislum úr djúpi minninganna og lýsa þeim sem eftir standa. Gunnar Páll Ingólfsson. Ragnhildur Ólöf Gottskálksdóttir Fædd 11. mars 1903. Dáin 27. desember 1979. Við andlát og brottför frú Ragnhildar munu margir hugleiða lífsferil þessarar sérkennilegu og ágætu konu. Á því leikur enginn vafi, að allt frá bernskuárum var henni gefinn sá eiginleiki að skynja ýmist í vöku eða draumum óorðna hluti, sem margoft meira en komu fram. Ótaldir eru þeir áreiðanlega, sem leituðu fundar frú Ragnhild- ar, þegar erfiðleikar sóttu þá sömu heim. Viðmót hennar allt var slíkt, að allir hlutu að fara ríkari frá henni. Ung var hún gefin öðlingsmann- inum Eggerti Ólafssyni, sem aldrei átti nægileg orð, vegna aðdáunar og ástar á þessari fal- legu konu. En eftir því sem árin liðu, fékk maður Ragnhildar vax- andi skilning á sérhæfileikum hennar, því að hann varð þess var, hversu mörgum hún hafði á sinn hátt hjálpað, og þá líka að taka á móti hverjum einum, sem til hennar leitaði, með því, sem henni var svo eiginlegt og sýndi margoft þá, að „eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt". Skilningur hennar á erfiðleikum og veikindum — og í öllum þeim vandræðum þeirra mörgu, sem til hennar leituðu, var slíkur, að einmitt hið fallega bros hennar og viðmótshlýja öll, þó ekki sé meira sagt, hlaut að ylja öllum og styrkja þá í trúnni hennar um bjartari og betri veröld — já og því betri heim, sem fallegar var hugsað og beðið. Hún sjálf var lengi búin að bíða eftir sólarupprás, sem hún nú hefur öðlast eftir langt þján- ingastríð. Guð gefi ástvinum hennar öllum góðar stundir. En blessuð veri ætíð og ævin- lega minning frú Ragnhildar. Vinakveðja. Fimmtudaginn þriðja í jólum lést að heimili sínu, Tjarnargötu 30 í Reykjavík, Ragnhildur Ólöf Gott- skálksdóttir amma okkar. Andlát hennar var kærkomin, hvíld eftir langvinn veikindi. Ragnhíldur amma var fædd skömmu eftir aldamótin síðustu í Kolbeinsstaðarhreppi á Mýrum. Foreldrar hennar voru Gottskálk Björnsson húsasmíðameistari frá Stóra-Hrauni og Sesselja Þorsteins- dóttir frá Grenjum í sömu sveit. Hún átti sex systkini sem öll eru látin. Þegar amma var fjögurra ára missti hún Sesselju móður sína á sóttarsæng. Hennar minntist hún oft við okkur með miklum söknuði. Ragnhildur amma ólst upp hjá Guðríði föðursystur sinni og Páli manni hennar í Haukatungu, Kol- beinsstaðarhreppi. Bar hún þeim hjónum vel söguna. Þaðan fór hún í vist á Hótelið í Borgarnesi, þar sem hún dvaldist á unglingsárum sínum. Amma fór til Reykjavíkur og stund- aði nám í Kvennaskóla íslands. I Reykjavík giftist hún síðar Eggerti Ólafssyni og bjuggu þau þar alla tíð síðan, lengst af í Tjarnargötu. Minningarnar um ömmu í Tjarn- argötunni eru ljúfar. Hún var sú sem alltaf gaf sér tíma til að sinna andlegum þörfum okkar. Hún hlóð okkur nýjum kröftum á sinn kyrr- láta og ósýnilega hátt, þegar byrðar æsku- og unglingsára sliguðu óþroskaðar herðar. Amma leiddi okkur fyrir sjónir að ekkert vanda- mál væri svo mikið, engin sorg svo þung að út úr þeim fyndist ekki fær leið. Auk hæfileika Ragnhildar ömmu til að leysa úr vandamálum er okkur dulargáfa hennar minnis- stæð. Eiginleikinn að skynja fram- liðna og starf hennar með aðstoð þeirra voru okkur sem börnum eðlileg og sjálfsögð, en urðu mikið umhugsunarefni síðar meir. Við urðum óhjákvæmilega vör við þann fjölda sem leitaði til hennar, trúði á mátt hennar og sýndi þökk fyrir aðstoð hennar. Við minnumst trúar hennar og náinna tengsla við annað líf með óttablandinni undrun og skilnings- leysi. Fyrir henni var dauðinn upphaf nýs lífs. Við leiðum hugann að hlutverki ömmu í fjölskyldunni, sem var í senn margþætt og mikilvægt. Ekki þarf að fara um það mörgum orðum, hvern hag við unga fólkið höfðum af sterkum böndum við hana fyrir sálarheill og persónuþroska. Að tala við Ragnhildi ömmu var eins og að tala við jafningja og vin. Látleysi og hógværð einkenndu framkomu hennar til síðasta dags. Hún sinnti okkur barnabörnunum af alúð og gaf ríkulega af sjóði mannkosta sinna. Hún sagði okkur sögur af lífi sínu og annarra sem veittu innsýn og juku skilning okkar. Við missi hennar myndast því tóm í hugum okkar .sem aðeins minningin um hana og boðskap hennar fær aftur fyllt. Af framansögðu er ljóst að við kveðjum elskulega ömmu okkar ekki með sorg í hjarta, heldur fögnuði yfir vel unnu ævistarfi þessa merka mannvinar. Barnabörn. t Útför föður okkar, KARLSJÓNSSONAR læknis, fer fram frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 8. janúar kl. 13.30. Finnur Jónsson, Leifur Jónsson. t Móöir okkar, GUÐNÝ GUÖMUNDSDÓTTIR, lést aö Hrafnistu 25. desember. Hún veröur jarösungin frá Fossvogskirkju 8. janúar kl. 1.30. Guörún Jónsdóttir, Jóna Björg Jónadóttir, Margrét Jónsdóttir. Faöir okkar, SVEINN ÞÓRÐARSON, frá Fossi í Staöarsveit, Granaskjóli 18, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 7. janúar kl. 3.00. Blóm og kransar afþakkaö, þeir sem vilja minnast hins látna, láti Krabbameinsfólagiö njóta þess. Börn hins látna. t Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, KRISTINN H. SIGMUNDSSON, Glaöheimum 10, veröur jarösunginn frá Langholtsklrkju, þriöjudaginn 8. janúar kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd. Karólína Kolbeinsdóttir, Erna Kristinsdóttir Kolbeins, Kristín Kristinsdóttir, Ella Kolbrún Kristinsdóttir, Pálína M. Krístinsdóttir, Kolbeinn Kristinsson, Margrét Kristinsdóttir, Lára Kristinsdóttír, og barnabörn. Eyjólfur Kolbeíns, Kristófer Guömundsson Gunnar Friöbjörnsson, Sigfús Johnsen, Gyöa Guömundsdóttir, Jóhannes Tryggvason, Lárus Einarsson, t Þökkum oss sýnt vinarþel viö andlát og útför ÁSTU ÞÓRÐARDÓTTUR. Einar H. Ásgrímsson, Ásdís Helgadóttir, Vera M. Ásgrimsdóttir, Guömundur Guömundsson, Magnea Þóröardóttir, barnabörn. Innilegar þakkir t fyrlr auösýnda samúð og hlýhug viö fráfall eignmanns míns, OLGEIRS EGGERTSSONAR, vélstjóra. Ásta Kristjánsdóttir, Vatnsnesvegi 24, Keflavík t Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug viö andlát og útför. ÖNNU GUDRÍÐAR JC JNSDÓTTUR, Merkurgötu 2, Hafnarfiröi. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Sólvangi fyrir góöa hjúkrun og umönnun. Hallgeröur Jónsdóttir, örn Ingólfsson. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför fööur okkar, tendafööur og fósturfööur, SIGURDAR STEFÁNSSONAR fyrrverandi símaverkstjóra. Stórholti 24, Sigríóur Siguröardóttir, Siguröur Ólafsson, Hulda Siguröardóttir, G'sli Jónsson, Svava Siguröardóttir, Bjarni Guðmundsson, Þórunn Siguröardóttir, Kristján Hjartarson, Guófinnur Halldórsson, Erla Emilsdóttir. t Þökkum innilega auösýnda samúö og \ vinarhug viö fráfall og jarðarför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, TRYGGVA EDVARDSSONAR, bifreiöastjóra. Munaðarhóli 21, Hellissandi. Gunnleif Báröardóttir, Guóleif íris Tryggvadóttir, Stefanía Agnes Tryggvadóttir, Edda Ingibjörg Tryggvadóttir, Steinunn Tryggvadóttir, Báröur Hreinn Tryggvason, Sigríöur Tryggvadóttir. Óttar Sveínbjörnsson, Lárus Lárusson, Marinó Einarsson, Kristján Bjarnason,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.