Morgunblaðið - 01.02.1980, Side 1
32 SÍÐUR
26. tbl. 67. árg.
FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Tóku sendiráð
Guatpmalaborií — 31. janúar — AP.
HÓPUR bænda lagði undir sig
spænska sendiráðið í Guatemala-
borg í dag og tók spænska
sendiherrann, Maximo Cajal y
Lopez, og ótiltekinn fjölda ann-
arra í gíslingu samkvæmt áreið-
anlegum heimildum. Lögregla um-
kringdi bygginguna.
Símamynd AP.
Á GÖTUM KABUL — Sovézkir hermenn kaupa sígarettur og sælgæti af börnum nálægt flugvellinum í
Kabul. Flestar sígaretturnar voru bandarískar.
Carter fær
aðstoð Alis
Nýju Delhi. 31. jan. AP.
MUHAMMED Ali, fyrrverandi
heimsmeistari í hnefaleikum.
aflýsti Indlandsferð sinni í dag
og sagði að Jimmy Carter for-
seti hefði beðið sig að fara í
„viðkvæma sendiför" til Mið-
austurlanda og Afríku.
Heimildir í bandaríska sendiráð-
inu herma að ferð Alis miði að því
að fá fimm lönd í þessum heims-
hluta til að hætta við þátttöku í
Ólympíuleikunum í Moskvu og að
Bandaríkjastjórn muni „útvega
honum far“ til Afríku frá Indlandi.
Gromyko í
Búkarest
Búkarest. 31. janúar. AP.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Sovét-
ríkjanna, Andrei Gromyko, kom í
dag til Búkarest í „vináttuheim-
sókn“ í boði Nicolae Ceausescu
forseta.
Gromyko kemur í óvænta heim-
sókn sína degi eftir að vestur-
þýzki kanzlaraframbjóðandinn
Franz-Josef Strauss fór frá Búka-
rest og þremur dögum eftir að
bandaríski aðstoðarutanríkisráð-
herrann David Newson fór þaðan.
Hvattur til
að hætta
Salisbury, 31. jan. AP.
BENZÍNSPRENGJU var í dag
fleygt inn á heimili blökkumanna-
leiðtogans Pedzisayi Chikarema.
Ráðherra blökkumanna skoraði á
Ian Smith fyrrverandi forsætis-
ráðherra að hætta stjórnmáiaaf-
skiptum. Brezki landstjórinn,
Soames lávarður, hét að „beita
öllum tiltækum ráðum“ til að
binda enda á óöld fyrir kosning-
arnar.
Brezkur talsmaður staðfesti
jafnframt, að sameiginlegir varð-
flokkar rhódesísku lögreglunnar og
skæruliða væru á verði umhverfis
fimm af búðum skæruliða til að
koma í veg fyrir að vopnaðir menn
laumuðust þaðan. Ráðgert er að
slíkir varðflokkar taki við af
gæzluliði samveldisins eftir kosn-
ingarnar.
Varaforseti Muzorewa biskups,
Earnest Bulle, sem skoraði á Smith
að hætta stjórnmálaafskiptum,
sakaði hann um hættulega fram-
komu með því að hvetja hvíta
kjósendur til að stvðja Joshua
Nkomo í stað Mugabe. Smith hvatti
kjósendur í Bulawayo að kjósa
Nkomo til að „stöðva" Mugabe.
Júlíana leggur niöur völd
Amsterdam — 31. janúar — AP.
JÚLÍANA Hollands-
drottning tilkynnti í dag
í sjónvarpsávarpi frá
Soestdijk-höll, að hún
ætlaði að leggja niður
völd á 71 árs afmæli sínu
30. apríl nk. og fela þau
elztu dóttur sinni, Bea-
trix krónprinsessu, sem
varð 42 ára í dag.
Hún sagði að fólk á hennar
aldri skildi að kraftar þess
mundu fyrr eða síðar þverra og
það gæti ekki gegnt störfum
sínum eins vel og áður. Hún
sagði að hún teldi að nú væri
rétti tíminn til að hætta skyldu-
störfum.
„Arftaki minn, dóttir okkar,
Beatrix prinsessa, er reiðubúin
að taka við þessum skyldustörf-
um og mun taka við þeim,“ sagði
drottning.
Tilkynning drottningar, sem
Beatrlx
hefur ríkt í rúmt 31 ár, kom
flestum Hollendingum á óvart
þar sem hún hefur látið á sér
skilja að ekkert liggi á að hætta
og hún er sögð við góða heilsu.
„Mér finnst ég hafa tekið rétta
ákvörðun og vona að þið skiljið
hana,“ sagði hún.
Anders van Agt forsætisráð-
herra sagði í öðru ávarpi, að
hann treysti því að hollenzka
þjóðin mundi sýna hinum nýja
þjóðhöfðingja „sömu ást og virð-
ingu“ og fráfarandi drottningu.
Nýju Delhi, 31. janúar. AP.
CLÁRK Clifford, sendimaður
Carters forseta, lýsti því yfir i
dag að loknum viðræðum við
Indiru Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, að ef Rússar sæktu í átt
að Persaflóa frá Afganistan
mundi það „þýða styrjöld við
Bandaríkin“.
Yfirlýsing Cliffords undirstrik-
ar þá viðvörum Carters í ræðu á
Bandaríkjaþingi nýlega, að litið
yrði á tilraun af hálfu Rússa til að
ná yfirráðum yfir Persaflóa sem
árás á bandaríska þjóðarhags-
muni.
Clifford sagði, að Indverjar og
Bandaríkjamenn væru sammála
um að flytja ætti sovézka herliðið
frá Afganistan en ósammála um
leiðir. Hann kvaðst vona að Ind-
verjar gætu talið Rússa á að flytja
burtu herliðið og kvaðst telja að
náið samband Indverja við Rússa
gæti komið að notum eins og nú
væri ástatt.
Frú Gandhi lýsti sig eindregið
andvíga fyrirætlunum Carters um
að vega á móti innrás Rússa í
Afganistan með því að efla varnir
Pakistans. Clifford kvaðst telja að
bandarískir hernaðarráðunautar
færu með hergögnum sem yrðu
send til Pakistans. Hann sagði að
Bandaríkjastjórn mundi líta það
alvarlegum áugum ef hergögnin
yrðu notuð til annars en varna
gegn hugsanlegum herhlaupum
Rússa yfir landamærin.
I Moskvu skoraði Pravda á
Pakistani að endurskoða þá af-
stöðu að leggjast á sveif með
Bandaríkjamönnum og leyfa þeim
að nota pakistanska grund til
„árásar í næsta nágrenni Sovét-
ríkjanna". Dulbúin hótun blaðsins
birtist í sambandi við væntan-
legar ferðir ráðunauta Carters til
Pakistans.
Tcheran. 31. janúar. AP.
MINNST 50 hafa beðið bana í nýjum
bardögum sem hafa blossað upp síðustu daga
í Kúrdistan og ýmsir leiðtogar Kúrda hafa
skorað á Khomeini trúarleiðtoga, sem er í
sjúkrahúsi, að skakka leikinn.
Andstæðingar stjórnarinnar hafa líka efnt
Á sama tíma og innanlands-
ástandið í Iran virðist versna
vinnur Bandaríkjastjórn að nýjum
til uppþota umhverfis Shahr E Kord, svæði í
Mið-Iran þar sem ættflokkar fjandsamlegir
stjórninni búa. Jafnframt hefur Teheran-
útvarpið í fyrsta sinn skýrt í smáatriðum frá
átökum sem urðu við háskólann í borginni í
gær og segir að þau hafi verið milli marxista
og andstæðinga þeirra.
tilraunum til að bjarga gíslunum í
bandaríska sendiráðinu og Frank
Church öldungadeildarmaður
sagði, að þær færðu „nokkra von“
um árangur.
Áður hafði talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins neit-
að að útiloka þann möguleika að
gíslunum yrði sleppt fyrir milli-
göngu einhvers þriðja aðila eins
og Rauða krossins ef samkomulag
næðist um rannsókn á vegum SÞ á
stjórn fyrrverandi íranskeisara.
Carter forseti sagði í símtali við
Joe Clark, forsætisráðherra Kan-
ada, að hann teldi ekki að flótti
Bandaríkjamannanna sex frá Iran
með hjálp Kanadamanna mundi
koma niður á gíslunum.
Forsetinn sagði, að hann og
Clark hefðu skipzt á leynilegum
orðsendingum síðan í nóvember-
byrjun. Hann hringdi í Clark til
að þakka honum og kanadísku
þjóðinni fyrir „persónulegt og
pólitískt hugrekki".
Starfandi sendiherra írans í
Ottawa, Mohammed Adeli, sagði í
dag að flótti Bandaríkjamann-
anna sex mundi tefja fyrir björg-
un gíslanna úr sendiráðinu. Hann
sagði að íran og Bandaríkin hefðu
komizt að samkomulagi um al-
þjóðlegan dómstól til að rannsaka
meinta glæpi fyrrum íranskeis-
ara.
Clifford segir sókn til
Persaflóa þýða stríð
Bardagar blossa
upp í Kúrdistan