Morgunblaðið - 06.01.1980, Side 48
'Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
JMargunbbibid
y Síminn á afgreiöslunni er
83033
JM»r0»mblnbib
SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 1980
Keflavíkurflugvöllur:
Flugstöð fyrir 18
milljarða í hönnun
— VIÐ munum að sjálf-
sögðu fylgjast með þróun í
farþegaflutningum til og frá
landinu og taka tillit til þess
við hönnun flugstöðvarinnar
ef aðstæður breytast, sagði
Helgi Ágústsson deildar-
stjóri varnamáladeildar
utanríkisráðuneytisins, er
Mbl. spurði hann í gær um
nýju flugstöðina, sem rísa
mun á Keflavíkurflugvelli.
Samkvæmt upplýsingum
Helga hafa bandarískir arki-
tektar lokið um þriðjungi af
hönnunarvinnu og innan
skamms verða valdir íslenzk-
ir arkitektar og verkfræð-
ingar til að vinna að hönnun
flugstöðvarinnar. Þetta verð-
ur mikið mannvirki eða um
16 þúsund fermetrar í allt að
gólffleti og eru þá meðtaldir
gangar út í flugvélarnar o.fl.
Tillit tekið
til breyttra
aðstæðna
Áætlað er að hefja fram-
kvæmdir í byrjun árs 1981
og þeim á að ljúka í árslok
1983. Endanlegt ákvörðun-
arvald um byggingartíma og
byggingarhraða er í höndum
Alþingis og ríkisstjórnar.
Að sögn Helga Ágústsson-
ar er áætlaður byggingar-
kostnaður 46 milljónir
Bandaríkjadala eða sem
næst 18,2 milljarðar ís-
lenzkra króna. Samkvæmt
sérstöku samkomulagi ís-
lands og Bandaríkjanna um
aðskilnað farþegaflugs og
varnarstaHseminnar á
Keflavíkurflugvelli hafa
Bandaríkjamenn fallist á að
greiða 20 milljónir dala eða
um 8 milljarða króna vegna
byggingar flugstöðvarinnar.
Ennfremur hafa þeir fallist
á að greiða margvíslegan
annan kostnað vegna henn-
ar, svo sem gerð flugstæða
og annað og munu greiðslur
Bandaríkjastjórnar nema
rúmum 40 milljónum dala í
allt.
Helgi sagði að lokum að
flugstöðin væri hönnuð með
mestu álagspunkta í huga.
Fjöldi farþega til og frá
landinu hefði hér þyngst
vægi en fjöldi „transit" far-
þega hefði minna vægi, en
ýmsar blikur væru nú á
lofti um umtalsverða fækkun
þeirra á Keflavíkurflugvelli.
íslendingarnir í Thailandi:
Sjá um 50 þús. manns
í f lóttamannabúðunum
FRÁ íslenska lækna- og
hjúkrunarliðinu sem sent
var á vegum Rauða
krossins til Thailands til
hjálparstarfa hafa nú
borist nokkrar fréttir til
vina og vandamanna hér
heima og hafa þau í
bréfum látið vel af dvöl
sinni ytra og segja að
öllum líði vel.
Hópurinn býr í tjöldum
utan við sjálfar flótta-
mannabúðirnar og verða
því ekki fyrir árásum, sem
stöku sinnum eru gerðar á
þær. í flóttamannabúðun-
um dveljast um 200 þús-
und manns og kemur í
hlut íslenska hópsins að
sjá um 50 þúsund manns
úr þeim hópi, en fyrir
utan Islendingana eru
þarna við hjálparstörf
hópar frá öðrum þjóðum.
Gúmmibáturinn af mb Baldri sundurskorinn og gjörónýtur
Ljósm.: Sigurgeir.
Skemmdarverk á
björgunarbátum
FJÓRIR björgunarbátar hafa
að undanförnu orðið fyrir
skemmdum í Vestmannaeyjum,
en í desember voru nokkrum
sinnum unnin á þeim skemmd-
arverk og eru tveir þeirra
taldir ónýtir. Talið er að hér sé
um að ræða menn, sem séu á
höttunum eftir morfíni, en það
er jafnan geymt í litlum mæli í
björgunarbátum.
Snemma í gærmorgun var
lögreglunni síðast gert viðvart
um ferðir grunsamlegs manns í
slippnum, en hann náðist ekki og
hefur ekki enn tekist að upplýsa
mál þetta. Kosta björgunarbátar
þessir nokkuð á aðra milljón og
fyrir utan fjárhagstjónið má
benda á hversu alvarlegar afleið-
ingar það getur haft ef bátarnir
reynast ekki í fullkomnu lagi
vegna skemmdarverka þegar
grípa þarf til þeirra oft við hinar
erfiðustu aðstæður. Sem fyrr
segir hafa fjórir bátar þannig
orðið fyrir barðinu á skemmd-
arvörgum, en þeir hafa allir
verið í slipp.
Þannig'hafa björgunarbátarnir verið skornir og eru fjórir taldir
ónýtir, en lögreglan telur að hér séu að verki menn á höttunum
eftir morfíni.
Kveikti í
fangaklefa
í tvígang
UNGUR maður kveikti tvisvar
i fangaklefa i Hafnarfirði i
fyrrinótt.
Fyrst bar hann eld að rúm-
ábreiðu. Fangaverðir urðu varir
við reykinn og slökktu strax í
ábreiðunni. Var maðurinn nú
færður úr öllum fötum nema
nærfötum og allt lauslegt tekið
af honum. En þrátt fyrir þessar
aðgerðir gerðist það nokkru síð-
ar að reyk lagði úr fangaklefan-
um.
Kom þá í ljós að maðurinn
hafði farið úr nærfötunum, sett
þau á gólfið og kveikt í þeim
með kveikjara, sem hann hafði
falið í endaþarmi.
Leikskólagjöld
hækkuð um 9%
GJÖLD á leikskólum og dagheimil-
um borgarinnar hafa verið hækkuð
frá 1. janúar og nemur hækkunin
um 9%. Gjald fyrir leikskóla er nú
kr. 20 þúsund en var fyrir hækkun
18.500 og gjald á dagheimili er nú
35 þúsund en var áður 32 þúsund
krónur.
Að sögn Bergs Felixsonar var sótt
um hækkun frá 1. desember þegar
laun hækkuðu, en fjármálastjóri
Reykjavíkur leyfði hækkunina frá 1.
janúar skv. heimild frá ráðherra.
Gjöld þessi voru síðust hækkuð í
október.