Morgunblaðið - 01.02.1980, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1980
13
Undirbúningsneínd hátíðarinnar á fréttamannafundinum í dag. Ljósm. Mbi. Kristján.
Kvikmyndahátíð hefst á morgun:
góð kaup
Ríó kaffi Kaaber !4 kg . kr. 820
Kjúklingur Sólskins-Holta 1 kg .kr. 1990
Kjúklingar Sólskins-Holta 1 kassi pr kg kr. 1820
Egg 1 kg .............................. kr. 1165
Strásykur 1 kg ........................ kr. 275
Hveiti — Pillsbury 5 Ibs .............. kr. 545
Þorramatur
í úrvali
30 erlendar myndir frá
16 löndum og 8 íslenzkar
Þessi mynd er úr kvikmyndinni „Krakkarnir frá Copacabana“, sem
sögð er mynd fyrir alla fjölskylduna. Hún gerist i Brasiliu og fjallar
um lífsbaráttu krakkahóps i Rio de Janeiro.
— þar af keppa 4 um
titilinn bezta ísl. kvik-
mynd hátiðarinnar
Kvikmyndahátið i tengslum
við Listahátið í Reykjavík hefst á
morgun, laugardag. Á hátiðinni
verða sýndar 30 erlendar kvik-
myndir frá 16 löndum og auk
þess fjórar islenzkar kvikmyndir
í keppni hátíðarinnar um beztu
íslenzku kvikmyndina. Fjórar
eldri kvikmyndir tengdar íslandi
verða einnig sýndar. Sýningarn-
ar verða í kvikmyndahúsinu
Regnboganum í fimm sölum og
verður sýnt fimm sinnum á dag,
alls 25 sýningar. Til að hátiðin
standi undir sér fjárhagslega
þurfa 17 þús. gestir að sækja
hana. 1978 sóttu Kvikmynda-
hátið 21 þús. manns.
Verk margra listamanna verða
sýnd að þessu sinni. Má þar nefna
„Marmaramanninn" eftir Pólverj-
ann Wajda. Fyrirhugað var að
hann kaemi til landsins sem gestur
hátíðarinnar, en að sögn fulltrúa
undirbúningsnefndar hátíðarinn-
ar, á fréttamannafundi í gær,
kemst hann ekki vegna anna.
„Náttbólið" eftir Frakkann Renoir
er ein af myndunum á hátíðinni.
Þykir við hæfi, eins og gert var á
hátíðinni ’78, að minnast látins
brautryðjanda í kvikmyndalist. í
ár verður Jean Renoir minnst með
sýningu á „Náttbólinu". Af öðrum
myndum má nefna „India Song“
eftir Frakkann Margaret Duras,
„Woyzeck" eftir Þjóðverjann
Herz, „Sjáðu sæta naflann minn“,
sem gerð er eftir samnefndri
danskri unglingaskáldsögu, sem
gefin var út í íslenzkri þýðingu
fyrir síðustu jól. Myndin er eftir
Kragh Jacobsen. Spánverjinn
Saura kemur einnig við sögu með
myndina „Hrafninn". Tvær jap-
anskar myndir verða á hátíðinni,
þ.e. „Ævi Oharu" eftir Mizogucki
og „Eg fæddist, en ...“ eftir Ozu.
Kvikmyndir við hæfi barna og
unglinga verða einnig á hátíðinni
að sögn nefndarmanna. Má þar
fyrst geta myndarinnar „Krakk-
arnir í Copacabana", eftir Sucks-
dorf frá Svíþjóð, og teiknimynd-
anna „Úppreisnarmaðurinn
Jurko“ og „Crabat" eftir þá Kubal
og Zeman frá Tékkóslóvakíu.
Þessar myndir eiga ekki síður
erindi til fullorðinna og sögðu
nefndarmenn myndina „Krakk-
arnir í Copacabana" sérstaklega
góða fjölskyldumynd.
Islenzku kvikmyndirnar, sem
taka þátt í keppninni að þessu
sinni, eru „Humarveiðar", 15
mínútna löng mynd eftir Heiðar
Marteinsson, og „Eldgosið í
Heimaey 1973 og uppbyggingin
eftir gos“, 28 mín., eftir sama.
Handrit beggja myndanna eru
eftir Magnús Bjarnfreðsson.
„Bíldór", 6 mín. leikin mynd, gerð
af Þrándi Thoroddsen og Jóni
Hermannssyni í samvinnu við
Umferðarráð, og að lokum „Lítil
þúfa“, 15 mín., eftir Ágúst Guð-
mundsson. Fyrstu verðlaun nú eru
kr. 500 þús. A hátíðinni 1978 hlaut
kvikmynd Þorsteins Jónssonar,
„Bóndi", fyrstu verðlaun.
Á hátíðinni verða einnig sýndar
fjórar eldri kvikmyndir tengdar
íslandi, þ.e. „Salka Valka“, „79 af
stöðinni", „Borgarættin" og
„Rauða skikkjan".
Myndirnar erlendu eru allar
með enskum eða dönskum texta.
Hátíðin stendur til 12. febrúar.
Verð aðgöngumiða er hið sama og
á venjulegar sýningar kvikmynda-
húsanna.
Hátíðin hefst á morgun eins og
áður segir og verða þá sýndar
myndirnar Marmaramaðurinn,
Krakkarnir í Copacabana, Sjáðu
sæta naflann minn, Uppreisnar-
maðurinn Jurko, Náttbólið,
Hrafninn og Frumraunin. Á
sunnudag verða sömu myndir
sýndar, auk þess Eplaleikur,
Þýzkaland að hausti, Borgarættin
og Salka Valka.
Opiö föstudag til kl. 8
og láugardag frá 9—12
irumarkaðurinn hf.
wT múla 1A Sími 86111.
Dúnmjúkar aasngur med DACRON HOLLOFIL fyllingu, sem
veldur byltingu í gerð rúmfatnaðar
Sæng 140x200 cm
barnasæng 100x140 cm
ungbarnasæng 80x100 cm
koddi 50x70 cm
koddi 40x60 cm
svæfill 35x40 cm
Sendum um allt land
Opið föstudag til kl. 8 og laugardag frá 9—12.
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1A, sími 86113
kr. 18.800,-
kr. 13.800,-
kr. 9.900,-
kr. 7.000,-
kr. 4.100,-
kr. 3.100,-
Þykk filma
K12 þykkfilmurásir eru bylting í gerö prentaðra rása.
Þar framkvæma litlir hlutir vinnu margfalt stærri
hluta. Þykkfilmurásirnar eru sterkari, léttari og bila
síður. Þær eru prófaðar og stilltar með lasergeislum.
Vegna notkunar þykkfilmurása og undraörtölvurása,
notar ,K12 minna en % af þeirri orku sem eldri tæki
nota. í orkukreppu er þetta mikill kostur.
Þú þarft ekki að bíða eftir að K12 tækið hitni. Philips
Quickstart gefur K12 tækinu fulla birtu og hljóð innan
5 sek.
Philips með eðlilegum litum
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 —15655