Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980 35 Hvíti hesturinn Saga frá Garðaríki Eitt sinn réð sá konungur fyrir Garðaríki, sem Ermen- rekur hét. Hann hafði á yngri árum verið hinn mesti herkon- ungur, legið mörg sumur í hernaði og unnið þannig lönd og borgir og gert íbúa þeirra skattskylda sér. Var því ríki hans víðlent með mörgum undirkonung^m og lénsherr- um. Þá staðfesti hann ráð sitt, fékk sér drottningu af dýrum ættum, settist svo um kyrrt og stjórnaði ríki sínu af röggsemi og skörungsskap. Þau konungshjónin áttu börn, en ekki er getið nafna þeirra nema elstu dótturinnar, sem Sesselja hét og var hún að verða gjafvaxta, er þessi saga hefst. Þar sem Ermenrekur kon- ungur hafði undir sinni stjórn marga þjóðfulltrúa skatt- skylda sér, var það regla hans að fara á hverju sumri sjálfur að heimta inn skatta og skyldueyri hjá þessum undir- mönnum sínum. Eitt vor sem oftar hafði hann farið þessara erinda, og var búinn að afljúka allri skattheimtu og sigldur heim á leið með hinn dýrmæta, gyllta leir frá skattgreiðendum. Þá var það einn dag að sló yfir svo svartri þoku, að hvergi sást. Myrkur þetta hélst í margar vikur og hvergi rofaði til. Konungurinn og menn hans voru að hrekjast um sjóinn á skipum sínum án þess að sjá eða verða varir við land. Var loks mjög farið að ganga á matarforða þeirra. Segir konungurinn þá við menn sína: „Þessi þoka getur ekki verið eðlileg. Það hljóta að vera gerningar eða sjónhverfingar, sem við erum beittir. Er því best að við vörpum akkerum hér og sjáum svo, hvað við tekur". Þessu boði konungs var án tafar hlýtt. Reyndist þá dýpið hið sama og var á skipalægi hans heima. Litlu eftir að búið var að varpa legufærum, var konungur staddur uppi á þilf- ari. Sá hann þá kominn að skipshliðinni nökkva einn og úr honum kom upp á skipið grá ófreskja í mannsmynd, sem strax ávarpaði konung með nafni og sagði: „Þessi þoka er af mínum völdum, og ég hef mælt svo um, að hana birti ekki upp fyrir þínum augum, fyrr en þú hefur lofað að gefa mér Sess- elju dóttur þína og látir færa mér hana út á sléttuna hjá skóginum, þar sem kofi smala þinna stendur, áður en þrjár vikur eru liðnar.“ Konungurinn svarar: „Eg skal borga þér fé eins og þú tiltekur og ég hef ráð á, ef þú getur látið þokuna hverfa, en dóttur mína á ég ekki með að gefa án hennar vitundar“. Bergbúinn mælti þá: „Nei! Ég tek ekki fjármuni, gull, silfur eða annað fyrir að láta þokuna víkja, en aðeins ef þú lofar að gefa mér elstu dóttur þína og lætur færa hana á þann stað, sem ég hef tiltekið, þá skal þokan hverfa. — En viljir þú ekki samþykkja þetta, þá læt ég þokuna vera og tek dóttur þína án þíns leyfis“. Konungurinn sá þá, að ekki mundi annað tjóa en. að lofa því, sem bergbúinn setti upp, en sagði samt: „Eru engir þeir kostir til, sem þú vilt veita mér að inna af hendi, sem frelsar dóttur mína frá að lenda í þínum höndum?" Hinn svaraði: „Við berg- búarnir erum alltaf sann- gjarnir. Skal þér því veitt bæn þín. Ef þú sjálfur eða maður, sem þú færð til, getur varið dóttur þína fyrir mér og mínu liði í þrjá daga eftir þann dag, sem ég hef tiltekið að þú færðir hana á nefndan stað, þá skal hún frí og frjáls frá mér, en það getur enginn frelsáð hana — því máttu trúa“. Það fór fyrir konungi eins og manni þeini, sem er að drukkna, en sér hálmstrá og grípur um það í þeirri von, að það haldi sér uppi. Hann lofaði því bergbúanum að gefa honum Sesselju og láta færa hana á hinn tiltekna stað. Bergbúinn fór niður í nökkva sinn og reri frá skip- inu. Hvarf þokan þá allt í einu. Sáu skipsmenn þá, að skip þeirra lá á sínu rétta lægi í höfninni. Urðu þeir því fegnir mjög að vera lausir við mis- sýningar og gerningaþokuna. Konungurir.n hélt svo til hallar sinnar og fagnaði fólk hans honum vel, en hann var ærið daufur, svo að kona hans, börn og annað fólk stórfurð- aði. Sagði konungur þá frá kostum þeim, sem hann hafði orðið að ganga að hjá bergris- anum, að g efa honum elstu dóttur sína. Hann lofaði að gifta þeim manni dóttur sína og gefa honum hálft ríki sitt, sem frelsaði Sesselju sína frá návist bergbúans. En enginn varð við þeim tilmælum. Framhald á næstu Barna- og fjölskyldusíðu. Teikning: Sigríður Vilhjálmsdóttir, 11 ára, Langholtsskóla. Námskynningar í skólum BLAÐINU heíur borist eftirfar- andi bréf Nemendafélags Flens- borgarskóla til menntamálaráð- herra: Ástæðan fyrir bréfi þessu er sú að Nemendafélagi Flensborgar- skóla hefur borist bréf frá menntamálanefnd Stúdentaráðs Háskóla íslands (SHÍ), þar sem nefndin tilkynnir okkur að hún sjái sér ekki fært að halda sínu árlegu kynningu á námi því sem til boða stendur í Háskóla Islands. Orsökin er sú að þér tölduð ekki ástæðu til að greiða að fullu kostnaðinn við kynninguna (3,1 milljón kr.), heldur létuð þér nægja að bjóða styrk að upphæð kr. 500 þúsund. Átti menntamála- nefnd SHI síðan að greiða afgang- inn. I þessu sambandi viljum við benda á að áætlaður kostnaður, 3,1 milljón kr., er eingöngu til að greiða nauðsynlegan ferða-, pappírs-, síma- og fjölritunar- kostnað. Víst er að aðhald og sparnaður er nauðsynlegur í rikisrekstrinum en hins vegár teljum við þennan niðurskurð vera fremur hæpinn sparnað. Eins og fyrr segir hefur SHÍ gengist fyrir námskynningu fyrir menntamálaráðuneytið í mennta- og fjölbrautaskólum landsins. Hafa þessar kynningar verið mjög vel sóttar og eru allir sem notið hafa sammála um nauðsyn þeirra. Hinn óbeini sparnaður sem hlýst af þessari kynningu ætti að vera ljós. I staðinn fyrir að nemi sem hefur nám í HI hafi litla eða enga hugmynd um það sem bíður hans í skólanum, gæti hann orðið sér úti um dýrmæta vitneskju um þær greinar sem í boði eru í HÍ. Þannig gæti hann sparað bæði ríkinu og sjálfum sér mikinn tíma og stórar fjárhæðir. skóla, viljum því leyfa okkur að fara fram á það við yður að þér endurskoðið afstöðu yðar í þessu máli hið fyrsta og gerið okkur kleift að njóta námskynningar menntamálanefndar SHÍ, þetta ár sem önnur. Virðingarfyllst, f.h. Nemendafélags Flensborgar- skóla, Eyjólfur Sigurðsson, ritari. Við, nemendur í Flenborgar- Halldór Laxdal eigandi Radióbúðarinnar afhenti flóttamannafjölsk- yldunum á íslandi þrjú svart-hvít sjónvarpstæki í sl. mánuði. Fjölskyldurnar hafa nú dreifst um Reykjavík og búa á þremur stöðum. A myndinni sést Þór Þorbjörnsson verslunarstjóri í Radiobúðinni afhenda Wong Minh Quang (t.v.) og Pham Le Hang tækin. Matseóill helgarinnar LAUGARDAGUR Kvöldveröur. Rækjukokkteill meö ristuöu brauði. Roast beef „Bernaise" meö rjómasoðnum sveppum, bökuðum kartöflum og smjöruðum maís. Rjómaís „Creme de Mente“. SUNNUDAGUR Hádegisveröur. Kræklingasúpa meö þeyttum rjóma. Rauövínsmarineraö lambakjöt á teini, meö Parísarkartöflum og piparsósu. Rjómaís meö frönskum kirsuberjum. Kvöldveröur Esjugratín, blandaöir sjávarréttir í brauökollum. Körfukjúklingar aö amerískum hætti („Southern fried chicken") Marineraðir ferskir ávextir „Grand Marnier". Bragöiö hinn vinsæia „salat-bar“ Okeypis sérréttir fyrir börn 10 ára og yngri Munið barnahornið, — það er vinsæit hjá yngstu gestunum. Jónas Þórir leikur í kvöld frá klukkan 6—9 og á morgun, sunnudag frá 12—2 og 6—9. Þaö er ódýrt aö borða hjá okkur Verið velkomin O

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.