Morgunblaðið - 06.01.1980, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.01.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 1980 21 Leiklistarráð ríkis- ins tekur til starfa Leiklistarráð, sem starfa skal samkvæmt leiklistarlögum frá 1977, var nýlega skipað og haldinn fyrsti fundur þess. Lögin eiga að ná til allrar leiklistarstarfsemi í land- inu, undir stjórn menntamálaráðu- neytisins. í þeim er kveðið á um að auk þess að reka og kosta Þjóð- leikhús og Leiklistarskóla íslands eigi Alþingi árlega að veita fé í fjárlögum til Leikfélags Reykja- víkur og Leikfélags Akureyrar, til Bandalags íslenskra leikfélaga, til leikstarfsemi áhugafélaga, til leik- listarráðs, til annarrar leiklistar- starfsemi og til óperustarfsemi. Menntamálaráðuneytið skipar leiklistarráð. I því eiga sæti með fulltrúa ráðuneytisins tilnefndir fulltrúar allra samtaka og stofnana í landinu, sem tengjast leiklist. Ennfremur eiga samtök íslenskra sveitafélaga fulltrúa, þar sem vænst er samvinnu milli ríkis og sveitafélaga við framvindu mála. / Hlutverk leiklistarráðs er: 1) Að vera vettvangur umræðna um leiklistarmál og stuðla að því að leiklistarstarfi séu búin þroska- vænleg skilyrði. 2) Að vera ráðgefandi aðili fyrir ráðuneyti, sveitafélög og leiklist- arstofnanir þær, sem styrkir ganga til í fjárlögum. 3) Að stuðla að ritun og útgáfu leikrita. 4) Að sinna öðrum verkefnum í þágu leiklistar í samráði við menntamálaráðuneytið. Leiklistarráð kemur saman til fundar einu sinni á ári, en kýs sér framkvæmdastjórn, sem fer með málefni ráðsins milli funda. Á fyrsta fundi leiklistarráðs, sem stóð daglangt að Kjarvalsstöðum, voru saman komnir 23 fulltrúar ráðsins, þar á meðal all margir utan af landi. Þar kom berlega í ljós að ýmsu er ábótavant varðandi aðstöðu leiklistar í landinu, þrátt fyrir mjög athyglisverðan áhuga landsmanna á þessari listgrein, m.a. er leiklist í miklu fjársvelti. — í öllum nágrannalöndum okkar þykir það sjálfsagt að styðja þannig við bakið á leiklistarstarfsemi að sjálfsaflafé þurfi ekki að fara fram úr 15—20% og að hún þurfi þannig ekki að bíða hnekki fyrir auraleysi. Islensk leiklist verður aftur á móti sjálf að afla sér mestan hluta rekstrarfjár síns þar sem áhugamannafélög eiga í hlut eða frjálsir leikhópar, Leikfélag Reykjavíkur og Leikfélag Akureyr- ar rúmlega 50% og Þjóðleikhúsið um 35%. Allt til loka síðasta árs var t.d. áhugamannafélögunum gert að greiða söluskatt af öllum sýningum sínum, sem að sjálfsögðu eru settar á svið endurgjaldslaust af hálfu leikenda. — Hefur nú loks verið ráðin bót á því og söiuskattur felldur niður af áhugamannasýningum, en heldur áfram að vera þungur baggi á atvinnuleikhúsunum. Fyrrverandi menntamálaráð- herra, Ragnar Arnalds, kvaddi leiklistarráð saman til fyrsta fund- ar og var það meðal síðustu emb- ættisverka hans áður en slitnaði upp úr stjórnarsamstarfi í haust. Knútur Hallsson, skrifstofustjóri í menntamálaráðuneytinu, hafði veg og vanda af undirbúningi fundar- ins, en hann var á sínum tíma formaður þeirrar nefndar sem und- irbjó leiklistarlögin. I ræðu menntamálaráðherra á fyrsta fundi leiklistarráðs kom það m.a. fram, að menntamálaráðun- eytið gerir jafnan tillögur um styrkveitingar til leiklistarstarf- semi, sem síðan eru óspart skornar niður af fjárveitingavaldinu. Fyrir leiklistarstarfsemi í land- inu þyngist róðurinn með ári hverju, þar sem ekki er lengur neitt samræmi í aðgöngumiðaverði og þeim kostnaði sem er við að koma leiksýningu á svið. Augljóst er að nokkuð vantar á að móta stefnu af hálfu hins opinbera í leiklistarmál- um og verður það í verkahring leiklistarráðs að reyna að stuðla að því að listgreininni verði gefinn sá gaumur, sem hún þarfnast í sam- ræmi við þann áhuga landsmanna að ekki verði búið við leiklistar- lausa samtíð. Leiklistarráð mun ennfremur beita sér fyrir því að leiklistarlög verði í sífelldri endurskoðun, þann- ig að þau komi til móts við óskir og þarfir þegnanna hverju sinni. Þá er ekki síst mikilvægt að efla af öllum kröftum innlenda leikritun, sem þegar hefur sannast að getur blómgast, sé henni vel sinnt. Á fyrsta fundi leiklistarráðs, sem Sigurður Grétar Guðmundsson, einn fulltrúi Bandalags íslenskra leikfélaga stýri af röggsemi, tóku allir fulltrúar til máls og brýndu til dáða. I loks fundarins var samhljóða kosin fyrsta framkvæmdastjórn Ieiklistarráðs sem sitja mun á rökstólum í vetur. Hana skipa Vigdís Finnbogadóttir leikhús- stjóri, formaður, Helga Hjörvar, framkvæmdastjóri Bandalags ísl. leikfélaga, varaformaður, og með- stjórnendur Pétur Einarsson, skólastjóri Leiklistarskóla íslands og Örnólfur Árnason leikritahöf- undur. Orkla spónaplötur Eigum jafnan fyrirliggjandi hinar viðurkenndu Orkla spónapliitur. Orkla standard Möbe! 8 og 25 mm 124x250. Orkla Superfin MÖbel 10 til 22 mra 124x250. Orkla Eiite vatnsþolnar 10 til 22 mm 124x250. Orkla S-Gulv gólfplötur 22 mm 062x242 með nót/tappa á öllum köntum. Orkla Superfin Vcgg - til veggklæðninga 10 og 12 mm 122x250 með faisi á 2 kontum. Orkla Superfin Himling loftplötur 12 mm 062x122 eða 062x242 með falsi á 4 köntum. Sériega hagstætt verð. Getum afgreitt gegn sérpöntunum fyrir viðskiptavini okkar, eftírtaldar gerðir af Örkla spónaplötum til klæðninga. einnig í mörgum faJlegum litum. 12 mm 062x243 með falsi á 2 köntum. Orkla Elitex - til veggklæðninga ~ vatnsþolnar Elite mcð plasthúð ~ 12 mm 062x260 í 3 lítum. Orkla Saga-Spon - veggkiæðning með strigadúk 12,5 mm 062x250 með falsi á 2 köntum. Orkla Sponyl - veggklæðning með vinyi-veggfóðri 125 mm 062x250 með falsi á 2 köntum. Stuttur afgreiðslufrestur. Orkla spónapiötur fást hjá flestum timbursiilum og byggingavöruverzlunum um land allt. Norske Skoe Norske Skot;industricr AS ** Einkaumboð á íslandi MJÖLNIR HEILDVERZLUN h.f., Síðumúla 33, 105 Reykjavík. Sími 84255. Munstruðu Hudson sokkabuxurnar fyrirliggjandi í mörgum litum. Heildsölubirgöir. Davíö S. Jónsson og Co. h.f. Sími 24-333. DALE CARNEGIE Kynningarfundur veröur haldinn þriöjudaginn 8. janúar kl. 20.30, aö Síðumúla 35 uppi. ★ Námskeiðið getur hjálpað þér að: ★ Öölast HUGREKK! og meira SJÁLFS- TRAUST. ★ Létta MiNNI þitt á nöfn, andlit og staö- reyndir. ★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sannfæringarkrafti í samræöum og á fundum. ★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér VIRÐ- INGU og VIÐURKENNINGU. ★ Taliö er aö 85% af VELGENGNI þinni, sé komin undir því, hvernig þér tekst aö umgangast aöra. ★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI — heima og á vinnustaö. ★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr kvíöa. ★ Veröa hæfari aö taka viö meiri ÁBYRGÐ án óþarfa spennu og kvíða. ★ Okkar ráölegging er því: Taktu þátt í Dale Carnegie-námskeiöinu. í dag er þitt tæki- færi. Hringið eða skrifið eftir upplýsingum í síma. ■82411 Einkaleyfi á íslandi STJÓRNUNARSKOLINN DAl.F, CARPiF.GIF. Konráö Adolphsson XAMSKEIÐIX

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.