Morgunblaðið - 06.01.1980, Page 27

Morgunblaðið - 06.01.1980, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 1980 27 * frá sér fara nýtt efni á árinu voru t.d. Pink Floyd, Kinks, Eagles og Fleetwood Mac. Einnig héldu Who sína fyrstu hljómleika eftir lát Keith Moon á árinu. í hljómleikaferð þeirra um Bandaríkin létust 11 manns við innganginn í troðning sem varð vegna ónúmeraðra sætismiða. Bob Dylan lét frá sér fara tvær breiðskífur á árinu. Sú fyrri „Bob Dylan at Budokan“ var tvöföld vel heppnuð hljómleikaplata en hin seinni stúdíóplata, „Slow Train Coming". Dylan boðar mik- ið kristni á þeirri plötu og til að undirstrika boðskap sinn hélt hann í hljómleikaferð, en hefur hingað til fengið þá dóma að tónlistarákafinn sé ekki jafn mikill og trúarákafinn. Tölvublöndun og upptaka kom- ust í gagnið á árinu og verður án efa nýtt í miklu mæli í fram- tíðinni. Vídeókassettur ruddu sér mjög til rúms á árinu einnig. Tilraunir með ný form hljómplatna eru vitanlega í sífelldri þróun. Tölvu- diskettur hafa t.d. verið prófaðar og virðast góð lausn en margir annmarkar eru þó enn á slíkum byltingarframleiðslubreytingum. 1980 verður vonandi heillarík- ara. íslenskir útgefendur eiga líklega enn eftir að gera upp árið og sjá hvernig hinar tæplega 50 hljómplötur skiluðu sér. Fáar útgáfur hafa enn verið ákveðnar en þó er víst að við fáum nýjar plötur frá „Þú og ég“ og Pálma Gunnarssyni. Plötu- pressan og Satt eru þau mál sem verður fylgst með í upphafi ársins. alþýðutónlistarmenn og alþýðu- tónskáld og bundust samtökum um rétt sinn og nýju heitin, sem eru jú miklu virðulegri ekki satt? Helstu markmið S.A.T.T. voru „að stuðla að vexti lifandi tón- listarflutnings í fyrsta lagi með tónleikahaldi og í öðru lagi með dansleikjahaldi, að stuðla að auknum gæðum og fjölbreytni í garð íslenskra hljómplatna, að stuðla að breyttu viðhorfi ríkis- fjölmiðla til ísl. alþýðutónlistar (þ.e. áður popptónlistar), og að stuðla að útbreiðslu ísl. alþýðu- tónlistar á erl. vettvangi". Mikil áhersla var lögð á ójöfn- uð erl. og innl. popptónlistar í sjónvarpi og útvarpi en þess má geta að mest hefur heyrst til þeirra vegna of mikils erl. efnis en ekki vegna of lítils ísl. efnis. Plötupressan Plötupressan fræga, sem fékk heitið Alfa, kom til landsins í desember og kostaði þá um 80 milljónir króna. Er mikið mál að hún standist þær gæðakröfur sem eru settar fyrir fyrsta flokks pressu, því ella er hætt við að hún geti riðið ísl. dægurtónlist að fullu. Erlendur poppannáll Það áraði hlutfallslega betur á stóru mörkuðunum tveim, Bret- landi og USA. Að minnsta kosti var mikið um góða popptónlist á markaðnum. Erl. plötur sem urðu t.d. hvað vinsælastar hér voru „Bat Out Of Hell“ frá Meat Loaf, „War Of The Worlds" frá Jeff Wayne, „Discov- ery“ frá Electric Light Orchestra, „Breakfast In Amerika" frá Sup- ertramp og „String Of Hits“ frá Shadows. Pönkið missti allan broddinn við dauða Sid Vicious, bassaleik- ara Sex Pistols í febrúar, en þó eignuðumst við hér eina slíka sem fór að láta að sér kveða á árinu, nefnilega Fræbbblana, en þeir gáfu út litla plötu í Bretlandi rétt fyrir áramótin. Paul McCartney og Beatles voru vinsælasta poppfréttaefni fréttaskýrenda um allan heim. Mikið var reynt til þess að fá þá til að koma saman á ný til að halda styrktarhljómleika fyrir Sameinuðu þjóðirnar en samein- ingin tókst ekki. Paul McCartney og Wings létu aftur á móti til leiðast að hlaupa í skarðið. En Beatles sameinuðust þó á öðru sviði á árinu, en það var til þess að lögsækja sviðsetjendur söngleiksins „John Paul Georg og Bert“. MacCartney hlaut í haust heið- ursverðlaun Guinness afrekabók- arinnar fyrir afrek sín á tónlist- arsviðinu. Led Zeppelin létu sjá sig opin- berlega í fyrsta sinn á tveim árum í risahljómleikum í Kneb- worth garðinum rétt utan við London. Þessir tvennu hljómleikar þeirra í byrjun ágúst auk nýrrar breiðskífu frá þeim tryggði þeim flest verðlaunin í vinsældakosn- ingum Melody Maker í lok ársins. Aðrar gamlar kempur sem létu Vinsældarlistar 30 vinsælustu breiðskifur í Bretlandi 1. Bridge Over Troubled Water Simon & Garfunkel 2. Greatest Hits ABBA 3. Tubular Bells Mike Oldfield 4. Simon Garfunkel’s Greatest Hits 5. Saturday Night Fever Simon & Garfunkel Bee Gees & fleiri 6, The Singles 1969—1973 Carpenters 7. Arrival " ABBA 8. The Dark Side Of The Moon Pink Floyd 9. Grease Ýmsir 10. Elvis Presley’s 40 Greatest Hits Elvis Presley 11. 20 Golden Greats Beach Boys 12. Band On The Run Wings 13. Rumours Fleetwood Mac 14. The Best of Stylistics Sömu 15. Parallel Lines Blondie 16. Atlantic Crossing Rod Stewart 17. 20 Golden Greats Shadows 18. 20 Golden Greats Diana Ross & The Supremes 19. Elton John Greatest Hits Volume 1 20. The Album ABBA 21. A Night At The Opera Queen 22. The Sound Of Bread Bread 23. Their Greatest Hits 1971—'75 Eagles 24. Out Of The Blue ELO 25. Nightflight To Venus Boney M. 26. 20 Dynamic Hits Ýmsir 27. Thp Beatles 1967—’70 28. Hotel California Eagles 29. 40 Greatest Hits Perry Como 30. Goodbye Yellow Brick Road Elton John 10 vinsælustu smáskífurnar í Bretlandi 1. Mull Of Kintyre Winqs 2. Rivers Of Babylon/Brown Girl In The Ring Boney M 3. You’re The One That I Want Olivia Newton John/John Travolta 4. Sailing Rod Stewart 5. Save Your Kisses For Me Brotherhood Of Man 6. I’d Like To Teach The World To Sing New Seekers 7. Summer Nights Olivia Newton John/John Travolta 8. Don’t Give Up On Us . David Soul 9. Bohemian Rhapsody Queen 10. Under The Moon Of Love Showaddywaddy 10 vinsælustu breiðskifurnar á árinu 1979 1. Parallel Lines Blondie 2. Discovery ELO 3. The Very Best Of Leo Sayer Leo Sayer 4. Breakfast In America Supertramp 5. Voulez Vous ABBA 6. Greatest Hits Voiume 2 Barbra Streisand 7. Spirits Having Flown Bee Gees 8. Greatest Hits Volume 2 ABBA 9. Reggatta De Blanc Police 10. Manilov Magic Barry Manilow 10 vinsælustu lög ársins í Bretlandi 1979 1. Bright Eyes Art Garfunkel 2. Heart Of Glass Blondie 3. We Don’t Talk Anymore Cliff Richard 4. I Don’t Like Mondays Boomtcwn Rats 5. When You’re In Love Dr. Hook 6. I Will Survive Gloria Gaynor 7. Are Friends Electric? Tubeway Army 8. Dance Away Roxy Music 9. Sunday Girl Blondie 10 One Day At A Time Lena Martell

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.