Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980 39 Hjónaminning: Ingibjörg Egvinds- dóttir - Jón Sigurðs- son Fremra-Hálsi Fædd 13. mars 1899. Dáin 31. janúar 1980. Fæddur 11. ágúst 1896. Dáinn 27. september 1978. Það er vandasamt verk að minn- ast Ingibjargar og Jóns á Frem- ra-Hálsi í Kjós, á prenti, vegna þess að mærð og hástemmd lýs- ingarorð sem stundum fylgja minningarskrifum voru svo and- stæð skapgerð þeirra. Það kann þó að reynast erfitt að komast hjá slíku þar sem Jón og Ingibjörg voru meðal þess fólks sem naut svo almennrar virðingar allra sem þau þekktu að við, að minnsta kosti, álítum að fáir slíkir finnist. Hvers vegna hljóta sumir ein- staklingar óskoraða virðingu ann- arra án þess að leggja annað á sig til að öðlast hana en að vera þeir sjálfir? Svarið hlýtur að vera að þannig fólk sé búið óvenjulegum mannkostum. Við teljum okkur vera meðal þeirra heppnu er hafa átt þess kost að kynnast slíku fólki og taka við áhrifum frá því strax í barnæsku. I okkar tilfelli voru það hjónin að Fremra-Hálsi. Fyrir tilstilli Kristínar elstu dóttur þeirra hjóna, fórum við bræðurnir í sveit að Fremra-Hálsi þá fjög- urra og sex ára, og er skemmst frá því að segja, annar dvaldi þar næstu níu sumur samfleytt og hinn litlu skemur. Ekki höfðum við verið þar lengi þegar við fórum að kalla þau hjónin „mömmu og pabba á Hálsi“ og telst það líklega frekar sjaldgæft ávarp meðal óskyldra. Stuttu síðar bættist leikfélagi okkar bræðra Helgi Kristbjarnarson, nú læknir í Svíþjóð, í þennan hóp og tók einnig upp þetta ávarp okkar er við höfum notað ávallt síðan. Langdvöl okkar þremenninga á Fremra-Hálsi og sú nafngift er við gáfum húsráðendum þar segja líklega meira um hug okkar til þeirra en mörg orð. Það er skemmtilegt að minnast þess, eins og svo margs annars frá Hálsi, hve óþreyjufullir við biðum eftir að skólanum lyki á vorin svo við kæmumst nú loksins upp að Hálsi, og svo eftir réttir á haustin var beðið með eftirvæntingu eftir að foreldrar okkar kæmu að flytja okkur aftur á mölina. Við gátum kvatt Háls með ánægju og þeirri öruggu vissu að um leið og sól hækkaði aftur á lofti yrðum við mættir til leiks og starfa. I dag þegar mamma á Hálsi er lögð til hinstu hvíldar í Reyni- vallakirkjugarði við hlið pabba, hann lést í september 1978, er þau höfðu búið farsælu búi í 55 ár þar af 50 ár á Fremra-Hálsi, er okkur efst í huga þakklæti til þeirra fyrir að fá að njóta samvista við þau og fyrir allt það sem þau kenndu okkur og við vonandi höfum vit á að hafa ávallt í hávegum. Sigtryggur Jónsson. Óli Tynes. Karl Grönvold fv. lögregluvarðstjóri Fæddur 24. október 1915. Dáinn 23. janúar 1980. Hinn 31. janúar síðastliðinn var til moldar borinn Karl Grönvold, fyrrverandi lögregluvarðstjóri. Föður sinn missti Karl þegar hann var á þriðja ári, en móðir hans er enn á lífi. Nokkrum árum seinna giftist móðir hans Antoni Jónssyni frá Arnarnesi. Fluttist hún þá norður til Akureyrar með börn sín Karl og Stellu, en Stella lést árið 1977. Á Akureyri dvaldist Karl sín bernsku- og æskuár. Þar eignaðist hann eina hálfsystur, Helgu, sem látin er fyrir mörgum árum. Frú Margrét hefir orðið fyrir þeirri sáru og þungbæru reynslu að sjá á bak öllum börnum sínum yfir móðuna miklu. Eftir að fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur stundaði Karl nám í gagnfræðaskóla og síðan í Versl- unarskóla íslands. 24 ára gamall hóf hann störf hjá lögreglunni í Reykjavík og starfaði þar til ársins 1974, fyrst við almenn lögreglustörf, síðan sem varð- stjóri. Eftir að Karl lét af störfum hjá lögreglunni vann hann við vestur-þýska sendiráðið til dauða- dags. Arið 1944 kvæntist Karl eftirlif- andi konu sinni Rögnu Ragnars, dóttur Ragnars Ólafssonar stór- kaupmanns á Akureyri, ágætri konu. Börn þeirra eru Gústaf, búsettur á ísafirði, kona hans er Júlíana Pálsdóttir; Magnús, ókvæntur, búsettur í Reykjavík; Guðrún, gift Preben Petersen, búsett í Danmörku; og Ragnar, heitbundinn Katrínu Theódórs- dóttur, búsettur hér í borg. Karl var góður heimilisfaðir og mjög heimakær, fór sjaldan á mannamót og undi sér best á hlýlegu heimili þeirra hjóna að Brávallagötu 10. Hann var hlé- drægur og ekki allra, en undir þeirri skel sem hann alla jafna bar sló viðkvæmt hjarta. Það sýndi sig best er sorg eða veikindi knúðu dyra hjá frændum og vinum þá var Karl fyrstur manna til að rétta huggunar- og hjálparhendur þeim sem um sárt áttu að binda. — Sjálfur hafði hann ekki gegnið heill til skógar undanfarin ár, en eftir skurðaðgerð sem gerð var á Minning: Guðríður Gísladótt ir frá Seglbúðum Fædd 25. október 1895. Dáin 14. janúar 1980. Guðríður Gísladóttir var fædd í Eystra-Hrauni í Landbroti 25. október árið 1895. Foreldrar henn- ar voru hjónin Gísli Þorkelsson frá Eystra-Hrauni og kona hans Kristín Þórarinsdóttir frá Þykkvabæ. Voru þau hjönin systk- inabörn, þar sem afi þeirra beggja var Magnús Jónsson, Magnússon- ar á Kirkjubæjarklaustri. Tveggja ára gömul var Guðríður tekin í fóstur af hjónunum Gróu Þorgilsdóttur og Jóni Ólafssyni, sem þá tóku við búskap í Eystra- Hrauni og dvaldi hún hjá þeim næstu sjö árin, þangað til Jón andaðist og Gróa lætur af búskap. Þá fer Guðríður að Seglbúðum til föðurbróður síns Jóns Þorkels- sonar og konu hans Ólafar Jóns- dóttur. Jón andaðist tveimur árum síðar, en Ólöf heldur áfram bú- skap með börnum sínum. í Segl- búðum elst Guðríður upp með frændsystkinum sínum og er þar til fullorðins ára. Þá fer hún í vinnumennski. og dvelur m.a. hjá móður sinni, sem þá býr á Ketils- stöðum í Mýrdal hjá Gísla Þórðar- syni bróður sínum. Auk Guðríðar eignuðust þau Kristín og Gísli Þorkelsson tvö önnur börn, Þórarinn sem lézt á þrítugs aldri og var þá sárt saknað af öllum sem til þekktu sakir mannkosta hans. Og Mörtu, sem lifir systur sína og hefur dvalið á Blindraheimilinu hér í Reykjavík síðustu árin. I byrjun árs 1922 verða þátta- skil í ævi Guðríðar, þegar hún yfirgefur æskustöðvar sínar og flyzt norður í Þingeyjarsýslu, en faðir hennar hafði þá lengi búið norður á Tjörnesi á nýbýli, sem hann byggði með öðrum og nefndi Árbæ. Bjó hann þar með Sigríði, systur Kristínar og eignuðust þau einn son, Gísla, sem kunnur var fyrir sitt einstæða minni. Gísli lauk meistaraprófi í íslenzkum fræðum frá Háskólanum vorið 1934. Hann vann síðan við þing- skriftir og varð svo starfsmaður Alþýðubókasafnsins. Gísli lézt fyrir aldur fram árið 1941, 34 ára að aldri. Guðríður naut ekki lengi sam- vista við föður sinn norður í Þingeyjarsýslu. Hann veiktist skyndilega af lungnabólgu skömmu eftir að Guðríður kom norður og lézt eftir erfiða legu 28. febrúar 1922 tæplega sextugur að aldri. En næstu níu árin er Guðríður á ýmsum stöðum í Þing- honum síðastliðið haust stóðu vonir til að heilsan batnaði og hann hafði nýlega hafið störf að nýju. En kallið kom óvænt, hann hné niður að kvöldi hins 23. janúar síðastliðinn og vaknaði ekki aftur til meðvitundar í þessum heimi. Mikill harmur er kveðinn að ástvinum við óvænt fráfall hans, en ég hygg að Karl hefði sjálfur kosið slíkan viðskilnað, að falla með reisn eins og hann lifði. Eg bið Guð að styrkja konu hans, börn og aldraða móður í sorg þeirra og blessa þeim minn- inguna um góðan dreng. Frændkona eyjarsýslu, m.a. á Húsavík, Hömr- um í Reykjadal og Gautlöndum 1 Mývatnssveit. Kynntist Guðriður þar mörgu fólki, sem hún reyndi síðan að fylgjast með. Kom þar glöggt í ljós minni hennar á menn og málefni. Rifjaði hún síðar gjarnan upp ýmsar frásagnir frá dvöl sinni á þessum stöðum og fór með einhverjar af hinum fjöl- mörgu lausavísum hagyrðinga Þingeyinga. En æskustöðvarnar gleymdust ekki og þangað leitaði hugurinn. Árið 1931 hverfur Guðríður að norðan og flyzt að Seglbúðum. Á 50 ár voru liðin hinn 1. febrúar sl. frá stofnun Kvenfélagasam- bands íslands. Tildrög stofnunar þess var fyrst og fremst brennandi áhugi kvenna á bættri hússtjórnar- fræðslu í landinu. Síðar hefur starísvettvangur sambandsins og félaganna, sem það mynda sífellt orðið víðtækari, en þungamiðjan jafnan sú. að vinna að heili heimila og fjölskyldu og efla samstöðu kvenna. Sambandið var stofnað með tilstyrk Búnaðarfélags íslands, sem alllengi hafði starfrækt nám- skeið í hússtjórnarfræðum. Var fyrirhugað að K.í. ræki hliðstæða ráðunautaþjónustu í heimilis- fræðum og Búnaðarfélagið rækti fyrir bændur. Fimm félagasamtök stóðu að stofnun K.Í., en ötullega var unnið að stofnun nýrra félaga og héraðs- samband. K.I. er um það frábrugð- ið flestum landssamtökum kven- félaga, að innan þess sameinast almenn kvenfélög, verkakvenna- félög, pólitísk kvenfélög og fagfél- ög kvenna. Nú eru í K.í. 21 héraðssamband og eitt einstakt hún þar síðan heimili til ársins 1976, að hún verður að fara á sjúkrahús í Reykjavík og síðan á Elli- og hjúkrunarheimilið Grund í Reykjavík, þar sem hún dvelur þangað til hún andast 14. janúar s.l. Á þessum 45 árum í Seglbúðum var vinna hennar einkum bundinn við skepnurnar og fylgdist hún með þeim af mikilli nákvæmni og var ákaflega annt um hag heimil- isins. En þrátt fyrir það að Guðríður fylgdist svo vel með öllu, sem fram fór á heimilinu, þá var hugurinn ekki eingöngu bundinn við það. Hún vildi einnig vita hvað fram fór utan heimilisins. Hlustaði vel á það sem sagt var í útvarpi, og las bæði blöð og bækur. Hafði hún ánægju af að miðla öðrum af því sem hún fræddist um. Minni sínu hélt hún til hinstu stundar, enda þótt sjóndepra hindraði nokkuð lestur síðustu árin. Það var Guðríði mikið lán, að þegar hún kemur á Grund, þá fær hún fyrir herbergisfélaga Guð- rúnu Andrésdóttur, sem alltaf var boðin og búin til að aðstoða Guðríði og gera henni lífið léttara. Skulu Guðrúnu færðar þakkir fyrir umönnun hennar og þá hlýju sem hún skapaði í hinu sólríka herbergi, sem var dvalarstaður þeirra á Minni-Grund þessi ár. Það er ómetanlegt að mæta slíku viðmóti, þegar fótur stirðnar og þrekið dvín. Nú að leiðarlokum eru Guðríði fyrir hönd frændfólks og fjöl- skyldunnar í Seglbúðum færðar þakkir fyrir störfin, sem hún vann af mikilli árvekni og samvizku- semi þau 45 ár sem hún dvaldi á Seglbúðaheimilinu. Blessuð sé minning hennar. Margrét Helgadóttir. kvenfélag og félagatala alls um 25 þúsund. K.í. er samnefnari þessa stóra hóps útávið. Það hefur skrifstofu í Reykjavík að Hallveigarstöðum og starfrækir þar Leiðbeiningastöð húsmæðra, gefur út tímaritið Húsfreyjuna fjórum sinnum á ári og fræðslurit um ýmis efni, svo sem manneldi, aðrar greinar heimilisreksturs, þjóðbúninga o.fl. Rekstrarfé sambandsins er ein- göngu ríkisstyrkur, sem ákveðinn er árlega á fjárlögum og fer því eftir geðþótta alþingismanna hvers þeir meta störf kvenna- samtakanna. Eitt er víst að aldrei hafur ræst sá draumur stofnend- anna, að minnst fjórir heimilis- ráðunautar væru stárfandi í land- inu. Fyrsti formaður sambandsins var Ragnhildur Pétursdóttir, Há- teigi og með henni voru í stjórn Guðrún Briem og Guðrún Péturs- dóttir. K.í. mun minnast þessara tímamóta á starfsferli sínum með ráðstefnu í sambandi við for- mannafund í apríl n.k. (Fréttatilkynning frá Kven- félagasambandi Islands) Stjórn og starfsmenn Kvenfélagasambands íslands: í fremri röð: María Pétursdóttir formaður, Sigríður Thorlacius ritstjóri Húsfreyj- unnar. Aftari röð: Sigurveig Sigurðardóttir, varaformaður, Margrét S. Einarsdóttir meðstjórnandi, Sigríður Haraldsdóttir, forstöðumaður Leiðbeiningastöðvar húsmæðra, Guðbjörg Petersen, afgreiðslumaður Húsfreyjunnar, Ingibjörg Bergsveinsdóttir, aðstoðarritstjóri. Kvenfélagasamband Islands 50 ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.