Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980 7 „Rússadindill, seiseijú, mikil ósköp“ í Helgarpóstinum er viötal við Jón Múla Árna- son þul, þar sem hann segir m.a.: „Ég myndi sjáltsagt vera flokkaöur meö Rússadindlum. Ég veit bara ekki hvaö þeir eru margir. Ég var sagður vera steinbarn í leiðara í Morgunblaðinu. Halldór Kiljan var einu sinni að fjalla um það, að þeir sem styddu sjónarmið Sovétríkjanna, gengju með steinbarn í magan- um. Ég geng með svona steinbarn. Rússadindill, seiseijú, mikil ósköp. Ég sannfærist æ betur um þaö, að utanríkis- stefna Sovétríkjanna sé heillavænlegust í þessari veröld. Ef ekki væri þeirra stefna, væri allt logandi í styrjöldum. TT^ aaþvi iðþ»ir Brxður yriu ihald cmsog laðtrinn “„'V,..-. .V ' *.• : hj - mss sísí ■ : '“U. Á L'-'-v :V»-' •'•' Ý-'V-’ • ' BmtimiM'qn'- „Eq qcnq með sidnðarn í maqanun Hvað viðvíkur Afgaist- an, þá var það bara kommúnistastjórn, sem bað um aðstoð ... Og allt þetta um Sak- arov; hann fékk að gapa alveg fram á síðasta dag, þegar hann fór að vera sammála Carter um að flytja Olympíuleikana og hætta viö að selja korn. Svo fékk hann fjögurra herbergja íbúð. Ég vildi að mér væri afhent fjög- urra herbergja íbúð, þó ekki væri nema vestur í bæ.“ Lítil eru geö guma í sambandi viö stjórn- armyndun Gunnars Thoroddsens kemur í raun fátt á óvart með hliðsjón af aðdragandan- um. Sumir segja, að mál- efnasamningurinn hefði getað orðið langtum verri, en þá veröa menn jafnframt að hafa í huga orð Ragnars Arnalds um bandingjann. Það eru ekki öll kurl komin til grafar. Fæstir búast viö, að ekki náist samkomu- lag milli komma og fram- sóknar og eftir það er varla við því að búast, að Gunnar og félagar hans láti mikið á sér kræla. „Meiri vinstri stjórn en margan grun- ar“ ' í Helgarpóstinum er fjallað um, hvers konar ríkisstjórn Gunnar Thor- oddsen hafi nú myndað. Þar segir m.a.: „Af mönnum sem til þekkja er þetta talin verða meiri vinstri stjórn en sú sem mynduö var eftir kosningarnar 1978. Staöreyndin er nefnilega sú, að þeir sem eru lengst til hægri í Alþýðu- flokknum eru lengra í þá átt en þeir sem eru lengst til vinstri í Sjálfstæðis- flokknum, ef hægt er að tala í þessum hugtökum. Gunnar Thoroddsen hef- ur aldrei verið talinn verulegur kapítalisti, og allra sízt verður hann það í þessari stjórn því hann veit að hann veröur að láta Alþýðubandalag og Framsóknarflokk ráöa að mestu ferðinni. Þess vegna verður þetta kannski meiri vinstri stjórn en margan grunar, þótt hún muni ekki blása í herlúöra varðandi brott- för varnarliösins og þess háttar hluti.“ Litil eru geö guma Af ýmsu má marka, að sú niðurstaða Helgar- póstsins sé rétt, að ríkis- stjórn Gunnar og félaga muni veröa „meiri vinstri stjórn en margan grun- ar“. Skipting ráðuneyta segir sína sögu. Fram- sóknarflokkurnn fær 4 ráðherra af 10, en þeir Gunnar & co. og komm- únistar jafnmarga eða þrjá hvor. Þetta segir þó ekki alla sögu. Fram- sóknarflokkurinn fær fimm ráðuneyti, komm- únistar fjögur og Gunnar og félagar hans þrjú. Gunnar talar um, að hann vonist til, að Sjálf- stæð'sflokkurinn komi allur til stuðnings við ríkisstiórnina. Varla upp á þau býtti, sem hann getur nú boðið upp á eða hvað? Nei, sannleikurinn er aö sjálfsögðu sá, aö skipting ráðuneyta og fjöldi ráðherra endur- speglar einungis þá vondu stöðu, sem sjálf- stæðismennirnir í ríkis- •ij-rninni eru í. Og and- ste-ðingarnir, framsókn- armenn og kommúnistar, eru staðráðnir í að nota sér hana til hins ítrasta, — láta þá ekki sleppa úr sjálfheldunni. Líf og land með listaþing Landssamtökin LIF og LAND halda listaþing að Kjarvalsstöðum helgina 16.—17. febrúar nk. Verð- ur blandað saman annars vegar stuttum erindum (10 mínútur) um helstu greinar lista frá ýmsum stjónarhornum og hins vegar skemmtiatriðum ýmissa kunnra lista- manna. Þingið hefst klukkan 10 árdegis báða dagana og stendur til um það bil klukkan fimm eftir hádegi. Eftir hádegi á sunnudeginum verða almennar umræður með pallborðssniði. Þar verður m.a. rætt um það helsta sem kemur fram á þinginu, þ.á.m. um stöðu listar, fjármögnun og listfræðslu. Ýmsir innlendir listamenn munu skemmta á þinginu þar á meðal Manuela Wiesler og Helga Ingólfsdóttir, Þursaflokkurinn, nýlistamenn, leikararnir Þórunn Sigurðardóttir og Arnar Jónsson. Ronald Símonarson opnar í dag málverkasýningu í Ásmundarsal, Skólavörðuholti. Sýningin verður opin 9.-24. febr. daglega milli kl. 2—10. Útgerðarmenn — skipstjórar athugiö: Eigum til afgreiðslu strax FASSI-skipakrana, gerö M6, lyftigeta 15 tonnmetrar. Hafnarfirði, símar 54315 — 50236. Útboð — jarðvinna Tilboð óskast í grunngröft og sprengingu fyrir húsi Landsbanka íslands viö Álfabakka, Reykjavík. Útboðsgögn eru afhent í skipulagsdeild Landsbankans, Laugavegi 7, IV. hæö, gegn skilatryggingu að upphæð kr. 20.000.-. Tilboö veröa opnuð á skrifstofu skipulagsdeildar aö Laugavegi 7, föstudaginn 22. febrúar kl. 11.00. Landsbanki íslands Eigendaskipti Eigendaskipti hafa orðiö a Hargreiðslustofunni Gígju, Suðurveri. Sólveig Leifsdóttir, nýbakaöur Noröurlandameistari í klippingu og blæstri hefur tekið við stofunni. Guörún Þorvaröardóttir Rauðskjóttur hestur tapaöist frá Ragnheiðarstöðum í Flóa merktur F-173 á vinstri síðu. Finnandi hringi í síma 91-86101. Verkamannabústaðir í Hólahverfi Reykjavík Fjölbýlishúsið aö Suðurhólum 28, veröur til sýnis laugardaginn 9. febr. og sunnudaginn 10. febr. milli kl. 13.00 og 21.00. Stjórn verkamannabústaða. VIÐTALSTIMI Alþingismanna og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Laugardaginn 9. febrúar veröa til viðtals kl. 2—4 Birgir ísleifur Gunnarsson borg- arfulltrúi og Elín Pálmadóttir varaborgar- fulltrúi. Birgir á sæti í borgarráði, hafnarstjórn, stjórn Landsvirkjunar, Lífeyrissjóði starfs- manna Reykjavíkurborgar og skipulags- nefnd. Elín á sæti í fræðsluráði og umhverfismálaráði. 10100 fltagmiMafeift

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.