Morgunblaðið - 09.02.1980, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980
3
Gunnar Thoroddsen íorsætisráðherra:
„Yona að þessi samstjórn reyn-
ist farsæl fyrir íslenzka þjóð“
„ÞAÐ, sem mér er efst í huga á
þessari stundu er ánægja og
þakklæti yfir því, að þessi
tilraun skyldi takast,“ sagði
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, er hann hafði tekið
við lyklum stjórnarráðsins af
Benedikt Gröndal, fráfarandi
forsætisráðherra. „Ég er sann-
færður um að þessi stjórnar-
myndun var eini möguleikinn
til að leysa hina langvarandi
stjórnarkreppu. Að öðru leyti
er mér það að sjálfsögðu ofar-
lega í huga, að okkur lánist að
leysa þau margvíslegu og miklu
vandamál, sem íslenzk þjóð
stendur nú frammi fyrir.“
Morgunblaðið spurði Gunnar
Thoroddsen, hvað væri hæft í
því að Alþingi yrði nú veitt leyfi
á meðan ríkisstjórnin ynni að
aðkallandi málum. Hann sagði:
„Það hefur ekkert verið um það
ákveðið. Hins vegar hefur komið
upp sú hugmynd að gera 2ja
vikna hlé á störfum Alþingis til
þess að ríkisstjórnin fengi betra
tóm til að undirbúa ýmis aðkall-
andi mál fyrir þingið. Ég hefi
boðað ríkisstjórnarfund strax í
fyrramálið og þar verður m.a.
rætt um þessa hugmynd.
Slíkt þinghlé hefur stundum
verið gert áður, þegar svipað
hefur staðið á og það myndi
auðvitað greiða fyrir undirbún-
ingi ýmissa mála, ef ráðherrar
þyrftu ekki um stund að sækja
þingfundi og taka þar þátt í
umræðu og afgreiðslu mála. En
Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra í skrifstofu sinni í forsætis-
ráðuneytinu.
Benedikt Gröndal, fráfarandi forsætisráðherra, afhendir Gunnari Thoroddsen forsætisráðherra
lyklavöld að stjórnarráðinu. Benedikt sagði við þetta tækifæri að hann óskaði Gunnari alls góðs í
starfi en lét þess getið, að lyklana hefði hann aldrei þufft að nota þá mánuði, sem hann hefði verið
forsætisráðherra.
þetta hefur ekki verið rætt eða
kannað, þetta er aðeins hug-
mynd.“
Hver var erfiðasti hjallinn við
myndun þessarar ríkisstjórnar?
Gunnar Thoroddsen svaraði:
„Þegar stjórnmálamenn úr
þremur flokkum með ólík sjón-
armið á mörgum sviðum mynda
ríkisstjórn, þá eru auðvitað
margir erfiðir hjallar á þeirri
leið að ná samkomulagi í sam-
stjórn. Þar eru margvísleg sjón-
armið, sem þarf að samræma og
í því efni veltur mjög á því, hvort
menn hafa vilja til þess að ná
saman og ganga til samninga
með því hugarfari að láta þetta
lánast."
Hvert verður að þínu mati
erfiðasta verkefni ríkisstjórnar-
innar? „Efnahagsmálin, glíman
við verðbólguna hefur reynzt
ærið örðug,“ sagði forsætisráð-
herra, „við höfum náð samkomu-
lagi um ýmsar aðgerðir og
stefnumörk á mörgum sviðum,
sem við teljum að eigi að leiða til
hjöðnunar verðbólgu."
Þá sagði Gunnar Thoroddsen:
„Ég vil segja það að lokum, að ég
hef trú á því, að þessi samstjórn
geti látið gott af sér leiða og
vona að hún reynist farsæl fyrir
íslenzka þjóð.“
SVARIÐvlð
orkukreppu
COLT er framhjóladrifinn.
COLT er sparneytinn (eyðsla 7I./100 km.).
COLT er rúmgóður.
COJLT er fáanlegur 3 og 5 dyra.
Sá bestifráJAPAN
Komið, skoðið og reynsluakið COLT 1980 frá MITSUBISHI.
Varahluta og viðgerðarþjónusta Heklu hf. er landskunn.