Morgunblaðið - 08.02.1980, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.02.1980, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1980 Hveragerði er einn tiltölulega fárra þéttbýlistaða hér á landi sem ekki liggur við sjávarsíðuna. íbúar kauptúnsins hafa því eðlilega haft atvinnu af öðru en fiskveiðum og fiskvinnslu,, svo sem iðnaði, gróður- húsarækt og heilsugæslu. A síðustu árum hafa augu Hvergerðinga þó opnast fyrir því að unnt kunni að reynast að vinna fisk í þorpinu á hagkvæman hátt, þar sem jarðhitinn spilar stærstu rulluna. Hafa á síðustu árum verið gerðar tilraunir til fiskvinnslu í Hveragerði, og hafa þær gefist ágætlega, svo sem hjá harðfiskvinnsl- unni Stútungi hf. Blaðamaður og ljósmyndari Morgun- blaðsins litu við hjá fyrirtækinu nú í vikunni. Helgi Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri Stútungs sagði, að fiskvinnsla hjá fyrirtækinu hefði hafist í maí á síðasta ári, og verið haldið áfram óslitið síðan. „Upp- haflega ætlaði ég að nota húsnæð- ið til hellugerðar eða einhverrar slíkrar starfsemi, þar sem ég er lærður múrari," sagði Helgi, „en ég hætti við það, meðal annars vegna þess hve byggingarvinna hefur verið að dragast saman hér í þorpinu undanfarin ár. Þá var það að mágur minn, Hafsteinn As- geirsson skipstjóri í Þorlákshöfn, benti mér á að möguleikar gætu legið í vinnslu harðfisks með hverahita, og ég sló til, og nú vinna við þetta fimm manns.“ Helgi kannar fiskinn sem er í þurrkun á grindunum. Hveragufa er notuð til að hita þurrkklefann, og vifta blæs loftinu um grindurnar þannig að fiskurinn þornar. Um það bil sjö sólarhringa tekur að þurrka venjulegan harðfisk. og þarf að gæta þess nákvæmlega að hita- og rakastig sé hæfilegt allan tímann. Þorni fiskurinn til dæmis of ört. myndast skurn eða skel utan um hann, og úldnar þá það sem fyrir innan er. Stút- I laröíiskvinrLsla aðarsamt yrði að hita þurrkklef- ann upp með olíu, en það er þó sums staðar gert.“ Sagði Helgi starfsrækslu fyrir- tækisins hafa gengið mjög vel, og hefðist varla undan að selja vör- una. Ýmsir byrjunarerfiðleikar hefðu þó orðið á veginum, en vonandi væri nú búið að yfirstíga þá að mestu. Rekstur fyrirtækja í landinu sagði Helgi hins vegar að væri allur mjög erfiður, einkum vegna þess hve fjármagnskostn- aður væri mikill. Þá sagði hann að ýmislegt gerði það einnig að verk- Helgi sagði að nú væri unnin hjá Stútungi harðfiskur, karfi, bitafiskur, saltfiskur og skreið. Mest er lagt upp úr harðfiskinum, og hann er seldur í neytendaum- búðum í verslanir á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu, auk þess sem nokkurt magn hefur verið flutt á markað í Færeyjum. Harðfiskurinn er þannig verkaður, að fiskurinn er flakaður og settur á grindur. Aðallega er notaður nýr fiskur, einkum línu- fiskur, og hefur Helgi bæði sótt hann til Þorlákshafnar og til Bæjarútgerðarinnar í Reykjavík. Þegar fiskurinn er kominn í grind- urnar er hann látinn inn í þurrkklefa, þar sem hann er látinn vera í um það bil sjö sólarhringa. Bitafiskurinn er þó skemur, eða í um það bil þrjá sólarhringa. Klefinn er hitaður upp með hveragufu og vifta blæs loftinu um hitarör inn í klefann. Hita- og rakastigið er haldið jöfnu með sérstökum útbúnaði. Eftir að fiskurinn er kominn út úr þurrk- klefanum er hann síðan látinn liggja í pækli í tvo sólarhringa, þá er hann barinn eða valsaður og settur í neytendaumbúðir, til- búinn til að fara í verslanir. „Það hlýtur að liggja í augum uppi,“ sagði Helgi, „að aðstæður eru góðar til vinnslu af þessu tagi hér í Hveragerði, þar sem orka er næg, nú á tímum gífurlegra verð- hækkana á olíu. Gífurlega kostn- ungs h.f. í Hveragerði um að reksturinn gengi erfiðlegar en vera þyrfti, svo sem að fram- leiðslan er háð verðlagsákvæðum. „Þrátt fyrir launahækkanir í des- ember og nýlega fiskverðshækkun höfum við ekki fengið leyfi til að hækka framleiðsluvöruna hér, og veldur það okkur að sjálfsögðu erfiðleikum," sagði Helgi. „Að mínu mati ætti hér að ríkja frjáls verðlagning, enda er um að ræða það mikla samkeppni í greininni að það ætti að tryggja sem lægst vöruverð. Þá er hér ekki beinlínis um að ræða nauðsynjavöru, þann- ig að yrði verð hennar óhóflega mikið hætti hún einfaldlega að seljast." Einnig sagði hann opinber gjöld ekki vera til þess fallin að örva smáiðnað af þessu tagi, þar sem aðeins fasteignagjald skipti hundruðum þúsunda króna. „En við gefumst ekki upp þótt á móti blási,“ sagði Helgi að síðustu, „heldur ætlum við að halda þess- um rekstri áfram, og jafnvel er hugmyndin að reyna að stækka fyrirtækið og auka framleiðsluna ef mögulegt reynist." - AH Bjarnþór Valdimarsson við að valsa harðfiskinn áður en hann er settur i neytendaumbúðir. Ljósmyndirnar tók Ragnar Axelsson. Ilelgi Þorsteinsson með sýnishorn af skreið sem þurrkuð er hjá Stútungi. Með þessari vinnslu er fiskurinn nánast fullunninn, þar sem áður hafa flökin verið unnin fyrir innanlandsmarkað. Fiskurinn settur í plastpoka, sem síðan fara beint á markað í verslanir, hér innanlands og í Færeyjum, það er Dóra T. Senior sem þarna vinnur að pökkuninni. Með fullum afköstum hjá Stútungi er unnt að senda 3500 til 4000 poka á markað í viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.