Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 47
El r, MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980 47 Feyenoord vildi Ásgeir strax — JÚ ÞETTA er rétt, Feyenoord hafði samband við Standard og vildi fá mig strax en þeim var sagt að af þessu gæti ekki orðið fyrr en í fyrsta lagi í vor þegar deildarkeppnin er búin, sagði Ásgeir Sigur- vinsson knattspyrnukappi þegar Mbl. hafði samband við hann úti í Liege í Belgíu. — Sjálfur hef ég ekkert heyrt frá forráðamönnum Feyenoord um þetta mál en hingað komu hollenskir blaðamenn til þess að hafa við mig viðtal og það var helst á þeim að skilja að það væri nokkuð öruggt að ég færi til Feyenoord, sagði Ásgeir. — Hitt er svo annað mál að fleiri félög hafa sýnt áhuga á því að kaupa mig eftir því sem mér hefur skilist og það er því alveg óvíst hvert ég fer í vor ef ég fer þá á annað borð. Ég reyni að leiða þetta hjá mér eins og ég get því að á undanförnum ár- um hafa margsinnis komið tilboð til Standard en ekk- ert orðið af sölu. Ekki kvaðst Ásgeir hafa heyrt neinar upphæðir nefndar í sambandi við — En Standard vill ekki selja hann fyrr en í vor • Það skyldi aldrei fara svo, að þeir Ásgeir Sigurvinsson og Pótur Pétursson yrðu samherj- ar hjá hollenska liðinu Feyenoord í Rotterdam? Feyenoord hefur að sögn mikinn hug á að fá Ás- geir til liðs viö sig, en hvort forráðamenn fó- lagsins eru tilbúnir til að bíöa til vors með samn- ingaumræöur eins og Standard Liege vill, er ekki Ijóst á þessu stigi. hugsanleg félagaskipti og vildi ekkert um þau mál ræða. Hins vegar má rifja það upp hér að í fyrra neitaði Standard 1,5 millj- ón þýzkra marka tilboði frá Borussia Mönchengladbach í fyrravor og má því reikna með að Ásgeir sé nú verð- lagður á 1,8—2 milljónir þýzkra marka eða 415—460 milljónir íslenzkra króna, vegna frábærrar frammi- stöðu í leikjum Standard í vetur. Standard Liege hefur gengið mjög vel í leikjum sínum að undanfölnu á sama tíma og forystuliðið Lokaren hefur dalað og virðist vera framundan geysispennandi barátta um Belgíumeistaratitilinn. - SS. Ingi sló 9 ára gamalt met Guðmundar Gísla INGI Þ. Jónsson, kornungur sundmaður aí Akranesi, sló'held- ur en ekki í gegn á sundmóti KR sem fram fór fyrir stuttu. Ingi setti nýtt og glæsilegt íslandsmet í 100 metra baksundi og sló þar með met það sem Guðmundur Gíslason setti í greininni árið 1971. Ingi sigraði í þremur af fjórum einstaklingsgreinum sem hann tók þátt í, en til að gera afrek hans enn meira, má geta þess, að í öllum greinunum sigraði hann Huga Harðarson sem verið hefur landsmanna fremstur í þessum greinum síðustu árin. Auk 100 metra baksundsins, sigraði Ingi í 400 metra skriðsundi og 200 metra fjórsundi. Annað íslandsmet fauk út í veður og vind á mótinu, það var í 4x100 metra skriðsundi kvenna, en þar sigraði sveit Ægis á 4;24,7 mínútum. Annars var tími Inga’ í metsundinu 1:04,2 mínúta. I Elnkunnagjöfln Lið HK: Einar Þorvarðarson 4, Hilmar Sigurgíslason 3, Bergsveinn Þórarinsson 2, Kristján Þór Gunnarsson 2. Magnús Guðfinnsson 1, Ragnar ólafsson 2, Kristinn Ólafsson 2, Jón Einarsson 3. Andrés Gunnlaugsson 1. Lið ÍR: Þórir Flosason 2, Bjarni Hákonarson 2, Guðjón Marteinsson 1, Sigurður Svavarsson 1, Guðmundur Þórðarson 1, Bjarni Bjarnason 1, Ársæll Hafsteinsson 1, Pétur Valdimarsson 1, Bjarni Bessason 3. Lið ÍR: Þórir Flosason 3, Guðmundur Þórðarson 2, Ársæll Hafsteinsson. 4. Bjarni Bessason 3, Bjarni Bjarnason 1, Sigurður Svavarsson 2, Bjarni Hákonarson 2, Pétur Valdimarsson 2. Ljð KR Pétur Iljálmarsson 1. Gísli Bjarnason 1, Símon Unndórsson 2, Ólafur Lárusson 2. Björn Pétursson 2, Friðrik Þorbjörnsson 2, Einar Vilhjálmsson 2, Kristinn Ingason 1, Konráð Jónsson 2, Haukur Ottesen 2, Jóhannes Stefánsson 2, Haukur Geirmundsson 2. Dómarar: Rögnvaldur Erlendsson og Árni Tómasson 2. Einn keppenda á fullri ferð í brautinni. á Stefánsmótinu sem fram fór í Skálafelli fyrir skömmu. í dag fer fram fyrsta punktamót vetrarins í flokki unglinga. Keppt verður í stórsvigi í Skálafelli í dag og hefst keppnin kl. 11. og í svigi í Bláfjöllum á sunnudag kl. 10. Keppendur verða um 170 talsins þar á meðal allir fremstu unglingar landsins í skiðaiþróttinni. Jafntefli Juventus og Real UNGLINGALIÐ margra af sterkustu félagsliðum Evrópu í knattspyrnu eru að reyna meö sér á stórmóti í ítalíu þessa dagana. Aðalleikur fyrstu um- feröarinnar var viðureign Real Mad- rid og Juventus, en leiknum lauk sem jafntefli, 2—2, eftir að Real haföi haft yfirhöndina í hálfleik, 2—1. Úrslit annarra leikja urðu sem hér segir: AC Mílanó — Perugia 3—0 Avellino — Aris Salonika 1 — 1 Napólí — Partizan Belgrad 4—0 Dukla Prag — Torino 3—0 Porto — Rapid Vienna 2—0 Þróttur úr leik FII sló Þrótt út úr bikarkeppni HSÍ, er liðin mættust í Hafnar- firði í fyrrakvöld. Lokatölur leiksins urðu 30—26 FII í vil, en í hálfleik var staðan 17 — 14 fyrir FH. FH náði þegar í stað forystu í leiknum, forystu sem var allt frá 5 mörkum og niður í eitt. Einu marki munaði um tíma í síðari hálfleik er staðan var 22—21 fyrir FH. en herslumuninn vant- aði hjá 2. deildar liðinu. Pólitíkin alls staðar með puttana ÍÞRÓTTIR eru pólitik segja sumir. Ólympíuleikar fatl- aðra fara fram i Hollandi i sumar. nánar tiltekið í Arnheim. Til þessa hefur hollenska rikistjórnin lagt allt mögulegt af mörkum til undirbúnings. Fyrir skömmu lét róttæk- ur hópur þingmanna til sin taka. Þeir fengu meirihluta fyrir því að stöðva fram- kvæmdir hins opinbera fyrir leikana nema fötluðu iþróttafólki frá Suður- Áfríku yrði meinuð þátttaka á leikunum. Þetta varð að sjálfsögðu hið mesta hita- mál, en þessu hefur ekki verið breytt. Þess má geta, að íslendingar verða meðai þátttakenda á ólympíuleik- unum i Arnheim. ÍBK mætir Ármanni í Njarðvíkum EINN af úrslitaleikjum 1. deildar Islandsmótsins i körfuknattleik fer fram i Njarðvíkum i dag klukkan 2. Þá eigast við ÍBK og Ármann. Keflvikingar eru staðráðnir i að sigra og þannig opna deildina á gátt en ef Ármann hins vegar ber hærri hlut i Njarðvíkum þá ætti gatan að vera þeim greið i úrvalsdeildina. Staðan i 1. deild er nú: Armann 7 6 1 777-701 12 ÍBK 7 5 2 058 -531 10 Grindavík 8 1 4 657 -682 8 Þór 4 2 2 362-364 4 Borttarnes 5 1 4 395—471 2 Tlndastóll 5 0 5 357 -459 0 Körfuknatt- leikur Körfuknattleikur um heigina: Laugardagur: Njarðvík 1. deild karla ÍBK — Ármann kl.14.00 Akureyri 1. deild karla UMFS - Tindast. kl.15.00 Haukahúsið 2. deild karla Ilaukar — ÍA kl.13.00 Sunnudagur: Akureyri 1. deild karla Þór — Tindast. kl. 15.00 Hagaskóli 1. deild kvenna ÍR - KR kl.14.30 Hagaskóli úrvalsdeild ÍR - KR kl. 16.00 Blak Eftirfarandi blakleikir fara fram um helgina: Laugardagur: Hagaskóli 1. deild kvenna UBK — Vikingur kl. 14.00 Glerárskóli 1. deild kvenna ÍMA - ÍS kl. 15.00 Glerárskóli 1. deild karla UMSE - ÍS kl. 16.15 Glerárskóli 2. deild karla KA - Völsungur kl. 17.30 Laugarvatn 1. deild kvenna UMFL - Þróttur kl. 15.00 Neskaupstað2. deild karla Þróttur — UBK kl.15.00 Sunnudagur: Glerárskóli 2. dcild karla ÍMA — Völsungur kl. 13.30 Mánudagur: Laugarvatn 1. deild karla UMFL — Þróttur kl. 20.00 Keilir Almennur félagsfundur Golfklúbhsins Keilis verður í dag kiukkan 14.00 í skálan- um á Hvaleyri. Fundarefni er skipulag 18 holu vallar sem liggur fyrir. — Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.