Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980 Kambódiuhljómleik- arnir eru í dag í DAG klukkan 14 hefjast í Austurbæjarbíói í Reykjavík hljómleikar sem haldnir eru til styrktar bágstöddum í Kambó- díu. Allir sem fram koma hafa ííefið vinnu sína svo og starfs- menn bíósins og það hefur gefið eftir húsaleiguna. Þeir tónlistarmenn sem fram koma eru Snillingarnir, Fræbbbl- arnir, Kjarabót og ný hljómsveit, sem sérstaklega er mynduð fyrir þessa hljómleika og skipa hana Egill Ólafsson, Tómas Tómasson, Ásgeir Óskarsson, Karl Sighvats- son, Björgvin Gíslason og Rúnar Vilbergsson. Þá koma fram gestir frá Alþýðuleikhúsinu. Kynnir er Guðmundur Einarsson fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar. Áherzla var lögð á það í upphafi að bjóða upp á dagskrá sem væri ný, fersk og fjölbreytt, segir m.a. í frétt um hljómleikana. Stríðir gegn hugsjón OL að leikarnir fari fram í einræðisríki - segir Þorgeir Pálsson, formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands í GÆR birtist í Mbl. yfirlýsing Stúdentaráðs Háskóla íslands, þar sem ráðið mótmælir fyrir- huguðum Ólympíuleikum í Moskvu i sumar. Benti ráðið á. að óeðlilegt hljóti að teljast að ól- ympíuleikar fari fram í einræð- isriki og bendir á reynsluna af Ólympíuleikunum í Berlín og heimsmeistarakeppnina í knatt- spyrnu í Argentínu. Ráðið leggur til að íslendingar hætti við fyrir- hugaða þátttöku i ólympíuleik- unum í Moskvu. „Þessi tillaga ráðsins var sam- þykkt fyrir innrásina í Afganistan og er í raun óháð þeim atburði. Stúdentaráð hefur gert sérstaka ályktun um innrásina," sagði Þorgeir Pálsson, formaður Stúd- entaráðs, í viðtali við blaðamann Mbl. „Ólympíuhugsjónin er í anda friðar og bræðralags og við teljum það stríða gegn þeirri hugsjón að Ólympíuleikar fari fram í einræð- isríki. Því leggjum við til að Islendingar hætti við fyrirhugaða þátttöku í Ólympíuleikunum. Bílasýning í dag og á morgun BIFREIÐAR & landbúnaðarvél- ar h.f. halda bílasýningu að Suðurlandsbraut 14, laugardag- inn 9. og sunnudaginn 10. febrúar n.k. frá kl. 2—6 e.h. Fyrsta Lada-bifreiðin kom til íslands árið 1972. Síðan hafa þær haslað sér völl á íslandi og hafa úndanfarin tvö ár verið mest seldu bifreiðarnar. Á bílasýningunni í dag og á morgun, sunnudag, verða sýndar nýjustu árgerðirnar af Lada. Á meðan menn spjalla við sölumenn er þeim boðið upp á kaffisopa. Eldvarnir kynntar í Hafnarfirði JC HAFNARFJÖRÐUR gengst fyrir sölu á reykskynjurum og slökkvitækjum um næstu helgi, 9. og 10. febrúar, og munu félagar ganga í hús bæjarins og bjóða þessi tæki til sölu. Jafnframt verður félagið með útsölu að Reykjavíkurvegi 64 frá kl. 10—17 sömu daga. Dreift hefur verið veggspjaldi í alla skóla og dagvistunarstofnanir i bænum. Bæklingi með upplýsing- um um eidvarnir verður dreift í öll hús í bænum. Gæzluvarð- hald fram- lengt GÆZLUVARÐHALD tveggja ungra manna, sem setið hafa inni vegna rannsóknar fíkniefnamáls, var í gær framlengt um 15 daga. Þeir voru þá búnir að sitja inni í 15 daga. í sambandi við rannsókn málsins var lagt hald á rúmlega eitt kíló af hassi að söluverðmæti um 10 milljónir króna. INNLEN-T Hluti keppenda i maraþondanskeppninni taka nokkur æfingarspor á dansgólfi Klúbbsins. Ljósm.RAX Dansað þar til eng- inn stendur uppi Maraþondanskeppni Klúbbs- ins og Útsýnar 1980 hefst í Veitingahúsinu Klúbbnum á morgun, sunnudaginn 10. febrúar. Keppendur munu hef ja dansinn kl. 5 að sunnudags- morgni og dansa viðstöðulaust þar til siðasti keppandinn hefur gefist upp og mun sá hinn sami teljast sigurvegari keppninnar. Klúbburinn mun hins vegar verða opnaður fyrir almenning kl. 13 á sunnudag og gefst fólki þá tækifæri á að sjá hverju fram vindur í keppninni. Síðasta Maraþonkeppni stóð í 13 tíma en ekki fékkst vilyrði yfirvalda til að halda keppninni áfram eftir dansleik á sunnu- dagskvöld. Nú hefur leyfið hins vegar fengist. Þrenn verðlaun verða veitt til þriggja keppenda en auk þess fá allir þátttakendurnir viðurkenn- ingu. Fyrstu verðlaun verða, auk bikars frá Klúbbnum, ferðavinn- ingur frá Ferðaskrifstofunni Út- sýn að upphæð 300.000 krónur. Þeir sem verða í 2. og 3. sæti fá einnig bikara ásamt verðlaunum frá Gilbert Ó. Guðjónssyni úr- smið en það er vöruúttekt að upphæð 100.000. Þá mun versl- unin Stúdíó veita 100.000 króna vöruúttekt í verðlaun. Formaður dómnefndar verður Heiðar Ástvaldsson en meðdóm- endur verða Örn Guðmundsson, Bára Magnúsdóttir, Hermann Ragnars og Sigvaldi Hjálmars- son. Sérstök dagskrá mun verða í Klúbbnum á sunnudaginn vegna danskeppninnar. Munu þar skemmta m.a. Katla María, dansflokkar frá Heiðari Ást- valdssyni og JBS og hljómsveitin Exodus. Þá mun þar verða diskó- tek og tískusýning gestahapp- drætti o.fl. Biblíudagurinn á morgun: Ný prentun Biblíunnar væntanleg innan árs HINN ÁRLEGI Bibliudagur er á morgun, sunnudag og verður hans minnst í kirkjum landsins og ársfundur Hins íslenzka bibl- íufélags verður haldinn í Safnað- arheimili Árbæjarsóknar að lok- inni messu er hefst kl. 14. Er þennan dag tekið á móti gjöfum til starfsemi félagsins svo og á samkomum kristilegra félaga. Nú er á lokastigi ný prentun Biblíunnar og hefur meginhluti Gamla testamentisins þegar verið settur og er að hefjast setning Nýja testamentisins. Er þess vænst að nýja Biblían komi á markað innan árs, en að verkinu stendur Hið ísl. biblíufélag. Hefur þýðingarnefnd, er komið var á laggirnar árið 1964, unnið að undirbúningi prentunar Nýja testamentisins ásamt starfshópi guðfræðistúdenta. Guðspjöllin og postulasagan verða prentuð í nýrri þýðingu, auk þess sem all- verulegar breytingar hafa verið gerðar á núverandi texta annarra rita Nýja testamentisins, en sá texti var settur árið 1912. Dr. Þórir Kr. Þórðarson hefur stýrt þeim hópi er bjó Gamla testamentið til prentunar og voru gerðar milli 4 og 5 þúsund texta- breytingar. Helztu breytingar eru fólgnar í að sett hafa verið ný greinarskil, köflum skipt eftir efni og settar millifyrirsagnir, les- málssíðan er nú prentuð í tveimur dálkum í stað eins áður og staf- setning og greinarmerkjasetning færð til nútímahorfs. Þá er tekið upp neðanmálstilvitnanakerfi, BIBLÍUDAGUR1980 sunnudagur lO.febrúar franskt að uppruna, sem auðveld- ar lesandanum að rekja orð og hugmyndir í ýmsum ritum Bibl- íunnar. Hið ísl. biblíufélag er aðili að Sameinuðu biblíufélögunum og hefur fengið þaðan ráðgjöf og tækniaðstoð við undirbúning þess- arar prentunar, en félagið tekur þátt í alþjóðlegu dreifingarstarfi á Biblíunni og er m.a. veitt fé til þýðingar og prentunar Nýja testa- mentisins fyrir Eþíópa. Gídeonfé- lagið á Islandi dreifir árlega um 5000 eintökum Nýja testamentis- ins til skólabarna og ýmissa starfsgreina, en aðventistar og hvítasunnuhreyfingin hafa unnið mikið starf við dreifingu Biblíúnn- ar. Talið er að nú sé Biblían eða hlutar hennar til í um 1.550 þýðingum og var íslenzka þýðing- in hin 23. í röðinni. Úr fréttatilk. Browne teflir fjöltefli í Eyjum Vestmannaeyjum. 8. febrúar. BANDARÍSKI stórmeistarinn Walter Browne teflir í fjöltefli í Vestmannaeyjum á morgun, sunnudag. Teflir hann við allt að 40 keppendur í Alþýðuhúsinu og er ráðgert að fjölteflið hefjist klukkan 20. Browne er 33 ára, margfaldur Bandaríkjameistari og hefur tekið við hlutverki Fischers sem sterkasti skákmaður Bandaríkj- anna. Browne er með um 2600 Elo-skákstig og er stigahæsti skákmaðurinn, sem teflt hefur í Vestmannaeyjum, en á síðustu árum hafa teflt fjöltefli í Eyjum þeir Timman, Lombardy og Smejkal og höfðu þeir um 2550 stig. Browne varð sigurvegari á síðasta Reykjavíkurskákmóti 1978 og verður meðal þátttakenda á Reykjavíkurskákmótinu, sem hefst 23. febrúar. — Fréttaritari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.