Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiðslunni er 83033 Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980 Ráðuneyti Gunnars Thorodd- sens tók við völdum í gær KÍKISSTJÓRN Gunnars Thor- oddsens tók við voldum í gær og tóku ráðherrarnir 10 við embætti á ríkisráðsfundi klukkan 15. Kiukkan 11 í Kífrmorgun var síðasti ríkisráðsfundur ráðuneyt- is Benedikts Grondals, sem for- seti íslands veitti lausn í gær. Ráðherrarnir héldu svo til ráðu- neytanna frá Bessastöðum eftir ríkisráðsfund nýju ríkisstjórnar- innar og tóku við lyklavöldum af fyrirrennurum sínum í ráðherra- stólunum. Hið nýja ráðuneyti Gunnars Thoroddsens er þannig skipað, að Gunnar er forsætisráðherra, Frið- jón Þórðarson er dómsmálaráð- herra, Pálmi Jónsson landbúnað- arráðherra, Steingrímur Her- inannsson sjávarútvegs- og sam- gönguráðherra, Ólafur Jóhannes- son utanríkisráðherra, Tómas Arnason viðskiptaráðherra, Ingv- ar Gíslason menntamálaráðherra, Ragnar Arnalds fjármáiaráð- herra, Hjörleifur Guttormsson iðnaðar- og orkuráðherra og Svav- ar Gestsson er félags-, heilbrigðis- og tryggingaráðherra. Sjá fréttir af stjórnarskipt- unum i gær á bls. 23, 24 og 25. Ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens með forseta íslands á Bessastöðum í gær. Ljósm. Mbl.: ól.K.M. Sjónvarpið tekur upp fréttaþjónustu fyrir heyrnardaufa FUNDUR útvarpsráðs samþykkti í gær að beina því til sjónvarpsins að taka upp fréttaþjónustu við heyrn- ardaufa. Yrði þá brugðið á skjáinn stuttum texta þar sem dregnar væru saman helztu fréttir dagsins. Er ætlunin að sýna texta þessa eftir fréttatíma á kvóldin. Að sögn Péturs Guðfinnsonar framkvæmdastjóra sjónvarpsins er ekki hægt að koma því við að sýna texta þessa strax eftir fréttatímann þar sem nokkurn tíma tæki að útbúa þá og fréttir væru það seint tilbúnar, en ætlunin væri að bregða þeim upp í nokkrar mínútur milli kl. 21 og 21:30 á kvöldin, eftir 1. eða 2. dagskrárlið eftir fréttir. Ekki kvaðst Pétur geta sagt hvenær þessi þjón- usta yrði tekin upp, en þess væri að vænta bráðlega. Fundur heimspekideildar í gær: Tillaga um nýja dómnef nd f elld IIEIMSPEKIDEILD Háskóla íslands kom saman til fundar í gær til að ræða bréf Vilmundar Gylfasonar fyrrum menntamálaráðherra, er hann sendi deildinni í fyrri viku. í bréfinu fór ráðherrann þess á leit við deildina. að hún fjallaói á ný um umsóknir um prófessorsembætti í almennri sagnfræði. auk þess sem ráðherra óskaði þess að fá vandlega rökstudda niðurstöðu deildarinnar í málinu. Umsækjendur þeir er hér um ræðir eru þrír, þeir dr. Ingi Sigurðs- son, dr. Sveinbjörn Rafnsson og dr. Þór Whitehead, og kemur fram í bréfi Vilmundar að hann telur um- fjöllun dómnefndar um þá álls ekki gallalausa, auk þess sem sérálit formanns hennar sé umbúðalaus áróður með einum umsækjenda gegn öðrum. Dómnefnd skipuðu þeir Björn Þorsteinsson formaður, Sig- urður Líndal og Heimir Þorleifsson. Á fundi heimspekideilar í gær var samþykkt að fallast ekki á tilmæli ráðherra um að endurskoða málið, heldur var skorað á hann að afgreiða málið á grundvelli fyrri niðurstöðu atkvæðagreiðslu. Margar tillögur komu fram á fundinum og fóru margar atkvæðagreiðslur fram. Meðal annars var borin undir at- kvæði tillaga frá Arnðri Hannibals- syni og Jóni Friðjónssyni um að skipuð yrði ný dómnefnd, en sú tillaga var felld, og einnig aðrar tillögur er skemmra gengu. Tillagan sem að lokum var borin upp og samþykkt, um að skora á ráðherra að afgreiða málið á grundvelli fyrri niðurstöðu var borin upp af forseta heimspekideilar, Alan Boucher, eftir því sem Morgunblaðið hefur fregnað. Hvorki Alan Boucher né Arnór Hannibalsson vildu skýra neitt frá fundinum í gær er Morgunblaðið hafði samband við þá, en auk þess sem fyrrnefndar tillögur og at- kvæðagreiðslur voru teknar fyrir mun Aían hafa Iesið bréf sitt til menntamálaráðherra, þar sem hann mun meðal annars hafa gagnrýnt vinnubrögð formanns dómnefndar- innar, Björns Þorsteinssonar. Morg- unblaðinu hefur hins vegar ekki tekist að fá það bréf til birtingar. Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks sjálfstæðismanna: Kaflinn um utan- ríkismál verstur „ÞESSI málefnasamningur ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen er dæmi- gert vinstri stjórnar plagg,“ sagði Ólafur G. Einarsson. formaður þingflokks sjálfstæðismanna í samtali við Morgunblaðið i gær. „Þar er ekki tekið á neinu vandamáli. heldur lofað að gera allt fyrir alla og það á ekkert að kosta. Málefnasamningurinn er samansafn yfirlýsinga, sem allir geta tekið undir. en þess er ekki getið á hvern hátt eigi að afla fjár til þess að framkva’ma hann. Það bendir ekkert til þess. að verðbólgunni verði náð niður eftir þeim leiðum. sem ncfndar eru.“ „Þetta plagg úir og grúir allt af orðum eins og „athugað verði", „stefnt skal að“, „fylgzt verði með“, „lögð er áherzla á“ og „ráðstafanir verði gerðar", þetta má finna í hvcrri málsgrein." sagði ólafur. „Mér vitanlega hafa aðilar samningsins ekki látið reikna út. hvað hann kostar, sé hann framkvæmdur. Það sýnist augljóst. að sé það gert, muni aukning ríkisútgjalda eiga sér stað svp nemur tugum milijarða króna. Ég held að ég geti fullyrt, að aukning ríkisútgjalda sé yfir 30 milljarðar króna og virðist eiga að gera þctta án þess að tekjuöflun sé tryggð eða tilgreind eða útgjalda- lækkun á móti. Ríkisútgjaldakafli málefnasamningsins þýðir þó stór- auknar skattaálögur, verði hann framkvæmdur. eða söfnun eyðslu- skulda erlendis. halla á ríkissjóði og seðlaprentun. betta myndi allt fylgja." „Um einstaka kafla málefna- samningsins er það að segja, að verðiagsmálakaflinn er frá fram- sóknarmönnum og svo er ennfrem- ur um landbúnaðarkaflann að segja. Kaflinn um stjórnarskrána er ákaflega rýr og í kaflanum um orkumál gætir mjög mikilla áhrifa úr stefnu Alþýðubandalagsins, þótt reynt sé með loðnu orðalagi að komast í kringum meininguna. Þar er sérstaklega stefnt að einu fyrirtæki. sem alþýðubandalags- mcnn hafa lagt áherzlu á, stækk- aðri Landsvirkjun, sem við sjálf- stæðismenn höfum ávallt óttast að gæti orðið að mikilli ófrcskju í þjóðfélaginu." „Loks vil ég geta kaflans um utanríkismál." sagði ólafur G. Einarsson, „og er hann verstur fyrir þær sakir, að þar cr ekki minnst á ákveðna hluti. Hins vegar er þar blandað inn alls kostar óskyldum atriðum. eins og t.d. ákvæðum um öflugt átak fil at- vinnuuppbyggingar á Suðurnesj- um. Þetta á alls ekki heima i kafla um utanrikismál, nema maður leyfi sér að álykta sem svo, að það tengist því, scm ekki er talað um. þ.e.a.s. varnarliðinu. Kann að vcra, að það sé þetta atriði, sem Ragnar Arnalds talaði um á mið- stjórnarfundi Alþýðubandalags- ins, þegar hann sagði. að Gunnar Thoroddsen væri einangraður og því ættu alþýðubandalagsmenn auðvelt mcð að þrýsta á, ekki þyrfti að hafa slíkt ákvæði í málefnasamningnum. Það myndi nást fram síðar." Flugleiðir: Yfír 5% hækkun millilandafar- gjalda 1. marz HINN 1. marz tekur gildi hækk- un á fargjöldum Flugleiða til Evrópuríkja og tíu dögum síðar á flugleiðum til Bandarikjanna. Hækkunin nemur rúmum 5% og er vegna eldsneytishækkana, en á nýlegum fundi IATA, alþjóða- samtaka flugfélaga, var samþykkt að hækkun flugfargjalda skyldi Ieyfð í hlutfalli við eldsneytis- hækkanir. Almenn sérfargjöld báðar leiðir m.a. til Lundúna er nú kr. 139.100, en verður eftir 1. marz 146.900, til Kaupmannahafnar kr. 162.700, en verður 171.700 og til Osló k'ostar nú kr. 148.200, én verður kr. 156.600. Til New York kostar fargjald nú kr. 158.100 báðar leiðir en verður eftir 10. marz kr. 188.100 og er það nokkru meiri hækkun en á Evrópuleiðum eða um 18%. Könnunarfundur vegna samninga- mála flugliða SÁTTASEMJARI hélt í gær fyrsta könnunarfund sinn með fulltrúum Flugleiða vegna kjaramála flugliða og Flugleiða, en samningar voru lausir frá 1. febr. sl., eins og fram hefur komið í fréttum. Guðlaugur Þorvaldsson sáttasemj- ari ríkisins tjáði Morgunblaðinu í gær að fundurinn í gær hefði verið könnunarfundur með fulltrúum Flugleiða. Myndi hann eiga sams konar könnunarfundi með fulltrúum Félags Loftleiðaflugmanna og Félags ísl. atvinnuflugmanna á mánudag og þriðjudag, en um eiginlega samninga- fundi væri hins vegar ekki að ræða ennþá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.