Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRUAR 1980 33 báti. Kirchner sagði okkur til dæmis að hann sendi börn sín iðulega á sýningar Grips-leikhúss- ins og teldi þau hafa mjög gott af þeim. Það þurfti enginn að efast um að minni lýðræðisbragur væri á heimili mannsins en opinberri embættisfærslu hans. Og Kirchner sagðist nú þrátt fyrir þá gagnrýni, sem fram hefði komið og vissulega ætti öll rétt á sér, vera þeirrar skoðunar að býsna vel hefði tekist að þjóna því háleita markmiði sem opinber leikhúspólitík Vestur-Berlínar stefndi að: að sjá til þess að allir, sem á annað borð kærðu sig um leikhús, ættu kost á því leikhúsi sem þeim félli best. Og hann lét okkur verða vör þess að yfirvöld notuðu engan veginn lýðhyllina sem eina mælikvarðann á rétt- mæti ákveðins leikhúss. Hann talaði mikið um Schaubúhne am Halleschen Ufer, leikhús Peter Steins, en augu umheimsins hafa undanfarin ár fremur beinst að því en öðrum þýskum leikhúsum. Þar hefur sami leikflokkurinn starfað í tíu ár undir forystu Steins og hefur vart nokkurt Berlínarleikhús orðið jafn frægt frá því Berliner Ensemble sló í gegn á sjötta áratugnum. Þetta er flest fremur ungt fólk sem var við nám þegar stúdentaóeirðirnar blossuðu upp árið 1968 og mótað- ist mjög af viðburðum þess tíma. Það er róttækt í skoðunum og sýningar þess og verkefnaval bera vitni gagnrýnni afstöðu til borg- aralegs þjóðfélags. Innan flokks- ins ríkir þannig sterk hugmynda- leg samstaða og viðræðufundur okkar með honum seinna sýndi að þarna láta óbreyttir leikarar sig mjög varða alla stefnu flokksins og þróun, en fela hana ekki alfarið í hendur alvitrar leikhússtjórnar. Þó væri varasamt að tala um „lýðræði" innan þessa leikflokks — þó að sjálfir vildu leikararnir gera sem mest úr völdum sínum — því að engum fær dulist að þarna ríkir upplýst einveldi í bestu merkingu þess orðs. Peter Stein hefur vitaskuld notið þess að starfa með fólki sem trúir á hann og treystir, á sama hít og Brecht gerði á sínum tíma, en þó má fullyrða, að án hans væri leikhúsið ekki til í dag og hefði líklega aldrei orðið til. Ég þekki ekki nákvæmlega tildrög þess að Stein kom ásamt leikurum sínum til Berlínar frá Múnchen í lok síðasta áratugar, e.t.v. hefur andrúmsloft- ið í borginni verið róttækum leikflokki hagstæðara en það sem ríkir sunnar í landinu. Sýning Schaubúhne á Pétri Gaut gerði hana samstundis víðfræga og síðar hafa fjölmargar frábærar sýningar fylgt í kjölfarið, ekki síst á klassískum höfundum og nú síðast á leikritum Botho Strauss. En þó að leikhúsið næði þessari frægð, barðist það lengi vel í bökkum fjárhagslega og það var ekki fyrr en borgaryfirvöld ákváðu að hlaupa undir bagga að afkoma þess var tryggð. Hans Kirchner hafði því ærna ástæðu til að vekja athygli á rausn Berlínarborgar við Schaubúhne, sem var raunar löngu orðin leik- menningarlegt stolt borgarinnar áður en fjármál hennar komust í heila höfn. Leikhúsinu væri ekkert of gott, sagði hann, því að það sæi til þess að Berlínarbúar ættu kost á því allra besta sem leikhús gæti boðið upp á. Hann sagði að borgin hefði því þungar áhyggjur af þeirri óvissu sem ríkir um þessar mundir í málum leikhússins, en Peter Stein hefur talað um að hann hafi nú starfað nógu lengi á sama stað og tími sé kominn til að leita á önnur mið. Aldrei fengum við óyggjandi skýringu á þessum áformum Steins, sem mun ekki hafa verið í borginni um þessar mundir og við hittum því aldrei sjálfan. En við komumst að raun um að bæði listamenn Schau- búhne og ráðamenn leggja hart að honum að vera áfram um kyrrt í Berlín. Borgaryfirvöld hafa þann- ig brugðist vel við umleitunum leikhússins um að finna varanlega lausn á húsnæðismálum þess, en gamla húsnæðið við Hallesches Ufer hefur lengi verið ófullnægj- andi og leikflokkurinn um skeið starfað á tveimur stöðum í borg- inni. Nú hefur borgin ákveðið að byggja yfir leikflokkinn voldugt leikhús, sem á að standa ofarlega við Kurfúrstendamm, aðalgötu Vestur-Berlínar, og þegar er hafin bygging á. Yfirarkitekt leikhúss- ins Dr. Ing. Klaus Wever hélt síðar fyrirlestur fyrir okkur um bygginguna, sem á að verða hið mesta tækniundur og eins marg- breytileg og lipur í meðförum og nútímatækni leyfir. Verður þar hægt að setja á svið sýningar fyrir mikinn fjölda áhorfenda, en einn- ig intímar sýningar fyrir fáa, auk þess sem sviðsrýmið sjálft verður allt hið fullkomnasta. Þannig hyggjast ráðamenn launa og jafn- framt halda í þann leikflokk sem hefur verið ein helsta skrautfjöð- ur Vestur-Berlínar á þessum ára- tug. Sá sem hefur gluggað dálítið í leikhússögu eins og undirritaður kemst þó vart hjá því að heyra í þessum áformum líkt og bergmál fyrri atburða og spyrja sig hvort sagan geti verið að endurtaka sig. í byrjun þessarar aldar var nefni- lega uppi í þessari sömu borg leikstjóri að nafni Max Reinhardt. Hann vann sig upp til æðstu metorða og valda í leikhúsheimi Berlínar og átti manna mestan þátt í að gera hana að háborg evrópskrar leiklistar á þeim árum. Reinhardt var óhemju hugmynda- ríkur leikstjóri og nýtti sér þær tækniframfarir sem höfðu orðið á sviði leikhústækni af snilld. Þetta var á þeim árum þegar stofnana- leikhúsið hafði ekki verið fundið upp og ekki þótti sjálfsagt að halda leikhhúsum uppi á opinberu fé. Það var því fjárhagsleg nauð- syn fyrir Reinhardt og aðra í hans aðstöðu að sem flestir kæmu á sýningarnar og beinlínis yrði af þeim gróði. Hjarta hans og margra samtíðarmanna hans var einnig snortið af draumnum um leikhús allrar alþýðu, hið sanna þjóðarleikhús, eitthvað í líkingu við forngrískt leikhús, þangað sem menn sæktu sér annað og meira en stundarskemmtan. Sýningar hans urðu því smám saman æ hrikalegri í sniðum, teknískar orgíur með þúsundum st-atista, svo að við sjálft lá að manngrúinn á sviðinu yrði fjölmennari en áhorfendur, sem skiptu þó þús- undum. Flest venjuleg leikhús voru að sjálfsögðu allt of þröng fyrir slíkar sýningar og með miklum herkjum tókst Reinhardt að koma sér upp leikhúsi við eigin hæfi. Þetta var Grosses Schauspielhaus, sem tók til starfa árið 1919, einhver stærsta og glæsilegasta leikhúsbygging sem sögur fara af. En örlög hennar urðu önnur en ætlað var. Hljómburðurinn í áhorfendasalnum, sem var til- sýndar eins og dropasteinshellir, reyndist afleitur og hver sýningin á fætur annarri kolféll. Eftir aðeins fjögurra ára starf í húsinu neyddist Reinhardt til að hætta þar starfi og láta bygginguna öðrum eftir undir léttari skemmt- anaiðnað. Að hluta mun hún hafa verið sprengd í stríðinu, en hefur verið endurreist og er nú notuð undir sirkus og kaSarett. Þetta er forljótt hús með braggalögun og stendur austan múrs við torg Bertholt Brechts, til hliðar við leikhúsið við Schiffbauerdamm, leikhús Berliner Ensemble. Það er vonandi að hið nýja leikhús Schaubúhne am Halleschen Ufer eigi betri framtíð í vændum en Grosses Schauspielhaus Rein- hardts. Dr. Ing. Klaus Wever fullvissaði okkur í það minnsta um að allt sem stæði í mannlegu valdi yrði gert til að tryggja að hljómburðurinn í þessari stór- fenglegu byggingu yrði óaðfinnan- legur. Ég segi nánar frá þeim sýning- um Peter Steins sem ég sá á Schaubúhne am Halleschen Ufer í síðari grein minni um vestur- þýskt leikhús. Hér langar mig aðeins til að gefa lesendum smá- hugmynd um hvernig samfélagið og valdhafarnir búa að leikhúsinu í þessu landi. Þess ber vissulega að geta, að hverju sambandsríki er í sjálfsvaid sett, hvernig það gerir við leikhús sín og ekki munu stjórnvöld allra ríkja sýna þeim sömu umhyggju og borgaryfirvöld Vestur-Berlínar. Engu að síður þykist ég fullviss um að það ríki muni vandfundið sem býr leiklist sinni jafn mikið öryggi og velsæld og Þýska Sambandslýðveldið. En hvað kemur þá út úr þessum fjáraustri, geri ég ráð fyrir að einhverjir lesenda minna séu nú farnir að spyrja. Er vestur-þýsku leikhúsi ekki allir vegir færir, úr því að fjárskortur neyðir það ekki til að velja sér verkefni með tilliti til lýðhylli, eins og íslenskt leik- hús verður stöðugt að gera. Ég reyni að svara þessum spurning- um fyrir mitt leyti í síðari grein, en vitaskuld verða þau svör hvorki endanleg né traust eftir svo stutt og að ýmsu leyti ófullnægjandi kynni. Ég skal þó fúslega játa nú þegar, að ég hef með ráðnum hug gert sem mest úr ytra veldi vestur-þýsks leikhúss. Það mætti stundum halda á barlómi þeirra sem stjórna íslenskum leikhúsum að peningaleysið eitt komi í veg fyrir að þau rífi sig upp úr deyfð og vanahugsun og fremji hin stórfenglegustu afrek. Ég held því ekki fram að þessar kröfur eigi engan rétt á sér. En það eru gömul sannindi að maðurinn lifir ekki af einu saman brauði. í heimsókn minni til Vestur-Berlínar í fyrra- vor taldi ég mig fá fyrir því áþreifanlegar sannanir að þau gilda einnig innan leikhússins. Frá sjónarhóli manna á borð við Hans Kirchner er leikhúsið reikn- ingsdæmi sem verður að ganga upp. Annars vegar eru þarfir borgaranna, hins vegar þeirra sem vilja fá að búa til leikhús — og kúnstin er síðan að finna jafnvægi á milli þeirra. Kirchner viður- kenndi vissulega óbeint fyrir okk- ur að þetta gæti aldrei tekist til fullnustu, en með því að búa til fastmótaða og niðurflokkaða mynd af leikhúsþörfum almenn- ings gat hann haldið því fram að þau leikhús sem borgin styrkti gegndu öll nauðsynlegu hlutverki í samfélaginu. Vitaskuld gerði hann sér grein fyrir því að margir í hópnum voru ekki sérlega sann- færðir um ágæti þessa þjóðfélags, þar sem jafnvel stéttaandæstæð- urnar eru partur af skipulaginu, öðru vísi verður hrifning manns- ins af Grips og Schaubúhne vart skilin. En þó að hann léti svo mjög af leikhúsum, sem hafa á stefnu- skrá sinni að útrýma því þjóðfé- lagskerfi sem borgar honum kaup- ið sitt, gat hann ekki neitað því að miklu stærri fjárhæðum væri var- ið til leikhúsa sem aldrei geta gert annað en syngja áhorfendur í svefn. Hann var þó nógu klókur til að benda okkur ekki á það, sem við gátum lesið í upplýsingaplöggun- um frá Goethe-stofnuninni, að tölur um aðsókn sýna að óperur, óperettur og söngleikir njóta mun almennari vinsælda en aðrar teg- undir leikhúss. Hann þurfti því aldrei að játa fyrir þessum rauð- leita söfnuði að yfirvöld, — þ.e. hann sjálfur — tækju fremur mið af smekk íhaldssamra og róm- antískra áhorfenda en kröfum raunsærra og byltingarsinnaðra leikhúsmanna, þegar hann bryti brauðið, — og að leikhúspólitík hans væri þegar allt kæmi ti! alls engan veginn eins laus við póli- tískt mat og hann vildi vera láta. Við áttum eftir að hitta sér- fræðinga sem voru talsvert hreinskilnari við okkur um innra ástand þessa auðuga leikhúss. Nokkrum. dögum áður en heim- sókninni lauk hittum við að máli Prófessor doktor Henning Risch- bieter, einn virtasta leikhúsfræð- ing Vestur-Þýskalands. Próf. Dr. Rischbieter er hámenntaður maður, forseti leikhúsfræðideildar Freie Universitát í Berlín og einn af aðalritstjórum leikhústímarits- ins Theater Heute, þar sem hann hefur skrifað margar merkar greinar um leikhúsmál. Hann Var gráhærður, alskeggjaður maður um sextugt og setti hlutina fram á skilmerkilegan en nokkuð þurr- legan hátt. Það sem helst vakti athygli manns í útliti hans var að ekkert var eftir af vinstri hand- legg nema stúfurinn, sem tifaði líflega innan í skyrtuerminni, ekki síst þegar ákafi hljóp í umræðurn- ar. Ég sé á strjálum minnisblöðum mínum að fyrirlestraþreyta hefur verið tekin að hrjá mig, auk þess sem hiti var mikill þennan dag og eitrað stórborgarloftið ekki sér- lega hressandi. Frá einu rtjá ég þó til að skýra sem ég hefi hripað niður eftir Próf. Dr. Rischbieter. Hann sagði okkur frá því, að þýskir leikhúsfræðingar, sem hafa mikla unun af því að gera töl- fræðilegar og flóknar kannanir, hefðu af því áhyggjur að svo virtist sem kenning þeirra urn bein tengsl menntunar og leik- hússóknar stæðist ekki lengur. Samkvæmt kenningunni sækja því fleiri samfélagsþegnar leikhús sem menntun þeirra verður betri og almennari og fleiri hafa þær menningar og uppeldislegu for- sendur sem þarf til að njóta leikhúss. Nú hafa miklar framfar- ir orðið á sviði skólamála á síðustu áratugum í Vestur-Þýskalandi og því ætti leikhússókn að færast í vöxt meðal yngri kynslóðanna í hlutfalli við menntun þeirra. Að sögn Próf. Dr. Rischbieters leiddu rannsóknir þvert á móti í ljós að meðalaldur áhorfenda færi sí- hækkandi og af því mætti draga þá ískyggilegu ályktun að leikhús- ið næði ekki til þeirra sem ættu að erfa landið. Hann sagðist ekki treysta sér til að finna vísinda- legar skýringar á þessu fyrirbæri og ég minnist þess ekki að neinn hafi leitað eftir slíkum skýringum. Við vorum um þetta leyti búin að sitja nógu lengi undir vestur- þýskri leiklist til að geta sjálf lagt saman tvo og tvo. Próf. Dr. Rischbieter ræddi við okkur um mörg vandamál til viðbótar, sem yrði að leysa til þess að skipulag og rekstur vestur- þýsks leikhúss yrði fullkominn og óaðfinnanlegur. Mælsku hans virtust jafn lítil takmörk sett og annarra þjóðverja sem þarna töl- uðu yfir okkur og maður fór stórum fróðari af fundi hans. Þegar við vorum á leiðinni út, laut hollenski leikstjórinn, herbergis- félagi minn, að mér og sagði: „Do you think it happened in the war?“ Hann hafði skemmtilegan gálgahúmor, sem beindist líkt og ósjálfrátt að öllu þýsku; fjölskyldu hans, sem í voru eintómir Gyð- ingar, var útrýmt í stríðinu og sjálfur bjargaðist hann kornabarn undan þýskum morðingjum. Ég vissi samstundis hvað hann átti við. Það var engu líkara en við hefðum báðir minni áhuga á örlögum vestur-þýsks leikhúss en því sem hefði komið fyrir vinstri handlegginn á Próf. Dr. Hennjng Rischbieter. ÆGTARÍKI Skúli Einarsson: Öfund áöfund ofan Nú er öfund kerling heldur betur farin að spila í stóriðnrekandanum Davíð Scheving Thorsteinssyni, þegar þessi stórgróssér er farinn að ólátast út í að þjóðfélagsþegnum sé mismunað. Jú, þeim er sko mis- munað, því ég geri ráð fyrir að Davíð fái nógan gjaldeyri til að spila með á sínum ferðalögum og í sínu braski. Lítum á, ef ferðamaður skreppur í viðskiptaerindum og sér til hressingar þrisvar sinnum til útlanda í mánuði fær hann þrjár vínflöskur en sjómaður fær tvær flöskur eftir mánaðar útivist. Hver er munurinn? Þar fyrir utan er þetta gjaldeyrir sem sjómaðurinn aflar en hinn fer á lúxusflakk og hver sagði hlunnindi. Skyldi ekki Davíð fá billegra smjörlíki og tropicana en eru það ekki hlunn- indi og kannski fær hann meira,-og Skúli Einarsson. svo koma tollverðir og ganga allt að því berserksgang oft á tíðum í leit að smygli en afraksturinn verður oft á tíðum lítill og mikið starf unnið fyrir gýg. En mér er spurn. Er ekki skip orðið heimili manna, í það minnsta annað heimili, þegar menn dvelja þar vikum og mánuðum saman og eru ekki heimili manna friðhelg? En síðan koma í blöðunum stórar fyrirsagnir um afrakstur eftir árið og upp er talið bjór, vín, smjör og kjöt, ég segi nú svei. Ég hef sagt og segi breytta tollalöggjöf sjómönn- um í hag því þeir eiga það fyllilega skilið og svo að stóriðnrekendur þurfi ekki til sjós til að fá sinn bjór. Að vísu ætti að breyta henni öllum í hag því hún er eins og götóttur harmonikkubelgur, þá er von að linni þessum árásum á sjómenn af hendi tollvarða, eftir skipunum að ofan, en tropicana á dag kemur skapinu í lag, Davíð. Því ekki að búa svo vel að sjómönnum að þeir þurfi ekki að drýgja tekjur sínar með að kaupa nauðsynjar. Tel 3—4 kg. af smjöri og svipað af kjöti aðeins til heimilisnota en allt er bannað, svo er talað um hiunn- indi, já ekkert er of gott fyrir blessaða sjómenninga okkar eins og kerlingin sagði og eitt veit ég: Ef skertur verður hlutur sjómanna meira en orðið er veit ég að margir sjómenn ganga í land ef þeir eru þá ekki þegar byrjaðir að verða sér úti um yinnu í landi og hvað verður þá um ísland, Davíð, ef engir sjómenn verða til að afla gjaldeyris? Styrkið heldur sjómenn til dáða, alþjóð til heilla, og búum betur að sjómönn- um okkar eins og aðrar þjóðir en ekki þetta eilífa hnútukast. Skora ég nú á alla sjómenn að sameinast um að hrinda þessum ófögnuði af höndum okkar í eitt skipti fyrir öll, inn í samninga hvað við eigum og hvað við megum gera við okkar kaup, því gjaldeyrir er hluti af okkar kaupi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.